1 til 19 af 19

Lekandi

Ritað þann:    30. september 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Klósettkassinn okkar er kominn með lekanda. Þetta er afar hvimleitt, því það er fátt minna hressandi en að koma fram á klósett með stýrur í augum og slím í munni og stíga í ískalt vatn sem búið er að leka úr kassanum um nóttina.

Það endar með því að ég næ í kíttistúbuna og; tja, laga þetta.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. september 2008 ( Ægir pípari ) [H]
píparar eru ódýrir í kreppunni


 01. október 2008 ( - grettir ) [H]
Það er þá það eina sem er ódýrt. Það er varla að maður tími að bora í nefið á sér þessa dagana


Besti bankinn er í eigu ríkisins

Ritað þann:    30. september 2008
Efnisflokkar:  ég  

Ég fór og lagði inn í banka í morgun. Eina bankinn sem hirðir ekki af manni hvern aur þegar maður sýnir á sér smettið, hefur enga vexti og er ákaflega þakklátur fyrir innleggið.

Ég fékk hrós fyrir það hvað ég er með "svakalega glæsilegar æðar". Í hvaða banka fengi maður svona hrós nema í blóðbankanum?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. september 2008 ( Ægir meistari ) [H]
langbesti bankinn. ég fór í dag og tappaði af tanknum


Glitnir í eigu ríkisins

Ritað þann:    29. september 2008
Efnisflokkar:  fréttir  pólitík  skandall  vinnan  

Einhverjum hefur kannski fundist 700 milljarðar dollara mikill peningur þegar bandaríska þingið vildi bjarga fjármálafyrirtækjunum á Wall Street.
Ef bandaríkjamenn eru 320 milljónir, þá eru þetta rúmlega 2100 dollarar á mann sem eru 210 þúsund íslenskar (verðlausar) krónur.

Í dag keypti ríkið 75% hlut í Glitni og borgar fyrir það 84 milljarða. Íslendingar eru ca. 320 þúsund og borgar því hver og einn fyrir það 262500 krónur (frétt á DV.is segir að hver íslendingur borgi 26 þúsund, en það er einfaldlega ekki rétt, reiknið bara sjálf)
http://www.dv.is/frettir/2008/9/29/hver-islendingur-borgar-26-thusund-fyrir-glitni/

Almenningur þarf því sem fyrr að borga fyrir sukkið. "Enginn krísufundur" sagði Geir á laugardaginn. Ég skil ekki þessa feimni við að viðurkenna að þeir séu að ræða málin. Það er eiginlega skandall að ekki sé búið að halda marga krísufundi.

Í dag er ég verktaki hjá fyrirtæki sem ég er óspurður orðinn hluthafi í.

Það er vægast sagt skrýtið andrúmsloft hérna í dag. Bömmer eiginlega.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. september 2008 ( Ingvar J. ) [H]
Þetta eru náttúrulega ekki kaup. Þetta er bankarán... Ríkið er að kaupa 75% í eign að verðmæti 233 milljarða fyrir 84 milljarða. Það eru því ca 150 milljarðar sem ríkið er að ræna frá hluthöfum bankans. Það er ekki skrýtið að Geir líti út eins Trölli sem stal jólunum...


 30. september 2008 ( Ingvar J. ) [H]
Miðað við opnun á Glitni í morgun þá er ríkið þegar búið að hagnast um 200 milljarða króna á bankaráninu.


 30. september 2008 ( - grettir ) [H]
Já, þetta er eitthvað verulega bogið.

Merkilegt fannst mér samt að kaupverðið skyldi vera gefið upp í Evrum. Treystu seðlabankastjórar ekki því að gengi krónunnar héldist stöðugt fram að kaupum? Velkomin í hópinn!


Tröllið sem stal góðærinu

Ritað þann:    26. september 2008
Efnisflokkar:  fimmaurar  fréttir  fyndið  kreppa  pólitík  

Mér var bent á það í gær að svipurinn á Geir Haarde forsætisráðherra þegar hann lokaði Nasdaq hafi verið svipaður og á trölla þegar hann stal jólunum.

