1 til 17 af 17
Skyr og Þrumari
Ritað þann: 29. september 2003
Efnisflokkar: ég íþróttir
Fór í bumbu rétt eftir hádegi, en í dag var skyr og þrumari á borðum. Get alveg hiklaust ekki mælt með því að hlaupa með slíka samsetningu af mat í belgnum.
Annars er ég að byrja á fullu í gymminun aftur eftir sumarletina, því bestu buxurnar mínar hafa hlaupið í sumar [set upp Davíðs sólgleraugun og þykist ekkert fatta] og þarf ég að halda inni maganum til að hneppa.
...
- grettir :: koma svo...
Ég man þegar Fóstbræður voru og hétu. Snilldarþættir. Hvernig í veröldinni stendur þá á því að þessir bræður eru bara alls ekki fyndnir einir og sér? Þeir eru bara eins og höfuðlaus her án hvers annars.
Tvíhöfði án Jóns Gnarr: Boring.
Morgunþáttur Jóns: Boring.
Atvinnumaðurinn hans Þorsteins: Boooooring.
Svo er ég þannig að ég get ekki horft/hlustað á svona vandræðalega leiðinlega þætti, ég verð sjálfur vandræðalegur.
...
- grettir :: en nú er að koma helgi og þá lagast allt
Tilboð sem þú getur ekki hafnað
Ritað þann: 23. september 2003
Efnisflokkar: neytendur
Orðinn húseigandi er eftir miklu að slægjast fyrir Tryggingafélögin að ná mér í net sitt. Það er til húseigendatrygging, brunatrygging og ég veit ekki hvað. Og svo náttúrulega bílatrygging.
Fékk tilboð um daginn frá einu félaginu í allan pakkann, en eins og staðan er í dag, þá er ég með þetta dreift á öll glæpasamtökin.
Ég vissi ekki hvort ég átti að hlægja eða gráta þegar ég sá tilboðið. Allar tryggingar hjá mér hækkuðu um einhverja hundrað kalla, nema bílatryggingin sem lækkaði um tvö þúsund kall miðað við það sem ég greiði núna. Fyndna við það var, að hún var svona "lág" vegna afsláttar upp á sex þúsund kall sem ég fengi ef ég tæki allan pakkann.
Ein og sér yrði hún sum sé fjögur þúsund rúblum dýrari en hjá núverandi glæpasamtökum.
...
- grettir :: hvað er að?
Crash recovery 101
Ritað þann: 22. september 2003
Efnisflokkar: nördadót
Ég og mínar hugdettur. Fékk þá snjöllu hugmynd að það væri hressandi fyrir geisladrifið mitt að "flassa" það, en fyrir þá sem ekki vita, þá þýðir það í stuttu máli að maður uppfærir drifið í von um að það skemmist ekki og verði hressara á eftir.
Í stuttu máli varð fyrri kosturinn fyrir valinu og geisladrifið lenti í andláti og dró tölvuna niður með sér í fallinu. Ekki veit ég hvað þetta blessaða forrit gerði, en það gerði allavega ekkert gott.
Sem betur fer var ég með laptop draslið með mér og gat leitað ráða á netinu. Bestu ráðin sem ég fann voru: "Don't do it!!"
Alltaf hressandi að vera vitur eftir á.
Eftir nokkrar sveittar mínútur fann ég leið til að redda draslinu og repeat after me: aldrei á ævinni verður farið í svona æfingar aftur.
Fyrir þá sem lenda í slíkum hremmingum einhvern tíma, þá læt ég fylgja reddinguna, hinir geta hætt að lesa, enda um hundleiðinlegt efni að ræða:
//
Vélin finnur ekki primary ide diskinn og bootar ekki, eins og flassið hafi skemmt boot sectorinn, primary harði og geisladrifið voru á sama ide kapli.
Sækja Dos boot floppy maker
hér ef maður á ekki bootable dos floopy (eins og ég).
Fylgja síðan leiðbeiningum
hér. MtkFlash er einfaldlega bent á drifið og flassað upp á nýtt með nýja firmware-inu.
Volla. Drifið komið aftur.
...
