1 til 17 af 17

Kárahnjúkar

Ritað þann:    29. júlí 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Það er bíll hérna á planinu fyrir framan vinnuna mína sem er alltaf með ljósin kveikt. Allan daginn, alla daga.
Mig grunar að eigandinn sé með leynisamning við Landsvirkjun og sé með litla útgáfu af Kárahnjúkavirkjun í skottinu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Þjóðhátíðar rigningin

Ritað þann:    29. júlí 2005
Efnisflokkar:  djamm  

Það er nú ekki einleikið hvað við erum alltaf heppin með rigningu um verslunarmannahelgina. Ég hélt að eyjar myndu sleppa í ár þar sem ég hafði ákveðið að halda mig heima (gegn því skilyrði að gestir á þjóðhátíð myndu allir senda mér 50 krónur), en svo virðist ekki vera.

En það verður bara Rokk í Reykjavík hjá mér um helgina. Snilld.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
trúbadorinn, vinur þinn, er að spila um helgina í rvk... á ekki að skella sér?


 29. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Ég er búinn að heyra allt programmið ;-)


Kynlíf í tölvuleikjum

Ritað þann:    28. júlí 2005
Efnisflokkar:  djamm  efahyggja  fyndið  

Eins og flestir vita, laumaði einhver kynlífs atriði inn í Grand Theft Auto leikinn og særði þar með blygðunarkennd öfgafulls bókstafstrúaðs kirkjunnar fólk í Bandaríkjunum. Og sjálfsagt fleiri feitabollur - sem eru nú með dollarmerki í augunum og ætla að kæra og ég veit ekki hvað.

Nú gengur þessi leikur út á það að keyra niður gangandi vegfarendur og slátra sem flestum á sem viðbjóðslegastan hátt. Það er allt í lagi - enda kirkjunnar fólk vant því að úthella þurfi smá blóði til að vera hress.
En ef það sést í jullur þá verður allt vitlaust. Ef jullan hefði verið skotin í spað, þá hefði þetta sjálfsagt verið minna mál.

Ruglað þetta lið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. júlí 2005 ( SímaÖnd ) [H]
Gæti ekki verið meira sammála þér.
Í frönskum myndum þykir ekkert tiltökumál þó að fólk sjáist nakið, ef þetta væri amerísk mynd þá væri búið að salsa niður kvikmyndaframleiðandann og brenna filmuna.

hér er dæmi um klikkun bandaríkjamanna.
http://www.nbc17.com/news/4773243/detail.html


 28. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Já djöfull er þetta sick lið. Menn þurfa að vera verulega brenglaðir ef þeir sjá eitthvað annað en foreldra umhyggju út úr þessu.
Ætli foreldrar þori yfir höfuð að knúsa börnin sín?


 28. júlí 2005 ( KynÖnd ) [H]
Já, spurning ætli þetta endi ekki á því að bara lögfræðingar í bandaríkjunum megi kyssa börnin sín.

Almenningur mun hinsvegar ekki eiga í vandræðum með að skjóta þau.



 29. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe góður.
Það er einmitt ágætis ádeila á lögfræðinga í Interstate 60 ( http://www.imdb.com/title/tt0165832 ). Mæli með þeirri ræmu.
Aðalsöguhetjan kemur inn í smábæ einhversstaðar í rassgati og það búa bara lögfræðingar í bænum. Hann fær stöðumælasekt og það mæta svona 50 stykki að bjóðast til að verja hann.

Eins og ég hef sagt, þá eru Bandaríkin mjög neðarlega á listanum yfir lönd sem ég vildi búa í.


 30. júlí 2005 ( ægir tuðmeistari ) [H]
þótt einhver persóna sé í aðalhlutverki þarf hún ekki endilega að vera hetja er það nokkuð


 31. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Þessi var hetja því hann keyrði um á BMW!


SMS spam

Ritað þann:    27. júlí 2005
Efnisflokkar:  neytendur  skandall  

Ekkert fær maður að hafa í friði. BT er búið að vera að senda mér einhver tilboð reglulega vegna þess að ég asnaðist til að taka þátt í einhverjum SMS leik í desember og núna var MR búðin að bætast í hóp þeirra sem maður verslar ekki við.

Hvernig þeir fengu númerið mitt þætti mér gaman að vita. Sá sem lét þá hafa það er kominn á svarta listann hjá mér.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. júlí 2005 ( majae ) [H]
ég gerði það sko ekki, sverða. !!!


