Nú er heldur betur farið að styttast í fríinu hjá mér - einmitt þegar ég er farinn að venjast því að vera heima.
Við erum búin að skottast út um allt land, fórum vestur á firði, í kjósina á sveitamarkað (kátt í Kjós), á Flúðir, út á Reykjanes og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég gæti alveg vanist því að vera heima að dingla mér með börnunum allan daginn - út að hjóla, róla og hlaupa, leika mér með fjarstýrða bílinn minn og hanga í grasagarðinum með teppi og nesti.
Já ég yrði svo sannarlega fínn milljarðamæringur.
Álagningarseðillinn minn frá skattinum sýnir samt hið gagnstæða.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..