1 til 15 af 15

Uppistand

Ritað þann:    28. september 2007
Efnisflokkar:  börnin  

Dóttir mín stóð upp í gær en hún verður 10 mánaða eftir viku.

Þegar ég var búinn að fagna gríðarlega, dreif ég mig í Byko og keypti allskyns barnalæsingar á skápa og skúffur og gúmmí til að setja á borðhorn.

Barnvænt skal það vera.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. september 2007 ( Írena ) [H]
Montrass :)
En samt æðislegt ;*
Kysstu hana frá mér :)
og hinn pjakkinn þinn líka ;*


 29. september 2007 ( Ingunn ) [H]
ohhh....hún er svo dugleg. Góð gen. Hún verður örugglega farin að labba þegar við pössum.


Borðað með félögunum

Ritað þann:    28. september 2007
Efnisflokkar:  ég  líðandi stund  matur  

Við hittumst á B5 í gær nokkrir félagar úr höfninni og átum kvöldmat.

Í eftirrétt fengum við okkur súkkulaðiköku með ískaldri mjólk. Hversu hressandi er það?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. september 2007 ( von ölves ) [H]
það var afar hressandi takk fyrir... raunar gríðar hressandi... mæli eindregið með þessu...


Flensusprauta

Ritað þann:    26. september 2007
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Ég fékk flensusprautu í gær.

Flensan ætti að fara láta á sér kræla núna seinnipartinn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. september 2007 ( sjérann ) [H]
Klukkan var að slá 18:00... hvurnig heilsast?


 28. september 2007 ( - grettir ) [H]
Ég slapp, en dóttir mín varð eitthvað lufsó. Ég var því heima hjá veiku barni í gær :-)


Okur

Ritað þann:    25. september 2007
Efnisflokkar:  neytendur  

Dr. Gunni hefur opnað Okur! síðu.

Það er víða okrið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Nýr frúarbíll

Ritað þann:    21. september 2007
Efnisflokkar:  bmw-inn  fjölskyldan  

Við seldum Toyotuna í gær og keyptum okkur BMW. Nú eigum við tvo BMW, einn stóran svartan fyrir konuna og börnin og ég hef gamla minn til að komast í vinnuna.

Við fengum að prófa hann í gær og það var ekki aftur snúið, 300 hestöfl, topplúga, navigation, skyggðar rúður (tvöfalt gler), loftkæling og gsm sími.

Gamli minn er að nálgast 300 þúsund km og verður keyrður út og ekki keyptur annar í staðinn. Hann hefur staðið sig vel og er ástæðan fyrir því að nýji fjölskyldubíllinn er úr BMW fjölskyldunni.


--edit--
Setti inn mynd fyrir ykkur drengir.. hún er reyndar úr auglýsingunni. Ég á eftir að smella myndum af honum í sínu náttúrulega umhverfi - við hlið þess bláa með konuna á húddinu :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. september 2007 ( Andrés ) [H]
Til hamingu. Vonandi keyptiru hann í umboðinu. Eina vitið. ;)


 21. september 2007 ( - grettir ) [H]
Haha, nei.. reyndar ekki. Tími ekki að kaupa nýjan. Þessi er 2003 módel, keyrður 79 þúsund. Eðalbíll alveg.


 23. september 2007 ( ægir pípari ) [H]
arrg hvað hann er flottur til hamingju með drekann


 24. september 2007 ( - grettir ) [H]
Takk takk :-)


 25. september 2007 ( sjérann ) [H]
vér setjum fram kröfu um að þér setjið inn ljósmynd af tryllitækinu!


 25. september 2007 ( von ölves ) [H]
krafa sú er studd af undirrituðum...


Primus

Ritað þann:    21. september 2007
Efnisflokkar:  ég  tónlist  

Ég er búinn að grafa upp nokkra gamla diska með Primus.

Þegar maður hlustar á Primus óskar maður þess að maður kynni á bassa. Fjandinn hafi það, maður óskar sér þess að vera ekki rammfalskur.
Ég var með tónlistarkennara í barnaskóla sem sagði mér að ég væri rammfalskur. Ég var átta ára og það situr greinilega enn í mér.
Þetta er svipað og ef stærðfræðikennari myndi segja við mann: "Þú ert mökk lélegur í stærðfræði!"

Hefði ég haft aldur og þor, hefði ég sagt við hann: "Þú ert lélegur kennari". Og farið svo í bassanám.

Jæja.. best að hækka í Primus.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. september 2007 ( von ölves ) [H]
ég vissi bara ekki að það væri hægt að hlusta á primus annarsstaðar en í hvíta golfinum hans ingvars...
en þú verður örugglega góður bassaleikari og ert velkominn að spila með mér í bogahlíðarbandinu nú þegar ég hef eignast gítar...


 21. september 2007 ( - grettir ) [H]
Já Golfinn.. good times.