 28. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, trúi þér..


Geispandi símastarfsmaðurinn

Ritað þann:    26. júlí 2005
Efnisflokkar:  neytendur  skandall  

Karl faðir minn ætlaði að láta undan hópþrýstingi yngri systkina minna og fjárfesta loks í ADSL á heimilinu.

Hann fer í Símabúðina í Kringlunni til að athuga hvað er í boði. Þar tekur á móti honum geispandi starfsmaður sem var ekki að nenna þessu afgreiðsluveseni. Faðir minn hefur líklega verið að trufla hann við tölvuleikjaiðkun, því engin voru svörin og kvikindið gapti sem mest hann mátti. Ekkert ADSL var keypt þann daginn.

Nokkrum dögum síðar fer vinur minn með gallaðan síma á sömu slóðir og lendir á sama flóðhesti - gapandi eins og til að lokka að sér fugla til tannhreinsunar - því ekki býst ég við að hann nenni að bursta geiflurnar frekar en að afgreiða.
Vinur minn segir honum þá, frekar viðskotaillur yfir þessu áhugaleysi (starfs)mannsins að hann skipti þá bara yfir í OgVodafone.
Þú færð alveg sömu svör þeim megin svaraði hann og geispaði sem aldrei fyrr.

Ætli það búi trúbadorar fyrir ofan hann eins og mig?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. júlí 2005 ( Brynja ) [H]
Símabúðafjandar. Lenti í þessu sama í Smáralind. Beið í 25 mín og þegar það var komið að mér stökk starfsmaðurinn á bakvið. Þegar ég hafði beðið í 5 mínútur í viðbót spurði ég hvort hann kæmi eitthvað aftur. Jújú...en eftir klukkuíma því hann er farinn í mat !! COMMON! Ég varð brjáluð og strunsaði á dyr. Kem þarna aldrei aftur enda á ég ekkert erindi við þetta S**** fyrirtæki Símanngroup !


 27. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Fussum svei! OgVodafone er alveg málið.


 27. júlí 2005 ( Gettu! ) [H]
Bíddu, má fólk ekki fara í mat í verslun eins og annars staðar? Það er bara lögbundið - sorry!

Svo má maður nú ekki drulla yfir fyrirtæki út af einum slæmum starfsmanni... ..það eru skemmdir bitar alls staðar...


 27. júlí 2005 ( SímaÖnd ) [H]
Það stendur í lögum um fjarskiptafyrirtæki

Grein 6 undirgrein 6 kafli 6.

"Fjarskiptafyrirtæki verður að taka viðskiptavininn í ósmurðann og helst taka extra fyrir það"

kafli 7 segir
"Fjarskiptafyrirtæki má undir engum kringumstæðum svara innan 60 mínútna frá upphafi símtals á þjónustuborð"



 28. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Þá á bara að reka þessa vondu bita ;-)
Ef starfsmaður í þjónustu fer í mat, þá verður auðvitað einhver að taka við af honum.

En ef ég á að giska, þá held ég að þú sért einn af forstjórum Símans. Hvað heita þeir nú aftur.. allir sem eru á forstjóra launum hjá Símanum? Humm..


 28. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Og ég var að drulla yfir skemmda bitann. Ekki fyrirtækið í heild sinni. Ekki hef ég neina reynslu af Símanum persónulega.


 28. júlí 2005 ( majae ) [H]
60 mínútna bið í þjónustu.. rugl og vitleysa, mesta bið eru 2 mín á álagstímum (þegar lokanir og reikningakeyrslur eru) hjá ogvodafone.

En ég er alveg sammála þessu með starfsmenn og fyrirtækin, þekki nokkrar mjög góðar sem eru að vinna hjá símanum og þekki eina alveg mjög duglega sem er að vinna hjá ogvodafone (ég sko) þetta fer bara eftir starfsmönnum.

