1 til 20 af 20

Illa innrættur

Ritað þann:    30. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fréttir  skandall  

Ég er kannski svona illa innrættur, en ég finn ekki til meðaumkunnar með mönnum sem smygla eiturlyfjum. Þess þá heldur að ég sjái ástæðu til að gerð verði úttekt á fangelsum sem svoleiðis fólk kemur sér í. Eða eins og segir á textavarpinu í dag:


Tveir ræðismenn Íslands í Brasilíu munu
gera úttekt á þeim fangelsum sem tveir
íslenskir menn sitja í fyrir fíkniefna-
smygl. Utanríkisráðuneytið óskaði eftir
skýrslu um aðstæðurnar í fangelsunum
eftir lýsingar annars þeirra á aðstæðum
sínum í fangelsi í Sao Paulo.


Við erum heldur ekki að tala um neitt smotterí sem þessir menn ætluðu að smygla til landsins. Eflaust hafa brasilískir landamæraverðir bjargað mörgum mannslífum hérna heima með því að stoppa þetta. Ég segi því að við ættum frekar að bjóða þeim í heimsókn. Skoða Gullfoss og Geysir og eitthvað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. ágúst 2006 ( ægir pípari ) [H]
látum þá rotna þarna syðra, þeir áttu bara að spá í afleiðingum gjörða sinna og hananú


 31. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
If you can't do the time, don't do the crime.. var það ekki einhvern veginn þannig?


 31. ágúst 2006 ( Anna Júl ) [H]
Ég get bara alls ekki vorkennt þessum mönnum...þeir komu sér í þetta alveg sjálfir...þeim var bara andskotans nær.......


 01. september 2006 ( - grettir ) [H]
Þeim hefði verið nær að fara í frí til Brasilíu. Það er rokk!


Míkrófónninn á

Ritað þann:    30. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Slæmt að gleyma hljóðnemanum á þegar maður fer á klósettið í beinni útsendingu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. ágúst 2006 ( von ölves ) [H]
haha... þessi er nokkuð góð bara.


 30. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Ansi góð. Baktalar mágkonu sína og hvaðeina. Konur eru konum verstar.


Bíræfið rán

Ritað þann:    30. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  nördadót  

Hvenær hættir fólk að greina milli tölvuleikja og raunveruleikans?

Ég vil meina að það sé afar stutt í að það gerist þegar farið er að segja fréttir af atburðum sem gerast í tölvuleikjum, en í Eve Online "rændi bankastjóri" fullt af tölvupeningum af öðrum spilurum. Þar segir meðal annars:
Talið er að upphæðin sem bankastjórinn stal af öðrum spilurum hafi verið um 790 milljarðar ISK, en Magnús gat í gær ekki staðfest að sú upphæð væri rétt. Hann segir engar reglur gilda í leiknum sem geti náð til bankastjórans bíræfna og geti hann því lifað í vellystingum í tölvuleiknum með stolnu fjármununum.

Þetta er leikur! Hann gengur út á að stela og drepa.

Hvernig lifir maður í vellystingum í tölvuleik? Fer maður í hreinar náttbuxur og opnar nýja kókdós áður en maður sest fyrir framan tölvuna?

Þarna segir reyndar að hægt sé að selja tölvupeningana fyrir alvöru peninga - en það sé bannað og spilurum er hent úr leiknum ef það kemst upp.

Ég veit ekki, kannski verður það fréttnæmt ef hinir leikmennirnir taka sig til og skjóta bankastjórann?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. ágúst 2006 ( albin ) [H]
Hmm keypt sér cyber hús með cyber sundlaug og...... Nei, líklega gengur það ekki upp. Ég átta mig allavegana ekki heldur hvernig cyber vellystingar eru... heimskuleg frétt, og í þokkabót flokkuð sem tækni og vísindi.


 31. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Fáránleg frétt vægast sagt.


Steggjun og Afmæli

Ritað þann:    28. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fjölskyldan  fyndið  

Við steggjuðum vinnufélaga minn á föstudaginn sem var gaman. Við ætluðum að fara á jetski, en þegar við mættum á staðinn var enginn þar. Við hringdum því í gaurinn og spurðum hverju sætti. Hann var einhversstaðar uppi á fjalli og sagði: Ég lofaði engu..

Þannig að munið það næst þegar þið pantið einhverja þjónustu - klippingu eða eitthvað slíkt - látið alltaf seljandann "lofa" því að vera á staðnum.

Við breyttum því planinu og fórum í byssuleikinn M16 og fengum útrás.


