1 til 17 af 17

0 kr.

Ritað þann:    28. ágúst 2009
Efnisflokkar:  peningar  

Ég opnaði besta Visa reikning sem ég hef fengið í 14 ár:
Til Greiðslu nú: 0 kr.

Þá er bara að snúa sér að næsta láni og senda það sömu leið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. september 2009 ( Hjalti ) [H]
Lang best að vera eins og ég.. Á ekkert visa kort, Og hef aldrei tekið yfirdrátt :D


 02. september 2009 ( - grettir ) [H]
Ég er ekki svo heppinn :-|


 03. september 2009 ( Hjalti ) [H]
Ég missti af góðærinu... Það hlítur að koma annað eitthvern tíman :)


 04. september 2009 ( - grettir ) [H]
Maður skapar sér sitt eigið góðæri :-)
Að hætta að nota Vísa er ágætis byrjun.


Hann Borgar

Ritað þann:    27. ágúst 2009
Efnisflokkar:  fyndið  kaldhæðni  

Kunningi minn einn heitir Borgar. Hann fékk ósjaldan að heyra brandarann Hann Borgar þegar farið var á djammið og þótti alltaf jafn fyndið.

Lýður einn Guðmundsson kenndur við Exista hefur kannski fengið að kenna svipuðu gríni með djammfélögum sínum í gamla daga. Lýðurinn borgar hafa félagarnir kannski sagt og slegið á lær sér í gríni.

Og þannig varð Exista til.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Fullir eða ófullir

Ritað þann:    26. ágúst 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  pólitík  

Ég horfði á "háttvirtan" þingmann blaðra tóma þvælu í ræðustól á myndbandi á netinu áðan.

Ég sá ekki mikinn mun á þvælunni þeirri sem ég sá og þeirri sem kemur vanalega úr þeim stól.

Þann stól mætti rífa, setja stimpilklukku í andyrið og láta fólk fara að vinna eins og það sé komin 21sta öldin.

Ég get ekki ímyndað mér að vinnan mín gengi vel ef við ræddum málin úr ræðustóli.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sumrinu lokið

Ritað þann:    24. ágúst 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Skólasetning í dag hjá drengnum okkar.

Í gamla daga þýddi það að sumrinu var formlega lokið. Það þýðir það enn.

Enda var rigning og vindur í morgun. Ég sníkti far í vinnunna, enda með smá "rubber legs" eftir laugardaginn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hlaupið til góðs

Ritað þann:    21. ágúst 2009
Efnisflokkar:  íþróttir  

Jæja, nú fer hver að verða síðastur að heita á mig í Reykjavíkur Maraþoninu.

7500 kall kominn (ef ég skila mér í mark). Kærar þakkir til þeirra sem trúa því að ég geri það :D

Nú er ég að spá í að drífa mig niður í laugardal að sækja bolinn minn og flöguna.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
61 mínúta og 40 sekúndur (flögutími).
Það er rúmum 10 mínútum betra en síðast.

Með sömu bætingu verð ég kominn niður fyrir 10 mínúturnar fyrir fimmtugt.


 23. ágúst 2009 ( Konan :* ) [H]
Svo stolt af þér :-D


 24. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
:*


 25. ágúst 2009 ( Sigga Hrönn ) [H]
Sælir - sá þig immit á laugardaginn. var sjálf að hlaupa þú virkaðir svo einbeittur að ég þorði ekki að trufla þig.
Var að hlaupa í fyrsta skipti og ætla aftur þetta var hrikalega gaman!


 26. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Já, það var mikil einbeiting í gangi :D
Gleymdi músikinni minni heima og þurfti að hugsa alla leiðina!


Hjól atvinnulífsins

Ritað þann:    19. ágúst 2009
Efnisflokkar:  ég  fyndið  líðandi stund  myndir  

Svona fer ég heim í dag:



Hjól atvinnulífsins er töffaða Trek hjólið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. ágúst 2009 ( Ægir Pípari ) [H]
Trek 4300 ef ég man rétt 27 gíra shimano, v bremsum og fisléttu álstelli frábært hjól, ekki skrítið að þú notir gripin svo mikið


 21. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
24 gíra :-)

En jú, frábært hjól að öllu leyti. Ég setti hraðamet á heimleið í vikunni, 68 kílómetrar á klukkustund spank you very much og var ekki nema 21 mínútu heim, litlu lengur en væri ég á bíl.