- grettir :: hjúkk
Með strætó
Ritað þann: 22. september 2003
Efnisflokkar: ferðalög

Í dag er frítt í strætó og allir hvattir til að nýta sér þennan stórskemmtilega ferðamáta. Ég kíkti nú á
bus.is og rannsakaði hvernig ég kæmist í vinnuna með þessu gulu ferlíkjum. Ég geri ráð fyrir því að vera mættur klukkan 09:00
Tvær leiðir komu til greina, raðað eftir fljótlegustu leið.
Leið 1 gerir ráð fyrir því að ég leggi af stað kl: 07:38 og er þá kominn í vinnuna 08:31
Leið 2 gerir ráð fyrir því að ég leggi af stað kl: 07:43 og er þá kominn kl: 08:43
Fyrir mér eru báðir kostir slæmir, en leið 2 þó skárri. Þess má geta að ég er rúmar 10 mínútur á bíl. Frítt eða ekki, ég er ekkert að fara leggja bílnum.
...
- grettir :: ætti maður að prófa í eitt skipti?
Íslenskt sjónvarpsefni
Ritað þann: 19. september 2003
Efnisflokkar: sjónvarp
Hvað er málið með hugmyndaleysið við framleiðslu á nýju sjónvarpsefni? Nú er Sigmundur Ernir byrjaður með þátt á Skjá einum sem heitir Maður á Mann, Jón Ársæll er með Sjálfstætt fólk á Stöð 2 en báðir þættir eru bara stæling á Maður er nefndur sem Ríkiskassinn sýnir (sýndi, veit ekki hvort hann er ennþá, ábyggilega samt). Innlit útlit er líka í þessum flokki.
Þetta er allt sorp af verstu gerð og skiptir maður um stöð með rakettureyk þegar slíkan viðbjóð ber fyrir augu.
...
- grettir :: 70 mínútur er það skásta íslenska sem er í gangi núna
Fékk nú smá hland fyrir hjartað í morgun þegar lögreglan stoppaði fyrir aftan mig á rauðu ljósi. Ég er nefnilega með grænan 5 miða þar sem ég hef ekki enn farið með bílinn í skoðun síðan ég var stoppaður með filmurnar í apríl. Ég er mikið að spá í að fara ekkert með hann fyrr en að ári, en það tekur aðeins á taugarnar að vera óþekkur.
Býst við að þetta sé alvarlegasti glæpur sem ég hef orðið uppvís að og er það vel. Ekki beinlínis góðkunningi lögreglunnar..
En mér til happs, þá var svo viðbjóðslega kalt í morgun að þó ég hefði verið eftirlýstur af Interpol, þá hefðu þeir ekki nennt út úr bílnum og skil ég þá vel. Föðurland og lopapeysa hefði verið vel við hæfi.
...
- grettir :: smooth frozen criminal
Almennilegar aðgerðir
Ritað þann: 16. september 2003
Efnisflokkar: neytendur töff
Ólíkt okkur letihaugunum hér heima á skeri, þá
kunna ítalir að mótmæla.
Sé ekki alveg fyrir mér að við næðum samstöðu um svona mótmæli. Ef brauðið og mjólkin hækkar hressilega, þá byrjum við bara á því að fara í apótekið og versla KY eða Vaselín svo það verði ekki eins vont að láta taka sig.
Eina sem við höfum náð að lýsa vanþóknun okkar á er yfirgengilega hátt verð á lambakjöti. En þá grenja bændasamtökin yfir því að það sé ósanngjarnt hvað svín og hænur eru ódýrar. Það hvarflar sko ekki að þeim að lækka ketið. Frekar urða þeir það eða senda til Færeyja.
...
- grettir :: hættur í me me ketinu
Nú keppast menn við að koma með sögur af saklausum borgurum sem lenda í lögsóknum vegna músik dreifingar. Hjartnæmasta sagan er af einhverri 12 ára stelpu sem á að lögsækja.
Ég var nú að velta því fyrir mér hvort að sá sem er skráður fyrir nettengingunni er ekki kærður? Ætli foreldrar hennar hafi skráð hana fyrir ADSL áskriftinni? Má vera, kanar eru náttúrulega ekki eins og fólk er flest, því þeir eru flesk.
Anyhow, þá finnst mér
þessi saga alger snilld. Þarna gera menn bara grín að auðtrúa hálvitum sem halda að allt sem þeir lesi á netinu sé heilagur sannleikur.
