1 til 17 af 17

Reiknikúnstir Guðlaugs Þórs

Ritað þann:    31. mars 2009
Efnisflokkar:  fyndið  handbók kjósandans  kreppa  nöldur  pólitík  

Í dag reiknar Guðlaugur Þór út hvað það hefur kostað okkur að missa Davíð úr Seðlabankanum.
26. febrúar 2009 hættir Davíð og gengisvísitalan er 190
31. mars 2009 er gengisvísitalan 212

Það að missa Davíð hefur rýrt krónuna um 12% og vill Guðlaugur Þór senda norska verkamannaflokknum reikninginn.

Gott og vel. Fyrst það á að fara að draga menn til ábyrgðar, þá skulum við horfa aðeins tilbaka.

20. október 2005 byrjar Davíð í Seðlabankanum og gengisvísitalan er 101
26. febrúar hættir Davíð og eins og Guðlaugur bendir á er Gengisvísitalan 190 þann dag (fór hæst í 250 á tímabilinu).

Munurinn er 86,7%

Guðlaugur? Á ég að senda reikninginn beint til þín eða upp í Valhöll?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. mars 2009 ( ASE ) [H]
Það er með ólíkindum að þingmaður og fyrrum ráðherra láti aðra eins vitleysu út úr sér. Hvað er að okkur sem þjóð? Kemst ekki yfir á hve lágu plani þjóðmálaumræðan á Íslandi er.


 31. mars 2009 ( valsól ) [H]
Þetta er algjör snilld. Hugsaðu þér þegar Guðlaugi eða vinum hans datt þetta í hug, hvað þeir hafa verið rosalega ánægðir meðs sig , en ekki fatað það í leiðinni að allt það sem er að ske í dag er afleiðing af 18 ára setu Sjálfstæðisflokksins og Davíðs í og við stjórn landsins.


 31. mars 2009 ( Halla Gunnarsdóttir ) [H]
Kannski bara á Geira á Goldfinger? Hann er örugglega til í að hlaupa undir bagga.

Annars var þín sárt saknað á reunioni síðustu helgi. Og það var mál kvenna og karla að þú hefðir enga afsökun, búandi í næsta húsi ...


 31. mars 2009 ( Jóhannes ) [H]
Ja, hérna. Ég held að ég hafi meira að segja kosið þessa mannvitsbrekku í prófkjöri. Það er eins gott að það er tími til iðrunar. Svona billegar kúnstir eru ráðherra til háb0orinnar skammar. Hvernig voru sparnaðaráformin í Heilbrigðisráðuneytinu reiknuð?


 01. apríl 2009 ( - grettir ) [H]
Það er bara allt við þennan málflutning sem bendir til þess að menn séu verulega örvæntingarfullir.

En reunionið Halla :-( Ég ætlaði að mæta en svo var konan mín að vinna og bæði börnin tóku upp á því að verða lasin. Svo ég var bara í hjúkrun um helgina.


 04. apríl 2009 ( bjkemur ) [H]
Guðlaugur Þór er einn afkastamesti vitleysingur sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur að geyma. Hann ásamt Birgi Ármannssyni og Ármanni Kr (Ármann af Alþingi sem betur fer) eru án efa einhverjar fremstu lofthænur og rugludallur sem hafa tjáð sig opinberlega.

Þetta er vissulega ekki tæmandi upptalning en ég nenni ekki að röfla meira um þessa gúanófylltu froðuheila.


Uppreisn heimilistækjanna

Ritað þann:    30. mars 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Fyrir nokkrum dögum kom ég að þvottavélinni okkar í einhverju dramakasti, blikkaði villuskilaboðum og pípti vesældarlega.

Ég fletti skilaboðunum upp á netinu og komst að því að villan þýddi að vélin kæmi ekki frá sér vatni og vandamálið væri stíflað sigti, klemmd slanga frá vélinni eða ónýt dæla.
Í leiðbeiningarbæklingnum með vélinni (sem ég fann á bakvið vélina þegar ég leitaði að klemmdu slöngunni) voru nokkuð góðar leiðbeiningar um það hvernig laga ætti dæluna. Reka inn í hana prik og reyna að snúa.

