1 til 15 af 15
Ég var svo yfirnáttúrulega syfjaður í morgun að ég tók með mér íþróttatöskuna upp á skrifstofu í staðinn fyrir tölvutöskuna. Að hugsa sér að ég hafi komist óskaddaður alla leið vestan úr bæ.
Þegar ég hugsa aðeins til baka, þá man ég ekkert eftir bílferðinni. Það ætti að setja í landslög að menn eigi ekki að vakna fyrir átta á morgnanna. Stórhættulegt. Önnur eins þvæla hefur nú komist í gegnum þingið.

Áðan komst ég líka að því að ég á trúlega besta bíl í heimi. Fyrir utan að koma mér í heilu lagi, sofandi í vinnuna, þá datt kallinn í heila 230 þúsund kílómetra. Og aldrei verið betri. Hann er eins og eigandinn (og gott rauðvín). Verðum bara betri með aldrinum.
...
- grettir :: kannski maður þrífi hann bara í tilefni dagsins.
Versta hugmynd í heimi - yack
Ritað þann: 28. júní 2004
Efnisflokkar: fyndið matur
Smakkaði verulega vont skyr í morgun. Skyr með Aloe Vera bragði. Lyktin út úr manni er eflaust eins og maður hafi verið á sólarströnd og óvart fengið sér sopa úr after sun brúsanum.
...
- grettir :: það sem mönnum dettur í hug að setja út í þetta dót
Dagavilltur
Ritað þann: 25. júní 2004
Efnisflokkar: vinnan
Einhvern veginn búið að vera fast í mér að það sé fimmtudagur í dag. Gleðin var ólýsanleg þegar ég uppgötvaði að það er í raun föstudagur.
Sú gleði hvarf um leið og ég uppgötvaði að ég hafði þá gleymt að mæta á eitt stykki fund rétt í þessu. Ótrúlega hressandi að hringja í kúnnann og útskýra þessi klaufalegu mistök.
Svona er þetta, maður man ekki allt, sérstaklega ef maður gleymir líka að kveikja á tölvupóstinum, sem á jú að minna mann á svona.
En það er víst komin helgi. Býst nú frekar við því að hún verði með rólegra móti, en sjáum til. Kannski gleymi ég því bara og skrepp eitthvað út.
...
- grettir :: gleymi sjálfum mér einhvern daginn.
Íslandsmet sett
Ritað þann: 21. júní 2004
Efnisflokkar: líðandi stund
Náði að snúsa klukkuna frá 7:20 til 11:00 en þá var ég kominn með harðsperrur í snús puttann. Þetta hlýtur að vera Íslandsmet. Þetta er allavega persónulegt met. Nú verð ég að vinna til sjö í góða veðrinu. Gott á mig.
Gísli og Guðrún, sem slógu yfir mig skjólshúsi í fyrra á meðan ég beið eftir íbúðinni minni, eignuðust pjakk í nótt. Til lukku með það!
Án þess að ég viti það fyrir víst, þá grunar mig að piltur verði skírður grettir. Annað væri hneisa.
...
- grettir :: jæja, ætli ég verði ekki að leyfa þeim að ráða.
Næsta frí.. mars.. 2005
Ritað þann: 18. júní 2004
Efnisflokkar: skandall
Jæja. Við erum að tala um algeran skort á fríum í vinnu á næstu misserum. Það er jú frí mánudag eftir verslunarmannahelgi, en sá frídagur hefur alltaf verið frekar þunnur og illa nýttur.
Jólin eru um helgi í ár, svo við fáum frí eftir hádegi á föstudeginum. Life truly sucks this year.
Ef ég ætti ekki eftir að fara í sumarfrí, þá yrði ég geðveikur.
...
- grettir :: eins gott að það verði gott veður þá.
Ég er svo mikið kvikindi
Ritað þann: 16. júní 2004
Efnisflokkar: fyndið
Skil ekki hvað það er með mig, þetta er bara eitthvað ósjálfrátt. Mér líður ferlega illa yfir þessu.. en í hvert skipti sem einhver hrasar á hlaupabrettunum í gymminu og renna í fallegri sveiflu aftur á gólf, þá bara fer ég að flissa.
Í hvert skipti.
...
