1 til 7 af 7
Ljómandi er maður nú búinn að hafa það gott í fríinu. Og veðurstofan hefur verið manni hliðholl.
Best að halda áfram að gera ekki neitt...
To understand politics
Ritað þann: 09. júlí 2009
Efnisflokkar: fyndið
To understand politics we need to understand it's derived from two words "poly" meaning many and "tics" meaning tiny bloodsucking insects.
Þrír og hálfur vinnudagur eftir áður en ég fer í sumarfrí.
Sumarfríið í ár verður alger afslöppun og er kærkomið eftir langan og á köflum þreytandi vetur.
Við verðum heima í ár. Vá hvað ég hlakka til.
Við fengum okkur bókasafnsskírteini um helgina og leigðum okkur bækur og DVD.
1300 krónur árið fyrir allar þær bækur sem þú getur lesið og þá DVD sem þú getur horft á.
Kreppuvænt.
Athyglissýki á lokastigi
Ritað þann: 06. júlí 2009
Efnisflokkar: dylgjur
Fólk á ekki að gera athyglissjúkum það til geðs að veita þeim þá athygli sem þeir kalla sífellt eftir.
Ekki myndi fólk veifa bjórflöskunni framan í þann áfengissjúka?
28 mínútur
Ritað þann: 02. júlí 2009
Efnisflokkar: hjólreiðar
Konan mín skutlaði mér í vinnuna í gær með hjólið í skottinu. Ég var 28 mínútur að hjóla heim og ákvað að skella mér á reiðhjólinu í vinnuna í morgun (the man powered bicycle).
Ég var rétt rúman hálftíma, 32 mínútur eða eitthvað. Helvítis brekkan úr Elliðaárdalnum (stokkurinn) er ansi sveitt.
En með þessu áframhaldi verð ég með læri eins og Hulk, maga eins og bárujárn og með þol eins og Roadrunner.