1 til 19 af 19
Pabbi, ég er svo svöng
Ritað þann: 28. apríl 2009
Efnisflokkar: börnin matur
Krakkarnir fóru á fætur langt á undan okkur í morgun. Drengurinn hefur verið duglegur að gefa systur sinni að borða á morgnanna, AB mjólk eða morgunkorn eftir því hvernig liggur á þeim.
Í morgun brá svo við að allur morgunmatur var búinn í húsinu. Þau kipptu sér ekki upp við það og fengu sér epli.
Einum og hálfum tíma síðar er ég að fara með stelpuna inn á leikskóla þegar hún fer að tala um að hana langi í Cheerios eða jógúrt hjá Oddný (sú sem sér um morgunmatinn á leikskólanum). Ég segi henni að morgunmaturinn á leikskólanum sé búinn, við séum svo sein. Þá bregst hún hin versta við: En pabbi, ég er svo svöng. Má ég fá að borða pabbi?
Ég mátti því gjöra svo vel að fara með barnið aftur heim og gefa því að borða. Ekki gat ég hent henni inn á leikskólann talandi um að hún fengi ekkert að borða heima hjá sér.
Við fengum okkur því annan morgunverð og að þessu sinni fengum við okkur brauð með kæfu - enda gerir epli ekki neitt nema æsa upp í manni hungrið.
Við komum ekki á leikskólann fyrr en að verða hálf tíu. Með fullan maga.
Kosningar
Ritað þann: 25. apríl 2009
Efnisflokkar: pólitík
Ég er búinn að kjósa. Til að lýsa frati á gamla spillingu, flokkaklíku og almennan viðbjóð kaus ég Borgarahreyfinguna.
Mér sýnist á tíðarandanum að það verði vinstri stjórn.
Það verður dýr skóli segja sumir. En hann má vera fjandi dýr ef hann á að toppa þá löngu tilraun frjálshyggju og spillingar sem við erum búin að upplifa undanfarna tvo áratugi og erum að byrja að borga af.
En það er gott að þessi andskotans kjördagur er loksins runninn upp. Þá getur maður vonandi farið að hugsa um eitthvað annað.
Gleðilegt sumar
Ritað þann: 24. apríl 2009
Efnisflokkar: fjölskyldan
Ég ætla að hætta á hádegi í dag í tilefni sumars. Það er reyndar skítakuldi, en ég er að spá í að taka aðeins til í garðum og svona áður en ég sæki börnin.
Margrét er að vinna alla helgina, svo ég verð einn að dunda mér með krökkunum fyrstu helgi sumarsins. Kannski við förum í einhverja garðleiki, smíðum við kofann eða eitthvað slíkt stuð.
Enskukunnátta stjórnmálamanna
Ritað þann: 22. apríl 2009
Efnisflokkar: fimmaurar pólitík
Kannski
kann Jóhanna ekki ensku. Vissulega bagalegt ef maður vill láta taka mark á sér á erlendri grund.
Kannski hefði Jóhanna átt að drífa sig á enskunámskeið í jólafríinu.
Eða eins og Geir myndi orða það:
Maybe I should have
Fyrning aflaheimilda
Ritað þann: 22. apríl 2009
Efnisflokkar: pólitík
Ég ætlaði að fara að benda á hverskonar
bull þessi yfirlýsing er en hér er
annar búinn að segja það sama og ég var að hugsa.
Einfalt væri að endurorða yfirlýsinguna á þann veg að stefna sjálfstæðisflokksins væri aðför að öllum heimilinum landsins. Eignarhlutur minn í húsinu mínu fyrnist á hverjum degi vegna hagóstjórnar þeirra undanfarin ár.
Félag ungs fólks á íbúðamarkaði ætti að vera til og semja töff yfirlýsingar til að senda í blöðin.
Launþegi með 500.000 krónur á mánuði borgar um það bil 180.000 krónur í tekjuskatt og útsvar.