´Hann karl faðir þinn getur hringt í 1414 og pantað adsl, búnaður (forstillur) og samningur keyrður til hans til undirskriftar. Annars finnst mér að fólk sem ég þekki eiga alltaf að biðja mig um að plögga öllu svona. ;)


 28. júlí 2005 ( SímaÖnd ) [H]
Ég var einusinni með rekstur á tölvukerfi þar sem netið var hjá vodafone og ég var að reyna að ná í tæknimenn á föstudegi , ég hringdi kl 1200 og bað um að fá samband við tæknimann kl 1500 var mér tjáð að þeir væru farnir í helgarfrí, ég hef verið með ofnæmi fyrir píanótónlist síðan.
Ég er ekki að segja að þetta sé reglan en mín reynsla af símafyrirtæjum er VOND.
Ég fór í búð símans í ármúla til að láta gera við gsm síma, búðin var tóm fyrir utan 1 á undan mér. ég beið í rúmar 30 mín til að rétta viðgerðarmanneskju síman... enn slapp við píanótónlist


Viftu-undur

Ritað þann:    26. júlí 2005
Efnisflokkar:  fyndið  vinnan  

Ég er nýbúinn að fá flennistóra viftu í gluggann hérna fyrir aftan mig sem fær heldur betur að vinna fyrir kaupinu sínu.

Þeim peningum var vel varið.
Ekki mínum peningum - heldur peningum fyrirtækisins, því ef það væri ekki fyrir þessa viftu, þá lægju allir samstarfsfélagar mínir meðvitundarlausir í gólfinu af svitalykt og táfýlu.

Auðvitað ekki af minni svitalykt og táfýlu. Þær eru himneskar og gæti ég eflaust selt báðar á brúsum ef ég kærði mig um.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Bíll eða strætó?

Ritað þann:    26. júlí 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  vinnan  

Fréttir af breyttum strætóleiðum hafa eflaust verið fleiri en farþegar undanfarna daga. Því ákvað ég nú að skoða hvernig ég kæmist í vinnuna með slíku farartæki.

Sjá hér: Framnesvegur -> Út í rassgat
Og ég þarf að ganga 250+ metra hið minnsta og tæplega hálfan kílómeter hið mesta. Hálfur kílómeter er ekki svo auðveldlega kláraður þegar Siggi Slabb hefur spáð óveðri.
Þetta tekur mig reyndar ekki nema 30 mínútur (í besta falli, ef maður fer ekki inn í vitlausan vagn) í stað 95 mínútna áður.

Ég þarf stundum að fara á fundi niðri í bæ á miðjum degi, svo við skulum athuga hvernig það lítur út:

Frá Rassgati -> Skólavörðuholt
Nú líst mér ekki á blikuna. Ég þarf að labba 800+ metra. Má maður ekki taka með sér hjól?

Það er því bara eitt í stöðunni ef ég sel bílinn eða missi prófið og nenni ekki að eyða einum og hálfum tíma að meðaltali á ferðalög á dag. Fá mér vinnu í Nóatúni í næsta húsi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. júlí 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
*haha* það er einmitt verið að auglýsa eftir fólki :P


 26. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Djöfull tæki ég mig vel út í kjötborðinu :D


 26. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
þú værir grillaralegur í kjötborðinu með bjór í annari og grillspaðann í hinni!


 26. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Heldur betur! Voru það ekki Nóatúnsbúðirnar sem voru að gefa bjór með grillunum um daginn?


Fyrirfram greiddur skattur

Ritað þann:    25. júlí 2005
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  

Sótti bráðabirgða álagningarseðilinn á netið áðan. Herra Haarde ætlar að rukka mig um hátekjuskatt og ekki nóg með það, þá ætlar hann að rukka mig um slíkan skatt fyrirfram fyrir árið 2005.

Nú veit ég ekki hvort grasið er grænna í öðrum löndum hvað þetta varðar, en þetta er auðvitað bara bull. Þetta er eins og maður fengi rukkun fyrir virðisaukaskatti af mjólk sem maður myndi hugsanlega kaupa í næstu viku, en fengi hann endurgreiddan (án vaxta að sjálfsögðu) ef engin væri mjólkin keypt.

Ekki skrýtið að þetta skattkerfi sé þungt og dýrt í rekstri þegar svona vitleysa viðgengst.

Púú!

- grettir

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
þú kaust þetta yfir þig kall minn... eða var það ekki?


 25. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Ég skilaði reyndar auðu síðast vegna, að mér fannst, skorts á frambærilegu fólki.


 25. júlí 2005 ( J ) [H]
Þú veist að álagningarseðillinn er ekki aðgengilegur fyrr en á miðvikudaginn... Og að það sem þú varst að sækja hefurðu getað skoðað síðan þú skilaðir skattskýrslunni þinni... Þú veist það, er það ekki?


