1 til 35 af 35
Lögmál rafhlöðuknúinna tækja
Ritað þann: 31. ágúst 2005
Efnisflokkar: neytendur nöldur
Tæki sem gefa frá sér píp þegar þau eru að verða tóm eru sérlega furðuleg. Fyrir utan að pípið flýtir fyrir tæmingu rafhlöðunnar, þá skulu þessi fjandans tæki alltaf verða tóm um miðja nótt.
Þessi tæki eru gsm símar, þráðlausir heimilissímar, fjarstýringin að bílnum og brunalúðurinn.
Ég er tilbúinn að gefa brunalúðrinum séns, enda myndi maður ekki taka eftir því að hann væri tómur fyrr en of seint ef hann léti mig ekki vita, en hitt er alveg glatað.
Það sem er enn meira glatað en þetta er að vera búinn að strunsa út um allt hús að leita að sökudólgnum og fatta síðan að maður sofnaði yfir Friends á laptoppnum og þátturinn þegar brunalúðurinn hennar Phoebe er rafmagnslaus er að spilast á bakvið screen seiverinn.
Bastían bæjarfógeti
Ritað þann: 30. ágúst 2005
Efnisflokkar: fréttir fyndið
Mér finnst allir frambjóðendur til bæjarfógeta lummó.
Eða eins og Douglas Adams myndi orða það:
Anyone who is capable of getting themselves made President should on no account be allowed to do the job.
Taskan
Ritað þann: 30. ágúst 2005
Efnisflokkar: ég
Djöfull er gaman að vera kominn í ræktina og fatta að maður gleymdi íþróttatöskunni heima. Meiriháttar!
Kaffi drama
Ritað þann: 30. ágúst 2005
Efnisflokkar: vinnan
Kaffivélin hérna er að eipa. Það tekur 3 mínútur að fá kaffið og það er eins og malbik. Ég verð vakandi fram á fimmtudag.
Brjáluð þessi Katrín
Ritað þann: 29. ágúst 2005
Efnisflokkar: fréttir
Ljómandi er ég feginn að
búa ekki í New Orleans í dag. Ég er hræddur um að gasgrillið mitt væri komið út á hafsauga í þessum vindi.
Þessar haustlægðir hérna á skerinu eru nú hálfgert prump miðað við þetta.
Fasteigna pælingar
Ritað þann: 29. ágúst 2005
Efnisflokkar: íbúðamál
Ég er búinn að vera að vakta fasteignavefinn á mbl.is í nokkurn tíma til að sjá hvort eitthvað smart dettur á sölu.
Í lýsingu langflestra íbúða sem eru á sölu koma fyrir orðin mikið endurnýjuð, vel skipulögð, björt, falleg og ef það er garður þá býður hann upp á mikla möguleika og ætlunin var að byggja pall
Hvað þýðir þetta?
Mikið endurnýjuð
Í besta falli þýðir þetta að seljandinn hefur drullast til að flísaleggja baðherbergið með einhverjum hundljótum flísum sem maður verður að byrja á að rífa af og hann hefur kannski málað 50 ára gamla eldhúsinnréttinguna.
Vel skipulögð
Það er gott að rata í íbúðinni? Nei í alvöru.. hvaða þvættingur er þetta?
Björt
Seljandinn er búinn að rífa niður rimlagluggatjöldin.
Falleg
Þarf að taka þetta fram? Ef þetta er ekki tekið fram, getur maður þá gert ráð fyrir því að íbúðin sé ljót?
Garður sem býður upp á mikla möguleika
Garðurinn hefur aldrei verið sleginn, eina sem vex í honum er njóli og illgresi og seljandinn hefur alltaf látið sig dreyma um að grafa holu og pota niður heitum potti en ekki tímt því. Það er því komið að þér að láta þig dreyma um heitan pott.
Það er nú bara ekkert öðruvísi en það að ég var rændur um hábjartan dag rétt í þessu.
6 þúsund kall fyrir ekki einu sinni fullan tank! Verður maður að fara að hjóla í vinnuna?
Skemmtilegt hvernig strákurinn speglast þarna í sönnunargagninu.
Tvöfalt afmæli
Ritað þann: 25. ágúst 2005
Efnisflokkar: fjölskyldan
Tvö systkini mín eiga afmæli í dag. Annað verður 12 ára og hitt 27 ára. Ég á von á afmælistertu í tilefni dagsins. Til hamingju bæði tvö.
Ég gleymi alltaf myndavélinni minni á morgnanna, en í langan tíma hef ég ætlað að taka mynd af nýju göngubrúnni á Hringbrautinni.