Í þessari sömu ferð kom í ljós að Ingibjörg Sólrún er með góðkynja æxli í hausnum. Það er nú ekkert. Geir er með illkynja æxli í Seðlabankanum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. september 2008 ( Hafsteinn Ásgeirsson ) [H]
Ha,ha,ha,...þetta er hrikalega mikið satt frændi


 29. september 2008 ( - grettir ) [H]
Já, því miður er þetta blákaldur raunveruleikinn. Fréttir dagsins eru líka vægast sagt niðurdrepandi :-(


Hvað merkja litirnir?

Ritað þann:    25. september 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Það er afar misjafnt hvernig litir höfða til fólks. Mjög týpískt er að mála íbúðir í ljósum eða jafnvel hvítum litum til að stækka rýmið.

Flestir eru sammála um að rauður sé tákn ástarinnar. Í því samhengi er gaman að kíkja á heimasíðu Glitnis. Rautt þema sem mætti túlka sem ástríðu, hreysti (Reykjavíkurmaraþon) og styrk.

Spron er með grænt þema, sem að öllu leyti minnir mann á vorið, peninga, heppni (4ra laufa smári) og væri í allt hinn fullkomni litur ef þessi andskotans Framsóknarflokkur hefði ekki valið sér grænan lit - líklega af því að beljur bíta grænt gras.

Landsbankinn, minn viðskiptabanki, er með blátt þema. Blár virkar vel á mig. Róandi og traustur litur. Ég hef átt bláan bíl í mörg ár, þegar ég bý sjálfur til vefi hef ég yfirleitt eitthvað blátt, annaðhvort með eða algerlega ráðandi. Blár er friðsamur litur. Eins og himininn.

En hvernig er heimasíða Kaupþings? Svört eins og samviska þeirra. Ég hlakka mikið til þegar ég hef greitt mínar skuldir við þá skítastofnun.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

"Já, það er kominn vetur aftur"

Ritað þann:    25. september 2008
Efnisflokkar:  börnin  líðandi stund  

Í morgun þegar við feðgar komum út var ákveðin lykt í loftinu. Þið þekkið þessa lykt. Hún er köld, fersk og dáldið rök.

Ég segi við drenginn minn: "Finnurðu lyktina?"

Hann dregur djúpt andann og segir: "Já, það er kominn vetur aftur." Röddin var dáldið mæðuleg eins og hann saknaði ennþá heitasta dags ársins. Daginn þegar við keyptum okkur uppblásna útisundlaug og lágum í henni daglangt.

Það var góður dagur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Tómt batterí

Ritað þann:    24. september 2008
Efnisflokkar:  nördadót  tæki  

"Nýi" síminn sem ég fékk mér í febrúar er alltaf með tómt batterí. Og alltaf á morgnanna svo það endar með því að ég þarf að fara heim og sækja hleðslutæki.

Framleiðandi símans fær eflaust greitt mútufé frá Landsvirkjun og Olíufélögunum fyrir þessa þjónustu.

Ég er að velta því fyrir mér að skrifa forrit fyrir Nokia síma til að minna mig á þetta hleðslurugl.
Eða kaupa aukahleðslutæki til að hafa með í vinnunni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Lýðskrum

Ritað þann:    22. september 2008
Efnisflokkar:  peningar  pólitík  

Davíð Oddson segir þá vera lýðskrumara sem tala illa um krónuna eða gera atlögu að henni eins og hann orðaði það í vikunni sem leið:
"Atlagan gegn krónunni sem verið hefur er afskaplega ógæfuleg og óskiljaleg í rauninni og menn eiga ekki að leyfa sér hana um þessar mundir. Sjálfsagt er að ræða öll mál, Evrópumál, gjaldmiðlamál og þess háttar mál, en menn eiga ekki að láta það trufla sig og gefa í skyn og gefa fólki til kynna að menn geti leyst úr einhverjum vandamálum, sem menn eru með núna, með einhverjum töfraráðum af því bragði. Það eru lýðskrumarar af versta tagi sem þannig haga sér og maður hlýtur að hafa á þeim mikla skömm og mikla fyrirlitningu."

