1 til 25 af 25

Ég má til með...

Ritað þann:    31. ágúst 2004
Efnisflokkar:  nördadót  

... að plögga honum Albin hérna.
Hann var svo elskulegur að bjóða mér gmail, enda mmedia addressan orðin ónýt af rusli. 900+ rusl á mánuði. Ekki gott.

...
- grettir :: nú þarf ég bara að versla bjór fyrir strákinn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. september 2004 ( Guðný ) [H]
Ég sit einmitt uppi með 3 gmail invite sem ég veit ekkert hvað ég á að gera við. Áhugasömum er bent á að senta mér emil :-)



 02. september 2004 ( - grettir ) [H]
Gmail er alveg málið. Þú hlýtur að koma þessu út einhvern veginn.


 02. september 2004 ( Guðný ) [H]
já, við skulum vona það. Leiðinlegt að láta þetta fara til spillis :)


Ég biðst afsökunar

Ritað þann:    31. ágúst 2004
Efnisflokkar:  fyndið  þjóðarrembingur  

Sæt stelpa ( ég vil allavega trúa því að hún hafi verið sæt ) hringdi í mig á vegum Gallúp um daginn og ég tók þátt í könnun.

Spurningarnar voru heilmargar og ég man þær ekki nákvæmlega, en ein var svona:

Nefndu það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir: Íslenskur iðnaður

Fyrsta sem mér datt í hug voru lopapeysur. Svona eru nú hestagleraugun á mér. Ég sá bara fyrir mér gamlar konur í prjónakeppni.

Ég bið íslenskan iðnað afsökunar.

...
- grettir :: drekk til dæmis íslenskan bjór um hverja helgi

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Bölvaður

Ritað þann:    30. ágúst 2004
Efnisflokkar:  djamm  nöldur  

Sá sem hengir sokkana á prikin í Hagkaup er ekki vinur minn. Greip með mér tvö búnt um daginn og var að komast að því þegar þeir komu úr þvotti í fyrsta skipti að pakkarnir eru af sitthvorri stærðinni.
Ég neyðist því til að spekúlera þegar ég fæ mér sokka á morgnanna.

Eina góða við þetta haust sem er í bígerð er sumarbústaðaferðin með vinnufélögunum um næstu helgi. Þar verður drukkið, étið og legið í afslöppun. Það verður einkar skemmtilegt enda við með eindæmum hressir.

Vona bara að þessi drullu-/ælupest sem var í gangi þarna í Húsafelli sé liðin hjá. Það væri nú alveg eftir því að við myndum leka að ofan og neðan eftir ferðina.

...
- grettir :: haust smaust.. sökkar big time

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
það góða við haustveðrið er að þá hefur maður ekki samviskubit yfir því að hanga heima hjá sér með bjór og kruðerí...


 30. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Hehe, rétt. Hvað var ég að hugsa!


Þarf að láta kíkja á mig

Ritað þann:    28. ágúst 2004
Efnisflokkar:  slen  

Fjórum sinnum á þessu ári, þar af þrisvar í sumar hef ég verið lagður í bælið af einhverri skítapest. Nú er mig farið að gruna hálskirtlana um græsku, því þessu fylgir ætíð einhver bévítans hálsbólga og sú staðreynd að ég verð vanalega ekki veikur nema eitthvað mikið gangi á. Miltisbrandur eða eitthvað slíkt.

Nú hef ég ekki farið til læknis í rúm 10 ár, en í millitíðinni hef ég flutt í bæinn og veit ekkert hver er heimilislæknirinn minn. Hvert hringir maður? Hvert fer maður? Það er allt í pati hérna á Framnesveginum núna! Það eru þrír pizzastaðir, Subway, tvær vídeóleigur, Nóatún og Krónan í 50 metra radíus frá húsinu mínu. Á ég að trúa því að maður verði að fara á bílnum til læknis og láta kippa úr sér hálskirtlunum?

