1 til 16 af 16
Skólastrákur
Ritað þann: 27. ágúst 2008
Efnisflokkar: börnin
Drengurinn minn pakkaði skóladótinu sínu saman í hauskúpu skólatöskuna sína í gærkvöldi og hóf skólagöngu í morgun.
Hann á dáldið montna foreldra í dag. Fullorðna - farna að grána í vöngum yfir þessu öllu - en montna.
Mér líst rosalega vel á Háteigsskóla. Við fengum góða kynningu á því hvernig við ættum að bera okkur að þessu og börnin fengu góða aðlögun í gegnum sinn leikskóla. Það er búið að telja niður undanfarna daga af spenningi.
Kennararnir eru æðislegir og fylgja þeim fyrstu fjögur árin.
Verður ekki betra.
Upp er kominn galli í iPodinum mínum sem heil deild af forriturum og prófurum hefði ekki getað komið í veg fyrir.
Ég er búinn að týna honum :(
Ég er ekkert smá spældur. Þetta var góður iPod.
Systkina afmæli
Ritað þann: 25. ágúst 2008
Efnisflokkar: fjölskyldan
Systir mín er 15 ára í dag. Til hamingju með það :*
Bróðir minn er 30 ára í dag. Velkominn á fertugsaldurinn gamli minn :D
Hin systkini mín eiga ekki afmæli í dag.
Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki fjaðrafokið í kringum þennan læknisreikning sem ríkið á að hafa fengið sendan fyrir umönnun fyrrverandi forsetafrúar okkar, Guðrúnar Katrínar.
Sjá hér, 3.júlí
Ég veit ekki betur en að allir íslenskir ríkisborgarar fái greidda læknisþjónustu, hvort sem hún er innt af hendi innan- eða utanlands?
Er verið að dreifa athyglinni frá þeim ósóma er þrífst í borgarstjórninni?
Við erum nú með 4 borgarstjóra á launum, hver um sig með um það bil milljón á mánuði. Það eru 4 milljónir á mánuði og reikningur forsetafrúarinnar fyrrverandi því jafnaður eftir 4 mánuði og virkar eins og smáaurar þegar búið verður að greiða öllum þessum borgarstjórum biðlauna tímann (hvað varð um gamla góða
þú ert rekinn trikkið?).
Ég sagaði einu sinni af mér puttann og lá í viku inni á spítala. Ég veit ekki hvað nóttin kostaði á þeirri ágætu stofnun, en ríkið fékk "reikninginn sendan".
Davíð Oddson, sá sem hafði áhyggjur af þessum reikningi, lá í einhverja daga með ónýtan skjaldkirtil og að því að ég best veit borgaði hann það ekki úr eigin vasa.
Eiga ráðamenn og frægt fólk að líða fyrir það að vera þeir sem þeir eru? Það er ekki spilling að nýta sér þann rétt að vera veikur eða slasaður og fá bót meina sinna úr kerfinu.
Nema maður sé ekki veikur. Forsetafrúin fyrrverandi var það svo sannarlega.
Á leikskóla barnanna minna er hrekkjusvín. Oftar en ekki kemur drengurinn minn rispaður og hvekktur heim eftir viðskipti við óþokkann.
Nýfallinn
Héraðsdóms Norðurlands varðandi rassskellingar barna veita mér ákveðið svigrúm til að taka á þessu máli. Ég þarf bara að fá leyfi hjá mömmu krakkans og þá get ég mætt upp á leikskóla og rassskellt kvikindið.
Eru dómarar landsins gengnir af göflunum? Maður gæti haldið að inntökuskilyrðin (fyrir utan það að vera í Sjálfstæðisflokknum) væru að vera kynferðislega brenglaður. Miðað við þá dóma sem falla í slíkum málum, þá gæti maður haldið að barnaníðingar, nauðgararar og heimilisofbeldismenn velji dómara til starfa hjá dómstólum landsins.
Ég ætla ekki að rassskella þennan krakka á leikskólanum - þó hann eigi það eflaust skilið. Ég treysti því að starfsfólkið beiti öðrum og betri aðferðum til að koma honum til manns.
Ólafur F. fyrir viku:
Sjálfstæðismenn eru svooo töff. Mig langar alltaf að leika við þá.
Ólafur F. eftir hnífstungu í bakið a La sjálfstæðisflokkur:
Sjálfstæðismenn eru leiðinlegir lygarar, spilltir eiginhagsmunapotarar og þeir plötuðu mig til að leika.