Að hugsa sér að þar skuli tala sami maður og sagði að íbúðaverð ætti eftir að lækka um 30% til ársins 2010 og gerði þar með atlögu að fasteignamarkaðnum og þeim sem eiga þó enn eitthvað í steypunni sem hlífir manni fyrir veðri og vindum.

Davíð stígur ennþá öðru hvoru niður af bleika skýinu sínu og segir okkur að halda kjafti.
Mikið vildi ég að einhver áhrifameiri en ég gæti sagt honum að halda kjafti.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Bónusgreiðslur fyrir "vel unnin störf"

Ritað þann:    22. september 2008
Efnisflokkar:  fréttir  peningar  pólitík  

Þeir eru hressir stjórnendurnir hjá Lehman Brothers bankanum enda fá þeir 2.5 milljarða dollar í bónusa fyrir vel unnin störf í þágu bankans sem þeir settu á hausinn.

Skilaboðin eru skýr. Þegar vel gengur, innleysirðu hagnaðinn og færð vel borgað. Þegar illa gengur, borga skattgreiðendur brúsann og þú innleysir hagnað.

Svipað og á Íslandi. Og á Íslandi fá þingmenn og ráðherrar svipaða umbun fyrir "vel unnin störf":
Kjararáð hefur ákvarðað forseta, ráðherrum og þingmönnum sína þriðju launahækkun á rétt rúmlega ári. Hækkunin gildir fjóra mánuði aftur í tímann.

Það er öðruvísi kerfi í Danmörku, enda ku vera gott að búa í Danaveldi. Þar er einn banki nú gjaldþrota:
Enn einn danskur banki varð í gær fórnarlamb lánsfjárkreppunnar. Danski seðlabankinn kom í gærkvöld EBH-bankanum á Jótlandi til bjargar til að hægt sé að halda rekstrinum áfram. Í tilkynningu frá stjórn bankans í gærkvöld segir að unnið sé að því í samráði við lánardrottna að selja dótturfélög bankans og gera hann tilbúinn undir samruna eða sölu. Bankastjórinn var rekinn.

Þetta er kerfi sem við þurfum að taka til fyrirmyndar, ekki bara í bankageiranum, heldur líka á Alþingi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Borgin tekur út kynbundin launamun

Ritað þann:    17. september 2008
Efnisflokkar:  fréttir  jafnrétti  pólitík  

Ég var að renna yfir fréttir undanfarna daga og rak augun í frétt sem mér þótti marka skref í átt til jafnréttis:
Borgin lætur taka út kynbundinn launamun

Ég hugsaði með mér vá, en töff.. um næstu mánaðarmót verða konur og karlar í sömu stöðum hjá borginni með sömu laun því ég bjóst auðvitað við því að í fréttinni stæði að borgin ætlaði að taka út launamuninn í merkingunni fjarlægja.

Nei, stjórnsýslan er aldrei svo einföld. Þarna var auðvitað átt við úttekt. Úttekt sem verður framkvæmd af einkaaðilum, kostar pening, vesen og tíma. Á meðan breytist borgarstjóradjobbið hægt og bítandi í láglaunadjobb.

Ég skil ekki hvers vegna ekki er hægt að hringja í manneskjuna sem borgar út laun og segja við hana:
Sendu mér lista yfir alla sem fá borgað út frá borginni, flokkað eftir stöðum

Hægðarleikur væri að renna í gegnum listann og finna hvar konur eru minna borgaðar en karlar og öfugt. Hækka svo og lækka þar sem við á og málið er dautt.