 26. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Ég var ekki búinn að skoða þetta, nei :-|
En ég fékk póst frá skattman í gærkvöldi um að þetta yrði aðgengilegt á morgun :-)


London

Ritað þann:    25. júlí 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  vinnan  

Ég er að fara til London í byrjun október að vinna. Ætli maður taki ekki bara leigubíl?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
það verður nú dýr leigubíll :)


 25. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Já, ætli maður taki ekki flug fyrri partinn :D
En inn í lest fer ég ekki!


Súrt

Ritað þann:    21. júlí 2005
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Á leiðinni í hádegismat heyrði ég eftirfarandi í fréttum:
Aðalfundur félags íslenskra útfararstjóra verður haldinn .. bla bla bla

Þori að veðja að þar verða líflegar umræður.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. júlí 2005 ( gisill ) [H]
Thetta var nú vel ad ordi komist! Th.e. líflegar umrædur á adalfundi útfararstjóra:)


 25. júlí 2005 ( albin ) [H]
Lifandi félagsskapur líklega.
"Death is life''s way of telling you you''re fired."


 25. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe..


Sinaskeiðabólga

Ritað þann:    19. júlí 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Ég er búinn að vera með króníska sinaskeiðabólgu í músahendinni (rúnkhendinni) í nokkrar vikur núna.

Það er tvennt í stöðunni. Fá sér aðra vinnu eða fasta konu. Það seinna kemur kannski ef það fyrra er uppfyllt, því tech markaðurinn er ekkert yfirfullur af konum, það verður að viðurkennast.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. júlí 2005 ( Ósk ) [H]
Tja.. eða þjálfa hina hendina upp í.................................. *hóst* músanotkun


 19. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
*hóst* já akkúrat, hehe


 19. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
þú gætir líka þjálfað hendina með glasalyftingum... afmælisbjórinn var t.d. ágætis æfingatæki.


 20. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Já stígvélið góða! Hmm.. good times


 20. júlí 2005 ( Finnur ) [H]
Hvað með vinstri hendina, á ekki að nota hana?


 21. júlí 2005 ( Halla ) [H]
t.d. gætirðu mætt í bjór með þremur fallegum konum þegar það stendur til boða, svona frekar en að fara í allt of langan hjólreiðatúr...


 21. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Humm, já ;-) Sneið skilin..


 22. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
gott þá þegar þessar fallegur konur þekkja mann ekki á austurvelli!


 22. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Nú? Var einhver að dissa þig?


 24. júlí 2005 ( Halla ) [H]
Sko, von ölves, ef þessu skoti er beint að mér þá er rétt að taka fram að ég hóf hrókasamræður við þig um daginn og þú horfðir mjög undarlega á mig. Þá kom í ljós að það varst ekki þú. Síðan þá hef ég verið mjög svo vör um mig þegar þú ert annars vegar. Kannski þú hnippir bara í mig næst?


 25. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
nú já... og var ég ekki hress? :)
annars var þessu skoti beint til þín þar sem ég reyndi að heilsa þér á austurvelli um daginn og þú þekktir mig ekki... kannski af því ég var með tyrknesku bensínstöðvargleraugun mín.


 25. júlí 2005 ( Halla ) [H]
Þú varst nebbla ekkert voðalega hress, a.m.k. ekki þetta kvöld. Fannst ég e-ð skrítin held ég :o

Ég skal hafa augun opin fyrir mönnum með tyrknesk bensínstöðvargleraugu ;)


American Pimp

Ritað þann:    19. júlí 2005
Efnisflokkar:  sjónvarp  

Það var ágætis heimildarmynd um melludólga á Stöð 2 í gær. Ef einhver var í vafa um að þetta væru drullusokkar, þá ætti sá hinn sami ekki að vera það lengur.

Orðaforði melludólga er heldur ekki framúrskarandi, en þeir enda allar setningar á "You know what I'm saying?" eða "You know what I mean?"

...
- grettir :: jájá, við skiljum

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. júlí 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
já þetta var annsi uhhh fróðleg mynd...
furðulegt þjóðfélag


 19. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Vægt til orða tekið :-)


 19. júlí 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
algerlega :)


 19. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
ég missti af þessari heimildarmynd en get ímyndað mér að þeir tali eins og félagi snoop og félagar :(


Ameríski draumurinn

Ritað þann:    18. júlí 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  fréttir  neytendur  peningar  

Eftir því sem ég heimsæki fleiri lönd í Evrópu finnst mér hún alltaf meira og meira spennandi og Ameríka að sama skapi fráhrindandi.