Sá sem á 24.000.000 krónur (24 milljónir) inni á verðtryggðum bankareikningi fær 500.000 krónur í vaxtatekjur (7-8% vexti + 17-18% verðbætur) á mánuði í verðbólgunni sem verið hefur og borgar af þeim 50.000 krónur í fjármagnstekjuskatt. Ekkert borgar hann til sveitarfélagsins sem þó heldur uppi grunnskóla- og leikskólakerfinu.
Grunnskólunum hentu Sjálfstæðismenn á sveitarfélögin og menntamálaráðaherra, þá Þorgerður Katrín, sagði í beinni útsendingu að henni kæmi það ekki við þó að kennaraverkfallið haustið 2004 hafi dregist í margar vikur.
Ef talað er um að auka við fjármagnstekjuskattinn rísa Sjálfstæðismenn upp á afturlappirnar og góla vonda vinstri stjórn og segja að sparifjáreigendum sé refsað fyrir sparnað.
Vissulega er súrt að borga skatt af sparnaðinum, en tekjur eru tekjur, sama hvaðan þær koma. Hvor er aumur á rassinum af refsivendinum í dæminu fyrir ofan? Sá sem vinnur 40 tíma á viku fyrir sínum 500 þúsundum eða sá sem fær þær í vexti í ónýtu hagkerfi - sköpuðu af Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki?
Það er verið að slá skjaldborg um kvótagróða og stofnfjár hagnað.
Enginn launþegi ætti að kjósa slíka skjaldborg.
Björn Bjarnason segir:
ESB aðild næst ekki án samþykkis Sjálfstæðisflokks
Það auðveldaði okkur andstæðingum aðildar róðurinn á fundinum, hve ögrandi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi formaður Samfylkingarinnar, hélt á Evrópumálum gagnvart sjálfstæðismönnum.
Á sama hátt þjappaði það okkur þingmönnum flokksins saman vegna stjórnarskrárbreytinganna, hve ögrandi Jóhanna Sigurðardóttir, núverandi formaður Samfylkingarinnar, hélt á stjórnarskrármálinu. Hvorugri er það til lista lagt að laða sjálfstæðismenn til samstarfs við sig.
Sem sagt, sama hversu góð eða vond rökin eru (ekki bara í þessu máli), þá verður að laða Sjálfstæðismenn til samstarfs.
Eins og leikskólakrakka.
Ég held að það sé kominn tími til að Björn og hans kónar átti sig á því að þeir verða í minnihluta á komandi þingi.
Þessi mynd segir allt sem segja þarf um íslenska stjórnmálamenn í dag.
Þegar fólk hefur aðrar skoðanir en maður sjálfur,
þá er einkar íslenskt að hóta því að afhöfða það.
Þvílíkt fífl.
Þegar við verðum gengin í Evrópusambandið ætti að þvinga svona lofthausa til að halda áfram að éta svið, þverskorna ýsu og borga af lánum sínum með verðtryggðum krónum.
Kosningakompásinn
Ritað þann: 17. apríl 2009
Efnisflokkar: ESB pólitík
Eftirfarandi niðurstöður fékk ég á
kosningakompásnum
Sem fyrrverandi Sjálfstæðismaður kemur þetta mér ekki á óvart.
- Ég á ekki kvóta
- Ég er ekki auðmaður
- Ég borga skatta/er launþegi
- Ég þarf að nýta mér heilsugæslu/læknaþjónustu sem við skattborgarar greiðum fyrir
- Ég vil verðtryggingarlausan gjaldmiðil
- Ég vil lágt matvöruverð
- Ég vil lægri vexti á íbúðarlánið mitt
- Ég vil ekki fórna mínum hagsmunum sem almennur borgari fyrir hagsmuni fárra sem eru búnir að skuldsetja sjávarútveginn í topp
- Ég vil ekki einangrast á Íslandi borgandi erlendar skuldir annarra með verðlausum gjaldmiðli
Skyldulesning - Arfleifð Sjálfstæðisflokksins
Ritað þann: 16. apríl 2009
Efnisflokkar: handbók kjósandans
Þetta eiga allir að prenta út og lesa á hverju kvöldi fram að kosningum:
Arfleifð Sjálfstæðisflokksins
Enginn vinnandi maður á samleið með slíkum þjófaflokki.