 22. ágúst 2009 ( Ægir ) [H]
damn, hvar náðirðu þessari rosa fer? Ég náði reyndar yfir 80km hraða niður ártúnsbrekkuna einhvern tíman er ég var á götuhjóli en 68km á fjallahjóli er alveg helvíti gott


 22. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Niður brekkuna í Elliðaárdal (áður en maður kemur að stokknum).
Meðvindur og góður halli.


Skilanefnd tapar hlutum

Ritað þann:    19. ágúst 2009
Efnisflokkar:  spilling  

Eins og ég nefndi um daginn þá virðist vera ákveðinn heilaþvottur í gangi um að skilanefnd sé að eignast hin og þessi fyrirtæki, sem er skrýtið þar sem skilanefnd er skipuð fólki sem þiggur laun líkt og ruslakarl þiggur laun fyrir að tæma tunnur fólks að morgni.

Nú kemur í ljós að skilanefnd getur líka tapað hlutum eða eins og segir í frétt á Pressunni:
Landsbanki Íslands getur ekki leyst til sín kvóta Magnúsar Kristinssonar þar sem hann á einungis 12. og 13 veðrétt í honum, er fullyrt í DV í dag. Þar segir jafnframt að skilanefnd Landsbankans tapi á því að setja Magnús í þrot. (Feitletrunin er mín.)

Svona eins og þjónustufulltrúar Landsbankans tapa á því að maður greiðir ekki reikningana sína á réttum tíma.

Það verður að stoppa þennan heilaþvott.

Skilanefnd er skipuð lögfræðingum sem þiggja laun af ríkinu - okkur. Þeir eiga ekki nokkurn skapaðan hlut sem þeir eru að vinna með fyrir okkar hönd, ekki frekar en bensíntittur á dæluna sem hann notar við sína vinnu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. ágúst 2009 ( Matti ) [H]
Tja, þeir eru tæknilega ekki að vinna fyrir okkar hönd heldur kröfuhafa bankanna.


 19. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Jú, ég myndi segja að þeir væru að vinna þarna fyrir okkar hönd. Þeir eru skipaðir af viðskiptaráðuneytinu ekki satt.

Þeir eiga auðvitað að vera að vinna að hagsmunum kröfuhafana, en það er ríkið (við) sem réðum þá til starfans.

En hvort sem er, þá er ekki rétt að tala um að skilanefnd sé að tapa nokkrum hlut, heldur kröfuhafarnir.


Frístundaheimilin

Ritað þann:    18. ágúst 2009
Efnisflokkar:  börnin  

Drengurinn okkar er búinn að vera í Frístund - frístundaheimilinu við Háteigsskóla í sumar. Það er ekkert smá flott dagskrá alla vikuna fyrir krakkana, sundferðir, söfn skoðuð, farið í Nauthólsvík, í Húsdýragarðinn og haldnar grillveislur.

Ekki spillti fyrir þegar Velferðarsjóður íslenskra barna veitti starfinu styrk svo vikan í sumarfrístundinni kostaði ekki nema 2100 kr. sem er bara snilld í kreppunni.

Takk fyrir okkur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Rændur um helgina

Ritað þann:    17. ágúst 2009
Efnisflokkar:  fyndið  kaldhæðni  líðandi stund  peningar  

Það eru gamlar fréttir að bankastofnanir landsins ræni mig og mína.

Um helgina reyndi ég að taka út pening úr hraðbanka. Bankinn spurði mig samviskusamlega um kvittun, sem ég þáði. Bankinn bað mig næst um að taka kvittunina, þá kortið og gerir sig líklegan til að spýta út verðlausum pappírssnifsunum út úr þar til gerðri rauf framan á bankanum.

Surgið sem fylgdi boðaði ekki gott - enda gapti bankinn tómlega á móti mér líkt og farinn væri á höfuðið.

Hann gerði aðra tilraun. Meira surg. En allt kom fyrir ekki.

"Upp hefur komið bilun í vélbúnaði" stóð feitum rauðum villulegum stöfum á skjánum í skamma stund áður en mynd af hressilegum þjónustufulltrúa birtist með loforð um greiðsluaðlögun, fjármálaráðgjöf og heimilisbókhald.