...
- grettir :: vonandi verður þetta ekki svona endajaxladæmi

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. ágúst 2004 ( Jónína Guðrún ) [H]
Hann gamli góði Helgi er nú alveg örugglega heimilislæknirinn þinn ef þú hefur ekki beðið um flutning svo .ú verður bara að rúnta í höfnina :-)


 29. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Helgi sér um sína. Síðast þegar ég fór til hans bað ég hann um að tékka á því hvort ég væri með ó ó í typpinu mínu. Það reyndist ekki vera, en djöfull brá mér þegar hann sagði að allar prufur hefðu reynst neikvæðar! Mér fannst jákvætt að ekkert hefði fundist.


 29. ágúst 2004 ( Dagný Ásta ) [H]
það eru líka 2 heilsugæslustöðvar hérna í nágrenninu minn kæri granni, önnur er neðarlega á Vesturgötunni en hin er úti á Seltjarnarnesi :) Ég veit að þessi úti á nesi er með svona læknavakt eftir 4 þarft ekki að hringja á undan :)


 29. ágúst 2004 ( gunna ) [H]
það er svakalega vel látið af þessari þarna á nesinu, hlýtur að finna eh til að rífa úr þér kirtlana! við skulum færa þér frostpinna þegar þetta er búið! Svakalega tók ég þig í Trivial í gær annars........!


 29. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
Hannes í Glæsibænum er laaaaaaaangbesti hálslæknirinn.. hann kippti mínum úr og það með glæsileik, tík meira segja allt heila dótaríið úr minime, mæli sko eindregið með honum..


 30. ágúst 2004 ( Lilja ) [H]
Pantaðu þér tíma hjá Friðriki K. Guðbrandssyni í Álfheimunum. Hann brennir hálskirtlana úr manni svo það er ekkert blæðingavesen eða sár. Þar að auki er maður miklu fyrr að ná sér.

Eðalgaur. Eðalbrennsla. Eðall að vera laus við þessa andsk... kirtla.


 30. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
dr. weekend sér um sína...


 30. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Málið er leyst. Fer og sæki einhver eiturlyf á eftir. Sjáum til hvort ég fari út í að láta fjarlægja kvikindin.


Dúndurfréttir

Ritað þann:    26. ágúst 2004
Efnisflokkar:  bjór  

Fór á tónleika Dúndurfrétta í gær með Óla og Ingvari. Þar braut ég bjórloforðið mitt sem ég setti um síðustu helgi.

Bjórguðirnir hafa ekki fyrirgefið mér og var ég því með ljómandi hausverk í morgun.

...
- grettir :: farinn í kellingadrykkina

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Gleymdi náttla að segja að þeir voru magnaðir á tónleikunum.


 26. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
gaman að segja frá því að ég var líka með þennan ljómandi hausverk í morgun... held að það hafi verið bjórinn en ekki hljómsveitin


 26. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Alveg pottþétt. Enda eru þeir á gauknum búnir að skipta út eðalölinu Víking fyrir eitthvað Pilsner piss.


 26. ágúst 2004 ( Una ) [H]
Dúndurfréttir eru alltaf Glæzibær.


Smá klúður kostar mig aukadag í Ríó

Ritað þann:    24. ágúst 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  fyndið  

Einn ferðafélaginn var að benda mér á að skv. ferðaplaninu stóð til að koma heim 12. febrúar. Ég gerði náttúrulega þau taktísku mistök að leggja þá bara í'ann þann 12. sem þýðir að ég kem ekkert heim fyrr en 13.

Ég veit nú svosem um margt verra en að hanga einn dag í viðbót í framandi heimsálfu og það á föstudagskveldi. Bara passa að panta ekki flug heim frá London of snemma, það væri nú klassískur grettir. Fínt að vera bara í London á laugardagskveldinu og koma heim á sunnudeginum. Eða bara sleppa því að koma heim. Spáir úber snjókomu þarna um miðjan febrúar.

Eitt sem ég þarf samt að athuga áður en ég legg af stað og það er hvort maður þurfi ekki að fá einhverjar sprautur í rassinn, því síst af öllu vill maður koma með eitthvað bóbó heim.

