45 mínútur í vinnuna

Ritað þann:    26. febrúar 2010
Efnisflokkar:  ég  hjólreiðar  markmið  

Ég var 45 mínútur á hjólinu í vinnuna í morgun. Framan af voru allir stígar vel ruddir en þegar ég kom í Elliðaárdalinn versnaði í því og ég þurfti að teyma hjólið upp stokkinn. Restin af leiðinni var illa rudd og seinfær.

Ég er búinn að leggja grunninn að bestu harðsperrum sem hafa fundist í langan tíma, en ég var ekki enn laus við sperrurnar sem ég fékk á Taekwondo æfingunni á miðvikudaginn.

Ég verð 35 ára í vor. Stefnan er sett á að vera í mínu besta formi á þeim tímamótum. Þegar ég var 20 ára var ég í toppformi, 25 ára var ég með belg, 30 ára var belgurinn farinn en formið ekki komið. 35 verður formið komið aftur. Og ég er ekki að tala um hringlaga form eins og var vinsælt fyrir nokkrum árum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. febrúar 2010 ( Hjalti ) [H]
Ég var 50 mín, Á bíl... Maður fer að kaupa sér Hjól ef maður á að vera mættur á réttum tíma.


 01. mars 2010 ( - grettir ) [H]
Engin spurning. Hjól rúla. Og rúlla ef þannig liggur við :-)