Bankinn var tilbúinn fyrir næsta fórnarlamb.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. ágúst 2009 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Fór upphæðin út af reikningnum þínum?


 17. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Já, hún gerði það.

Á bankanum eru neyðarnúmer kortafyrirtækjanna (Borgun og Valitor), en þeir gera ekki neitt fyrir debetkorta eigendur.

Þá verður maður að ræða við starfsmann á plani sem sér um að gera upp bankann.

Það er í ferli..


 17. ágúst 2009 ( Ingunn ) [H]
Hraðbankinn í þorlákshöfn rændi einu sinni öllum peningnum mínum klukkan 5 á föstudegi.......það varð lítið um djamm þá helgi :/ en ég fékk peningin aftur löngu seinna þegar hraðbankinn var gerður upp!


 18. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Maður myndi nú halda að það væri ekki flókið að forrita einn svona banka til að "bakfæra" ef hann fattar sjálfur að það hafi komið upp bilun í vélbúnaði.

En hvað veit ég - tölvunarfræðingurinn.


Þráinn úti - eða inni

Ritað þann:    14. ágúst 2009
Efnisflokkar:  fréttir  kaldhæðni  kjánalegt  pólitík  spilling  

Nú hefur Þráinn sagt sig úr Borgarahreyfingunni af ástæðum sem ég nenni ekki að fara yfir hér en þá veltir maður því fyrir sér hver taki við af honum. Hver er hans varamaður í hreyfingunni?

Því kjósendur voru ekki að kjósa í persónukjöri - heldur var verið að kjósa flokka. Flokkurinn/hreyfingin á sætið en ekki þingmaðurinn.

Það er alveg bannað að skipta um flokk á miðju tímabili og færa þannig öðrum flokki auka sæti sem hann hlaut ekki í kosningum, er það ekki?

Hvað skyldi gerast? Hmmm..

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. ágúst 2009 ( Tryggvi ) [H]
Það sorglega í þessu er að Þráinn hélt sig við kosninga loforðin en þrenningin ekki svo sá sem ekki svíkur málstaðinn er fórnarlamb hér
meira hér: http://don.blog.is/blog/don/entry/930848/


 14. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Já, það virðist vera eitthvað eitur í vatninu þarna í steinkofanum á austurvelli.
Það verða allir kolbilaðir af því að vinna þarna.

En ég hef svo sem ekkert á mót Þráni, kaus hann (eða listann hans í Rvk Norður) meira að segja í kosningunum í vor vegna ESB loforðana.

Það þarf að lyfta þessu alþingi til nútímans. Hvernig haldið þið að vinnan hjá okkur "venjulega" fólkinu myndi ganga með þeim fornaldarvinnubrögðum sem gilda í þingstörfum, ræður og riflildi, bakstungur og hagsmunapot?


 14. ágúst 2009 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Þráinn mun að öllum líkindum eins og aðrir liðhlaupar úr flokkum sitja í sínu sæti áfram eins og reglurnar segja til um. Þarna er dálítið ósamræmi í kosningum og hver "á" þingsætið.


Hvers vegna eru prófanir mikilvægar?

Ritað þann:    14. ágúst 2009
Efnisflokkar:  myndbönd  netið  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. ágúst 2009 ( Jón Óskar ) [H]
ég átti engan veginn von á hvernig þetta endaði. bjóst við meira "margin", ef svo má segja. hressandi.


 14. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Ég segi það sama.. ég átti von á tug fermetra dýnu til að taka við gaurnum, en nei.. lítill sullupollur var það heillin.


Rússar hressir

Ritað þann:    13. ágúst 2009
Efnisflokkar:  fréttir  kaldhæðni  

Samkvæmt frétt á pressunni drekka rússar 18 lítra af hreinu alkóhóli á ári, sem gerir 45 lítra af 40% vodka eða næstum líter á viku.

Sem er auðvitað ekki nema einn einfaldur á dag. Hver fær sér ekki einn sjúss með cheerios-inum á morgnanna?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Æðasláttur

Ritað þann:    12. ágúst 2009
Efnisflokkar:  íþróttir  

Ég er með hálfgerðan æðaslátt í lærunum eftir gærdaginn. Hjólaði 15 km og hljóp svo 8,1.