Ég rakst líka á nýyrði á netinu í gær (finn ekki færsluna aftur, var að vafra á
blogg gáttinni) sem mér fannst hressandi og fyndið. Sjálfsóknarflokkur. Dapurlegt því það er svo satt.
Google Docs
Ritað þann: 18. ágúst 2008
Efnisflokkar: netið nördadót
Fyrir margt löngu skráði ég mig á
Google Docs ásamt fleiri Google þjónustum.
Ég nota núna nær eingöngu Gmail (Google Mail) og les nánast allar fréttir og slíkt í gegnum Google Reader. Google mail getur einnig sótt póstinn af grettir.net domain-inu og merkir hann sem slíkan. Nóg pláss og alltaf aðgengilegur.
Google Calendar ætti að vera til á hverju heimili hvar önnur fyrirvinnan vinnur vaktavinnu og engin leið er fyrir dagvinnu plebba eins og mig að muna hvenær betri helmingurinn á að vera í vinnunni.
Ég hef ekki notað Picasa (Google myndaforritið), enda með slíkt magn af ljósmyndum að ég þyrfti að kaupa aukapláss fyrir tugi þúsunda til að koma því fyrir. Minn eigin server sér um það.
Og aftur að inntaki þessa pistils.
Google Docs hef ég ekki notað fyrr en nýlega og það er ekki aftur snúið. Nú þarf maður ekki neinn rándýran, flókinn office pakka, heldur býr maður bara til skjöl, spreadsheets, presentations og pdf skjöl í Google Docs.
Maður getur bæði uppfært, haldið við og bætt við skjölum í þetta án þess að senda endalaus skjöl á milli í tölvupósti með tilheyrandi vandræðum við að halda við hver er nýjasta útgáfan.
Ef einhver af samstarfsmönnunum þarf á Office skjali að halda, þá býður Google Docs upp á að senda skjalið í tölvupósti sem .doc, .pdf eða hvað sem er.
Nú á Google mig nánast hvað rafræn gögn varðar. Ef Google verksmiðjan brennur - segjum að starfsmannapartý fari úr böndunum og það verði óvarlega farið með sprittkerti - þá er ég í vondum málum.
KFC
Ritað þann: 17. ágúst 2008
Efnisflokkar: matur
Í gærkvöldi vorum við hjónin að ræða það hversu langt það er síðan við höfum farið á Kentucky Fried Chicken og með því eflaust lengt líf okkar um fjölmarga mánuði.
Ástæðan fyrir því að við fengum ógeð var frétt sem lýsti því í smáatriðum hversu óholl hert fita er í raun.
Stutt leit á google skilaði
þessari frétt sem segir frá því að aðeins 5 grömm af hertri fitu á dag geti aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum um 25%
Í einni djúpsteikri kjúklinga máltíð með frönskum og meðlæti eru 40 grömm, skv.
þessari grein hér.
Á Tenerife var KFC - Kebab Food Center.
Þar hefur eflaust verið lífshættulegt að borða.
Það má eiginlega segja að Framsóknarflokkurinn sé að verða eins og Herpes. Engin leið að losna við það.
Framsóknarmenn eru komnir með puttana í veskin okkar að nýju.
Það er að verða veruleg ástæða til að hlakka til næstu kosninga. Það mætti segja mér að færri seðlar verði merktir D en oft áður. Annars eru borgarbúar of heimskir til að hafa kosningarétt.
Þegar ég var að vinna í frystihúsinu í gamla daga tíðkaðist það að setja slor og fleira skemmtilegt í vettlinga og nestibox samstarfsfélaganna, sætuefni út á poppkornið, sprengiefni í sígarettur og blek á eyrnaskjólin.
Í þá daga var þetta kölluð stríðni en myndi í dag líklega vera flokkað sem einelti. Nema hvað að það varð ekki bara einn aðili fyrir þessu. Oftar en ekki voru þetta allir á móti öllum.
Hvernig ætli
læknar stundi einelti? Láta þeir skurðhnífinn hverfa? Setja þeir kopafeiti í einnota hanskana? Setja þeir tonnatak á hlustunarpípu vinnufélagana?
Ég hélt - í alvöru - að einelti á vinnustöðum einskorðaðist við ómenntaða unglinga í láglaunastörfum. Ekki langskólamenntað fólk í ábyrgðarstörfum.
En hvað veit ég?
Top 10 listinn frá CNN
Ritað þann: 12. ágúst 2008
Efnisflokkar: netið nördadót
Undanfarna daga hef ég verið að fá spam sem ber heitið
CNN.com Daily Top 10 og er spam póstur sem færir manni óumbeðinn tölvuvírus ef maður opnar einhvern af þeim linkum sem í honum eru.