Ójá, ég þarf líka að fara að drífa mig í að endurnýja vegbréfið. Ég verð nefnilega á faraldsfæti í haust. Frankfurt þann 13. sept. og París þann 18. okt. og vegabréfið er á síðasta söludegi.

...
- grettir :: fær maður ekki rafrænt vegabréf næst?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
Eða bara strikamerki á hnakkann eða örmerkingu svipað og voffarnir og kisurnar.. þá þyrfti maður ekki að standa í þessari fjárans endurnýjun endalaust;)


 26. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega!


Ó shet

Ritað þann:    24. ágúst 2004
Efnisflokkar:  fyndið  íþróttir  

Hljóp alltof lengi í morgun í of þröngum boxerum og er kominn með þessi fínu nuddsár á vonda staði. Til að toppa þetta langar mig geðveikt í vindil.

Ætli það sé ekki hægt að fara til læknis og láta hann skera úr sér þetta drasl sem heimtar alltaf vindil um leið og maður vaknar. Maður gæti þá kannski látið skera af sér tillann í leiðinni. Hann lætur mann segja ótrúlegustu hluti þegar maður fær sér í glas... eða hætta að fá sér í glas.

...
- grettir :: tough call

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
allt frekar slæmir kostir... nema þá kannski þessi með að láta skera úr sér "vindlus ílangus"


 24. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
já maður má alveg missa vindlus ílangusinn, haha


 24. ágúst 2004 ( Finnur ) [H]
Ekki flækja málin. Fáðu þér víðari boxer, málið dautt! Haltu typpinu og fáðu þér í glas. Case closed.


 24. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Líst vel á þessa hugmynd. Mórall eftir fyllerí er bara partur af prógramminu.


Ógurlegt bjórkveld

Ritað þann:    21. ágúst 2004
Efnisflokkar:  djamm  

Upphitun fyrir menningarnótt var tekin í gær með einu mögnuðu bjórkveldi. Óminnishegrinn var eitthvað á stjái og er kvöldið svona hægt og bítandi að rifjast upp og ekki allt gott.
Til dæmis hef ég ekki hugmynd um afhverju fötin mín eru út um alla íbúð. Ég hef ekki enn fundið nærbussurnar og er mig farið að gruna að ég hafi gleymt að klæðast einum slíkum áður en ég fór út í gær.

Anyways, lítið við því að gera annað en að svala brennivínspúkanum að nýju með því að halda ægigóða grillveislu í kvöld. Þeir sem vita símanúmerið mitt eru að sjálfsögðu velkomnir, stutt í bæinn, menn mæta með sína eigin kind eða kú eða svín eða eggaldin á grillið og þetta verður meirisháttar.

...
- grettir :: drekk til að gleyma

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Ja það var tekin general prufa í gær á (Ó)menningarnóttina í gær. Og þvílík tilþrif! Einsog tíðkast við general prufur.


 21. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ójá. Ég er með skerandi hausverk, beinverki og magapínu.

Skál fyrir því.


 24. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
skál fyrir því... gott að rvkbrg heldur uppteknum hætti og fangar fæðingu sveinbarnsins í ölfusinu...


 24. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Heyrðu já, til lukku með daginn strákur.


 24. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
þakka þér og afsakið að ég komst ekki í grillelsið hjá þér... ef það er einhver huggun þá er ég hálf grillaður þessa dagana, andlega og líkamlega...


 24. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ekkert mál. Ég er skringilegur líka. Spurning um að hringja í vinalínuna.


Alltaf missir maður af einhverju

Ritað þann:    20. ágúst 2004
Efnisflokkar:  fyndið  íþróttir  

Antisportistinn ég hef algerlega misst af þessum blessuðu Ólympíuleikum. Nú var einhver að anda því út úr sér að strandblak kvenna væri ólympíuíþrótt.