Ég gerði það. Fyrst var hún dáldið stíf, en svo losnaði hún og snérist nokkuð létt.

Vélin rauk í gang og er bara hress. Líklega hefur dælan verið full af handklæða flöffi.

Tveimur dögum síðar fær uppþvottavélin samskonar kast. Blikkar villuskilaboðum og pípir vesældarlega. Við uppflettingu í bæklingnum kemur í ljós að vélin kemur ekki frá sér vatni. Ég reif úr henni sigtið, smúlaði og þreif og vélin er eins og ný.

En þetta fékk mig til að hugsa um það hvort ég ætti ekki að drífa mig til læknis í fyrirbyggjandi skoðun á þvagrás? Svona áður en ég lendi í því að koma ekki frá mér vatni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. mars 2009 ( Jón Óskar ) [H]
Skyldi allt fara á versta veg og þú myndir stíflast ætla ég að biðja þig um að fara ekki að reka prik inn í þig og reyna snúa :o)

Annars lenti ég í því nú um daginn að árs gamla þvottavélin mín neitaði að aflæsa hurðinni eftir þvott. Smith og Norland bjóða upp á heimaþjónustu en vitanlega einungis á höfuðborgarsvæðinu. Ég bý ekki svo vel (pun intended) að njóta þessarar þjónustu svo ég þurfti að troða vélinni í bílinn og rúnta til Reykjavíkur þar sem skipt var um tölvuheila. Hefði glaður viljað að bilunin hefði verið þess eðlis að hægt væri að redda með þrifum eða prikapoti.

Vitaskuld var ég búinn að gúggla sjúkdómseinkennin en varð ekki kápan úr klæðinu; þegar þýskt verkfræðiundur bilar er það yfirleitt ofar skilningi hins venjulega tölvunörds.


 31. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Ég skal reyna að hemja mig :D

En þvottavélin okkar er einmitt rétt rúmlega ársgömul. Ætli það sé "countdown" í tölvuheilanum sem byrjar að skemma út frá sér þegar ábyrgð lýkur?


 04. apríl 2009 ( ægir pípari ) [H]
Tek að mér prikpot og annað vatnstengd í kreppunni


Skattmann

Ritað þann:    28. mars 2009
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  pólitík  

Ef öflugasta vopnið í vopnabúri Sjálfstæðismanna er að hræða landann með skattmann, þá er flokkurinn aumari en ég hélt.

Þetta er svona eins og ef hópur fólks héldi geðveikt partý, væri vikið úr húsnæðinu sem hýsti gleðskapinn og myndi svo gagnrýna ræstingafólkið fyrir að nota gula gólfsápu en ekki einhvern veginn öðruvísi við þrifin.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. mars 2009 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Mjög vel framsett... var einmitt að spá í hvernig væri hægt að koma þessu inn í partý-myndina :)


 30. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-)

Kjarnorkusprengjan í vopnabúrinu var ekki komin í ljós þegar ég skrifaði þetta að ofan.

Verst fyrir Sjallana að hún sprakk inni á fundinum.


Þvílík tilviljun!

Ritað þann:    27. mars 2009
Efnisflokkar:  fyndið  kaldhæðni  

Ég líka!

Leikkonan Reese Witherspoon hefur gefið þá tímamótayfirlýsingu að hún þoli ekki að vaska upp.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Mæðraskoðun

Ritað þann:    26. mars 2009
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Ég fylgdi eiginkonu minni í mæðraskoðun í morgun. Hún var skoðuð hátt og lágt og fékk fulla skoðun.

Ég fékk hins vegar auglýsingablað vegna námskeiðs fyrir verðandi feður, því nýlegar rannsóknir benda til þess að nútíma karlmenn séu farnir að taka virkari þátt í uppeldi barnanna og námskeiðið á að upplýsa karlmenn um það hvað felst í því.

Það þarf enginn að segja mínum börnum þær fréttir, enda hugsum við jafnt um okkar börn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 27. mars 2009 ( Sigrún Þöll ) [H]
Ef þetta er námskeiðið sem presturinn heldur þá skylst mér að þetta sé vælunámskeið fyrir karlmenn hahahahhahaha..