Þessi grein á vald.org gerði útslagið fyrir mig. N-Ameríka sökkar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. júlí 2005 ( J ) [H]
Láttu ekki svona, Kanada er ekkert svo slæm.


 18. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei.. það er reyndar rétt. Óheppnir með nágranna.


 19. júlí 2005 ( Halla ) [H]
Evrópa er miklu meira spennó.


Pínku þunnur

Ritað þann:    15. júlí 2005
Efnisflokkar:  fyndið  tónlist  vinnan  

Ég fór á "Árshátíð" með einum vinnuhóp sem ég tilheyri í gærkvöldi. Fórum á Carúsó, borðuðum myndarlega og drukkum fínt rauðvín. Ansi gott verð ég að segja, þrátt fyrir að það sé eitthvað slen í mér í dag.


Ég sá á Stöð 2 um daginn, rökræður um þennan Snoop hund sem er á leiðinni til landsins, en hann ku vera umdeild fyrirmynd.

Össur orðar þetta ansi skemmtilega:
Sjálfur tala ég og skil ensku ágæta vel eftir að hafa búið hálfan áratug í Bretlandi. Mér er samt algerlega fyrirmunað að skilja obbann af því sem Snoop Dog puðrar út úr sér.

Burt séð frá því hversu vel maður skilur rapparann eða hvort hann er einhver kórdrengur, þá er hann alveg fokk leiðinlegur. Hann sýndi sitt ljóta fés á Rock Werchter um daginn. Hér er smá textadæmi:

Jó mother focker, jó mother focker... Snoop mother focker, Snoop mother focker, Snoop

Og annað:

Nanana.. nanana, yehehe.. Snoop dog

Gaurinn er bara grín. Og lélegt grín meira að segja.

...
- grettir :: færi ekki þó ég fengi gefins miða

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
já djöfulli var hann leiðinlegur á rw... ég kemst bara tæplega yfir það ennþá!


 20. júlí 2005 ( Gunnar Sig. ) [H]
Common drengir. Þið eruð ömurlegir :) Það er ekkert til flottara en lag sem inniheldur helling af "moðerfokker". Enda var það almennt tilgangur Pullover Moðerfokker á sínum tíma. Spurning um að reyna að fá hana bókaða á næsta Rock Wrchter


 20. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Allt í lagi með "moðefokker". Það er þetta Snúbb í öðru hverju orði sem fer í taugarnar á okkur :D


Púngsveitt vika

Ritað þann:    14. júlí 2005
Efnisflokkar:  fjölskyldan  líðandi stund  vinnan  

Merkilegt þegar maður bregður sér frá í tvær vikur, þá hrannast bara verkefnin upp og maður þarf að vinna helmingi meira og hraðar en áður en maður fór í frí.
This sucks!

En ég er að spá í að skreppa í hjólreiðatúr á eftir. Mér skilst að þessi blíða ætli að stoppa stutt.


Litla systir er að fara til Svíþjóðar í fyrramálið.
Ég á eftir að sakna hennar :-( enda besta vinkona mín.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
stutt!! hversu stutt?


 14. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Einn dag! Rigning um helgina:
http://www.mbl.is/mm/frettir/vedur


 14. júlí 2005 ( Birna ) [H]
NEI NEI NEEEEEEEI... þetta er ekki leyfilegt ....... ömurlegi veðurmaður!


 16. júlí 2005 ( ægir pípari ) [H]
ja ég er nú bara búin að gefast upp á þessu veðri. og húrra fyrir island express miði for hele gengið til köben með nokkura daga fyrirvara á 70þús. og nú bara að fara í útilegu þangað jíbbí. en stor öl takk jeg kommer snart 0g snakke dansk meget flott eða whatever


 17. júlí 2005 ( Halla ) [H]
Hvernig væri að bjóða vinkonu sinni e-n tíma með sér í hjólatúr? Já eða e-n af þessum bjórum sem þú ert alltaf að drekka.
Ég meina, kona spyr sig...



 17. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Ekkert mál, hringi í þig næst :-)

Varðandi bjórinn.. verðum við ekki bara að plana hitting á liðið?


 17. júlí 2005 ( Halla ) [H]
Jú, ég held að það sé heldur betur kominn tími á það. Styttist reyndar í að ég haldi temmilega stórt partí. Spurning um að sameinast þar í leiðinni...