Passið ykkur. Það segja ekki allir alltaf satt, það er vont fólk þarna úti.
...
- grettir :: ég er góður og segi alltaf satt *geislabaugur*
Blámenn
Ritað þann: 11. september 2003
Efnisflokkar: töff tónlist
Var að uppgötva alveg ljómandi hljómsveit sem kallar sig Blue Man Group. Fáránlegt nafn, en
myndirnar tala sínu máli.
The Current er líklega lagið sem kom þeim á kortið, en það er að finna í Terminator 3, sem ég á reyndar eftir að sjá. Skilst að það sé ekki af miklu að missa.
...
- grettir :: ætli þetta séu geimverur?
Mikilvægasti maður á landinu
Ritað þann: 09. september 2003
Efnisflokkar: fyndið

Varð þess heiðurs aðnjótandi að sjá mikilvægasta mann á landinu. Veit nú reyndar ekki hvað hann heitir, en hann var svo mikilvægur, að hann þurfti að taka símann með sér í sturtu eftir ræktina og geyma hann á vaskinum; ef einhver skyldi nú hringja á meðan hann skolaði rassa- og púngalyktina af sér.
Talandi um að vera mikilvægur. Gleymdi símanum mínum heima í dag. Ef það er eitthvað meira pirrandi en að gleyma símanum heima, þá er það að koma heim og sjá að það hefur enginn hringt.
...
- grettir :: trúi því ekki að maður þurfi að eiga kærustu til að fá símtöl
Óðir gröfumenn
Ritað þann: 09. september 2003
Efnisflokkar: fyndið
Fólk yfirleitt er þannig að því líkar illa óvæntar breytingar. Eins og þegar fólk fer í vinnuna, þá finnur það vanalega sína uppáhaldsleið og heldur sig við hana. Dæmin sýna að fólk sem ferðast með neðanjarðarlestum fer jafnvel niður göngin þó það sé kviknað í brautarstöðinni.
Núna eru óðir gröfumenn í fullu starfi við að grafa burtu allar götur hérna uppi á hálsum svo leiðin mín í vinnuna er öll í steik. Á hverjum degi fer ég samt alltaf sömu leiðina og vona að þetta sé nú að verða búið. En nei. Vanalega er bara búið að grafa fleiri götur í sundur og maður er eins og hamstur í völundarhúsi og veit ekkert hvert maður á að fara.
Mig grunar að glæpaveitan standi fyrir þessu svo hún geti smurt aðeins ofan á orkureikninginn um næstu mánaðarmót.
...
- grettir :: spurning um að sækja um að fá að vinna heima?
Um helgina gerðist nokkuð skrýtið
Ritað þann: 08. september 2003
Efnisflokkar: bjór fyndið íþróttir
Undur og stórmerki áttu sér stað um helgina þegar ég brá undir mig betri fætinum og horfði á fótboltaleik í Laugardalnum. Er ég að verða vitlaus myndu sumir kannski spyrja, enda gengur þetta þvert á mitt lífsmottó, en það er að falla aldrei í þá gryfju að hafa gaman að tuðrusparki.
Þetta var nú bara merkilega skemmtilegt. Ekki endilega leikurinn sjálfur, heldur bara stemmingin að fá sér bjór með félögunum, púa og rífa hár sitt á réttum augnablikum, að ég tali nú ekki um að standa upp og fagna gríðarlega þegar einn af okkar mönnum kemst yfir á hinn vallarhelminginn með tuðruna. Já, þetta er merkilegt sport.
...
- grettir :: strákarnir okkar
Hvað skyldi gerast um næstu mánaðarmót
Ritað þann: 05. september 2003
Efnisflokkar: neytendur
Ef eðlilegir viðskiptahættir tíðkuðust á skerinu ætti bensín að lækka um 8% um næstu mánaðarmót samkvæmt
þessari frétt.
En vitiði til. Aumingjarnir í innkaupadeild olíufélaganna hafa ábyggilega keypt alltof mikið á háa verðinu í síðasta mánuði og eiga miklar birgðir sem þarf að klára.
Ef ég ætti olíufélag, þá væri ég löngu búinn að reka þennan vesaling sem kann ekki að versla ódýrt.