...
- grettir :: whaaaaat

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. ágúst 2004 ( Dagný Ásta ) [H]
ekki nóg með það að það sé ól íþrótt heldur er strandblak kvenna ein af vinsælustu íþróttagreinunum miðað við áhorf...

can''t blame them tho ;)


 20. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Já, ég hef greinilega verið að missa af miklu. Skilst að það séu líka ljómandi strangar reglur varðandi klæðaburð.


 24. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
ljómandi já... miiiikið horft á strandblak þessa dagana...


Todays headlines

Ritað þann:    20. ágúst 2004
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Á forsíðu moggans í dag er snilldar fyrirsögn sem ég veit að Jay Leno vinur minn hefði gaman að:

"Sprengingar valda titringi"

...
- grettir :: nei, nú ertu að grínast?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
Hahahahaha seriously ... eru þeir hjá mogganum að verða jafn vitlausir og margir kanarnir....


 20. ágúst 2004 ( Jay ) [H]
Hvað meinarðu? Þetta var augljóslega viljandi. Það er ekki alltaf auðvelt að búa til svona orðheppnar fyrirsagnir. Og fyrir þá sem föttuðu ekki: Sprengingarnar ullu titringi í skilningnum að húsin titruðu og í skilningnum að fólk varð pirrað.


 20. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Akkúrat! Og mér fannst þetta hræðilega fyndið..


Byltingarkennd tæki frá USA

Ritað þann:    19. ágúst 2004
Efnisflokkar:  ég  

Þegar ég fór til US fyrr í sumar, þá keypti ég mesta letitæki sem sögur fara af: rafmagnstannþráðagræju.
Kanar eru sumsé svo latir að þeir nenna ekki einu sinni að flossa með handafli. Ég ákvað að slást í þann hóp.

Anywho, tækið virkar eins og heil tannlæknastofa og þegar ég byrjaði daginn á minni árlegu ferð til tannsa, þá tók það hann ekki nema tíu mínútur að komast að því að allt væri í himnalagi.

...
- grettir :: hreinar tennur maður :D

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Suma daga er skemmtilegt að vera ég

Ritað þann:    18. ágúst 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  

Sérstaklega þegar maður er búinn að koma svona málum í framkvæmd.

Það er enn ekki of seint að slást í Ríó hópinn. "Blankur blankur" er ekki afsökun sem er tekin gild. Maður hefur nægan tíma til að safna að sér fé í ellinni og enginn skyldi gleyma að maður kemst ekki með bréfpeninga til helvítis.

...
- grettir :: þetta verður ferð aldarinnar

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. ágúst 2004 ( Ægir kyrrsettur ferðalangur ) [H]
AAAAAAAAAAAAARRRRRRR RRRRRRRRRRRGGGGGGGGG GGGGGGGGGGGGGG!!!!!! !!!!!!!


 19. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Eydís ætlar með. Var þér ekki boðið :-) hahaha


Margmiðlun rokkar

Ritað þann:    17. ágúst 2004
Efnisflokkar:  neytendur  

Ég ætla að vona að Margmiðlun hætti ekki að vera uppáhaldsfyrirtækið mitt þó Tal hafi keypt þá. Ég er nú í viðskiptum hjá báðum, svo ég ætti að vera í nokkuð góðum málum.

En ég er sumsé með smá sögu. Í síðustu viku fékk ég tilkynningu um böggul og missti að sjálfsögðu þvag af spenningi, enda ekki á hverjum degi sem maður fær böggul í pósti. Þegar ég fór og sótti hann var þetta gjöf frá Margmiðlun, þráðlaus heimilissími í þakkarskyni fyrir að skrá heimasímann hjá þeim!

...
- grettir :: átti nú reyndar einn fyrir, en hvað um það

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. ágúst 2004 ( Maggi Sæla ) [H]
Er síminn falur??