 27. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Jú, það var einhver prelli skráður fyrir þessu :-)

Fyrir mér er þetta common sense. Ég ber jafna ábyrgð á uppeldinu enda börn ekki eingetin nema í einhverjum skáldsögum.


 29. mars 2009 ( Finnur ) [H]
Nei hættu nú Grettir, ertu búinn að horfa á of margar Meg Ryan myndir? Ertu að segja að maður eigi að framfleyta heimilinu OG hugsa um börnin. Nei, einhvers staðar verða mörkin að liggja. Ægilegt nýaldarbull er þetta.


 30. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Hehe..


Pappírsbrúðkaup

Ritað þann:    25. mars 2009
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Í dag er ég búinn að vera giftur í eitt ár. Það er pappírsbrúðkaup.

Ég þarf að koma við í bókabúð á eftir.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. mars 2009 ( Jón Óskar ) [H]
Innilega til hamingju með daginn!.


 26. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-)


Þetta er ógeð

Ritað þann:    24. mars 2009
Efnisflokkar:  börnin  matur  

Það var "bixí" matur hjá okkur í gær. Margrét að vinna og við nenntum ekki að hafa mikið fyrir matseldinni.

Ég tók út smá lambakjöt sem hafði verið í afgang einhvern tíma um daginn, steikti á pönnu. Fyrir krakkana gerði ég brauð með skinku, osti og ananas í ofni.
Drengurinn minn borðaði brauðið með bestu lyst en heimasætunni þótti lítið til þess koma: Ég vil ekki bananas! Þetta er ógeð! sagði hún með vanþóknunarsvip og át allt lambakjötið frá mér.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. mars 2009 ( Mamman ) [H]
Snillingar þessi börn okkar :*


 24. mars 2009 ( Írena ) [H]
Já sko mína!:D Bananas er algjört ógeð! alveg fullkomlega sammála þessari elsku ;*
Þá er allavega komið eitt enn atkvæði að hafa ekki ananas í brauðréttinum hennar ömmu :D


 25. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Ég skil þetta ekki, eins og (b)ananas er gott stöff :-)


Lifið í ótta

Ritað þann:    23. mars 2009
Efnisflokkar:  efahyggja  fyndið  

Á visir.is er frétt um ferðalag páfa til Angóla. Áður en þið lesið fréttina, rifjið upp hvað ár er núna.

[...]Á laugardaginn hvatti páfinn fólk til þess að lifa í ótta við anda kirkjunnar. Hann bætti við að kaþólska kirkjan ætti að reyna að ná til þeirra sem trúa því á galdra og drauga en mannréttindasamtök hafa haldið því fram að börn í Angóla sé misþyrmt vegna þess að íbúar trúa því að þau séu haldin illum öndum[...]

Gaman!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Lóan

Ritað þann:    20. mars 2009
Efnisflokkar:  fimmaurar  fréttir  

Ekki ætla ég nú að kvarta yfir því að Lóan sé mætt til landsins en ef ég væri Lóa hefði ég frekar stoppað í Færeyjum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Við borgum þér

Ritað þann:    19. mars 2009
Efnisflokkar:  kaldhæðni  neytendur  

Ég fór í Húsasmiðjuna um daginn og í stað þess að fá 10% afslátt fékk ég 10% inneign.

Húsasmiðjan ætlar að borga mér 92 krónur næst þegar ég kem og versla.

Ég hlakka til.



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. mars 2009 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Kannski er maður orðinn skemmdur af því að vinna með endurskoðendum en mikið væri nú fróðlegt að vita hvernig þetta hefur áhrif á bókhaldið hjá þeim ;-)


 19. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Væntanlega þau áhrif að það þarf ekki að gefa afsláttinn, því flestir gleyma svona miðum :-)


Stýrivextir lækka um 1% - Ríkissjórninni að kenna

Ritað þann:    19. mars 2009
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  kaldhæðni  

Eitthvað finnst sjálfstæðisdindlinum Sigurði Kára og smásálunum á eyjunni ómerkilegt að lækka stýrivexti aðeins um 1%

Eftir samfelldar stýrivaxtahækkanir í mörg ár, þrátt fyrir að verðbólga hafi á tímabili farið upp og niður þá finnst Sigurði og fylgdarsveinum hans 1% lækkun léleg lækkun.