"Skynsamlegra" væri af spammernum að senda þennan lista einu sinni á dag, þar sem þetta heitir nú daglegi topp 10 listinn, en ekki einu sinni á klukkutíma, en ég efast um að til sé skynsamur spammari.
Ég hef talað um það áður og segi það enn og aftur. Það þarf að herða viðurlög við spammi. Ekki í formi sekta, því þá neyðist spammarinn til að halda áfram iðju sinni til að borga sektina. Frekar ætti að mölva á honum fingurna eða plokka úr honum augun. Það væri gaman að sjá augn- og puttalausan spammara reyna að vinna fyrir sér með spammi.
Mjög gaman.
Afmæli þann 08.08.08
Ritað þann: 08. ágúst 2008
Efnisflokkar: fjölskyldan
Ég á von á lítilli frænku í dag. Nýjustu fréttir herma að það séu komnir 5 í útvíkkun og stefnir barnið þannig á að eiga flottasta afmælisdag ársins, 08.08.08.
Mér skilst að kínverjar séu byrjaðir á einhverjum hátíðarhöldum vegna þessa.
3000 dagar
Ritað þann: 07. ágúst 2008
Efnisflokkar: vinnan
Skömmu eftir að ég hóf störf hjá Kögun, þá var verið afhenda starfsmönnum viðurkenningu fyrir 10 ára starf hjá fyrirtækinu. Viðurkenningin er steinn með ágröfnu nafni starfsmannsins og hefur hlotið viðurnefnið "Legsteinn".
Ég man að ég hugsaði með mér að 10 ár væru rosalega langur tími að vinna á sama stað og sá ekki fyrir mér að mér hlotnaðist legsteinn. Allavega ekki meðan ég væri ofanjarðar.
Á morgun er ég búinn að vinna 3000 daga hjá fyrirtækinu sem gerir 8 ár og 2 mánuði um það bil og styttist því í legsteininn.
Er ekki alltaf sagt að tíminn fljúgi þegar það er gaman? Eða er gaman þegar tíminn flýgur?
Fyrrverandi landbúnaðaðarráðherra
Ritað þann: 06. ágúst 2008
Efnisflokkar: pólitík
Ég var að enda við að klára að hlusta á viðtal Sverris Stormsskers við Guðna Ágústson. Það má nálgast
hér.
Það er verulega áhugavert og ég skil ekki hvers vegna Guðni verður svona reiður. Kannski af því að enginn hefur áður vogað sér að hafa aðrar skoðanir á landbúnaðarmálum en Guðni sjálfur og viðrað þær svo hann heyrði til? Eins og Sverrir bendir á, þá mætti ætla að þingmaður og fyrrverandi ráðherra hafi áður lent í rökræðum án þess að þurfa að rjúka á dyr.
Ég spyr nú eins og Stormsker, ef íslensku vörurnar eru svona góðar, því mega þær ekki keppa við þær innfluttu án tollahafta? Hvar er útúrsnúningur í þessari spurningu?
Það er einnig áhugavert að heyra í Guðna þegar hann heldur að kjósendur heyri ekki til hans, en hann er "óvart" settur í loftið strax eftir auglýsingahlé sótvondur. Ef þetta er ekki síðasta kjörtímabil Framsóknarflokks, þá veit ég ekki hvað þarf eiginlega til.
Sumarfríi nærri lokið
Ritað þann: 01. ágúst 2008
Efnisflokkar: fjölskyldan
Á þriðjudag hefst rútínan að nýju. Sumarfríi er að ljúka þetta árið.
Við erum búin að gera ýmislegt í fríinu. Skruppum til Tenerife í eina viku, héldum brúðkaupspartý í tilefni giftingar okkar í mars, fórum í heimsókn á vestfirði og ýmislegt fleira sumartengt, svo sem lautarferðir í Öskjuhlíðina, hjólreiðatúra, settum upp plastsundlaug í garðinum og fleira.
Maður er meira að segja orðinn brúnn.
Eina sem skyggir á ánægjuna er að þetta var næstum því launalaust sumarfrí, því frídagarnir sóuðust nánast allir í vetur vegna dagvistunar vandræða dóttur minnar. Ólafur F borgarstjóri ætti að gera eitthvað í því í staðinn fyrir að ybba gogg í Kastljósi.
Ég er búinn að setja inn heilan helling af myndum fyrir þá sem hafa aðgang að því. Þeir sem hafa það ekki, en telja sig hafa rétt á því, sendið mér póst eða sms.