Google Docs

Ritað þann:    18. ágúst 2008
Efnisflokkar:  netið  nördadót  

Fyrir margt löngu skráði ég mig á Google Docs ásamt fleiri Google þjónustum.

Ég nota núna nær eingöngu Gmail (Google Mail) og les nánast allar fréttir og slíkt í gegnum Google Reader. Google mail getur einnig sótt póstinn af grettir.net domain-inu og merkir hann sem slíkan. Nóg pláss og alltaf aðgengilegur.

Google Calendar ætti að vera til á hverju heimili hvar önnur fyrirvinnan vinnur vaktavinnu og engin leið er fyrir dagvinnu plebba eins og mig að muna hvenær betri helmingurinn á að vera í vinnunni.

Ég hef ekki notað Picasa (Google myndaforritið), enda með slíkt magn af ljósmyndum að ég þyrfti að kaupa aukapláss fyrir tugi þúsunda til að koma því fyrir. Minn eigin server sér um það.

Og aftur að inntaki þessa pistils.

Google Docs hef ég ekki notað fyrr en nýlega og það er ekki aftur snúið. Nú þarf maður ekki neinn rándýran, flókinn office pakka, heldur býr maður bara til skjöl, spreadsheets, presentations og pdf skjöl í Google Docs.
Maður getur bæði uppfært, haldið við og bætt við skjölum í þetta án þess að senda endalaus skjöl á milli í tölvupósti með tilheyrandi vandræðum við að halda við hver er nýjasta útgáfan.

Ef einhver af samstarfsmönnunum þarf á Office skjali að halda, þá býður Google Docs upp á að senda skjalið í tölvupósti sem .doc, .pdf eða hvað sem er.

Nú á Google mig nánast hvað rafræn gögn varðar. Ef Google verksmiðjan brennur - segjum að starfsmannapartý fari úr böndunum og það verði óvarlega farið með sprittkerti - þá er ég í vondum málum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. ágúst 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Velkominn í hópinn, Google er málið. Ég er búinn að nota Google Documents í meira en ár núna og einu skiptin sem ég nota Office í dag er þegar vinnan krefst þess.

Annað. Það er stigsmunur á Picasa og PicasaWeb. Picasa er client sem þú setur upp á tölvunni þinni og bíður þér upp á að skipuleggja og manipulera myndirnar locally. Einu takamarkanir á plássi eru þær sem diskarnir þínir setja þér.

Picasa Web Albums hinsvegar bíður þér bara upp á eitt Gb, sem getur verið fljótt að fara ef þú birtir margar myndir á vefnum. Annars eru þeir syndsamlega duglegir að þjappa draslið sem þú sendir þarna inn þannig þetta Gb nýtist vel.

Aukalega langar mig að benda þér á Google Talk (frelsun frá MSN bloatinu), Web Master Tools og að sjálfsögðu Google Analytics en þau eru nauðsynleg í verkfærakistu vefstjórans og eru mikið notuð hérna á þriðju hæðinni á Lynghálsinum.

Go Crazy


 19. ágúst 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Já og ekki má gleyma Google Apps. Brandað Gmail og Apps fyrir grettir.net :-)


 19. ágúst 2008 ( - grettir ) [H]
Google er algerlega málið.. ég hef reyndar notað Picasa clientinn til að laga "Red eyes" og þannig skemmtileg heit, en ekki PicasaWeb.

Ég setti líka upp Google Talk, aðallega til að monitora inboxið mitt, en það er enginn af spjallfélögunum að nota þetta svo það er engin svoleiðis notkun í gangi.

En það er á hreinu að það er margt eftir að skoða :D


 20. ágúst 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Þar sem þú ert svona Code Monkey eins og ég, þá hefðurðu áræðanlega gaman af því að skoða code.google.com. En þar geturðu þróað vefhugbúnað í Python og hýst hann á Google skýinu.

Aaaaaaaalger snilld!


 20. ágúst 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
http://code.google.com/appengine/ átti þetta að vera


 21. ágúst 2008 ( - grettir ) [H]
Það vantar greinilega verknúmer fyrir google spekúleringar...


 21. ágúst 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Ekkert mál, ég skal redda því :-)