Flengingar bannaðar
Ritað þann: 16. apríl 2009
Efnisflokkar: fréttir skandall
Alþingi hefur bannað flengingar barna,
sjá hér. Þessi lög koma í kjölfar sýknudómar frá því í vetur þegar rassskellari var sýknaður af Hæstarétti.
Það er skrýtið réttarríkið Ísland. Barnaníðingar, nauðgarar og þess háttar glæponar fá örfáa mánuði, flesta skilorðsbundna. Bætur til þeirra fórnarlamba eru svívirðilega lágar og ítarlegar lýsingar af atburðum eru skrifaðar upp á vef hæstaréttar öðrum níðingum til skemmtunar.
En sértu haldin geðsjúkdómi og skellir hurð á haus kennara, þá máttu gjöra svo vel að
að borga rúmar 10 milljónir í bætur. Nú má vel vera að téður kennari geti ekki unnið lengi og bæturnar séu hæfilegar en hverjar eru hæfilegar bætur fyrir þann sem er laminn í köku í miðbænum eða nauðgað inni á klósetti á einhverjum skemmtistaðnum?
Er hæstiréttur með verðlista?
Í staðinn fyrir að eyða milljörðum í að klára snobbhús niðri við höfn væri betra að veita fólki vinnu við að sinna börnum og gamalmennum í skólum og í heimaþjónustu.
Hálfbyggt tónlistarhúsið mætti svo veggfóðra með andlitum eins og brunarústirnar í Austurstræti. Andlitum þess fólks sem hefur misst vinnuna eftir að góðærisbólan sprakk og innihald hennar settist að á Tortola eyjum.
Í framhaldi af
pistli mínum um týpískan sjálfstæðismann var mér bent á enn meiri snilld.
Ég kynni til sögunnar
Zumann. Hljómar eins og ofurhetjunafn.
Zumann aðhyllist þjóðleg, mið/hægrisinnuð viðhorf fullveldissinna. Lesist: þverhausaviðhorf.
Ef rennt er snögglega yfir nýjustu pistla Zumann (sem flestir eru skrifaðir laust eftir miðnætti) er auðvelt að finna út að hann hatar Jóhönnu Sigurðardóttur út af lífinu, líklega vegna þess að Jóhanna vill ganga í ESB. Það vill Zumann ekki. Og í stað þess að rökræða eins og fólk gerir þegar það deilir ekki sömu skoðunum afskrifar Zumann allar mótbárur sem
kratabull sem ekki er eyðandi orðum á. Hressandi rök það hjá bókhaldara.
Ég ákvað að lesa eitthvað af gömlu pistlum Zumann, til að athuga hvort pólitísk viðhorf hans hefðu breyst frá því að hér ríkti góðæri og þar til allt var keyrt hér í kaldakol og fann
þennan pistil:
[...]
skattar ríkissjóðs af hagnaði bankanna sem
skráðir eru í Kauphöll Íslands, verði um 35 milljarða króna, nálægt 10% heildartekna ríkissjóðs. Þetta eru meiriháttar tekjur í sameiginlegan sjóð
okkar landsmanna, og sönnun þess að einkavæðing bankanna var hárrétt
ákvörðun núverandi ríkisstjórnar.[...]
Þrátt fyrir að þessi stefna og ákvörðun þáverandi ríkisstjórnar hafi keyrt hér allt í kaf - og skuldirnar sem bankarnir skilja eftir sig séu margfaldar þær skatttekjur sem getir er að ofan - er Zumann ekki á því að hleypa þessum andskotans krötum að við tiltektina eftir hans menn heldur
þvert á móti hvetur Sjálfstæðismenn til að hafna því að þjóðin hafi atkvæðisrétt í stórum málum eins og ESB aðildarviðræðum.