Það er þó lækkun.

Ekki lækkun upp á 3.5% til þess eins að hækka þá aftur um 6% eins og "hans" menn stóðu fyrir, þá er þetta allavega skref í rétta átt - í áttina að núllinu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sónar

Ritað þann:    18. mars 2009
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Við vorum í sónar í morgun. Nýji bumbubúinn hefur það fínt, er orðinn heilir 5 sentimetrar og spriklar eins og alvöru óþekktarormur.

Margrét er sannfærð um að þetta sé strákur. Ég er ekki eins viss, en við fáum að vita það í maí.

Ef þetta er strákur, þá verður herbergið hálft bleikt og hálft blátt.

Við vorum reyndar að ræða það um daginn að ef okkur vantar eitt herbergi í viðbót, þá fórnum við bara hjónaherberginu og fáum okkur svefnsófa í stofuna.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. mars 2009 ( Sigrún Þöll ) [H]
omg! ertu óléttur! en gaman!!!


 18. mars 2009 ( Ingunn ) [H]
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Það er HEILT ár síðan ég fór í 20 vikna sónarinn minn og við fengum að vita að það væri stelpa á leiðinni ;D Þetta er svo spennandi :)


 19. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Já þetta er ótrúlega spennandi! Kannski fæ ég lítinn Grettir. Hver veit?


Bankaleynd

Ritað þann:    17. mars 2009
Efnisflokkar:  fyndið  

Ef það ríkir bankaleynd í landinu, hvaða business stunda þá fyrirtæki eins og Lánstraust og CreditInfo?

Er bankaleynd bara fyrir þá sem eiga peninga?

Ætti maður að stofna fyrirtækið DebetInfo?

Get ég flutt íbúðalánið mitt til Cayman eyja eða Tortola?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. mars 2009 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Ah nú skil ég :) bankaleynd á bara við um innistæður en ekki skuldir! Snilld

(Lánstraust og CreditInfo er sama fyrirtækið).


 17. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Já þú meinar.. er þá ekki einu sinni samkeppni í að moka út upplýsingum um skuldara :D

En já.. það er ekki mikil bankaleynd í gangi fyrir þá sem skulda.


Skutlukeppni

Ritað þann:    13. mars 2009
Efnisflokkar:  fyndið  vinnan  

Í morgun var skutlukeppni í vinnunni. Ég bjó til svona skutlu. Hún er kölluð Besta pappírsskutlan

Ég dundaði mér við það heillengi að moða henni saman, fylgdist vel með Google myndbandinu og fylgdi leiðbeiningum í hvívetna.

Stóra stundin rann upp. Áhorfendur héldu niðri í sér andanum... ég kastaði. Hún sveif. Nokkra metra. Tók svo dífu upp á við og kom til baka þar sem hún lenti 10 sentimetrum fyrir framan marklínuna.

Ég vann ekki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. mars 2009 ( Lissy ) [H]
Æ, en gott að þú reyndir.


 13. mars 2009 ( Carlos ) [H]
Þú þarft að gera á hana stél og hæðarstýringu til að halda henni lágréttri í flugi og til að tryggja að hún fljúgi ekki í hringi.


 13. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Já, hún var eitthvað misheppnuð greyið. Ég reyndi aftur og þá sveif hún til hægri og brotlenti.

Alveg eins og Sjálfstæðisflokkurinn.


Út að hlaupa

Ritað þann:    11. mars 2009
Efnisflokkar:  íþróttir  

Ég er nýbyrjaður að hlaupa á víðavangi með fyrrverandi vinnufélögum og stefni á góðan tíma í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.

Ég hljóp 9,1 kílómeter á laugardag í þvílíkt góðu veðri og var eins og Stekkjastaur það sem eftir lifði dags.

Þetta sá ég ekki fyrir mér fyrir nokkrum árum. Þetta er allt hægt að fara á bíl hugsaði ég með mér þegar ég sá hlaupagikki á ferðinni.

