Skipulagið í ólagi

Ritað þann:    08. febrúar 2010
Efnisflokkar:  líðandi stund  vinnan  

Við "sváfum yfir" okkur í morgun. Þ.e.a.s. við snúsuðum til korter í átta. Heragi var því við morgunverðarborðið, nesti og leikfimisföt voru tekin saman með hraði og ég var á elleftu stundu í vinnuna - en ég reyni að vera ekki seinni en níu svo ég geti verið kominn heim á skikkanlegum tíma.

Ég var sestur í sætið mitt á Lynghálsi; nýsturtaður; með heitt kaffi í könnunni þegar það er hringt: Sæll Grettir. Við erum hér. Hvar ert þú?

Ég átti að mæta á fund klukkan 9 niðri í bæ, en var búinn að hjóla upp alla ártúnsbrekkuna að óþörfu.

Þetta ætti að kenna mér að lesa calendarinn áður en ég legg af stað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..