 17. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Nei, því miður. Gaf múttu hann bara :-)


 18. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Alltaf dúllinn nr. 1 hjá mömmu


 18. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Auðvitað ;-)


All by my self

Ritað þann:    16. ágúst 2004
Efnisflokkar:  djamm  íþróttir  

Ég hef sjaldan eða aldrei vaknað svona úber hress á mánudegi eins og í morgun. Ég deildi þessum hressleika aleinn, því þegar ég mætti í gymmið, þá var enginn á svæðinu.
Og ég er ekki að taka svona til orða, heldur var ég gersamlega aleinn (fyrir utan gaurinn í afgreiðslunni).

Helgin var annars sérdeilis prýðileg og var skundað út á lífið bæði kvöldin langt framundir morgun. Sem skilaði sér í yfirnáttúrlegri þynnku í gær, en henni má nú alltaf redda með einum sveittum Kentucky borgara.
Ég var narraður á Players á föstudaginn þar sem SSSól spilaði fyrir dansi. Þar var nú ekki stoppað lengi skal ég segja ykkur. Jæja, maður varð að prófa.

Já - fór líka í brúðkaup + skírnarveislu á laugardaginn í bongó blíðu. Til lukku Gísli og Guðrún!

...
- grettir :: stefnir í heila vinnuviku :-(

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. ágúst 2004 ( Finnur ) [H]
Held að hér séu ofskynjanir bakkusar að verki. Þú varst ekki að mæta í ræktina í morgun, heldur voru þetta minnisslitrur frá helginni. Þú varst síðasti maðurinn út af skemmtistaðnum, eins og Gigalos forðum daga.


 16. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Getur passað! Ég er búinn að vera hálf einkennilegur eftir hádegi. Of mikið kaffi kannski.


Ó nó

Ritað þann:    14. ágúst 2004
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Skipti yfir á Skjá einn áðan og greinilegt er að dómsdagur hefur runnið upp.

Þeir eru byrjaðir að sýna tuðruspark !!

...
- grettir :: mér er ekki skemmt

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. ágúst 2004 ( ramage ) [H]
Og Liverpool er búið að missa niður forystuna, og það á brúðkaupsdegi Gísla
og Guðrúnar.


 14. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Liver who?


 15. ágúst 2004 ( ægir pípari ) [H]
LENGI LIFI SKJÁR EINN (allt nema þessir blessuðu tuðruþulir eru ekki að standa sig)


 16. ágúst 2004 ( Elísjabet ) [H]
ég er líka hundósátt útí skjá einn... að geta ekki drullast til að vera með enska boltan útúm allt fyrst þeir stela honum frá stöð tvö... ég sakna fótboltans míns og óska eftir að stöð tvö taki það aftur til sín sem er réttilega þeirra... greyð Liverpool :''(:''(


 16. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Jæja, þetta verður kannski til þess að maður hangi ekki inni á laugardögum hér eftir.


 17. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
Skjár einn hefur turned evil *PIFF*


 17. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Akkúrat. Á laugardögum getum maður nú valið um að horfa á enska, þýska, ítalska eða spænska knattspyrnu.

Allt vont ef þú spyrð mig.


Ástæðurnar fyrir því að ég fór í vinnu í morgun

Ritað þann:    13. ágúst 2004
Efnisflokkar:  vinnan  

Í fyrsta lagi átti ég að sjá um morgunmatinn. Ég dreif mig því í bakarí snemma í morgun og keypti nokkur kíló af kökum og kleinuhringjum.

Þegar ég er með morgunmat, þá er ekkert hollt sett á borð.

Í öðru lagi átti ég að mæta á fund gæðastjóra í innri úttekt á verkefni sem ég er búinn að vera að vinna í síðasta eina og hálfa árið. Í því verkefni er ég verkefnisstjóri yfir sjálfum mér og ganga á úr skugga um að ég sé að fylgja vottuðum gæðastöðlum í að reka á eftir... tja... sjálfum mér.

Þessi fundur var blásinn af vegna veðurs, en morgunmaturinn var svo sætur að ég er í sykursjokki.