Hún er nefnilega ótrúlega svöl. Ef þið eruð á leiðinni úr Vesturbænum og eruð ca. fyrir framan bóksöluna, takið þá eftir því að hún er alveg eins í laginu og Öskjuhlíðin. Á ákveðnum tímapunkti er því eins og Perlan standi ofan á henni.
Ég á eftir að keyra aftan á einhvern daginn - glápandi á þetta verkfræðiundur.
Ég var að fá
Wulffmorgenthaler bækurnar sem ég pantaði um daginn. Þær eiga eftir að sóma sér vel inni á salerni með
FHM blöðunum.
Sjaldan er ein báran stök
Ritað þann: 24. ágúst 2005
Efnisflokkar: fréttir vinnan
Hvaða flugslysa hrina er eiginlega í gangi? Það er varla að maður þori að stíga upp í flugvél á næstunni. Sem er slæmt, því ég er að fara í 5 vinnuferðir í vetur. Ég verð um borð í bát fram að jólum með þessu áframhaldi.
Fyndið þegar sumt fólk er að taka stefnuljós til að skipta um akrein - sér svo að það er að koma bíll og slekkur þá á stefnuljósinu. Eins og það sé að taka stefnuljós fyrir sjálft sig.
Líklega til að muna í hvora áttina það ætlar að beygja. Þetta fólk á engan séns.
Svefnherbergis trikk
Ritað þann: 23. ágúst 2005
Efnisflokkar: ég fréttir fyndið
Ljómandi
Ritað þann: 22. ágúst 2005
Efnisflokkar: djamm
Þessi dagur er búinn að vera ferlega lengi að líða. Sem er skrýtið, því ég kvíði mikið fyrir því að koma heim í tiltektina eftir partý laugardagsins.
Einhverjum snillingum datt í hug að það væri sniðugt að koma með rjóma í partíið og búa til Irish coffee, en engan á ég þeytarann svo það þurfti að brúka handaflið.
Nú er rjómi upp um alla veggi og ég ætti eiginlega að hringja í dónana og segja þeim að koma og þrífa eftir sig.
Visa kortið mitt er bilað. Það eyðir of miklu.
Menningarnóttin
Ritað þann: 22. ágúst 2005
Efnisflokkar: djamm fréttir
Alveg missti ég af þessum ólátum á menningarnótt. Ég var stilltur og allir í kringum mig. Ég hef kannski svona róandi áhrif á mannskapinn. Spurning um að láta klóna sig og dreifa sér um alla borg til að hafa hemil á lýðnum.
Regnhlífin góða sem ég keypti í Belgíu í sumar bjargaði lífi mínu þegar það kom hellidemba um það leyti sem flugeldasýningin byrjaði. Og ekki nóg með að regnhlífin sé sérdeilis falleg, með gulum brosköllum, þá hafnar engin heilbrigð stelpa skjólinu sem hún veitir.
Þynnkan í gær var reyndar með verra móti og fóru heilir tólf tímar í Dvd gláp og aumingjaskap.
Metro menn
Ritað þann: 19. ágúst 2005
Efnisflokkar: fimmaurar
Þegar ég heyri talað um metro þá er það eina sem mér dettur í hug er
neðanjarðarlestakerfi.
Eru metro menn þá langir og mjóir með hlandlykt?
Ég tók tvo þýska krakka upp í bílinn hjá mér frá flugvellinum um daginn þar sem þau höfðu greinilega ekki ætlað að láta Fly Bus fyrirtækið ræna sig á leiðinni í bæinn.
Ég hef einu sinni tekið Fly Bus. Það kostaði rúman þúsund kall. Ef það var bara ekki 1200 kall svei mér þá. Fram og tilbaka gerir það því 2400 kall. Ef maður er í vinnuferð og fer á sunnudags kvöldi og kemur á föstudegi, þá kostar 2250 að geyma bílinn á vellinum í fimm daga.
Þannig að ef maður er einn á ferð, þá borgar sig næstum því að fara bara á bíl. Ætli maður eyði ekki ca. þúsundkalli í bensín. Hvers konar business er þetta rútudæmi eiginlega? Er þetta eingöngu starfrækt til að kroppa eins margar krónur og mögulegt er af ferðamönnum sem koma hingað til lands?
Og rútan sem ég tók hékk saman á lyginni einni saman og maður fékk hausverk af dísel og smurolíu fýlu. Skemmtileg byrjun á ferðalagi eða hitt þó heldur.
En þýsku krakkarnir voru hin hressustu og gátu ekki beðið eftir rigningu. Ég held Guðríður veðurfræðingur láti það eftir þeim. Verði þeim að góðu.
