1 til 16 af 16
Sauður undir stýri
Ritað þann: 30. september 2006
Efnisflokkar: bmw-inn skandall
Í gær gerði ég grín að fólki sem kann ekki að keyra í myrkri. Seinnipartinn kom í ljós að ég hefði betur þagað.
Ég var á gatnamótum Lönguhlíðar og Miklubrautar, leiðinni inn á Miklubraut ásamt tveimur öðrum. Við vorum komnir vel út á gatnamótin, það var komið rautt og lítið annað að gera en að gefa í og koma sér yfir áður en úthverfalýðurinn kæmi inn í hliðina á manni á leið sinni úr miðbænum.
Þá stoppar fremsti bíll - hélt líklega að kona á umferðareyjunni ætlaði út á götuna. Bíll A stoppar líka, en bíll B (ég) er eitthvað að blaðra við konuna og glápa á umferðarljósin og keyri aftan á bíl A.
BMW-inn er aðeins bögglaður, en ekkert alvarlega.
Það kom svo í ljós að ökumaður bíls A býr á ská fyrir aftan mig. Lítill heimur.
Þetta er minn fyrsti árekstur í höfuðborginni og vonandi sá síðasti (fyrir utan það þegar keyrt var aftan á mig en ekkert skemmdist og þau ótal skipti sem einhver hefur keyrt á bílana mína kyrrstæða).
Ég kíkti aðeins út á götu í gær þegar búið var að slökkva ljósin. Ég sá varla neinn mun, enda ljós í hverjum glugga.
Þrjú umferðaróhöpp urðu í myrkrinu.
Það virðist sem að fólk hafi almennt virt ábendingar lögreglunnar að vettugi um að halda kyrru fyrir á meðan á myrkvanum stóð.
og seinna í fréttinni:
Einnig bárust lögreglu ábendingar um ökumenn sem stöðvuðu bíla sína á gatnamótum til að fylgjast með myrkvanum.
Nú er ég ringlaður.. áttu menn að halda kyrru fyrir, en máttu ekki stoppa?
En þeir sem lentu í árekstri vegna myrkursins ættu ekki að vera með bílpróf. Það er takki í öllum bílum sem gjarnan er hægt að snúa upp á. Þið vitið.. á stýrinu. Hann er til að kveikja ljósin á bílnum. Morons.
Ekki væri ég til í að mæta svona kókópöffs ökumönnum fyrir utan borgarmörkin.
SLR myndavélar
Ritað þann: 28. september 2006
Efnisflokkar: ljósmyndun
Ég á
HP Photosmart vél sem er búin að ferðast víða og taka margar skemmtilegar
myndir. Gallinn við þessa vél er sá að hún er aðeins of stór til að fara vel í vasa og of lítil til að taka magnaðar myndir.
Þess vegna langar mig í alvöru vél sem hægt er að taka alvöru myndir á.
Ég er aðeins búinn að skoða þetta og líst ansi vel á
Canon 350D og
Nikon vélarnar sem eru reyndar dýrari.
Ég hef sjálfur lítið vit á þessu og skoða þess vegna helst prufuskotin í þessum reviews hjá
dpreview.com
Ég vil auðvitað hafa gott úrval af linsum og geta notað þau SD kort sem ég á. Sony er þess vegna alveg út úr myndinni (fyrir utan það að ég versla aldrei Sony eftir
DRM rootkit skandalinn). Staðlar eru málið. Sony memorystick og rootkit vírusar ekki.
Nú spyr ég ykkur, kæru lesendur, hvaða vélar eru bestu kaupin? Passa allar linsur á þessar SLR vélar?
Númeraðar biðraðir
Ritað þann: 28. september 2006
Efnisflokkar: nöldur
Djöfull er pirrandi fólk sem fylgist ekki með sínu númeri þegar það er að bíða í röð - er blaðrandi í símann, borandi í nefið eða bara almennt úti á þekju eins og aular.
Svo kallar afgreiðslu maðurinn/konan: 70.. 70.. 70.. *bíb* 71
híhí, afsakið, ég er númer 70
Svo kemur næsti afgreiðandi og hækkar í 72 og þannig er 71 dottin úr röðinni, þökk sé heimskri belju sem ekki fylgdist með.
Afgreiðslufólk - látið viðskiptavini ekki komast upp með sauðshátt. Næst þegar einhver kemur allt of seint, bendið þá á rauða baukinn og segið fólki að taka nýtt númer.
Ég hef varla hreyft legg né lið eftir Reykjavíkurmaraþonið. Nú stendur til að breyta því. Fór í gymmið í dag og fæ vonandi myndarlegar harðsperrur á morgun.
Það var gestagangur hjá okkur á Háteigsveginum í gær. Fyrst mættu Gísli og Guðrún í kaffi og þau voru varla farin þegar tengdó mættu í kaffi. Ilmurinn af jólakökum, muffins, vöfflum og nýlöguðu ribsberjahlaupi svifu yfir póstnúmeri 105 líkt og enginn væri morgundagurinn. Já, ég er góður bakari þegar ég tek mig til.
