1 til 14 af 14
Jæja, ég er aftur kominn til US. Aðeins að fylgja eftir uppsetningunni sem ég var í um daginn. Athuga hvort allir séu ekki kátir með kerfið og svona.
Eina sem hefur breyst síðan síðast er að
risastórar flugur hafa tekið upp á því að klekjast út. Gerist víst ekki nema á 17 ára fresti. Klassísk heppni í mér.
Ojæja, ég var nú aðeins heppinn í gær. Var á bílaleigubíl að bruna hérna til Columbia þegar skall á með þvílíku þrumuveðri sem byrgði alla sýn og ég missti af exitinu mínu, svo ég ákvað að stíma bara beint inn í miðbæ, en ég rata þaðan að gistingunni. Eitthvað beygði ég nú vitlaust og áður en ég vissi af voru bara kindur úti á túni og ég hélt að ég væri kominn í tómar ógöngur og var að pæla í að hringja í mömmu bara.
Rek ég þá ekki augun í kunnuglegt skilti: "Beech Creek". Akkúrat gatan sem ég var að leita að!
...
- grettir :: og þar beið mín heit súpa og hvaðeina
Pixies í uppnámi
Ritað þann: 24. maí 2004
Efnisflokkar: tónlist
Það lítur ekki vel út með Pixies tónleikanna á miðvikudaginn, þarf líklega að fara út seinnipartinn þann dag.
Munaði ekkert smá litlu að ég krækti mér í tvenna aukamiða á þriðjudagskvöldið, en Tvíhöfðinn var með eitthvað sprell og Jón ætlaði að gefa þeim sem skutlaði honum niður í bæ tvö stykki.
Ég sá Jón á labbi þegar ég var á leiðinni í vinnuna og heyri síðan að hann vanti far, en þegar ég sný við þá var einhver búinn að pikka hann upp. Damn...
...
- grettir :: oh, well
Þetta eru svik
Ritað þann: 21. maí 2004
Efnisflokkar: djamm ég
Ég var búinn að hringja persónulega í veðurguðina, hafa samband við Veðurstofuna en allt kom fyrir ekki.
Þeir hafa ákveðið að láta rigna á afmælis grillið mitt í kvöld, en ég er búinn að hringja út slatta af fólki til að fagna með mér.
Miðvikudagskvöldið var alger snilld, en þá tókum við okkur til og steggjuðum hann
Kalla. Haldinn var neyðarfundur á þriðjudaginn og kom í ljós að miðvikudagurinn var eini dagurinn sem gekk.
Við ruddumst inn á pilt þar sem hann var í mestu makindum að taka sér fegurðarblundinn sinn. Verðandi brúður hleypti okkur inn og tók myndir af því þegar hann leit ringlaður í kringum sig með 10 karlmenn inni í svefnherbergi.
Þá fórum við með hann í Paintball þar sem í lokin hann var klæddur upp í kanínubúning og þurfti að hlaupa fyrir lífi sínu.
Eftir byssuleikinn var haldið pulsupartí heima hjá mér, þar sem við klæddum hann í Rocky búning og létum pilt hlaupa upp Skólavörðustíginn og við á eftir með "Eye of the Tiger" í tækinu.
Að lokum þurfti hann að syngja lagið í karókí, að sjálfsögðu í búningnum.
...
- grettir :: svo er óvissuferð á laugardaginn!
Dagurinn í dag er stórmerkilegur?
Ritað þann: 19. maí 2004
Efnisflokkar: ég
Vaknaði (hress) í morgun, leit í Baugstíðindin, borðaði mitt skyr og tussaði mér svo í vinnuna.
Síminn hringir svo um ellefu leytið og er það ekki bara amma gamla að óska mér til hamingju með daginn! Ég á sem sagt afmæli í dag og var næstum búinn að gleyma því.
...
- grettir :: bíð bara eftir gráu hárunum
Ég er að verða búinn að lesa
Da Vinci Code og verð að segja að hún kemur skemmtilega á óvart. Alltaf gaman að lesa góðar skáldsögur.
Þó ég hafi nú ekki nennt að lesa þekktustu skáldsögu allra tíma - biblíuna - þá er ég þeim þakklátur sem nenntu að safna þeim smásögum saman.
Þakklátur fyrir frídaginn næstkomandi fimmtudag, sem ég kann ekki einu sinni að nefna né fyrir hvað hann stendur.
Húrra fyrir þeim.
...
Ég er búinn að lesa álit
heilmargra á framgöngu okkar í Júrovisjón þetta árið. Það sem mér hefur fundist vanta er að fólk geri sér grein fyrir því að við verðum aldrei aftur með. Næst þurfum við að taka þátt í einhverri undankeppni og það er ekki séns að við komumst nokkurn tíma áfram upp úr henni, að minnsta kosti ekki á meðan við sendum svona róleg (lesist leiðinleg) lög.
Þeim sem fannst lagið okkar
ágætt voru búnir að heyra það tuttugu sinnum eða oftar.
Við hefðum átt að senda Botnleðju, eða í það minnsta leyfa landanum að velja lag til að senda.
Ó, ég var búinn að gleyma. Landinn fær engu lengur ráðið um eitt eða neitt sem er ákveðið í þessu landi.
...
- grettir :: Ruslana rulez
Davíð er hissa á því af hverju Óli forseti hypjaði sig ekki úr landi, enda býst ég við að hann hafi viljað losna við hann á meðan þeir rúlla þessu frumvarpi í gegn.
Ég held samt að Óli hafi alveg viljað fara í brúðkaupið og Davíð sé bara hræddur um að hann nenni ekki að skrifa undir ólögin.
Óli vildi bara vera heima á afmælinu sínu. Hann á nefnilega afmæli í dag blessaður. Hann er því naut eins og ég. Og fátt er skemmtilegra en að opna pakkana sína heima.
Annars vona ég bara að þetta frumvarp verði að lögum sem fyrst svo hægt verði að skrúfa fyrir Stöð 2/Sýn/Bíórásina/Eff emm/X-ið og hvað þetta heitir allt saman. Að maður tali nú ekki um að grey þingmennirnir fari nú að komast í sitt fjögra mánaða sumarfrí. Það eru orðnir heilir þrír mánuðir síðan þeir komu úr tveggja mánaða jólafríi. Þeir hljóta að vera úrvinda.
Íslendingar eru ofdekraðir með allt þetta val og sjónvarp alla daga vikunnar. Langbest væri að hafa bara Stöð eitt, með ekkert sjónvarp á fimmtudögum eða í júlí og geta bara hlustað á Rás 1 og Rás 2.
Því næst skríðum við bara aftur í moldarkofana og enginn þarf að hafa áhyggjur af því að einhver annar eigi meira en hinn.
...
- grettir :: kaldhæðnidagur í dagur
Ég er með lítið hjarta
Ritað þann: 13. maí 2004
Efnisflokkar: kvikmyndir
Ég þoli engan veginn að sjá blóð, beinbrot eða snúna ökkla. Þegar ég sé link á batman.is eða humor.is sem eru merktir (ekki fyrir viðkvæma), þá þori ég varla að smella á linkana í kring, eigandi það á hættu að ég sjái óvart einhvern óbjóð.
Ég fór sem sagt í bíó í gær og sá Touching the Void, sem fjallar um tvö kjána sem ákváðu að klífa þverhnípt fjall og lenda vægast sagt í hremmingum þegar annar þeirra fótbrotnar á leiðinni niður. Þetta er svona heimildarmynd og gaurinn er að lýsa því hvað hefði gerst - nokkuð of nákvæmlega fyrir minn smekk og mitt litla hjarta.
Þegar brakið heyrðist, þá varð mér ekki um sel, fékk illt í mallakútinn og fann til í hnénu. Þegar sá brotni fer síðan að lýsa því hvernig lærleggurinn hefði klofnað og sköflungurinn gengið inn í hann í gegnum hnjáliðinn, þá spratt fram kaldur sviti, mér varð bumbult af öllu kókinu og poppinu, sortnaði fyrir augum og langaði mest að æla.
...
- grettir :: ég er fyrst að jafna mig núna.
Vírus póstar eru hressandi
Ritað þann: 12. maí 2004
Efnisflokkar: fyndið nördadót
Ég hef nú einhvern tíma hrósað forritinu
mailwasher, enda tekur það til í pósthólfinu mínu sjálfvirkt allan daginn svo ekkert nema "Friend" síast í gegn.
Þegar menn taka sig aftur á móti til og falsa sendanda nafnið eins og það sé frá Íslandi, þá sleppur einn og einn í gegn.
Þessi fannst mér fyndinn og sló öll met í frumleika.
...
- grettir :: vúbbs, komst upp um mig :þ
Lukkudísirnar í heimsókn
Ritað þann: 12. maí 2004
Efnisflokkar: djamm
Haldið að ég hafi ekki unnið rauðvíns pottinn hérna í vinnunni.