Stundum vildi ég að það mætti fara á á bíl í þetta blessaða Reykjavíkur maraþon.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

kPlaylist

Ritað þann:    12. ágúst 2009
Efnisflokkar:  netið  töff  tónlist  

kPlaylist er það besta síðan sneitt fransbrauð.

Nú þarf ég ekki að hjóla með fartölvuna mína í vinnuna (þar sem ég hef fartölvu í eigu viðskiptavinar) heldur get hlustað á mína músik heiman frá mér í gegnum browser.

kPlaylist er með flash spilara sem spilar músikina beint, tengingu við last.fm til að sækja plötuumslög og lyrc.com.ar fyrir texta með lögunum.

Ég sakna samt iPodsins sem ég týndi fyrir næstum ári.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skilanefnd eignast hluti

Ritað þann:    10. ágúst 2009
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  spilling  

Ég er að renna stuttlega yfir fréttir eftir sumarfríið mitt og rakst á tvær fréttir um skilanefndir bankanna:

Skilanefnd Kaupþings eignast veitingahús

Skilanefndir Kaupþings og Glitnis eignast banka

Það er ansi fínt að vera skipaður í nefnd, taka fyrir það himinhá laun og eignast svo bara hlutina sem nefndin er að höndla með.

Dáldið eins og að vera stöðumælavörður og hirða allt klinkið sem kemur úr mælunum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

The one with the routine

Ritað þann:    10. ágúst 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Í dag hófst rútínan að nýju eftir eitt það besta sumarfrí í manna minnum.

Krakkarnir komnir í frístundarstarfið og á leikskólann og ég hjólaði í vinnuna.

Við erum búin að skrá okkur í Reykjavíkur maraþonið, ég ætla að hlaupa 10km og krakkarnir ætla í Latabæjarhlaupið. Ég hef ekki verið alveg nógu duglegur að æfa í fríinu en vonandi kemst ég í mark því ég er að hlaupa til styrktar Gigtarfélagi Íslands.
Öll áheit eru vel þegin :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Berserkur

Ritað þann:    06. ágúst 2009
Efnisflokkar:  skandall  

Helvítis melur ræðst á dauða hluti.
Nú þarf ég að redda nýrri rúðu.

Það var minn sem vakti íbúana sem kölluðu til lögreglu.

Þjófavarnarkerfið hefur stundum farið í gang á nóttunni, sérstaklega þegar ég bjó á Framnesvegi. Menn labba framhjá, taka í húninn til að tékka hvort bíllinn er ólæstur, kerfið fer í gang og skúnkarnir flýja. Eftir nokkrar ferðir á náttfötunum út um miðja nótt hættir maður að nenna og snýr sér á hina hliðina og slekkur með fjarstýringunni eftir 30 sekúndur eða svo. Þá eru yfirleitt aularnir á brott og engin ástæða til að rífa sig upp um miðja nótt.

Þess vegna snéri ég í bælið þegar ég hafði slökkt í nótt.

Næst verður athugað hvað er á seyði - helst með kylfu í hönd.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Jæja, búinn að kæra melinn. Megi hann skemmta sér vel við að vinna fyrir kröfunum.


 08. ágúst 2009 ( spritti ) [H]
Æi þessar andskotans þjófavarnir. Ég er búinn að láta rífa hana úr sambandi í mínum bíl. Sá ekkert gagn í henni þar sem hún fór alltaf í gang löngu eftir að búið var hreyfa við bílnum. Ef brotist hefði verið í bílinn hefðu þjófarnir tekið það sem þá vantaði og hlaupið á brott í þann mund sem þjófavörnin fór í gang. En allavega. Leitt með rúðuna í bílnum þínum.


 09. ágúst 2009 ( Ægir Pípari ) [H]
Samhryggist, en leyfi mérað minna á Bílaglerið upp á höfða er alveg frábært verkstæði og ekki skemmir að þar er Bjarki fyrrum bjórbílstjóri hjá Sól-Víking eigandi


 10. ágúst 2009 ( - grettir ) [H]
Takk drengir.

Ég þarf að tékka á Bjarka. Við fyrstu leit virðist rúðan ekki vera til og það er skítt.