- grettir :: en þetta er svo fyndið!
Úúú, nýr Vísir
Ritað þann: 16. júní 2004
Efnisflokkar: fréttir
Vísir.is vaknaður til lífsins.
Kannski maður geti þá hætt að refresha eingöngu moggann daginn út og daginn inn.
...
- grettir :: kannski setja þeir inn fréttir í tilefni dagsins?
Hólí smólí
Ritað þann: 15. júní 2004
Efnisflokkar: vinnan
Til að ég komist nú í sumarfrí einhvern tíma, þá er ég búinn að vinna eins og maniac alla síðustu viku og þá tvo sem eru búnir í þessari.
Nema hvað, allt fór í steik rétt fyrir fimm í dag og allt í pati, emailunum rigndi inn því á þeim tíma sem ég er að fara heim, þá er bara rétt rúmlega hádegi í USA og þeir á fullu að vinna. Týpískt.
Var að setja dótið í gang rétt í þessu. So far so good. Þetta mallar vonandi nóttina. Vonandi hangir þetta uppi þegar UK byrjar, því ég er ekki að fara að vakna klukkan sex í einhverjar reddingar.
Eins gott að þetta verði ekki sett upp í Ástralíu!
...
- grettir :: jú annars, mig hefur alltaf langað til Ástralíu
Ónýtt þetta ansk** internet
Ritað þann: 15. júní 2004
Efnisflokkar: nöldur nördadót
Það er einhver verulega slæm flensa í gangi núna á þessu drasl interneti. Á hverjum degi fæ ég svona 40+ pósta frá postmasterum úti í bæ að skeyti sem ég hafi verið að senda hafi ekki borist. Ég var ekki að senda nein skeyti, er ekki einu sinni með póstforrit uppsett á tölvunum mínum (nota bara vefmailinn hjá Margmiðlun), svo þó ég væri með alla tölvuvírusa í heimi, þá væri hæpið að þeir myndu hitta á að senda frá mínu emaili.
Skýringin er væntanlega sú að einhver(jir) eru með mig í address bókinni sinni og með vírusa sem eru að senda í mínu nafni. Þess vegna bið ég alla um að fjarlægja mig úr bókinni á meðan þetta gengur yfir. Líkurnar á því að ég finni tölvupóst frá ykkur í innan um öll þessi "delivery failure" skeyti og 300+ spam pósta á viku eru hverfandi.
Hringið bara í mig ef þið viljið spjalla. Líkurnar á því að þið séum með emailið mitt í bókinni og símanúmerið mitt í símanum eru töluvert betri en í Lottóinu.
Maður hættir að nota email ef þetta heldur svona áfram.
Það væri gaman að heimsækja nokkra af þessum spömmurum og vírushöfundum með lóðbolta og borvél, garðklippur og vítissóda. Það hljómar eins og skemmtileg kvöldstund.
...
- grettir :: vinnu emailið er að byrja á þessu líka *æp*
Búinn að vera að dúlla ansi lengi með þriðja árið í tölvunarfræðinni. Tók mér ársfrí og er síðan búinn að vera að taka 1 til 3 fög á önn síðan. Um síðustu jól tók ég seinasta kúrsins og á morgun fæ ég skírteinið.
Ókosturinn við þetta er sá að ég þarf að vakna í general prufu klukkan 11 í fyrramálið. Svo þarf ég að láta mér leiðast hundlengi á meðan einhverjir söngfuglar láta ljós sitt skína og lúðrasveit blæs í járnarusl.
Kostirnir eru hinsvegar þeir að núna getur maður smellt sér í masterinn ef manni sýnist svo. Svipað eins og þegar maður fékk stúdentinn. Einn og sér gerir hann takmarkað gagn, en maður getur alltaf skroppið seinna meir í nám.
BS gráðan er að verða svona. Bara stopp á leiðinni í eitthvað meira.
Ef (þegar) ég fer í master, þá koma lönd eins og Þýskaland, Bretland jafnvel, Danmörk, Svíþjóð og USA til greina. Í þessari röð meira að segja. Ef einhver er með brilliant land til að stúdera í, endilega benda á það.