Þannig að með þessum heimalöguðu sem ég var að tappa á, þá á ég 36 rauðvínsflöskur í dag. Plús að ég á ennþá toll úr tveimur utanlandsferðum í síðasta mánuði.
...
- grettir :: frí á morgun?
Ekkert fær maður nú að hafa í friði. Nú ætlar danska kóngapakkið að gifta sig á fermingar afmælinu mínu.
Reka þetta lið allt saman segi ég.
...
- grettir :: sautjándu aldar pakk
Ég kaupi stundum epla- og appelsínusafa og vel þá gjarnan Brazza eða Trópí.
Í Bónus sá ég þriggja lítra dúnk af appelsínusafa á 199 kr. og ákvað að slá til.
Ég smakkaði kvikindið í morgun og fékk hann að fjúka í vaskinn, þvílíkur óbjóður. Áðan fór ég að lesa á brúsann og sá að það átti að blanda ósköpin í vatni og prófaði ég það. Ef eitthvað var, þá versnaði bragðið.
Utan á brúsanum stendur að maður eigi að setja 1 hluta óbjóð og 4 hluta vatn. Ef maður er hinsvegar að blanda fyrir börn, þá á maður að setja meira vatn. Ég bara ansi hræddur um að ef maður tæki upp á því að hella þessu í blessuð börnin, þá sæi maður þau ekki í nokkrar vikur á eftir.
Á brúsanum stendur einnig að maður geti skilað sullinu ef maður er ekki ánægður og upp er gefið heimilisfang í Bretlandi. Það er alveg spurning um að skreppa bara og skila.
Kvörtunardeildin: "And what's wrong with it?"
...
- grettir :: "Did someone pee in the bottle?"
Einhver ellimerki eru farin að poppa upp hérna megin. Gleymdi að endurnýja URL forwardinguna á síðukvikindinu. Nú kemur bara einhver under construction síða þegar valið er að fara á grettir.net.
Sjálfsagt hef ég verið búinn að fá reminder um þetta, en það eru góðar líkur á að maður missi af svoleiðis pósti þegar óforskammaðir sölumenn senda manni yfir 30 tilboð á dag um að stækka skaufann, losna við höfuðverkinn og pillur sem gera manni kleift að endast í 36 tíma. Engin tilboð hafa borist um gleymskulyf. Það er ábyggilega stutt í það.
En hver vill endast í 36 tíma? Ég væri löngu sofnaður!
Ég er annars hress. Var dáldið ringlaður á laugardaginn eftir langt og syfjað flug, en ég er allur að hressast. Náði meira að segja að eyða töluverðum peningum í Ameríku. Keypti mér afturdekk á bílinn, dempara og gorma, en þetta er allt dót sem er morð dýrt hérna heima.
Einn ferðafélaginn keypti sér brimbretti og búning í stíl. Við vorum ansi spaugilegir á að líta þegar við tékkuðum okkur inn skal ég segja ykkur. Landamæraverðirnir hérna heima voru líka svo hissa á okkur að þeir gleymdu að kíkja í töskurnar.
Ég notaði svo gærkvöldið í að tappa á rauðvíninu sem er búið að vera að gerjast í eldhúsinu síðasta mánuð eða svo. Og það bragðast bara vel þó ég segi sjálfur frá.
...
- grettir :: glúggglúggglúgg
Víðáttubrjálæði
Ritað þann: 06. maí 2004
Efnisflokkar: bækur ferðalög
Fór í risastórt mall í gær. Ráfaði um allt og kom út með eina bók. Sá bara ekkert sem mig langaði í.
Eitt sem mér fannst stórfyndið. Heima erum við með búðir fyrir stórar stelpur. Hérna eru spes búðir fyrir "petite" stelpur þar sem fást venjuleg föt. Hahaha, fitubollur.
Annars hef ég það bara gott. 25 stiga hiti og næs bara. Fer að koma heim, en þá stendur til að skipuleggja grillveislu, íha...
...
- grettir :: grilligrill
Baltimore Baby
Ritað þann: 04. maí 2004
Efnisflokkar: ferðalög
Jæja, tilkynningaskyldan hér. Náði ekki að kveðja kóng né prest áður en ég lagði í hann. Brunaði beina leið úr Húsafelli út á völl, gleymdi ferða grooming veskinu í bílnum og allt í pati.
Var hirtur í Immigration vegna þess að ég mundi ekki heimilisfangið að gistiheimilinu sem ég gisti á. Það slapp til vegna þess að það var nokkuð sæt stelpa sem afgreiddi það mál. Bauð mig bara velkominn í fyrsta sinn til USA.
...
- grettir :: rokk