Seinnipart dags mætti svo Þráinn æskuvinur minn með glænýtt barn til sýnis.
Restin af fiskunum gaf upp öndina á laugardaginn. Nýju ryksugurnar hafa því líklega borið með sér fuglaflensu og drepið allt og alla með sér. Búrið fékk því að fjúka í ruslatunnuna með öllu fylgjandi.
Til stendur að versla nýtt og
flottara búr. Verklagsreglurnar verða þannig í nýja búrinu að nýbúar verða hafði í einangrun þar til fengin er vissa um að engin sé pestin þeim fylgjandi.
Talandi um fuglaflensu. Fyrr í sumar var hún í hverjum fréttatíma, oft á tíðum tvisvar, í öllum blöðum og hvar sem maður heyrði fréttir.
Gufaði hún upp eða komust menn að því að lyfjafyrirtækin voru á bakvið mestu söluherferð sögunnar?
Það verður sorg þegar drengurinn kemur heim af leikskólanum í dag. Annar gullfiskurinn drapst í nótt. Spurning um að laumast í fiskabúðina og versla einn áður en ég fer heim í dag.
Guðlaugur Þór býður sig fram í sama sæti og Björn Bjarnason til næstu kosninga og við það tilefni er haft eftir
honum á visir.is með vísan í heimasíðu hans:
Björn Bjarnason sagði á heimasíðu sinni í fyrradag að það væri ekki vænlegt fyrir frið í flokknum að menn væru að bjóða sig fram hver gegn öðrum.
Hérna er auðvitað kjörið tækifæri fyrir sérsveitina - sem Björn dreymir um að stofna - að stilla til friðar.
Ég hélt líka að markmið prófkjörs væri einmitt að bjóða sig fram hver gegn öðrum, en ekki raða hverjum og einum í þægilegt sæti. En við vitum nú öll hvernig lýðræðið hjá þeim bláu er orðið.
Ég var á ferðinni um Ártúnsbrekkuna áðan þegar
þetta gerðist.
Fullur bíll af gleri út um allt. Það verður gaman að sópa þetta saman.
Konan var að vinna alla helgina, svo ég og drengurinn tókum okkur til og týndum fullan kjötsúpupott af rifsberjum í garðinum okkar. Í kvöld á svo að gera sultu úr afrakstrinum og bjóða fólki í vöfflur.
Horfði á rockstar í gær. Hef vanalega ekki nennt að vaka eftir því en hef frekar horft á endursýningarnar.
Ég fékk nettan kjánahroll þegar fótbolta fréttamaðurinn Snorri spurði einn viðmælanda sinn hvort rokkarar væru nokkuð spes tónlistarmenn.
Ég veit ekki hvaða standard hann setur svo menn séu góðir tónlistarmenn, en eitt er víst - hann ætti heldur að halda sig við fótboltafréttir. Hann virðist hafa álíka mikla þekkingu á tónlist og ég á fótbolta. Ég gæti spurt í svipuðum dúr - eru þeir sem klæðast bláum búningum nokkuð spes fótboltamenn?
En Magni stóð sig ágætlega, eins og oft áður. Út á það gekk þetta víst.
Aumur hádegismatur = enginn blóðsykur
Ritað þann: 12. september 2006
Efnisflokkar: ég matur nöldur
Meiri vesalingur sem maður er.
Ég hef trassað það dáldið lengi að fara í Blóðbankann, en dreif mig núna eftir hádegið þar sem söfnunarbíllinn var í hverfinu.
Í hádegismat var einhver súpa. Súpur eru forréttur og neita ég því að borða svoleiðis. Ég fékk mér því gúrkur og annað meðlæti í hádegismat, því í mínum huga er grænmeti ekkert annað.
Með slíkan "mat" í bumbu er maður eins og undin tuska þegar búið er að tappa blóði af manni. Ég var - grínlaust - í svona korter fölur og fár inni í blóðbílnum, étandi kleinur og drekkandi ávaxtasafa.
Það er mannréttindabrot að fá ekki almennilegt að éta í hádeginu. Og - eins og ég hef nú komist að - sársaukafullt.
Unginn
Ritað þann: 12. september 2006
Efnisflokkar: börnin
Unginn minn stækkar hratt þessa dagana. Ég þarf að halda fermingarveislu áður en ég veit af.
Byrjar nú sá tími þar sem barnið getur greint hluti með sjón sinni.
Hvernig kveikir maður ljósið hérna...
Ég eyddi smá púðri í gær í að loka fyrir
spam í athugasemdum hérna á grettir.net.
Ég hef sloppið vel við þetta í gegnum tíðina, því ég gerði vefinn sjálfur og ekki verið að nota tilbúnar lausnir sem þessi úrhrök sem spammarar eru hafa verið að ráðast gegn.