Ég sá að það er búið að klippa af honum plöturnar. Hann ætti eiginlega að fara á rokksafnið.


 21. september 2007 ( von ölves ) [H]
uss... búið að klippa af honum plöturnar með hríseyjarlímmiðanum...

hann ER rokksafnið...


 22. september 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Jamm Golfinn er víst kominn úr umferð eftir góðan feril... Það er spurning um að halda minningarathöfn og spila gamlar kassettur mep Primus, Femmes og Pearl Jam og fá sér Tindavodka í sprite...


 23. september 2007 ( Hemmi ) [H]
Já, þið verðið að halda svona golfmót : )


Hversu marga áskrifendur þarf til að borga Agli?

Ritað þann:    20. september 2007
Efnisflokkar:  fréttir  nöldur  

Það kostar 72 áskriftir að Rúv á mánuði til að greiða fyrir bílinn undir rassgatið á útvarpsstjóra.

Þetta finnst Agli Helgasyni ekki mikið, því 750 áskriftir þarf til að greiða Ara Edwald forstjóra 365 miðla laun.

Þetta er skrýtinn samanburður.
Þessar 72 áskriftir eru bara bíllinn undir yfirmann Egils og engin laun tekin með í reikninginn. Páll er kannski bara þarna vegna bílsins? Ég held að það megi alveg smyrja 500 áskriftum á Pál í viðbót til að jafna leikinn og eflaust 400-500 í viðbót fyrir að ráða Egil til Rúv.

Fólk getur líka valið að borga Ara Edwald ekki laun með því einfaldlega að segja upp áskriftinni. Það er ekki í boði hjá Rúv. Ég byrjaði að fá gíróseðla inn um lúguna án þess að hafa nokkurn tíma sótt um áskrift.
Líklega hefur það verið á svipuðum tíma og fyrstu afborganirnar af nýja bíl Páls byrjuðu að berast.

Ég borga því minn hluta af bílnum undir Pál, launin hans og Egils án þess að hafa nokkuð um það að segja.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Spaugstofan

Ritað þann:    19. september 2007
Efnisflokkar:  fréttir  líðandi stund  

Það hefur verið mikið að gera undanfarið og ég hef því ekki getað verið besserwisser varðandi málefni líðandi stundar jafnóðum.

En svona er þetta bara.

Eitt af því sem fór hátt fyrir og um helgina síðustu var að Randver hafi verð rekinn úr Spaugstofunni.
Í fyrsta lagi kom það mér mikið á óvart að Spaugstofan skuli enn vera sýnd.
Í öðru lagi er fólk rekið á hverjum degi. Hverjum er ekki sama þó einhver leikari hætti í sjónvarpi og fari í leikhúsið?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. september 2007 ( von ölves ) [H]
meira besserviss, meira besserviss... vúhúúú!!!


 19. september 2007 ( - grettir ) [H]
Hehe.. ég reyni :-)


Dagmamma

Ritað þann:    19. september 2007
Efnisflokkar:  börnin  

Dóttir mín er byrjuð hjá dagmömmu.

Mér líður eins og hún sé að fara í háskólanám.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

18 mínútur

Ritað þann:    13. september 2007
Efnisflokkar:  nöldur  vinnan  

Að láta hringja út er eitt, en að láta hringja stöðugt í 18 mínútur er annað.

Einhverjum liggur greinilega mikið á að ná í náunga sem situr hérna á þarnæsta borði því síminn hringdi stöðugt frá 12:35 til 12:53.
Ef einhver svarar ekki borðsíma í vinnu eftir 3-4 hringingar, þá er viðkomandi augljóslega ekki við borðið sitt myndi flest fólk álykta.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. september 2007 ( von ölves ) [H]
var þetta bara ekki eitthvert faxtækið að hringja í rangt númer?


 16. september 2007 ( - grettir ) [H]
Ég pældi ekki í því.. en það má vera. Hitt er geðsýki á lokastigi.


Bréf lækka

Ritað þann:    12. september 2007
Efnisflokkar:  fimmaurar  fréttir  neytendur  

Ég er ekki hissa á fréttum þess efnis að bréf Tryggingarmiðstöðvarinnar hafi lækkað í dag. Við vorum nefnilega að tilkynna tjón.

Í fyrrakvöld byrjaði uppþvottavélin að pípa og þegar ég kíkti í eldhúsið flæddi vatn um allt. Ónei, hugsaði ég.. nú verð ég að vaska upp í höndunum.

Við hvolfdum handklæðunum úr óhreinatauinu í eldhúsdyrnar og náðum að koma í veg fyrir að vatnið flæddi út á gang á sérinnflutta parketið sem einhentar nunnur pússuðu með Pampers rassaklútum - enda hefði TM þá farið á hausinn.