...
- grettir :: bjór í kvöld

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. ágúst 2004 ( ægir pípari ) [H]
ef ég kem og set upp öryggislokan sem ég ætlaði að setja upp í júni, er mér þá boðin bjór?



 13. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Það er aldrei að vita :-)


Sigurvegari í vondulagakeppninni

Ritað þann:    12. ágúst 2004
Efnisflokkar:  bjór  handbók kjósandans  

Mörg furðuleg, ósanngjörn, smáborgarleg og lummó lög eru í gildi á Íslandi, en lögin sem banna veitingastöðum að hafa borð úti á gangstétt lengur en til tíu þegar veðrið er eins magnað og það hefur verið þessa viku, eru án efa sigurvegari í vondulagakeppninni.

Kvöldið var sumsé stytt umtalsvert þar sem öllum var hent inn klukkan tíu. Og ég sem var rétt að komast í stuð.

...
- grettir :: brennivínspúkinn verður vakinn annað kvöld

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. ágúst 2004 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Ætli þetta sé ekki ættað úr þessu stórmerkilega skjali:
http://www3.domsmalaraduneyti.is/ radun eyti/starfssvid/ logregla/logr_samth/nr/8 66


 13. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Hmm... ég þarf greinilega að kíkja eitthvað á þetta autolink dót :-)

En þetta skjal er alger hörmung. Greinilegt að það er mikið af fólki í vinnu hjá ríkinu sem hefur ekkert annað að gera en að hafa vit fyrir okkur hinum vitleysingunum.


 13. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ein regla þarna sem mér líst ansi vel á:

Ekki má fara í híbýli manna í söluerindum, ef húsráðandi leggur við því bann.

Hvernig leggur maður þetta bann á? Þetta er snilld.


 13. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
Við fengum nú að sitja úti til 11 á vegamótum í gær :)


 13. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Heppin að gista ekki fangageymslur hreinlega! Þetta er náttúrulega algjör glæpur..


 14. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
MUAHAHAHAHAHA við auðvitað erum algerir glæponar:)


Olíukynding

Ritað þann:    11. ágúst 2004
Efnisflokkar:  byltingarkennd hugmynd  

Ég er að spá í að henda Orkuveitunni út og byrja að kynda með olíu eða kolum og leggja þannig mín lóð á gróðurhúsaáhrifavogarskálarnar.
Næsta mál á dagskrá verður að saga hvarfakútinn undan bílnum. Ég nenni ekki í jeppa pakkann, þó það gæti reynst mun áhrifaríkara.

...
- grettir :: sveittur dagur maður

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
éta kelloggs all bran og prumpa svo út í það óendanlega :)


 11. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ójá.. maður gæti auðvitað fengið sér tvær beljur í garðinn líka. Þá losnar maður líka við sláttinn!


Bræðslumark tölvupósts

Ritað þann:    10. ágúst 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  fimmaurar  vinnan  

Ég hef komist að því að tölvupóstur bráðnar eða eitthvað ef hitinn kemst yfir 20 gráður. Allavega hefur enginn svarað einu eða neinu í morgun og býst ég því við að fara heim á hádegi, reyna að brenna dálítið myndarlega úti í garði eða hjólandi einhversstaðar.

Skipulagning Río ferðar er langt komin og stefnum við á að kaupa miða í dag eða á morgun. Lagt verður af stað frá Keflavík 27. janúar og komið aftur 12. febrúar.
Þetta verður í fyrsta sinn sem ég fer þá suður fyrir miðbaug og er ekki laust við að ég sé að fá pípandi niðurgang af spenningi.

...
- grettir :: það er enn ekki of seint að slást í hópinn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. ágúst 2004 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Rio er rosalega spennandi en samt dálítið ógnvekjandi staður. Það er eitthvað við þessi rosalegu mörk á milli ríkra og fátækra sem sjást svo vel þarna sem fá hann til að hugsa.