Svo kom tímabil þar sem ég öfundaði þá sem drifu sig út að hlaupa og létu almenningsálitið og kuldann ekki á sig fá.

Nú var ekkert annað eftir nema láta slag standa. Það drepur alla úr leiðindum að hlaupa á bretti með Bold and the Beautiful eða eitthvað álíka skemmtilegt í kassanum fyrir framan sig.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. mars 2009 ( Ingunn ) [H]
hehe, já ég sá þig sko ekki fyrir mér úti að hlaupa fyrir nokkrum árum. Þú talaðir alltaf um að allar íþróttir væru stórhættulegar ;-)
Þegar þú fórst í maraþonið hérna um árið var ég ekkert smá ánægð með þig, gott að þú sért byrjaður aftur að hlaupa :)


 12. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Þið verðið líka að lofa því að taka á móti mér í sumar þegar ég kem í mark. Ekki væri verra ef þið væruð með einn kaldan ;-)


 12. mars 2009 ( Ingunn ) [H]
já, pottþétt ;-)


Lán á gjalddaga setur Straum á hliðina

Ritað þann:    09. mars 2009
Efnisflokkar:  fréttir  kaldhæðni  

Ég skil ekki þessa gjalddaga hjá bönkunum. Nú eru gjalddagar í hverjum mánuði hjá mér og það er ekkert óvænt við þá.

Þeir eru eins og nótt og dagur. Koma og fara nokkuð reglulega.

En það virðist vera þannig í bankageiranum að gjalddagar komi stjórnendur í opna skjöldu. Ha? Borga? Við? Það getur ekki verið..

Og ef ekki er greitt á gjalddaga þá fer bankinn á hausinn. Eins og það sé betra fyrir lánveitandann að fá ekki neitt frekar en að það sé samið um að greiða einhvern hluta núna og rest seinna.

Kannski ættu bankarnir að nýta sér greiðsluþjónustu sem er í boði í.. þið vitið.. bönkunum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Það er opinbert

Ritað þann:    04. mars 2009
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Þegar ég grínaðist hérna um að eitthvað spennandi væri í vændum var ég að grínast.

Þá hef ég líklega samt verið búinn að skjóta í mark án þess að vita það.

Við erum ólétt.

Í september verðum við orðin fimm manna fjölskylda. Það er ekkert smáræði. Við erum búin að máta bílstóla og -púða í bílinn og það sleppur til.

Drengurinn minn varð rosalega fullorðinn við fréttirnar. Hann er búinn að vakna á undan okkur alla vikuna, rista brauð og hjálpa systur sinni í morgunmat.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. mars 2009 ( Hanna ) [H]
Til hamingju með fjölgunina, mikill er dugnaðurinn! Þið verðið komin með fjölskylduna í rútu áður en þið vitið af ;-)



 04. mars 2009 ( Daníel ) [H]
Gott mál og innilega til hamingju. Ekki veitir af fleiri skattgreiðendum í framtíðinni!


 04. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D

Og já, það má kannski segja að maður sé að vinna í greiðsludreifingu fyrir skattgreiðendur framtíðarinnar.


 04. mars 2009 ( Ægir pípari ) [H]
hvurslags maður hefur ekki undan, til hamingju. og til hamingju með spacewagooninn


 04. mars 2009 ( Kjartan ) [H]
Til hamingju með framfarirnar :-)


 05. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Takk takk öll..

En space wagon verður það ekki :-) Sófasettið aftur í bimmanum tekur þetta léttilega.


 05. mars 2009 ( Hrönn ) [H]
Aftur til hamingu kæru vinir. Vildi bara þakka fyrir myndirnar, geri ráð fyrir að þær hafi verið settar inn bara fyrir mig :) Þar til næst, Hrönn.


 05. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Já, það var kominn tími á myndir. Hef trassað þetta síðan við gerðum piparkökuhúsið í desember.. sem var awesome by the way


 06. mars 2009 ( Ingigerður Tómasdóttir ) [H]
Frábært að heyra...innilega til hamingju með fjölgunina :)


 09. mars 2009 ( - grettir ) [H]
Takk takk :-)