Árekstrar

Ritað þann:    28. júlí 2010
Efnisflokkar:  líðandi stund  umferðin  

Ég hef í tvígang næstum lent í árekstri í fríinu mínu í sumar.

Í fyrra skiptið var ég að taka vinstri beygju í Lönguhlíðinni þegar einhver kemur bakkandi á fullu gasi á móti umferð upp götuna. Hafði líklega ætlað að beygja og ákveðið að það væri snjallræði að bakka að gatnamótunum til að leiðrétta villuna.
Ég var kominn út á gatnamótin þegar ég sá bakkljósin nálgast og mátti engu muna að ég fengi bílinn inn í bílstjórahliðina. Öll börnin voru með svo það mátti ekki miklu muna að illa færi.

Í seinna skiptið var ég einn í bílnum. Þá var ég að bíða eftir að komast inn á Dalveg. Nokkur umferð var og ég var búinn að bíða smástund þegar bíll kemur aðvífandi með stefnuljós eins og hann ætli að beygja inn á götuna þar sem ég beið. Ég rúllaði því bara af stað og treysti því að bílstjórinn væri að segja satt. Það var vitleysa. Þegar ég var kominn út á götuna sá ég að bíllinn var ekkert að fara að beygja. Stefnuljósastöngin hefur trúlega flækst í ermi bílstjórans eða eitthvað. Hann allavega snarhemlar, ég stíg í botn og rétt slepp framfyrir aðvífandi bílinn.
Nett sjokk fylgdi í kjölfarið.

Umferðin er rússnesk rúlletta. Það borgar sig greinilega ekki að gera ráð fyrir einu eða neinu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..