Í gær fór ég svo í þrefalda afmælisveislu. Axel bróðir á afmæli 7. ágúst og svo eiga Óttar og Írena bæði afmæli þann 25. ágúst.
Það voru kökur og brauðréttir í kaffinu og svo reykt bayonne skinka í kvöldmat. Ansi gott.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. ágúst 2006 ( von ölves ) [H]
hvar er þetta jetski dæmi? bara svona upp á framtíðina, vita hvert maður á ekki að fara.
þið hefðuð getað farið með vinnufélagann í adrenalíngarðinn á nesjavöllum, tobbi sló þar í gegn!


 28. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Þetta er einhversstaðar upp í Grafarvogi/Gufunesi..

Já, við gleymdum adrenalíngarðinum alveg. Það hefði verið gaman.


 28. ágúst 2006 ( Fjóla ) [H]
Ég lennti í því um daginn að vakna fyrir allar aldir í sumarfríinu mínu og fara til tannlæknis en kom að luktum dyrum þegar þangað kom og varð heim að snúa - ansi pirruð. Eina útskýringin sem ég fékk frá honum daginn eftir var að það hefði verið smá vesen í gangi því hafi hann ekki verið á staðnum!!!



 29. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Hann hefur verið fullur... vertu fegin að hann tók ekki upp borinn :-)


Rockstar

Ritað þann:    25. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fréttir  tónlist  

Eins og hálf þjóðin er ég búinn að fylgjast með Rockstar þetta árið. Fyrst studdi ég Magna af því að hann er Íslendingur, en svo er hann bara helvíti góður svo maður getur alveg stutt hann án þess að skammast sín neitt.

Ég hef reyndar aldrei náð að vaka fram að kosningu - yfirleitt sofna ég um tólf og vakna sveittur og subbulegur í leðrinu og dríf mig inn í rúm án þess að kjósa.

En nú held ég að maður verði að kjósa piltinn næst. Það er ómögulegt að hann detti út vegna þess að ég er syfjaður á nóttunni.

Hvet ykkur til að kjósa manninn magnaða í næstu viku. Hann er búinn að vera okkur til sóma undanfarið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. ágúst 2006 ( albin ) [H]
Aha... svo ef hann dettur út.... þá hefuru sofnanð aftur í leðrinu.


 31. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Hehe, eins og og alþjóð veit nú var ég glaðvakandi :-)


Hrekkur sem fer úr böndunum

Ritað þann:    25. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fyndið  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Vika 24

Ritað þann:    24. ágúst 2006
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Vika 24:
Innra eyrað hefur náð sinni endanlegu stærð og hljóð heyrast mjög vel.

Hvar setti ég nú Rammstein diskana mína...

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Helgin

Ritað þann:    21. ágúst 2006
Efnisflokkar:  ég  fjölskyldan  harðsperrur  

Ég komst í mark eftir 10 erfiða kílómetra á rúmum klukkutíma. Helvítis rok þarna úti á Seltjarnarnesi. Ég er með harðsperrur í bakinu, eins asnalega og það hljómar. Þegar ég var búinn að hlaupa 8 km var ég alveg að bugast. Koma þá ekki tveir maraþonhlauparar framúr mér á þvílíkri siglingu, búnir að leggja að baki um það bil 40 km. Ekki í lagi með þetta lið.

En þetta var ljómandi hressandi. Svo fór ég auðvitað í Latabæjarmaraþon með drengnum. Þegar við komum í mark, þá var ennþá fólk að leggja af stað - svo mikill var mannfjöldinn.

En veðrið um helgina hefði ekki mátt vera betra. Skipuleggjendur hafa líklega selt sál sína djöflinum fyrir þessa blíðu. Gott hjá þeim.

Ég skutlaði svo litlu systur austur fyrir fjall seinnipartinn. Þegar ég kom tilbaka höfðu úthverfafjölskyldurnar lagt undir sig Háteigsveg og nágrenni. Engin leið að fá stæði. Merkilegt að búa einhversstaðar í nárassi og geta svo ekki tekið leigubíl eða strætó einu sinni á ári til að kíkja í miðbæinn.

Anywho.. brilliant helgi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. ágúst 2006 ( von ölves ) [H]
var einmitt að hugsa það sama... ansk. úthverfap... :)


 21. ágúst 2006 ( ægir úthverfa ans... ) [H]
hurðu nú mig ..... maður bara verður pínu sár.


 21. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Hehe.. var þinn bíll þarna?