 10. ágúst 2004 ( ramage ) [H]
Ég var reyndar að hugsa "BRJÓST"!!
Go figure


 10. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Maður skoðar þetta allt saman :-)


 10. ágúst 2004 ( Birna ) [H]
Eina sem ég fæ í hausinn við að sjá orðið Rio eru líka brjóst.. og enn meiri brjóst..


 10. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
það er þá ekki slæmt...


 11. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ég sé ekki vandamálið :-|


Ekki góð

Ritað þann:    09. ágúst 2004
Efnisflokkar:  fjölskyldan  skandall  

Bróðir minn númer 3 fékk bílprófið á laugardaginn, tók daginn snemma og lagði af stað norður á land. Bíllinn gafst upp á miðri leið (japanskt drasl) svo ég fór og dró hann í Borgarnes, skutlaði pilti í bæinn og lánaði honum minn bíl.

Í gær fékk svo bróðir númer 2 botnlangakast og var lagður inn í skyndi og skorinn.

Mér er hætt að lítast á blikuna... samkvæmt þessu er ég næstur!

...
- grettir :: orðlaus

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. ágúst 2004 ( ægir ) [H]
og varstu ekki að plana hjólreiðar á morgun, ertu ekki að tefla á tvær hættur ???


 09. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ég slapp ómeiddur í dag, svo ég ætla að taka sénsinn :-)


Barnauppeldi

Ritað þann:    06. ágúst 2004
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Ég gjörsamlega grenjaði úr hlátri þegar ég las þetta.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Blámenn

Ritað þann:    06. ágúst 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  tónlist  

Ég hef áður minnst á hversu miklir endemis snillingar eru í Blue Man Group og núna er ég að drepast, mig langar svo að sjá showið. Nú er sýningin komin til Evrópu og á Austurströndina, svo maður þarf ekki að ferðast yfir hálfan hnöttinn, alla leið til Las Vegas til að sjá þessa trúða.
Ekki að maður myndi hata það mikið að koma til Vegas.

...
- grettir :: æj, fokk hvað mig langar í heimsreisu

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
heimsreisu... heyrðu ég er með!


 07. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
excellent.. bætum þetta 80 daga met sem er búið að standa alltof lengi.


 07. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Er bara ekki að stefna á Dóminíska Lýðveldið í jan feb á næsta ári ? Ekki þetta dæmigerða sólarlandaklósett! Sól + fallegasta kvenfólk jarðar - (tjallar íslendingar og annar evrópskur viðbjóður) og stuð??


 07. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega.. taka það bara með Rio ferðinni?


Hver er með?

Ritað þann:    06. ágúst 2004
Efnisflokkar:  ferðalög  

Í ölæði um daginn var ákveðið að skella sér til Ríó á kjötkveðjuhátíð. Mínir menn eru komnir í skipulagsgírinn og stefnir í myndarlegan hóp, eða hóp myndarlegra, sem ætla að skella sér.

Maður getur ímyndað sér að til sé margt leiðinlegra í heimi en að hanga í Ríó, það get ég alveg sagt ykkur. Svo hef ég aldrei komið til Suður-Ameríku.
Með fullri virðingu fyrir 3ja vikna sólarlandaferðum, been there, done that.

...
- grettir :: hver er með?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. ágúst 2004 ( ægir ) [H]
asni
mig langar líka hvað kostar ?


 07. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Þetta er svona 130 þús. flug og gisting. Byrja bara að safna, sleppa jólagefunum í ár og byrja að borða núðlur í hvert mál..


Maginn minn !

Ritað þann:    04. ágúst 2004
Efnisflokkar:  þynnka  

Maginn er ennþá í uppreisn í dag. Mér varð flökurt þegar ég heyrði af Chilli réttnum í hádeginu. Þá var aðeins eitt til ráða. Rölta út í búð og versla hið ultimate survival kit fyrir mallakútinn sinn. Það samanstóð af:

Tveim bönunum
Tveim maltdósum
Þrem kókómjólk
Tveim skyrdollum
Kippu af LGG+

Ef ég verð ekki orðinn hress á morgun á ég aldrei eftir að drekka aftur...ekki svona mikið að minnsta kosti. Hold on. Endurorðum þetta: aldrei eftir að drekka hvítvín, gin, bjór og captain sama kvöldið.