Eitt sem setur smá strik í master reikninginn er hugsanlega sú hugdetta sem ég fékk um daginn að eitursnjallt væri að bjóða sig fram til forseta. Mér sýnist ekki vera um auðugan garð að gresja þegar kemur að því að velja forseta:
Óvinsæll stjórnmálamaður, gamall skeggapi og jólasveinn.
Ég meina, pælið aðeins í þessu. Ísland er töff land, fullt af ungu metnaðargjörnu, listrænu fólki. Og virðist vera inn í dag. Hvers vegna í veröldinni ættum við ekki að hafa ungan kúl forseta. Eins og mig. Hver myndi ekki kjósa mig? Það eru reyndar tvö kjörtímabil þangað til ég má bjóða mig fram, en hvað er það á milli vina.
Fyrir utan hlunnindin, við erum að tala um fría áskrift að mogganum, einkabílstjóra og ég veit ekki hvað. Góð laun og snilldar eftirlaun. Þetta er draumadjobb. Ekki skrýtið að Ástþóri langi óskaplega að verða forseti. OG maður fengi að hitta gelluna sem prins kvikindið í Danmörku var að giftast, ó boy.. er hún flott eða hvað?
Einn galli við þetta sem ég sé svona í fljótu bragði. Ég yrði líklega að selja jarðhæðina mína og fá mér íbúð með svölum svo ég geti komið út og veifað tignarlega til mannfjöldans þegar ég sigra.
...
- grettir :: bíó í kvöld? Nei, ég þarf aðeins að forsetast!
Blóðlausi ég
Ritað þann: 08. júní 2004
Efnisflokkar: ég
Fór í mína fyrstu ferð í Blóðbankann í gær og gaf vænan sopa. Tók ekki nema 7 mínútur að draga úr mér rúman hálfan líter, en ég þurfti að liggja í 50 mínútur á eftir þar sem blóðþrýstingurinn ætlaði ekki upp.
Það var ekki fyrr en ég fékk kaffi að hlutirnir fóru að gerast. Þær tjáðu mér að líkaminn ætti bara eftir að venjast þessum ósköpum.
Komst líka að því að ég er AB+, hvað sem það nú merkir.
...
- grettir :: sleppti nú ræktinni í dag
Ég nenni þessu bulli ekki lengur og hef því ákveðið að fara heim í sólbað.
...
- grettir :: sortuæxli, here I come...
Berrassaður
Ritað þann: 03. júní 2004
Efnisflokkar: fyndið
Gleymdi mér aðeins áðan þegar ég kom úr baði og fór að horfa á fréttir í engu nema skinninu.
Kona sem gekk framhjá með Hróa Hattar pizzuna sína var næstum búin að missa 18 tommuna beint á gangstéttina.
...
- grettir :: ef ég réði væru allir berir. Alltaf.
Eins og flestir vita kvittaði Óli ekki undir fjölmiðlalögin og þá gerist hvað? Auðvitað þarf að semja lög um það hvernig þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram!
Hvað gerist ef Óli skrifar ekki heldur undir þau?
...
- grettir :: nei, bara spökulera
Framkvæmdagleðin var í algeru lágmarki hjá mér þessa dagana. Svaf mestalla helgina, en hefði þurft að hefja heyskap, því grasið í garðinum er komið upp að hnjám.
Það sem kemur í veg fyrir slátt er einkum tvennt að letinni meðtalinni. Sláttuvélin drukknaði nefnilega í vetur þegar flóðið átti sér stað í kjallaranum. Mig hefur lengi langað að prufa hvort kvikindið virki, en tel það ólíklegt þar sem um rafmagnsgræju er að ræða. Og framlengingarsnúran er í flóðkjallaranum og ég er búinn að týna lyklinum. Spurning um að taka um það bil eitt magnað kung fu spark í hurðarpussuna og sjá hvort maður komist ekki inn.
Annars er garðurinn í afleitu formi og stefnir í harða samkeppni milli mín og grannans hvor verður með ljótari garð þetta árið. Í fyrra hafði granninn betur með yfirburðum, þar sem honum tókst að rækta prýðilega sjaldgæft afbrigði af njóla sem náði alveg upp í púng. Það er erfitt að keppa við slíkt illgresi og ég lét mér nægja að rækta töluvert magn af fíflum.
...
- grettir :: grænir fingur er asnalegir