Zumann vill einræði, einokun og flótta unga fólksins frá landinu. Enda er Zumann að verða kominn á síðasta söludag ásamt skoðanabræðrum sínum og þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort Ísland í framtíðinni verður óbyggt (það er svo þjóðlegt) eða hvort hér verða viðunandi lífsskilyrði án spillingar, vinapólitíkur og vaxtaokurs.
Gallinn við rafræna greiðsluseðla
Ritað þann: 15. apríl 2009
Efnisflokkar: líðandi stund
Eins og það er nú þægilegt að fá greiðsluseðla eingöngu rafrænt í heimabankann, þá vildi maður stundum fá seðilinn heim.
Í dag - til dæmis - fékk ég send félagsgjöld frá Félagi sjálfstæðismanna Hlíða/Holta. Rafrænt.
Nú þarf ég að standa upp, setja pappír í prentarann og prenta seðilinn út, skeina mér á honum og endursenda.
Og það er komið far í sófann
Ritað þann: 14. apríl 2009
Efnisflokkar: líðandi stund
Sófinn heima fékk að kenna á því í páskafríinu. Þetta var alger slökun, lítið fylgst með fréttum, mikið étið og mikið glápt á sjónvarp.
Barnaspítalinn
Ritað þann: 07. apríl 2009
Efnisflokkar: börnin
Eyddi deginum á barnaspítalanum í blóðprufum og lungnamyndatökum.
Ekki stuð verð ég að segja.
Ansi mögnuð grein eftir Michael Hudson, þann sem var í Silfrinu á sunnudag, birtist í fréttablaðinu á laugardag,
sjá hér
Lausn nýfrjálshyggjunnar á þessu vandamáli er að selja eignir með gríðarlegum afföllum til alþjóðlegra arðræningja og brjóta niður félagslegt kerfi þjóða, einmitt þegar þær þurfa mest á því að halda. Þetta gildir þó aðeins um litlu þjóðirnar. Þær þjóðir sem hæst hrópa á Íslendinga að greiða lán spákaupmannanna eru undanskildar. Þar eru fremstar í flokki þær þjóðir sem eru skuldsettastar, Bandaríkin og Bretland, undir stjórn manna sem dytti aldrei í hug að leggja slíkar byrðar á eigin þegna. Um leið og þessar þjóðir lækka skatta og auka á fjarlagahallann reyna þær að kúga peninga út úr smærri og veikburða þjóðum, líkt og þær stunduðu gagnvart Þriðjaheimsríkjum á 9. og 10. áratug síðustu aldar.
Ég held að það sé kominn tími til að gefa Gordon Brown fingurinn og byrja að vinna okkur út úr þessari kreppu og hætta að spá í einhverja erlenda kröfuhafa.
Af hverju í veröldinni ættum við (íslenska ríkið, þjóðin) að borga þær skuldir sem við stofnuðum ekki til? Við getum aldrei komið okkur út úr þessu rugli ef meirihluti teknanna fer í að borga skuldir sem við eigum ekkert í.
Hvernig er týpískur sjálfstæðismaður?
Ritað þann: 03. apríl 2009
Efnisflokkar: kaldhæðni pólitík
Það var verið að grínast með það í vinnunni um daginn að það "hafi varla verið kjaftur undir þrítugu" á landsfundi sjálfstæðismanna um síðustu helgi.
Hvort sem um er að kenna að ekki hafi verið pabbahelgi skal ég ekki fullyrða, en mér var bent á
þessa síðu í dag og sýnist mér vera á ferðinni týpískur blámaður.
Í þessum pistli fer blámaðurinn á kostum. Hreytir skít í þá sem nenna að rökræða við hann, kalla menn komma, hunda og gagnrýnir þá sem eru að hreinsa skítinn eftir hans menn - án þess að koma með neinar lausnir í staðinn.
Að hugsa sér að ég hafi alla tíð kosið eins og þessi maður.
Ég á ekki mikið sameiginlegt með þessum flokki lengur.
Póstur frá bankanum
Ritað þann: 01. apríl 2009
Efnisflokkar: ég
Ég fékk póst frá Blóðbankanum rétt í þessu. Kominn tími til að fá sér djús og leggja inn.