Ég borðaði myndarlega í hádeginu þar sem ég ætla að kíkja í Blóðbankann í dag og láta tappa af mér. Það er orðið svo mikið blóð í kerfinu að ég kemst ekki framúr á morgnana.
Þá þarf ég líka færri bjóra um helgina til að komast í flirting gírinn.
Næturgestur
Ritað þann: 18. ágúst 2005
Efnisflokkar: ég fyndið
Þegar ég var alveg við það að festa svefn í gær heyri ég hávært suð við hausinn á mér.
Með leiftursnöggri handarhreyfingu, sem Súpermann sjálfur hefði verið stoltur af, greip ég kvikindið sem framleiddi hljóðið og kramdi með krumlugripi sem sjálfur Hulk hefði verið stoltur af.
Þegar ég sá hvers kyns kvikindi var í lúkunni, spratt ég á fætur og gaf frá mér hljóð sem flestar grúppíur hefðu verið stoltar af.
En geitungurinn var dauður. Köngulærnar mínar eru ekki að standa sig á næturvaktinni.
Lottó
Ritað þann: 18. ágúst 2005
Efnisflokkar: fimmaurar
Hmm.. eitthvað ætlar Getspáin að trassa að leggja inn á mig þessar 480 mills sem ég vann í gær.
Þetta er nú alveg...
Ritað þann: 17. ágúst 2005
Efnisflokkar: fyndið
Það voru greinilega ekki allir vaknaðir í morgun þegar þeir lögðu bílunum sínum:
Síðustu fimm vikurnar hefur matseljan okkar verið í sumarfríi. Á meðan var keyptur bakkamatur sem greinilega var eldaður á nóttunni, því hann mætti kaldur í hús um hálf ellefu á morgnanna.
Síðustu fimm vikurnar hef ég því prófað alla skyndibita og matsölustaði hérna í grenndinni og þó víðar væri leitað. Good times.
Nú byrjar súpan aftur, það er byrjað að rigna, það var dautt lauf á bílnum mínum í morgun og það verður einn frídagur í vinnu fram að næstu páskum - annar í jólum.
Af hverju getur maður ekki bara lagst í hýði? Ég held að maður verði alvarlega að spá í vetrarferð í líkingu við Brazilíu ævintýrið síðasta febrúar. Kúba kemur sterk inn en Ástralía væri auðvitað toppurinn. Var að tékka á því um daginn og British Airways eru með flug frá London á um 100 þúsund.
Kengúrur, hér kem ég!
*Pleeh*
Ritað þann: 12. ágúst 2005
Efnisflokkar: vinnan
Það er eitthvað biluð klukkan hérna í vinnunni. Hún gengur ekki rassgat. Ég er að spá í að senda henni fingurinn og fara út í sólina.
Svo er eitthvað vinnustaðagrín á Gauknum í kvöld. Það verður prýðilegt eins og alltaf.
I want one of those!
Ritað þann: 10. ágúst 2005
Efnisflokkar: nördadót
Þetta er geðveikt tæki. Utanáliggjandi harður diskur með tengi fyrir sjónvarp OG tengi fyrir netkapall.
Ég ætla samt að bíða eftir
þráðlausu útfærslunni. Þá getur maður strímað tónlistarsafninu og öðru elektrónísku skemmtiefni (allt löglega fengið, of course) beint í kassann án þess að vera með snúrur út um allt hús.
Snúrur eru nefnilega af hinu illa - rafmagnssnúrur, símasnúrur, þvottasnúrur...
Sjá frétt á visir.is:
Mér finnst það mjög einkennilegt að á sama tíma og verið er að ræða um offituvandamál hér á landi, þá standi jafnvel til að lækka neðra þrep virðisaukaskatts sem einkum leggst á matvæli. Íslenskar landbúnaðarvörur eru í þessum flokki og þær eru mjög fituríkar," segir Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vegna þeirrar umræðu sem nú er um að mögulega standi til að lækka neðra þrep virðisaukaskatts um allt að helming.
Þannig að ef hlutfall fitubolla eykst á Íslandi, þá er það af því að maturinn er svo ódýr?
Common Pétur.. þetta eru jafnvel enn verri ummæli en Alfreð heitavatnskútur lét falla um árið, um að sala hafi dregist saman og því þyrfti að hækka verðið.
Við ræddum þetta einhvern tíma félagarnir og ef menn þurfa að herða sultarólina frægu vegna skólagöngu, atvinnuleysis eða af einhverjum öðrum ástæðum, þá er alltaf hægt að sleppa því að versla buxur, geisladiska og þess háttar drasl og jafnvel byrja að nota strætó, en allir verða að éta.