 21. ágúst 2006 ( Finnur ) [H]
Nú varstu í hlaupinu, ég sá þig ekki...En þú náðir mun betri tíma en hann Gústi (Ágúst Þórhallson) sem enn og aftur hljóp þetta á um 3 tímum! (Sjá www.hlaup.is). Það er frekar slappur tími.


 22. ágúst 2006 ( von ölves ) [H]
alveg eftir ægi að leggja í stæðið þitt grettir!...
gústi var ekki alveg í sínu besta formi þennan daginn...


 22. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Minn tími var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. Var nýbúinn að vera veikur og ekki alveg upp á mitt besta. En ég komst í mark og það gengur bara betur næst.

En markmið Gústa er kannski að vera lengur og lengur. Maður ætti kannski að fara þá leið. Minna mál að "bæta sig" :-)


Reykjavíkur Maraþon

Ritað þann:    18. ágúst 2006
Efnisflokkar:  ég  fyndið  íþróttir  

Nú er ekki aftur snúið. Hlaupabúningurinn kominn í hús.

Ég set mér það háleita markmið að komast í mark, sama hvað það tekur margar mínútur. Flensan í byrjun vikunnar setti smá strik í æfingaprógrammið, en ég er orðinn hress núna. Verst hvað þetta byrjar snemma, 10 km hlaupið verður ræst klukkan 09:40 en þá er ég yfirleitt illa vaknaður.

Ætli maður verði ekki kominn í mark um hádegisbilið :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Framsókn

Ritað þann:    18. ágúst 2006
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  líðandi stund  nöldur  

ALLIR fimmhundruð framsóknarmenn landsins verða samankomnir á Hótel Loftleiðum í dag á Flokksþingi.

Bara svona ef einhver vill sletta skyri eða eitthvað.

Það hefur lengi farið í taugarnar á mér landbúnaðarstefnan hér á landi, sem þessi flokkur ber ábyrgð á. Að við skulum borga með landbúnaðinum á hverju ári og þurfa svo að borga uppsprengt verð á íslenskum landbúnaðarvörum út úr búð og uppsprengt verð á erlendum vörum vegna verndartolla. Að það sé kvóti á því hversu mikið er framleitt, í stað þess að framleiða eins mikið og við mögulega getum til þess að flytja út og nota þá peninga til að greiða niður ofan í okkur sjálf.

Nei, það má ekki. Og ekki má flytja inn ódýrari afurðir að utan - því þá fá væntanlega milliliðirnir hérna heima ekki eins marga milljarða í hagnað.

Skítaflokkur, skítastefna og ég vona að þeir hverfi í næstu kosningum. Hverfi segi ég, því það virðist vera sama þó þeir komi aðeins einum manni einhversstaðar inn - þeir lenda alltaf með mestu völdin.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. ágúst 2006 ( von ölves ) [H]
hurðu... búinn að setja myndir frá RW í safnið... kíktu á það!


 18. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Og heavy fínar myndir meira að segja! Takk takk..


Uppfærslur

Ritað þann:    16. ágúst 2006
Efnisflokkar:  nördadót  vefurinn  

Orðið ansi langt síðan ég nennti að standa í einhverjum breytingum hérna á grettir.net eftir að ég færði síðuna á heimilistölvuna, en til upprifjunar, þá keypti OgVodafone Margmiðlun, vefplássið mitt var fært og eftir það hafði ég ekki aðgang að einu eða neinu og síðan var öll í kleinu.

Síðan þá hef ég uppfært myndagalleríið í Gallery 2 sem er hlaðið allskyns fídusum og er miklu þægilegra í notkun, þó mér finnist það aðeins hægvirkara en það gamla. Spurning um það hvort ekki sé kominn tími á að uppfæra heimilisvélina, enda kominn vel á fjórða aldursár og alltaf í gangi þessi elska.

Breytingarnar sem ég réðst í að þessu sinni snéru meðal annars að slóð síðunnar, en nú virkar www.grettir.net beint án milliliðarins servebeer.com sem hefur þó þjónað mér ágætlega hingað til. Í framhaldinu lagaði ég slóðina á myndirnar þannig að myndir.grettir.net vísar á myndasíðuna.
Einnig bætti ég við tveimur nýjum útlitum hönnuðum af einhverjum ágætum Svía, fengin frá oswd.org. Kíkið á þau og segið frá ef eitthvað er bilað eða ef þið sjáið fyndnar villur.

Í nýjasta útlitinu bætti ég við fídus sem birtir af handahófi mynd úr myndasafninu. Yfirleitt sína þær mig með bjór í hönd, nýbúinn að drekka bjór eða á leiðinni að fá mér bjór. Stundum birtast líka fyndnar myndir af vinum og kunningjum, oftar en ekki með bjór í hönd.

