1 til 8 af 8

Brúðkaup

Ritað þann:    25. mars 2008
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Ég og unnusta mín gengum í hjónaband í dag. Við vorum búin að ákveða gifta okkur í sumar og halda veglega veislu og allt þetta týpíska, en ákváðum rétt fyrir páska að fá einfaldlega dómara til verksins.

Við mættum rétt fyrir þrjú í dag, dómari las fyrir okkur þær skyldur sem hjónaband felur í sér og í einni svipan vorum við orðin hjón. Ekki kærustupar. Hjón. Hversu fullorðinslegt er það?

Til stendur svo að bjóða vinum í grillveislu í sumar á pallinum góða. Drekka bjór og borða steik.

Svei mér þá ef ég er ekki aðeins ástfangnari í dag en í gær!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 26. mars 2008 ( sjérann ) [H]
Einn, tveir og kvissbang! Innilega til hamingju gamli vinur!


 26. mars 2008 ( Hófí í vinnunni ) [H]
Innilegar hamingjuóskir :)


 26. mars 2008 ( Frikki og Hrönn ) [H]
Innilegar hamingjuóskir frá Lúx. Komið þið ekki örugglega í brúðkaupsferð hingað? ;)


 26. mars 2008 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Innilega til hamingju :-)


 26. mars 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Innilega til hamingju!


 26. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir öll :)

Brúðkaupsferð er í pípunum..


 26. mars 2008 ( Srósin ) [H]
Innilega til hamingju. Já, verður ekki farið í veglega bryllups-reisu?
Vinafólk mitt endaði einmitt á dómaragiftingu í stað stórrar veislu og tilheyrandi, fóru í staðinn í heimsreisu, sniðugt!


 26. mars 2008 ( Anna Júl ) [H]
Innilega til hamingju :-)


 26. mars 2008 ( Una ) [H]
Til lykke :)


 26. mars 2008 ( Sigrún Þöll ) [H]
Til hamingju með brullaupið!


 27. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Enn og aftur takk takk..

Sigurrós, já við ákváðum að sleppa stóru veislunni. Erum búin að eyða allt of miklu í endurbætur á íbúðinni og ákváðum frekar að skreppa til útlanda með krakkana í sumar :-)


 28. mars 2008 ( Ingvar J ) [H]
What? No bachelor party?
Til hamingju!!!


 29. mars 2008 ( uxinn ) [H]
jeii...til lukku


 31. mars 2008 ( - grettir ) [H]
:-)


 01. apríl 2008 ( von ölves ) [H]
til hamingju!


 04. apríl 2008 ( albin ) [H]
Hey, til hamingju með það. Allt of langt síðan ég rakst hingað inn síðast.


Erlent lán

Ritað þann:    18. mars 2008
Efnisflokkar:  neytendur  peningar  

Hræðsluáróður gegn erlendum lánum til almennings kemur eflaust frá þeim fáfróðu skipstjórum er stýra seðlabankanum og þrá ekkert frekar en að allir sitji og standi eins og þeim þóknast.

Mikils misskilnings gætir í fréttum þegar sagt er frá því að höfustóll hafi hækkað svo og svo mikið - fólk verður hrætt og tekur íslenskt verðtryggt lán og tekur á sig gengistap, sem auðveldlega getur gengið tilbaka - öfugt við verðtryggðu ránin.. afsakið .. lánin.

Höfuðstóll erlenda lánsins hefur ekkert hækkað, heldur þvert á móti lækkar hann í hverjum mánuði. Ég skulda færri yen um þessi mánaðarmót en þau síðustu. Höfuðstóllinn er nefnilega í erlendri mynt. Það þýðir ekkert að snúa honum alltaf yfir í krónur og tala um að hann hafi hækkað. Það hefur engin áhrif nema þú ætlir að borga það upp í dag.

Til langs tíma litið er þetta alltaf hagstæðara. Maður er ekkert að tjalda til einnar nætur með því að fjárfesta með erlendu láni í íbúðarhúsnæði. Eftir 25 ár er afborgunin af erlenda láninu orðin hlægilega lítil, en með verðbótum væri íslenska lánið búið að margfaldast og afborganirnar orðnar mörg hundruð þúsund. Launin verða þá væntanlega hærri og lánið væntanlega svipað hlutfall af þeim og í dag, en erlenda lánið verður greitt með dósapeningum.

Hver hlær þá?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. mars 2008 ( Ingvar J ) [H]
Algjörleg sammála. Eitt er reyndar alveg gjörsamlega út í hött. Núna loksins þegar krónan er algjörlega verðlaus og eina leiðin upp á við þá harðneyta bankarnir að veita erlend lán. Það er fáránlegt að þeir komist upp með þetta!


 21. mars 2008 ( von ölves ) [H]
já merkilegt nokk... ég get ekki sagt að erlendu lánin mín hafi hækkað neitt hræðileg, auðvitað eitthvað en það er yfirstíganlegt og þau lækka aftur "innan skamms". Hinsvegar hafa vísitölutryggðu axlabanda&beltis krónulánin mín hækkað líka og ég sé ekki fram á að þau lækki neitt aftur... ever!


 22. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Já, nú hefði einmitt verið tíminn til að endurfjármagna allt í erlendu, en þá er allt lok lok og læs. Spurning um að færa launareikninginn sinn til Deutsche Bank?


Lagt upp í langferð

Ritað þann:    18. mars 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Okkur er boðið í fermingu í óbyggðum á fimmtudaginn. Ég nota tækifærið og rúnta nokkrar ferðir í gegnum göng sem ég er búinn að taka þátt í að borga. Á ég að fara rúnt fyrir einhverja fleiri?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skódar og Yarisar

Ritað þann:    17. mars 2008
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Takið eftir því næst þegar bíll kemur á fleygiferð fram úr ykkur - þrátt fyrir að þið séuð á hámarkshraða + skekkkjumörk - hvort þar sé nokkuð á ferðinni Skoda Octavia.
Ég held nefnilega að gömlu Skóda eigendurnir séu almennt ekki farnir að fatta að það þarf ekki lengur að stíga eldsneytisgjöfina niður úr gólfmottunni til að hræið komist upp brekkur eftir að það var sett VW vél í húddið.
Eða þeir eru að fá útrás fyrir margra ára hægagang á Skódunum sem drifu ekki á móti vindi hvað þá meir.

Takið einnig eftir því næst þegar þið eruð með bíl svo nálægt skottlokinu hjá ykkur að þið finnið andremmuna af bílstjóranum - hvort þar sé nokkuð Yaris á ferð. Yaris eigendum er nefnilega mikið í mun að sína að þeir komist jafn hratt og hinir. Þeir sýna það með því að hanga svo nálægt skottlokinu, að ef maður myndi hósta á bremsuna, þá fengi maður Yaris lagaða beyglu á stuðarann.

Ef Yarisarnir reyna svo að komast fram úr, gerist ekki neitt. Þess vegna hanga þeir í kjölsoginu hjá æðri bílategundum og spara þannig nokkra bensínlítra á viku.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. mars 2008 ( Hallgrímur ) [H]
Já, þetta er svo algjörlega satt!


 17. mars 2008 ( majae ) [H]
iss, snobbaðir þessir bmw eigendur - algjörlega óssammála

kveðja
Yariseigandi.


 17. mars 2008 ( Finnur ) [H]
Það er sennilega margt til í þessu með kjölsogið Grettir. