1 til 23 af 23

Vörugjöld en ekki skattar

Ritað þann:    28. maí 2009
Efnisflokkar:  kreppa  

Þar höfum við það. Vinstri menn hafa lært af þeim Sjálfstæðisdindlum að nota ekki orðið skattur heldur gjald. Þá er ekki hægt að saka neinn um skattahækkanir.

10% á bifreiðagjöldin
annar bíllinn minn fer á haugana/partaður í júlí
10 kr. á bensínlítrann
best að fara að pumpa í reiðhjólið
15% á retturnar
who cares
15% á bjórinn
NEI!!

Hvers vegna í veröldinni má ekki fella niður eða minnka gjöld á innlendan bjór? Spörum gjaldeyri, aukum atvinnu og kreppan verður viðráðanlegri þegar allir eru mjúkir.


En mér finnst það ansi mikil bjartsýni að halda að við hölum inn 5 milljörðum á ári með þessum hækkunum. Fólk skrúfar neysluna niður og hættir að keyra að óþörfu. Á endanum stöndum við uppi með sömu innkomu en mun minni neyslu með tilheyrandi stöðnun hagkerfisins.

Sem BETUR FER vann ég ferðatösku í happadrættinu á árshátíðinni í vetur. Hún kemur sér vel þegar yfirgefa þarf landið í hvelli.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 01. júní 2009 ( spritti ) [H]
Þá er bara að vinna flugferð næst


 02. júní 2009 ( - grettir ) [H]
Haha.. já það kæmi sér vel.


Guðlaugur vinnur þingstörf í gegnum internetið

Ritað þann:    26. maí 2009
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  kaldhæðni  pólitík  

Guðlaugur Þór er að kvarta yfir því að þurfa að afla sér upplýsinga úr fjölmiðlum í stað þess að fá þær úr þinginu.

Þór Saari ljóstrar því hinsvegar upp að fáir (og á tímabili engir) þingmenn Sjálfstæðisflokks hafi verið viðstaddir umræður um efnahagsmál í þinginu í gær.

Guðlaugur ætti kannski að mæta í vinnuna í stað þess að hanga á netinu að afla sér upplýsinga um hvað er að gerast í þinghúsinu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. maí 2009 ( spritti ) [H]
Þetta eymiggi sem nennir ekki að hreyfa sig í vinnuni


 28. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Nennir ekki einu sinni að brosa - alltaf með fýlusvip


Jarðaberjakassi gerður klár

Ritað þann:    26. maí 2009
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Í gær tók ég mig til og stakk upp smá órækt við hliðina á pallinum og jafnaði með grús og undirbjó jarðveginn fyrir jarðaberjakassa. Um helgina ætla ég að kaupa sprek og klastra saman einhverri snilld til að rækta jarðaber.

Á meðan ég mundaði skófluna er dóttir mín að skottast í garðinum. Allt í einu segir hún: Ég þarf að pissa og áður en ég gat sagt jarðaberjasulta var hún búin að hysja niður um sig og spræna í grasið.

Ég er svooo feginn að við vorum ekki inni í Kringlu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. maí 2009 ( Hófí ) [H]
(Þáverandi) litli minn tók þessa sömu stefnu og litlan þín - nema við vorum stödd í miðju Austurstræti! Ég hefði miklu frekar viljað vera í garðinum þínum þá ;0)


 26. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Því trúi ég vel :)
Það er eins og stelpan sé með sleppibúnað í blöðrunni. Þetta tekur svona 2 sekúndur.


Nálastungur

Ritað þann:    25. maí 2009
Efnisflokkar:  börnin  

Ég fór með dóttur mína í ofnæmispróf eftir hádegið og er hún eins og gatasigti eftir daginn. Það hlýtur að finnast einhver betri aðferð en að hella gumsi á húðina og stinga krakkann á eftir til að gumsið renni inn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Grátur útgerðamanna

Ritað þann:    25. maí 2009
Efnisflokkar:  fréttir  kjánalegt  

Um helgina var þessi hressa frétt birt á mbl.is:
„Segjum að útgerðarfélag sé einstaklingur sem er búinn að kaupa einbýlishús. Hvernig litist eiganda hússins á að eitt herbergið yrði skyndilega þjóðnýtt? Síðan annað. En skuldirnar minnka ekkert á móti, eigandinn heldur áfram að borga af þeim eins og hann ætti allt húsið, en þarf að borga leigu af þessum þjóðnýtta hluta. Ætli viðkomandi húseiganda þætti þetta „réttlátt“?“

Ef ég sem húseigandi hefði keypt hús sem ríkið "útdeildi" þeim sem höfðu mikla reynslu af rekstri heimila fyrir um það bil 20 árum og í kaupsamningnum hefði staðið:
Heimilinu verður úthlutað að nýju á hverju ári, í heilu lagi eða að hluta til og myndar úthlutunin ekki eignarrétt
þá hefði ég aldrei keypt húsið. Og að öllum líkindum hefði seljandanum verið stungið í steininn fyrir að selja það sem hann átti aldrei.

Þessir útgerðarmenn hafa - upp til hópa - endurselt og endurleigt sjálfum sér þennan kvóta í 20 ár, kerfið er búið að leggja heilu sjávarplássin í eyði í kringum landið og það besta sem getur komið fyrir þjóðina er að þessir menn verði settir á hausinn.

Það þarf ekki braskara í jakkafötum á fínum jeppa til að veiða fisk. Úthlutum kvóta til þeirra sem eru í fiskvinnslu og reisum við byggðirnar sem þetta ónýta kerfi er búið að leggja í rúst.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. maí 2009 ( Ingvar J. ) [H]
Sá sem byggði fyrst á lóðinni sem húsið þitt stendur á fékk henni líklega útdeilt ókeypis. Lóðin er líka eflaust leigulóð en ekki eignarlóð. Er ekki sanngjarnt á sama hátt að innkalla allar lóðir og hús sem var útdeilt ókeypis og "endurúthluta" þeim á grundvelli þess að það var óréttlátt að gefa lóðirnar upphaflega?


 25. maí 2009 ( Ingvar J. ) [H]
Annað mál er að það er ekki hægt að skrifa fall sjávarplássa á reikning vondra útgerðarmanna. Í fyrsta lagi er magnið sem er veitt í dag miklu miklu minna en það sem veitt var fyrir kvótakerfið. Í öðru lagi hafa tækniframfarir valdið því að störfum hefur fækkað til muna og mun færri skip og frystihús þarf til að vinna þann afla sem í land kemur.
Ef að á að nota veiðimennsku til að koma "lífi" aftur í sjávarþorpin þá er um að gera að taka síðutogarana aftur í notkun og senda menn í unnvörpum á handfæraveiðar en það er reyndar svolítið eins og að banna mönnum að slá með öðru en orfi og ljá í sveitunum af því að vinnufólki hafi fækkað svo mikið.


 25. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Lóðaleigusamningurinn minn gengur ekki kaupum og sölum milli eignarhaldsfélaga sem leigja mér síðan lóðina.

Ég veit vel hvernig smábæjarstemmarinn er: "Þeir verða að fara að gera eitthvað" gráturinn. Svo er óskilgreint hverjir "þeir" eru.

En hvaða vit er í því að útgerðamaður geti selt sig út úr greininni fyrir fúlgur - með því til dæmis að selja eignarhaldsfélagi í eigu sjálfs síns allan kvótann, fá lán fyrir því í bankanum og hirða söluhagnaðinn sjálfur - leigja svo útgerðinni kvótann og láta kallana um borð borga leiguna?
Af kvóta sem útgerðin fékk upphaflega úthlutað?

Ég er ekki að segja að allir útgerðamenn séu vondir, en kerfið er meingallað og er búið að rústa efnahag heillar þjóðar - búið til af sömu mönnum og eru búnir að stýra okkur í þjóðargjaldþrot.

Af hverju mega útgerðamenn ekki bjóða í kvóta ár hvert eins og til dæmis sá sem á veghefil þarf að bjóða í verk hjá vegagerðinni á hverju ári?

Verðið á kvótanum ætti ekki að vera hærra en það aflaverðmæti sem skapast við að veiða þann kvóta á einu ári. Hvaða vit er í því að borga 4500 kr. í leigu fyrir eitt kíló af þorski og láta aðrar tegundir borga upp "tapið" af kvótaleigunni?
Í venjulegum fyrirtækjum er bannað að láta eina tegund þjónustu borga upp aðra.


 25. maí 2009 ( Ingvar J. ) [H]
Algjörlega sammála þér með kvótaleiguna. Það er algjör steypa að fyrirtæki komist upp með að leigja frá sér meir og minna öll veiðiréttindi.

Það hættulegasta við þessa aðferðarfræði sem verið er að tala um er að hún mun slátra öllum minni aðilunum sem keypt hafa kvóta síðustu 3-5 árin eða svo, jafnvel lengra aftur í tímann. Til dæmis munu nokkri útgerðarmenn í Þorlákshöfn væntanlega fara mjög illa út úr þessu og einu til tveimur skipum verður lagt þar.

Þessi aðferð er langhagstæðust fyrir þá sem hafa selt kvótann sinn og eru þar af leiðandi aflögufærir (nema þeir hafi keypt hlutabréf í FL eða bönkunum fyrir kvótaafraksturinn) og vanir útgerðarmenn. Sem sagt þeir sem fengu kvótann ókeypis og seldu hann fá nú frábæra leið inn í kerfið aftur á kostnað þeirra sem keyptu þá út og hafa verið að stunda sjóinn öll þessi ár.


Afmæli

Ritað þann:    19. maí 2009
Efnisflokkar:  ég  

Ég á afmæli í dag.

Heppinn!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. maí 2009 ( Jón Óskar ) [H]
Jú það ertu! Til hamingju með daginn.


 19. maí 2009 ( Hófí ) [H]
Til lukku með daginn :0)


 19. maí 2009 ( Halla ) [H]
Ég mundi það!
Sem er alveg hreint ótrúlegt í ljósi þess að ég man ekki minn eigin afmælisdag.


 20. maí 2009 ( Heimir Rafn Bjarkason ) [H]
Ég á hinsvegar afmæli í dag. Til hamingju með ekki alveg eins nýtt afmæli.


 20. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Takk öll og til hamingju Heimir!


Sykurskattur

Ritað þann:    18. maí 2009
Efnisflokkar:  nöldur  

Stjórnarandstæðingar eru að missa þvag og saur yfir sykurskatts tillögum Ögmundar og segja að þarna sé forræðishyggja vinstri manna komin á kreik.

Mistök vinstri manna felast í því að kalla þetta skatt.

Helvítis íhaldið hækkaði áfengi fyrir áramót, ekki einu sinni, heldur tvisvar. Þeirra hækkanir voru á áfengisgjaldi. Ekki áfengisskattur. Áfengisgjald. Það hljóma betur í eyrum forræðisruglaðra hægri manna.

Ekki er ég hrifinn af skatti, öðru nær, en menn verða að hætta að prumpa með trantinum og gagnrýna "hitt liðið" þegar þeirra eigið er búið að gera upp á bak.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Pabbahelgi

Ritað þann:    18. maí 2009
Efnisflokkar:  börnin  

Konan var að vinna alla helgina, svo það var á mína ábyrgð að halda börnunum uppteknum þann tíma - sem er ekki mikið mál þegar það skellur á með þvílíku blíðviðri að hægt er að vera úti allan daginn án fata.

Við fórum á Miklatún á laugardag og æfðum okkur á hjólabretti (ég datt) og róluðum. Svo eyddum við bara helginni í garðinum okkar og nágrannans, en hann er með Trampolín sem heldur börnum uppteknum tímunum saman.

Ég sat í makindum mínum á pallinum góða og brann í rólegheitum. Í gær var okkur boðið í vöffluveislu hjá grannanum á efri hæðinni.

Svo rústuðum við Júróvision. Er hægt að biðja um meira?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ég vann!

Ritað þann:    15. maí 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Eftir eitt og hálft ár í rauðvínshappdrætti í vinnunni vann ég loksins.

Heppinn!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Stúlka var það heillin

Ritað þann:    15. maí 2009
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Í pakkanum er lítil stúlka. Tæplega 300 grömm.

Hún verður tilbúin 3. október.

Heppilegt að við skyldum búa okkur til aukabarnaherbergi í fyrravetur úr gamla eldhúsinu. Stelpurnar verða þá saman í herbergi eitthvað frameftir aldri.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. maí 2009 ( Sigrún Þöll ) [H]
Til lukku :)


 15. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Kærar þakkir :)


 18. maí 2009 ( Ingunn ) [H]
stelpurnar eru komnar með yfirhönd í fjölskyldunni ;)


 18. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Já, það má segja það. Ég veit ekki hvort maður tekur sénsinn á að reyna að jafna það eitthvað. Gæti setið uppi með fjórar á móti okkur tveimur :D


Kíkt í pakkann

Ritað þann:    14. maí 2009
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Við fáum að gægjast í "pakkann" á morgun. Nýjasti meðlimur fjölskyldunnar er 20 vikna í dag, farinn að sparka í pabba sinn og hvað eina.

Eina sem skyggir á tilhlökkunina er að við eigum tíma klukkan 8:15
Sem þýðir að ég get ekki verið dormandi í rúminu til 8:05 eins og vanalega.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Bindiskylda vs. Bindisskylda

Ritað þann:    14. maí 2009
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  kaldhæðni  

Ég er viss um að það voru mannleg mistök sem ollu því að seðlabankinn lækkaði bindiskyldu bankanna á sínum tíma, sem höfðu þau keðjuverkandi áhrif að bankarnir gátu lánað alltof mörgum alltof mikið.

Davíð lagði einfaldlega til að bindisskylda yrði afnumin. Hann hefur verið orðinn hundleiður á því að ganga með bindi eftir öll þessi ár á þingi og vildi slaka á í bankanum sínum.

Lesblindur fundarritari gleymdi einu ess-i og þegar ákvarðanir Davíðs voru lagðar fyrir hagfræðingana í bankanum fannst þeim ekki ráðlegt að afnema hana, heldur skyldi hún lækkuð niður í nánast ekki neitt.

Þetta útskýrir þreytuleg ummæli Davíðs í Kastljósviðtali í febrúar þar sem hann reynir að útskýra fyrir Sigmari að bindisskylda hafi engin áhrif á útlán bankanna. Davíð hlýtur að hafa haldið Sigmar eitthvað verri að halda að bláa hálstauið í bankanum hans hefði þessi áhrif.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Veiktist um 12%

Ritað þann:    13. maí 2009
Efnisflokkar:  fimmaurar  slen  

Það má eiginlega segja að ég hafi veikst um 12% í dag.
Ég vaknaði hálf slappur í morgun. Með stíflað nef og kverkaskít. Versnaði þegar leið á daginn með hausverk.

Vonandi styrkist ég um nokkur % á morgun.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Lítil saga af bankastarfsmanni

Ritað þann:    13. maí 2009
Efnisflokkar:  comics  

Þetta vídeó lýsir því ágætlega hvernig bankastarfsemi virkar.

Hljóð er möst og búið ykkur undir að hlægja.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skítafýla

Ritað þann:    12. maí 2009
Efnisflokkar:  börnin  ég  

Ég fór í sveitaferð með leikskóla dóttur minnar um hádegi í dag. Þegar við stigum á hlaðið fyrir framan bæinn sagði hún hátt og snjallt: Vá pabbi, skítalyktin..

Eftir ferðina ætlaði ég að klára vinnudaginn, en fjósalyktin af mér var þvílík að ég þurfti að fara heim í alþrif.

Í vinnunni ætla ég ekki að vera gaurinn með fjósalyktina.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. maí 2009 ( Daði ) [H]
Fjósalyktin er af honum


 13. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Já, ég sá þetta alveg fyrir mér :-)


Brallað að næturlagi

Ritað þann:    12. maí 2009
Efnisflokkar:  ég  

Ég fór til tannlæknis í nótt. Eða mig dreymdi það allavega. Sem minnir mig á að ég þarf að fara að panta tíma.

En draumurinn var svo raunverulegur að ég var hálfdofinn í kjálkanum þegar ég vaknaði.

Og ég var líka aumur í öðru hnénu, svo líklega hef ég tekið til fótanna þegar ég fékk reikninginn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

100 daga sprettur

Ritað þann:    12. maí 2009
Efnisflokkar:  nördadót  pólitík  

Sem tölvunarfræðingi líst mér ágætlega á þetta sprettafyrirkomulag (e. sprints) sem stjórnvöld virðast ætla að tileinka sér við endurreisnina.

Næsta mál á dagskrá er að innleiða verkferil sem skiptir út úr vinnuhópnum (ríkisstjórninni) ef árangur er óviðunandi - segjum undir 80% - eftir hvern sprett.

Í raunveruleikanum vinna nefnilega ekki allir vel saman. Kerfið verður þess vegna að bjóða upp á snarar útskiptingar, áður en verkefnið fer fram úr kostnaðar- og tímaáætlun.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Á brjóstunum

Ritað þann:    11. maí 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Konunni minni þykir ákaflega gaman að skúra. Ég er ekki eins hrifinn.

Nú þegar hún er ófrísk tælir hún mig til að aðstoða sig með því að skúra ber að ofan.

Flestir hlutir verða skemmtilegir þegar þeir eru framkvæmdir berir að ofan - meira að segja skúringar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sparisjóður Suður-Þingeyinga

Ritað þann:    08. maí 2009
Efnisflokkar:  fréttir  

Af hverju eru ekki svona menn ráðnir í fjármálaráðuneytið?

Auðvitað ætti maður að stofna reikning hjá þeim með rakettureyk.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sannleikslyfið

Ritað þann:    07. maí 2009
Efnisflokkar:  comics  efahyggja  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Greiðslumat

Ritað þann:    07. maí 2009
Efnisflokkar:  íbúðamál  kreppa  neytendur  

Þegar ég var að kaupa mína fyrstu íbúð snemma árs 2003 fékk ég ítarlegt greiðslumat, allar skuldbindingar mínar voru dregnar upp úr hatti Reiknistofunnar og á mig var áætlaður rekstrarkostnaður.
Niðurstaðan var sú að ég "mætti" kaupa mér íbúð fyrir 8.7 milljónir. Ég keypti fyrir 8.3 og nýtti þannig ekki allt "leyfið" frá bankanum.
Bankinn var að reyna að hafa vit fyrir lántakandanum (mér) en um leið tryggja að hann fengi allt sitt tilbaka.

Snemma árs 2006 var ég kominn með konu og barn með eitt á leiðinni og þurfti meira rými. Þá fór greiðslumatið þannig fram að við réðum nánast hversu hátt lán við tækjum - ef við treystum okkur til að borga af því næstu áratugina.
Bankanum var alveg sama hvort hann fengi féð tilbaka, ef hann gæti veðsett lánið fyrir nýju lánsfé í útlöndum.

Það var vissulega freistandi að taka tugi milljóna að láni og velja sér einhverja risastóra íbúð í einhverju úthverfinu, en einhver skynsemisrödd sagði okkur að kaupa mátulega stóra íbúð og geta þá gefið börnunum okkar að borða í henni. Ekki maular maður parket í morgunmat.

Þetta er að reynast besta ákvörðun sem við höfum tekið og það var vissulega erfitt að standast freistinguna. Ef ekki væri fyrir himinhátt bílalánið tækjum við ekki eftir því að það er kreppa - en það lán er á hinum endanum yfir góðar ákvarðanir, en við getum þó huggað okkur við það að það varir ekki næstu 40 árin.

Mér datt þetta í hug þegar ég las pistil Kára Harðarsonar um útsöluna á lánsfé sem verið hefur undanfarin ár.

Bankar eru nefnilega ekki góðgerðastofnanir. Því minna sem maður fær lánað, því betra.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. maí 2009 ( Ingunn ) [H]
Besta ákvörðunin okkar 2006 voru bílakaupin ;) en endurfjármögnunin ekki svo góð........nú hækkar lánið eins og enginn sé morgundagurinn :/


 07. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Já, það hefur hækkað vibba mikið. En gæti verið verra ...


Greiðsluaðlögun

Ritað þann:    06. maí 2009
Efnisflokkar:  kaldhæðni  

Til að geta nýtt sér greiðsluaðlögun þarf fólk að vera í skilum með lánin sín.

Þetta er svona svipað og ef fólk mætti ekki koma að matarborðinu ef það er svangt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. maí 2009 ( spritti ) [H]
Já þetta er bara platlausn eins og annað í þessu rugli.


 07. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Eina lausnin er auðvitað að allir hafi vinnu. Ekki margir sem geta leyft sér að dunda við stjórnarmyndunarviðræður svo dögum skiptir.


Matjurtagarður

Ritað þann:    05. maí 2009
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Í fyrra ætluðum við að búa til matjurtagarð í garðinum okkar, en eftir allar framkvæmdirnar vorum við ekki með nennu í eitt eða neitt.

Nú stendur til að standa við stóru orðin. Við erum komin með tvo rabbabara "afleggjara" eða hvað sem maður myndi kalla það og stendur til að hola þeim niður í kvöld. Um helgina ætla ég að kaupa mér timbur og smíða jarðaberjakassa, plægja smá reit og sá einhverjum matjurtum.

Í versta falli misheppnast þetta. Í besta falli fáum við nýtt heimalagaða grænmeti í haust.

Mér þykir verst að ekki skuli vera hægt að rækta nautakjöt úti í garði. Það væri heimaræktun sem ég kynni að meta.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. maí 2009 ( Ingunn ) [H]
Þetta er svo sniðugt að gera þetta. Hef einmitt verið að velta fyrir mér hvort maður ætti að slá til en er varla að hafa nennu í það :/ Þú verður bara að skola sniglana vel af áður en þið japplið á kálinu :)


 05. maí 2009 ( - grettir ) [H]
Fólk borgar nú heilmikið fyrir snigla á veitingahúsum.
Sniglasalat.. mmmm.