Ég treysti mér til að afgreiða þetta á einni kvöldstund.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. september 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Mér finnst alltaf vanta inn í þessa umræðu að taka þurfi tillit til menntunar og reynslu þegar verið er að meta launa greiðslur.

Ég er fylgjandi því að tveir jafnhæfir einstaklingar fái jafn mikið greitt fyrir sömu vinnuna. En að tala um kynbundinn launamun eins og það sé sneitt brauð og það þurfi að mæla þykkt sneiðanna get ég ekki samþykkt.


 20. september 2008 ( - grettir ) [H]
Góð líking :D

En já, það er í raun þetta sem er bilað. Það er ekki verið að taka tillit til menntunar eða reynslu heldur er "týpískum" kvennadjobbum haldið niðri sbr. ljósmæður og hverskyns umönnunarstörf sem útheimta þó margra ára menntun.
Svo er hægt að búa til djobb handa útbrenndum tónlistarmanni, láta starfsheitið enda á stjóri og þá fær viðkomandi 4-5x meiri laun en ella.

Spilling og ójafnrétti, það er það sem þetta er.

Hvaða kona ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum? Engin?


Góðar fréttir af efnahagsástandinu

Ritað þann:    11. september 2008
Efnisflokkar:  fréttir  kaldhæðni  

Geir vill meina að allt sé í himnalagi

Ég geri þá ráð fyrir því að verðbólguútreikningar verði endurteknir og ný og betri verðbólga verði hér strax á morgun.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Heimsendir

Ritað þann:    11. september 2008
Efnisflokkar:  byltingarkennd hugmynd  fimmaurar  

Skil nú ekkert í pizzafyrirtækjunum að nýta sér ekki allt þetta tal um heimsendaspár og hraðalinn í CERN og bjóða nú sem endranær upp á heimsenda(r) pizzur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ljósmæður

Ritað þann:    11. september 2008
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  jafnrétti  pólitík  

Ég verð nú að segja að það er ansi skítlegt eðli þeirra sem koma að samningaborðinu fyrir hönd ríkisins að geta ekki samið um almennileg og mannsæmandi laun handa ljósmæðrum.

Þær hefðu kannski átt að stilla verkfallsaðgerðum upp þannig að einhverjir með áhrif á þinginu ættu von á barni eða barnabarni.

Ekki það að ég óski þess að Árni Matt og Geir Haarde fjölgi sér frekar. Öðru nær.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. september 2008 ( - grettir ) [H]
Og nú er Árni búinn að drulla upp á bak:
http://www.visir.is/article/20080911/FRETTIR01/249044720

Ætli hann skeini sér sjálfur, eða fær hann undirlaunaða fagmanneskju til verksins?


Ruslfæði

Ritað þann:    08. september 2008
Efnisflokkar:  fyndið  netið  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hvað er kreppa

Ritað þann:    08. september 2008
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  neytendur  nöldur  peningar  

Ég rakst á ágætan pistil eftir Bjarna Harðar í einhverju fríblaðanna um helgina. Bjarni ber þá fötlun að vera framsóknarmaður en þrátt fyrir það kemur hann með ágætan pistil, með vísun í Vísindavef Háskólans, sem lýsir muninum á kreppu og samdrætti.

Samdráttur kallast það þegar atvinnuleysi eykst en kreppa þegar þú missir sjálf(ur) vinnuna. Þess vegna er engin kreppa hjá alþingismönnum.

Þarna er hann væntanlega að skjóta á Ingibjörgu Sólrúnu sem vill meina að það sé ekki kreppa.

Nú er ég þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa ennþá vinnu, en ég myndi nú samt kalla það kreppu þegar afborgunin af húsinu hefur hækkað um 10%, af bílnum um tæp 40% og aðrar skítaskuldir bera rúmlega 20% vexti.
Þetta væri kannski ekki kreppa ef launin hefðu hækkað í takt við vitleysuna, en það er aldrei þannig.