Helgin var æði
Ritað þann: 09. ágúst 2005
Efnisflokkar: djamm
Fór með strákunum á Rossopommodoro (hvernig sem það er skrifað) á föstudaginn - vaknaði svo eldhress upp úr hádegi og dreif mig austur fyrir fjall á bekkjarmót.
Fyndið að hitta allt þetta fólk eftir allan þennan tíma. Sumir eru alveg eins á meðan aðrir eru óþekkjanlegir.
Á laugardeginum fórum við í ratleik um town-ið og leystum ýmsar þrautir. Í einni áttum við til dæmis að banka upp einhversstaðar og fá að spæla egg og í annarri áttum við að semja dansatriði sem var, því er nú verr og miður, tekið upp á myndband. Það á eftir að kosta skildinginn að koma því úr umferð.
Eins og flestir vita, þá lækkaði hæsta fjall Íslands um heila 9 metra í vikunni.
Það sem færri vita er að þetta er samsæri íslenskra fjárfesta um að fletja landið út og breyta því í Danmörku.
Uppgjör Okurveitunnar
Ritað þann: 04. ágúst 2005
Efnisflokkar: ég peningar
Í fyrra átti ég 100 kall inni hjá Okurveitunni. Þá brugðu þeir á það ráð að lækka áætlunina mína um rúmlega einn fjólubláan á mánuði.
Nú skulda ég Okurveitunni 14 þúsund. Hressandi það. Þennan pening var ég búinn að eyrnamerkja í bjórkaup. Nú verð ég að nota bensín og matarpeningana í bjór, fatapeningana í mat og bensín, sparnaðinn í föt og Okurveitupeninginn í sparnaðinn.
Tilvera mín hrynur.
Mér er skapi næst að siga trúbadorunum fyrir ofan mig á Alfreð Okurveituguð.
Það eru engar ýkjur að hver hjólreiðamaður ætti ætíð að vera með hjálm.
Í fyrsta lagi er maður alltaf með trjágreinar í hausnum þegar maður hjólar í grónum hverfum bæjarins og í öðru lagi þá búa brjálaðar kríur úti á Seltjarnarnesi.
Næsti búnaður á hjólið mitt verður svona hefill eða grind framan á græjuna til að ryðja feitabollum úr veginum, sem ganga ætíð þrjár hlið við hlið og teppa umferð á stígnum - sem þó er merktur reiðhjólum en ekki þungaflutningum.
Kaffivélin sigruð
Ritað þann: 03. ágúst 2005
Efnisflokkar: fyndið vinnan
Í felum á bakvið læst lok á expresso vélinni hérna í vinnunni er lítill takki sem stillir styrkinn á þeim görótta drykk sem vélin framleiðir.
Einhver sparibaukur hafði stillt vélina á að framleiða piss. Þessu kippti ég í liðinn og losaði mig við lykilinn.
Skrýtið að það sé ekki hægt að nota rafmagnið hér á landi í neitt annað en að nánast gefa einhverjum erlendum stórfyrirtækjum það til álframleiðslu. Það kemst ekkert annað að hjá þessum aulum inni á þingi en ál ál og aftur ál. "Hvar á næsta álver að vera?"
Á að vera álver í hverju krummaskuði hringinn í kringum landið?
Nú þegar olíuverð er í hámarki og á ekki eftir að lækka, þá væri eitursnjallt að hrinda af stað vetnis framleiðslu á heimsmælikvarða, fá verkfræðinga og aðra snillinga til að vinna í því að breyta bíla- og skipaflota landsins í að brenna vetni í stað þess að flytja inn þessa fáránlega dýru olíu. Fyrir utan hátækni menntunina sem yrði þörf fyrir hérna ef þetta yrði að veruleika.
Svo gætum við flutt út vetni og orðið ríkasta þjóð í heim, því þessi olíuöld er að syngja sitt síðasta.
Svo þegar síðustu olíudroparnir puðrast upp úr eyðimörkinni í Saudi Arabíu og þeir fara á hausinn, þá verðum við löngu hætt að stóla á þessa apaketti.
Gerð var tilraun til að tæla mig til eyja á laugardaginn. Eins og veðrið var þá, þá var það ansi freistandi. en ég lét ekki undan.
Mikið var ég feginn í gær. Einn af bræðrum mínum er enn í eyjum. Það er skítt.
Reykjavík fór ósköp vel með mig um helgina. Ég nennti reyndar ekki á Innipúkann. Tökum hann bara næst. Eða
Pukkel Pop um þar næstu helgi.
Litla systir kemur frá Svíþjóð í dag. Ég er að spá í að knúsa hana vel og lengi. Maður er búinn að sakna þess að heyra ekki í þeirri stuttu í heilar tvær vikur.