...
- grettir :: grettis-oil
Sænskir vísindamenn og ég
Ritað þann: 05. september 2003
Efnisflokkar: ég fréttir fyndið
Fyrir nokkrum vikum
talaði ég um það í lítilli athugasemd hve fáránlegur þessi handfrjálsi búnaður væri og það væri símtalið sem væri truflandi.
Nú hafa sænskir vísindamenn komist að sömu niðurstöðu og segja ótal aðra þætti vera álíka truflandi, eins og að reykja, éta og skipta um geisladisk.
Í fréttum í gær var svo rætt við umferðarráð sem tók undir þetta. Sögðu að símtalið gæti verið tilfinningaþrungið og þar fram eftir götunum.
Ég spyr því líka: ætti ekki að banna bílstjórum að tala við farþegana í bílnum? Fólk getur verið að rífast um pólitík (ekki ég) eða fótbolta (ekki ég heldur), hætta saman eða ræða fjármálin. Allt stórhættulegt og tilfinningaþrungið.
En punkturinn með þessu er sá að við getum bara lagt niður sænska vísindamenn og ég get tekið að mér að koma með snjöll heilræði og hressandi kenningar um málefni líðandi stundar.
...
- grettir :: ég í Kastljósinu? Já takk.
Asskotans
Ritað þann: 04. september 2003
Efnisflokkar: bmw-inn slen
Haustkvefið mitt lætur sig ekki vanta frekar en fyrri haustin. Þann fyrsta sept. byrja ég alltaf að fá í hálsinn, svo stíflast nefið og ég hnerra eins og smákrakki allan daginn. Fór í apótekið og keypti hlussu C-vítamín til að eyða óværunni.
Nú vantar bara að maður geti farið að skafa á morgnanna, þá fyrst verður þetta almennilegt. Annars er ég að spá í að fjárfesta í fjarstarti fyrir veturinn, það er úber sniðugt. Horfa á Ísland í býtið, étandi skyrið á meðan bíllinn hitar sig bara í góðum fíling fyrir utan.
En ég var alveg ýkt óheppinn um daginn. Sprengdi dekk og tók ekki eftir því fyrr en dekkið var orðið ónýtt (tók reyndar ekki einu sinni eftir því að það væri ónýtt, fannst bara vera hálf lint í því). Þetta er eitthvað spes dekk sem á að geta sprungið á rúmlega 200 án þess að maður missi stjórn á bílnum. Aukaverkanirnar eru hins vegar þær að maður tekur ekki eftir því að það sé sprungið þegar maður keyrir á hundrað.
Gaurarnir á verkstæðinu hringdu fyrir mig á einhverja dekkjasölu og stykkið af svona dekki kostar litlar 30.200 kr. takk fyrir.
...
- grettir :: þar fór fjarstartið
Adrenalín á malarvegi
Ritað þann: 01. september 2003
Efnisflokkar: bmw-inn fyllerý
Það munaði nú ekki miklu að við yrðum ekki til frásagnar um atburði helgarinnar. Á leiðinni í Húsafell er nefnilega smá malarkafli og má segja að hjartað hafi tekið nokkur aukaslög þegar við mættum einum á flugtakshraða góðrar þotu.
Hann hafði greinilega ekki gert ráð fyrir því að menn væru að flækjast fyrir honum á rallý sérleiðinni og hemlaði með ægilegum látum. Þar sem ég var á agalega lítilli ferð, var ég orðinn stopp alveg úti í kanti þegar hann sveiflaðist framhjá og jós yfir okkur grjóti og drasli, en litlu munaði að skottið á kvikindinu dúndraðist framan á bimmann.
Eftir þessa millimetra mætingu flaug hann út í skóg. Við ætluðum nú eitthvað að fara að kíkja á heilaleysingjann, en hann spólaði aftur upp á veg og lét sig hverfa. Líklega búist við því að við myndum berja hann. Sem hann hefði alveg átt inni.
Bústaðurinn var annars hressandi þegar við loksins fundum hann (þurfti ekki að máta lykilinn nema einu sinni á röngum bústað).
En þá var bara fírað upp í grillinu og látið renna í pottinn.
...
- grettir :: æjá, datt líka á hausinn og fékk glóðarauga