Svo veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta þegar forsætisráðherra landsins kemur tilbaka úr sumarfríi og segir að við eigum að framleiða meira! Er verið að hræða almenning í frekari álframleiðslu eða hvað?

Ef hægt væri að flytja út framkvæmdaleysi og aumingjaskap alþingis, þá værum við í góðum málum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hvað ætti bensínið að kosta?

Ritað þann:    05. september 2008
Efnisflokkar:  neytendur  nöldur  

Núna er það krónunni að kenna að ekki er hægt að lækka verðið á bensíni.
Atlantsolía er gengin inn í samráðsklúbbinn og engu hægt að treysta á þeim bænum lengur. Enda Skeljungur búinn að kaupa sig þar inn í gegnum Eimskip -> Atlantsskip.

Skoðum þetta aðeins. Þann 14. júlí náði heimsmarkaðsverð hæsta verði sem mælst hefur, 147 dollurum.






14.júlí5.sept
Bensínlíterinn á Íslandi: 181,90165,7
Verð á tunnu: $147$105
Gengi dollars: 76,987,7
Verð í íslenskum: 113049120

Lækkun á bensíntunnunni síðan 14. júlí má reikna þannig: 9120/11305 = 0,806 eða lækkun upp á 19,4%
Ef líterinn hefði lækkað um sömu prósentutölu síðan þá, þá myndi líterinn kosta í dag 181,9*0,806 = 146,6 krónur

Ætli maður geti ekki flutt inn bensín sjálfur?

Og ekki koma með bullið um að fjármagnskostnaður sé svo mikill í dag. Olíufélög eiga svo mikla peninga inn á bók að þeir eru að raka inn vöxtum dag frá degi, svo ef eitthvað er ætti bensínið að vera ódýrara.

Heimildir:
http://markets.ft.com/ft/tearsheets/performance.asp?s=us@CL.1
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/24/bensinverd_ur_takti_vid_heimsmarkadsverd/
http://www.shell.is/Einstaklingar/Eldsneytisverd
http://www.landsbanki.is/markadir/gengigjaldmidla/gengisthroun/?type=A#USD-ISK


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Leikskólinn

Ritað þann:    05. september 2008
Efnisflokkar:  börnin  

Leikskóli dóttur minnar er frábær.

Dóttir mín er með mjólkurofnæmi og er passað gríðarlega vel upp á það að hún fái aldrei neinar mjólkurvörur eða unnar vörur sem gætu innihaldið undanrennuduft og slíkan óþverra. Með morgunmatnum hefur hún fengið soya mjólk.
Enda hefur henni liðið vel í allt sumar og ekki orðið veik í margar vikur.

Um daginn fékk hún í magann og taldi ofnæmislæknirinn að hún væri jafnvel komin með óþol gegn soya. Heima höfum við verið að gefa henni rísmjólk og ef við bökum, þá notum við slíka mjólk, því soya mjólkin hentar illa í bakstur.

Á miðvikudaginn fórum við með hana á leikskólann með þessar fréttir - að hún mætti heldur ekki fá soya. Það skiptir engum togum að deildarstjórinn rýkur út í Nóatún og kaupir rísmjólk. Þegar við komum að sækja hana seinnipartinn var hún líka búin að fara í Maður Lifandi og versla allskyns mjólkurlausar vörur og þar á meðal mjólkurlaust "smjör" svo hægt væri að gefa henni almennilega að borða.

Enda líður dóttur minni afskaplega vel á leikskólanum og við höfum ekki misst dag úr vinnu síðan hún byrjaði. Allt þetta fyrir 21 þúsund á mánuði.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. september 2008 ( Dagný Ásta ) [H]
vá en þið heppin!!
Ég vona að það verði tekið svona vel á móti syni mínum þegar að því kemur að hann kemst inn á leikskóla, hann er einmitt líka með mjólkurofnæmi en enn sem komið er fær hann soyaþurrmjólk og ég er að reyna að fá hann til þess að drekka rísmjólk í staðinn en hann er e-ð tregur til, vill bara sína þurrmjólk ;)


 05. september 2008 ( - grettir ) [H]
Já, við erum ótrúlega heppin með leikskóla, ekki hægt að segja annað.