Rock Werchter rokkaði

Ritað þann:    11. júlí 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  tónlist  

Djöfulsins snilld var Rock Werchter! Svo mikil snilld að ég er alvarlega að spá í ferð á Pukkel Pop í Ágúst, en þar verða meðal annars Korn, Pixies og Marilyn Manson og fleiri góðir.

Á fimmtudeginum fórum við að sjá Bravery, New Order, Kraftwerk og svo sáum við restina af Snoop Dogg (fokk hvað gaurinn er boring).

Á föstudeginum sáum við fullt af dóti, en Green day stóð þar upp úr. Þeir eru massa flottir á sviði. Drógu fólk upp úr crowdinu og létu þau spila á trommur, gítar og bassa. Bara svalt og töff.

Á laugardeginum standa Bloc Party, Interpol, Audioslave og Rammstein upp úr, enda eintóm gleði og hamingja þar á ferð.

Sunnudagurinn var sá þynnsti sem ég man eftir á minni stuttu ævi enda var dagurinn á undan 18 tíma bjórdrykkja, en rétt náði restinni af Foo Fighters og svo R.E.M. Missti sem sagt af Queens of the Stone Age, en skilst að þeir hafi verið hressir. Við Ingunn gerðum tilraun til að borða og koma okkur niður á svæði, en það endaði ekki vel. Kebab lykt er sérlega óhressandi þegar

Olav von Ölves er með hressa ferðasögu af okkur þarna úti og svo tók ég slatta af myndum sem ég á eftir að setja lýsingu við.

En best að byrja að vinna :-(

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
sumar myndirnar eru nú tæplega fyrir viðkvæma... td myndin af rauða manninum í vestinu!


 11. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, rétt!


 11. júlí 2005 ( Ingunn ) [H]
..já shitt eða myndin af mér og rauða á sunnudagsmorgun þegar við komum heim eftir jammið...bjór þvegin og fín...hvernig fórstu að því að taka þessa mynd Grettir ? Þú varst nú ekki þess legur þarna um morguninn.


 11. júlí 2005 ( Anna Júl ) [H]
Ég sé að þið hafið skemmt ykkur vel, en já myndirnar fara misvel í mann :)


 11. júlí 2005 ( Rauði ) [H]
það sést vel á myndunum hversu harður ég er...


 12. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Ingunn, ég held að Óli hafi tekið þessa. Ég man allavega ekki eftir þessari sjón, hehe.


 13. júlí 2005 ( Maggi Sæla ) [H]
Hvar verður svo hægt að skoða ,,óritskoðuðu" myndirnar?


 13. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
kannski á myndakvöldinu þar sem myndböndin verða líka sýnd... rauði að tala um "gelið" sitt, golfmyndir ofl.


 18. júlí 2005 ( Ingunn ) [H]
...nei en ég man alveg eftir þér, þótt við vorum jafn hress


Tech-Ed Amsterdam

Ritað þann:    05. júlí 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  fyndið  vinnan  

Sjaldan hef eg sed svona mikid af nerds samankomna a einni radstefnu. Thad er likt og atvinnusjukdomurinn se ad vera furdulegur i utliti.

En eg er sem sagt kominn til Hollands a Nerdy 2005 eftir eintomt rokk i Belgiu. Segi ykkur betur fra thvi sidar med myndum.

...
- grettir :: nerdy nerdy nerdy

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. júlí 2005 ( Ingunn ) [H]
Þú hefur sem sagt komist alla leið...ertu ennþá þunnur ? Eða ertu kanski búinn að gleyma orðunum sem komu út úr þér á sunnudaginn ?" ég ætla aldrei að drekka bjór aftur " hahaha vorum stórkostleg saman.


 07. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Eg komst fyrir rest, fokk hvad ferdin var erfid :-| Thad voru fullir Belgar i lestinni ad spila Twister og eg thurfti ad vera alveg kyrr til ad gubba ekki.

En eg er longu buinn ad gleyma hvad eg sagdi a sunnudaginn.. Amsterdam er buin ad vera god vid mig :D


 07. júlí 2005 ( von ölves ) [H]
þið voruð þynnsta fólk sem ég hef lengi séð... en takk fyrir rokkið!!! gott að geta slakað á með nördunum í amsterd.


 10. júlí 2005 ( Sigrún Huld ) [H]
BMW spurði gamla VW bjöllu af hverju hún væri með svona útstæð augu og bjallan svaraði: " Hvernig heldur þú að það sé að láta troða mótor í rassinn á sér??!!"


 11. júlí 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, stórgóður þessi :D