Ég tók líka eftir því þegar ég var að stússast í myndunum að rafting myndirnar frá Ríó höfðu gleymst. Hér eru þær. Þarna erum við ansi hressir svamlandi í forugri á, hver geymir eflaust stórhættuleg kvikindi. En við lifðum þetta af.

Einnig lagaði ég Rss feed-in, ef einhver er að nota slíkt:
RSS - Pistlar
RSS - Brandarar

Have fun - I do.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. ágúst 2006 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Beggi hefur aldrie fengið þessar myndir heldur. Nú eru þær vel þjappaðar á síðunni þinni, en getum við kannski fengið afrit á diski hjá þér eða eitthvað?


 17. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Óly Fly verður að redda því, hann fór með einnota vélina í framköllun.
Ég tók líka eftir því að Ríó albúmið er þjappað. Ég er að vinna í því í rólegheitunum að uplóda original útgáfunum.


Veikur

Ritað þann:    15. ágúst 2006
Efnisflokkar:  ég  slen  

Hressandi að verða svona veikur. Búinn að nýta tímann vel við afslöppun, smá uppfærslur á vefnum og svoleiðis sluks - láta stjana aðeins við mig og svona.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

XD

Ritað þann:    11. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fyndið  handbók kjósandans  pólitík  

Það hefur varla sést til sólar eftir að D-Listinn tók við í borginni.

Endurnar höfðu vit á því að forða sér og mávurinn hefur tekið öll völd við ráðhúsið - enda hrææta eins og fuglarnir sem þar sitja nú við völd.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. ágúst 2006 ( von ölves ) [H]
djöf.. ertu harður í stjórnarandstöðunni kall minn... það gleður mig ;)


 14. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
:-)


 20. ágúst 2006 ( Halla ) [H]
Hvenær hættirðu annars að vera Sjálfstæðismaður?


Moaner

Ritað þann:    09. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fyndið  íþróttir  

Það var kona á besta aldri í ræktinni áðan sem stundi svo svakalega við æfingar að ég neyddist til að hækka í iPodinum og færa mig svo ég færi ekki að hlæja.

Gaman að því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Fæðingarblettir

Ritað þann:    04. ágúst 2006
Efnisflokkar:  ég  fyndið  líðandi stund  

Í sumar fór ég til læknis og lét fjarlægja þrjá fæðingarbletti sem voru bæði stórir og óreglulegir í laginu. Læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina hefði dregið að sér töluverðan fjölda gesta á Náttúrufræðistofnun Íslands hefði hann verið þar til sýnis - svo aldraður var hann.

Verandi af gamla skólanum notaði hann gamla góða stílabók til að finna tíma fyrir mig og skrifaði dagsetingu og tíma aftan á gamalt nafnspjald handa mér til að muna. Nafnspjaldið var með 4ra stafa símanúmeri eins og þau voru í eldgamla daga þegar fáir útvaldir höfðu símanúmer.

Eitthvað átti hann lítið af tvinna blessaður, því hann skellti bara einu spori í hvert gat sem hann gerði, svo sárið leit nokkurn vegin út eins og slaufa ∞ klemmt saman í miðjunni, en galopið til endanna.

Þegar ég horfi í spegil er eins og ég hafi fengið skot í bringuna og það hafi farið út um herðablaðið. Kannski verður sagan þannig þegar ég verð gamall náttúrufræðigripur og segi sögur í ellinni. Hver veit.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Nýsmíði

Ritað þann:    03. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fyndið  íbúðamál  

Fyndinn pistill um Skuggahverfið.

Þetta sýnir bara að menn eru hættir að kunna að byggja hús. Það eru sko ekki 30 cm þykkir veggir í þessum kofum eins og mínu húsi - sem steinsögin ætlaði aldrei að ná í gegnum til að búa til svalahurð.
Og ekki er hægt að negla í til að hengja upp myndir. Nei, það þarf sko höggborvél og múrtappa til að koma einhverju á veggina hérna á Háteigsveginum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Rigning

Ritað þann:    03. ágúst 2006
Efnisflokkar:  djamm  nöldur  

Það hlýtur að vera Þjóðhátíðinni að kenna.

Ég er með hugmynd fyrir þjóðhátíðarnefnd.
Selja bjór í plastglösum inni í dal á 200 kr glasið og hleypa fólki ekki inn á svæðið með eigið vín.
Fólk verður mikið minna bilað af bjórdrykkju, ruglað lið getur ekki lamið hvert annað í hausinn með glerflöskum og ef einhver er með slagsmál, klippa af þeim bandið og henda út úr dalnum.

Meðalfyllibyttan drekkur kannski 10-15 bjóra, þ.e. 2000-3000 krónur á dag, svo þetta ætti ekki að vera neitt ofur dýrt spaug því margir eru að slátra pela til flösku annars á dag.

Bara hugmynd.. ekki er ég að fara á þessa blautu okurhátíð í ár.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. ágúst 2006 ( Ingvar J. ) [H]
Algjörlega sammála... þá reyndar myndi fólk átta sig á hvers lags crap þessi bönd eru sem verið er að bera á borð...


 03. ágúst 2006 ( gisill ) [H]
Já Stella Wife beater sá nú um ad vid vorum vel medvitadir um hvad var ad gerast á svidinu á RW. Ja, nema kannski thegar The Who voru ad spila og vid fórum ad dansa:) Sumir vid hlidartøskur;)


 03. ágúst 2006 ( Ingvar J. ) [H]
Sé fyrir mér svona bakka eins og á RW með mynd af lunda í staðinn fyrir wife beater auglýsingu...


 03. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Hehe


 12. ágúst 2006 ( Óli Fly ) [H]
ha...þú að væla útaf fylleríi????

Grettir minn, þú ert sko orðinn G A M A L L ! !


 12. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Ég veit :-|


Sól sól skín á mig

Ritað þann:    02. ágúst 2006
Efnisflokkar:  fjölskyldan  íþróttir  

Á sunnudaginn vorum við í bílnum að syngja sól sól skín á mig á leiðinni í bæinn þegar yngsti meðlimur fjölskyldunnar segist kunna aðra útgáfu af þessu lagi og byrjar að syngja:
Sól sól skín á grís, svín svín burt með þig

En það er ekki fyndið hvað það er mikið "frí vegna veðurs" veður í dag. Það hefði verið freistandi að setjast bara í garðinn í morgunn.

Ég rölti með drenginn minn á leikskólann um áttaleytið og skokkaði svo 4 km til að hita upp fyrir Reykjavíkurmaraþonið, sem verður hlaupið í nýju bjórþamb meti. Ég hef reyndar aldrei tekið þátt, svo ef ég kemst í mark, þá er það sjálfkrafa met.

Við erum að sjálfsögðu að tala um 10km hlaup. Ég veit ekki hvaða sjálfspíningarhvöt rekur fólk í 42 km hlaup, en það væri gaman að skoða tækin sem svoleiðis fólk geymir í náttborðsskúffunni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. ágúst 2006 ( Hjalti Einars. ) [H]
Þetta fer í goldenmoments! Sól skín á grís :D

Ég tek að ofan fyrir öllum sem taka þátt í hlaupi. Sama hve langt það er... Ég nenni varla að hlaupa útí sjoppu sjálfur :þ


 03. ágúst 2006 ( - grettir ) [H]
Heppinn að vera kominn með bílpróf :-)


Skoðun

Ritað þann:    01. ágúst 2006
Efnisflokkar:  bmw-inn  nöldur  

Fór með BMW-inn í skoðun áðan - var nefnilega stoppaður í síðustu viku með grænan 11 og fékk "Boðun í skoðun". Fer nefnilega ekki nema mér sé boðið. Þær tóku boðsmiðann ekki gildan í afgreiðslu Frumherja og rukkuðu 5600 krónur fyrir.

Aumi boðsmiðinn það.

Þeir skoðuðu bílinn hátt og lágt, hristu hann og toguðu, gáfu hressilega inn til að mengunarprófa, ýttu á alla takka til að finna veikleika en allt kom fyrir ekki - bíllinn er fullkominn þrátt fyrir að vera nærri 16 ára og keyrður 260 þúsund.

Niðurstaðan: Grænn 9 vegna þess að það eru filmur í hliðarrúðum að framan. Þeir fá þó plús fyrir að koma með góð ráð til þess að ná filmunum úr, sem ég hlustaði kurteisislega á - eins og ætlaði í alvörunni að taka þær úr. Hahaha.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Black Holes

Ritað þann:    01. ágúst 2006
Efnisflokkar:  tónlist  

Ég er ekki frá því að nýji Muse diskurinn, Black Holes and Revelations sé það allra besta sem hefur komið fram á sjónarsviðið síðan hjólið var fundið upp.

Muse voru á Rock Werchter í sumar en þá hafði maður ekki heyrt neitt af nýja disknum.

Mæli með honum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..