...
- grettir :: maður á það til að fara yfir strikið í eyjum

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Í Ölves nafni amen


 05. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Ójá.

Og þess ber að geta að ég er eins og nýsleginn túskildingur eftir þessa meðferð.


 05. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
og þá bara fara í ríkið og kaupa meira fyrir næstu helgi...


 05. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Gammel Dansk og kruðerí með kaffinu í Olís


 05. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
þeir klikka ekki á þessu í MAGGÍS...


 06. ágúst 2004 ( gisill ) [H]
Verdurdu ekki med Dr. Nielsen med kanilsnúdunum?


 06. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Þá er alveg eins gott að bjóða uppá LSD eða eitthvað mildara en Dr. Nielsen


 06. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Dr. Who? Ég er ekki alveg inni í götuslanginu strákar mínir.


 06. ágúst 2004 ( Maggi Taz ) [H]
Þú færð Dr. Nielsen á Kaffi Stíg



 06. ágúst 2004 ( Ingvar J. ) [H]
Dr. Nielsen hressir bætir og kætir, tala nú ekki um ef hann er keyptur af mökkuðum barþjón á Kaffi Stíg.


 06. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
þessi viðbjóður - dr. nielsen - er bara drukkinn af mikilmennum á við júlíus járnamann - jules iron - sem einir þola slíkt eldvatn


Eyjum fyrirgefið

Ritað þann:    03. ágúst 2004
Efnisflokkar:  djamm  

Ég veit að ég lét ýmis ljót orð falla um eyjar fyrir tveimur árum, en það var bara af því að ég var í viku að þurrka fötin mín enda rigndi fyrir árið á þeirri einu helgi.

Nú var öldin önnur og vil ég meina að ég hafi átt stóran þátt í því, enda ekki með neitt nema regnföt í töskunni, þegar ég hefði þurft stuttbuxur. Og ég var á hóteli, svo það hefði svo sem mátt rigna eldi og brennisteini mín vegna.
Sérstaklega eftir að við fundum potta- og gufuaðstöðuna í kjallaranum, með setustofu, inniskóm og baðsloppum sem voru svo mjúkir að þó maður hefði dottið ofan í dollu fulla af súkkulaðibúðing, þá hefði manni ekki geta liðið betur.

Aðalgrín helgarinnar var að sjálfsögðu nafnagrínið, en við Óli Fly vorum að djamma með gömlum skólafélaga mínum sem heitir líka því fallega nafni Grettir. Það trúði okkur auðvitað ekki nokkur kjaftur og við svöruðum alltaf báðir þegar Óli var að tala við annan hvorn okkar.

Staðan er sem sagt sú, að þó ég hafi verið með æluna í hálsinum frá því að við komum út á flugvöll og þar til ég lagðist upp í sófa heima og sé ekki búinn að éta ætan bita síðan á sunnudagskvöld vegna þess að maginn er á röngunni, þá var þetta hin mesta gleði og engin spurning að maður mætir að ári.

...
- grettir :: spurning um að reyna við morgunmat

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. ágúst 2004 ( Ægir ) [H]
Ertu ekki búin að svíkja málstaðin með að vera á hóteli eins og heldri maður sem þú ert nú ekki enn orðin þó vel á leið sé komið?



 03. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
Já ætli það ekki? Tjald er eitthvað svo old school..


 04. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
ég bara trúi ekki enn að þú hafir verið á hóteli í þjóðhátíð og það hafi ekki verið hótel bræðraborg... ég meina ási sigmars er það heiðursgestur ;)


 04. ágúst 2004 ( - grettir ) [H]
heyrðu það er búið að leggja það niður!! heitir Hamar eða e-ð álíka núna.


 05. ágúst 2004 ( von ölves ) [H]
iss iss .. agalegt. og hvar á þá að tæma slökkvitæki?