En stelpan okkar fékk aldrei þurrmjólk og því þurftum við ekki að venja hana af því. Henni fannst rísmjólkin algert nammi, enda vön því að fá vatn að drekka og soya út á seríósið á leikskólanum :-)


 05. september 2008 ( Margrét ) [H]
Klambrar eru alvöru, bara eðalfólk að vinna þar :-D


Fínt djobb laust til umsóknar - ertu í flokknum?

Ritað þann:    04. september 2008
Efnisflokkar:  fréttir  pólitík  

Um síðustu helgi var auglýst laus til umsóknar staða forstjóra Landsvirkjunar. Auglýsingin birtist meðal annars í fréttablaðinu.

Gerðar eru eftirfarandi kröfur til forstjóra:
Starfssvið
* Stefnumótun og markmiðasetning
* Áætlana- og samningagerð
* Stjórn á daglegum rekstri
* Seta í stjórnum dóttur- og hlutdeildarfélaga
* Samskipti við stjórnvöld og hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur
* Háskólamenntun sem nýtist í starfi
* Stjórnunar- og rekstrarreynsla
* Yfirgripsmikil þekking og reynsla á sviði fjármála
* Skilvirkni í eftirfylgni stefnumótunar
* Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
* Framúrskarandi samskiptahæfni
* Góð tungumálakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál

Þarna er greinilega verið að auglýsa eftir umsóknum og ætla mætti að farið yrði yfir umsóknirnar og ráðinn hæfasti einstaklingurinn án allra pólitískra áhrifa. Þess vegna er þessi frétt um að Vilhjálmur sé orðaður við forstjóra stólinn einkar sérkennileg. Þarna segir:
Aðspurður hvort hann tæki að sér starfið ef honum yrði boðið það segir Vilhjálmur einfaldlega: "Ég auðvitað velti öllu fyrir mér."

Er ég eitthvað að misskilja? Er mönnum boðin staðan eftir að greinilega er búið að auglýsa hana til umsóknar? Er Vilhjálmur búinn að sækja um, þrátt fyrir að vera með vinnu sem hann sagðist ekki ætla að yfirgefa, þrátt fyrir mótbyr? Slíkt væru svik við kjósendur.

Aðeins aftar í blaðinu er Ikea að auglýsa eftir svæðisstjóra kassasvæðis. Hann þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði.
* Stjórnunarhæfileikar
* Góð og rík þjónustulund
* Hæfni til að miðla áfram þekkingu
* Samviskusemi
* Góð tölvukunnátta
* Heiðarleiki og áreiðanleiki

Í grunninn eru þetta mjög svipaðar kröfum en eitt skilur þó svæðisstjóra kassasvæðis Ikea frá forstjóra Landsvirkjunar. Svæðisstjórinn þarf að vera heiðarlegur og áreiðanlegur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Viðhengi í tölvupósti

Ritað þann:    03. september 2008
Efnisflokkar:  börnin  líðandi stund  nördadót  

Ég fæ mikið af tölvupósti frá skólanum af ýmsu tilefni. Flestir þessir póstar koma með viðhengi.

Í tölvupóstinum er kannski sagt:
Kæru foreldrar,
búið er að ákveða eitthvað töff á næsta miðvikudag.
Sjá viðhengi.

Í viðhenginu stendur svo:
Töff verður framkvæmt á næsta miðvikudag klukkan 17:00

Núna var ég að fá tölvupóst og viðhengið er ónýtt og Word getur ekki opnað það.

Nú veit ég ekki neitt.

Hvers vegna er efni tölvupóstsins ekki í tölvupóstinum sjálfum? Viðhengi eru drasl.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..