Skelfilegur dagur

Ritað þann:    06. mars 2010
Efnisflokkar:  börnin  

Gærdagurinn var skelfilegur.

Í fyrrinótt vaknaði drengurinn með tannverk. Við byrjuðum því daginn á því að panta tíma hjá tannlækninum hans. Við ákváðum líka að panta tíma fyrir stelpuna hjá barnalækni vegna hósta sem virðist ekki ætla að fara.

Upp úr 11 hringir konan með þau tíðindi að það sé einhver aðskotahlutur í eyranu á stelpunni; perla eða eitthvað slíkt. Það var því lítið annað að gera en að skella sér á Borgarspítalann og fá sérfræðing til að kíkja á málið.

Það gekk ekki að ná hlutnum úr eyranu og var ákveðið að svæfa stelpuna. Um eittleytið þurfti ég svo að fara með drenginn til tannlæknis. Við skiptum því liði og ég tók þá yngstu með mér einnig.

Um klukkan hálf tvö var ég með eitt barn sofandi á öxlinni meðan ég horfði á tannlækni meðhöndla drenginn minn og beið frétta af svæfingu miðjubarnsins.

Úr eyra stúlkunnar kom bleik plastperla úr einhverju armbandi eða dúkku hálsmeni. Hvað sem það var er það komið í ruslið ásamt fleiru smádrasli úr dótakassanum.

Um fjögur vorum við öll komin heim.

Kósíkvöldið í gærkvöldi var verulega syfjað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. mars 2010 ( Ingunn ) [H]
jesús minn, viðburðaríkur dagur hjá ykkur :/ Það er alveg hægt að segja að það sé full vinna að eiga börn ;)


 07. mars 2010 ( Konan .... ) [H]
Þau halda manni sko við efnið þessar elskur :-)