Fyrir nokkrum mánuðum fékk ég hinsvegar bunka af spammi á eina færslu hérna og greip til ráðstafana. Eftir því sem ég skoðaði aðferðina sem spammarinn notaði betur, því sannfærðari varð ég um að hann væri handvirkt að prófa hvað myndi virka á þessa síðu.
Ég hefði verið uppi með mér ef ég hefði ekki verið svona fjandi pirraður á þessum anskota.
Ég er búinn að vera með eina aðferð í prófun dáldið lengi til að loka á þetta sem felur í sér að ég sé allar athugasemdir sem koma, bara svona til að sannfæra mig um að ég sé ekki að loka á "löglegar" athugasemdir. Nú er ég sannfærður um að hún virkar og nú er engin miskunn. Allar IP tölur sem senda inn spam athugasemd fara sjálfvirkt í bann töflu í gagnagrunninum og mega fara í rassgat mín vegna. Ekki fá þær aðgang að servernum mínum.
Ég væri til í að hitta fokkerinn sem dundar sér við að spamma mig - með kúbein. Ef hann les íslensku sem mig er farið að gruna, þá hef ég eitt við hann að segja: fáðu þér vinnu fíflið þitt.
Óeirðir
Ritað þann: 05. september 2006
Efnisflokkar: fréttir
Hvað er að gerast með unglingana í dag? Um helgina er skæruhernaður í Skeifunni þar sem lýðurinn grýtir lögreglubíla (sem ég og þú erum að borga af) og í
gærkvöldi ógna unglingsstúlkur lögreglu sem mætir á svæðið eftir kvartanir um hávaða.
Þessar "unglingsstúlkur" eru 12 og 13 ára. Það sem þarf að gera við svona vandræða gemlinga er að taka þá á hné sér og rassskella duglega.
Nei svona grínlaust, er ekkert uppeldi í gangi? Eða er bara gúrkutíð í fréttum?
Á sunnudaginn gaus upp svaka skítalykt í húsinum sem átti rætur sínar að rekja til niðurfallsins í sturtunni. Hræðilegar hugsanir flugu í gegnum hausinn á mér sem allar enduðu með því að ég fæ illt í veskið.
Í gær fékk ég Ægi pípara til að kíkja á málið. Niðurstaðan var ónýtt eitthvað drasl sem á að halda lyktinni ofan í niðurfallsræsinu. Hann keypti einstreymisloka í næstu búð sem ég skellti í og málið er dautt og skítalyktin er lokuð úti.
Hjúkk!
Þetta var næstum því verri kúkalykt og þegar sjálfstæðisplebbarnir ákváðu að endurræsa þá litlu æru sem býr í Johnsen á meðan forsetinn brá sér frá. Þegar ég verð forseti afnem ég þetta rugl að menn geti bara hreinsað æru sína eftir að hafa stolið mínum peningum á meðan þeir voru í starfi fyrir mig.
Til hamingju sjálfstæðisflokkur. Nú eruð þið búnir að drulla upp á bak. Ef það var einhver séns á að ég myndi kjósa ykkur aftur, þá hvarf sá möguleiki endanlega núna.
Þýsk fjölskylda var í vandræðum í gær við sjálfsafgreiðslu ÓB (ég var alveg bensínlaus og hefði ekki komist á Atlantsolíu stöðina).
Fjölskyldan ýtti á "Deutsch" og komu þá upplýsingar um að setja kortið í, slá inn pin og þetta týpíska á þýsku. Þegar það var búið kom á fagurri íslensku "Sláið inn úttektarupphæð"
Þetta setur auðvitað allt úr skorðum hjá fólki sem skilur ekki baun í íslensku. "Sláðu inn dælunúmer" var næsta setning og ekki skildu þau það neitt frekar.
Það er greinilega ekki gert ráð fyrir því að útlendingar eigi að geta bjargað sér sjálfir um "ódýrt" bensín.
Ég bjargaði þeim að sjálfsögðu og er að undirbúa reikning til olíufélagsins þar sem rukkað verður fyrir notendahjálp. Kannski ég slái af þrjár krónur - svona til að vera líbó.
Ég skipti um hæð í vinnunni í dag. Nýja skrifborðið mitt er með mótor sem gerir mér kleift að hækka og lækka það með einum þar til gerðum takka. Algjör snilld, því fólk er misstórt, það er staðreynd.
Svo býður þetta upp á þann möguleika að vinna standandi. Minnir mann á gömlu tímana í frystihúsinu þegar ég var unglingur og maður stóð upp á endann frá sex á morgnanna til tólf á kvöldin.
Svo ef ég verð einhvern tíma leiður á vinnunni minni þá opna ég gluggann þegar það er frost úti, hækka borðið, stend upp, bleyti sokka og hendur, set úldinn fisk á skrifborðið og kveiki á Rás 2.
Good times maður!