En að öllu gríni slepptu, þá fengum við prýðis þjónustu hjá TM. "Ef þú er tryggður, þá færðu það bætt" slagorðið þeirra virðist eiga við rök að styðjast.

Annað en helvítis merðirnir hjá Verði sem gleyma að senda út gíróið og segja svo að maður sé ótryggður - en þeir geti sent út gíróseðilinn næst.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sumarspikið tekið af

Ritað þann:    12. september 2007
Efnisflokkar:  ég  íþróttir  

Ég er að byrja í ræktinni (hefja ræktun) eftir bjórdrykkju sumarsins.

Meira ólánið að bumbuspikið á manni skuli ekki vera í laginu eins og sixpack. Það væri fjandi þægilegt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. september 2007 ( Margrét og börnin ) [H]
Gott nafn á bumbuna er að kalla hana "Bjögga" (björgunarhring) það er svo gott að persónugera allt svo að hlutirnir verði svona heimilislegir og sætir :-D


 13. september 2007 ( sjérann ) [H]
Ég sem hélt að kútur væri betra en six pack ;o)


 13. september 2007 ( - grettir ) [H]
Þú segir nokkuð.. bjórkútur. Bjöggi bjórkútur!


 13. september 2007 ( von ölves ) [H]
einhverjir... hóst!.ásgeir.hóst!... eru alltaf að tala um að hafa kassa og sixpack... en ég hef látið mér nægja að hafa þetta bara allt í einum kút...


 13. september 2007 ( - grettir ) [H]
Þegar maður pælir í því, þá er það mikið hagræði. Þá getur maður sagt upp gym áskriftinni og keypt bjór fyrir peninginn!


Icelandairwaves

Ritað þann:    07. september 2007
Efnisflokkar:  tónlist  

Hressandi að Bloc Party verði á Icelandairwaves í ár.

Hér er myndband í tilefni að því..

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. september 2007 ( von ölves ) [H]
já.. hressandi!


 08. september 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Á ekki að skella sér?? Ég ætla...


 11. september 2007 ( - grettir ) [H]
Jú, það er stefnt að því..


Afmælistertan

Ritað þann:    06. september 2007
Efnisflokkar:  ég  fyndið  líðandi stund  

Ég fór í barnaafmæli um síðustu helgi. Þegar flestir gestirnir eru mættir bjóða foreldrar afmælisdrengsins fólkinu að gjöra svo vel.

Eitthvað af börnum hættu sér að veisluborðinu og fengu sér muffins og eitthvað slíkt, en flest fullorðna fólkið sat sem fastast. Ég - verandi svangur - stóð upp og tók sittlítið af hverju á diskinn. Þar á meðal mjög gómsæta súkkulaðiköku sem enginn hafði snert.

Þegar ég er sestur heyri ég að það á að fara að syngja afmælissönginn. Allir fara inn í eldhús, byrjað er að syngja, kveikt er á afmæliskertinu og teknar eru myndir.

Á miðju borðinu er afmælistertan og það vantar í hana eina sneið - sneiðina sem ég gleypti í einum bita þegar ég fattaði hvað ég hafði gert.

Mér leið eins og Ross í afmæli húsvarðarins. Mér var reyndar ekki hent út.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Heimsendir ávextir

Ritað þann:    03. september 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  íbúðamál  matur  

Við pöntuðum ávexti frá Ávaxtabílnum í síðustu viku og fengum heimsent 5 kíló af ávöxtum, partýbakka af grænmeti og svona eplaskera sem býr til báta. Nokkurs konar bátavél.

Við þrifum gömlu íbúðina mína á laugardaginn og afhentum. Tepparinn var búinn að lofa að koma á fimmtudaginn til að teppaleggja stigaganginn, en sveik það eins og iðnaðarmönnum og fasteignasölum er von og vísa. Stigagangurinn var því ansi subbulegur við afhendingu, en mér skilst að tepparinn sé mættur vestur í bæ núna og farinn að vinna.
Nýju eigendurnir ættu því að koma inn í ægifagran stigagang í kvöld eins og lofað hafði verið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. september 2007 ( von ölves ) [H]
voruð þið svikin af iðnaðarmanni?... það getur ekki verið!!!
ég átti eldhús síðast í maí... nú er því lofað í okt... gott ef ég næ að elda jólasteikina...


 03. september 2007 ( ægir pípari ) [H]
takk takk bíðið bara hahahaha


 04. september 2007 ( - grettir ) [H]
Konan hringdi og skammaðist. Seinnipartinn var komið teppi.

Ég man þetta næst þegar ég fæ þig í vinnu Ægir :) Þá sendi ég bara Margréti á þig. Það ber árangur.


 04. september 2007 ( ægir pípari ) [H]
ætli það sé ekki nóg að segja að þér hættið að gera við tölvuna hjá mér og ég kæmi á ljóshraða


 05. september 2007 ( - grettir ) [H]
Hehe, já ætli það ekki..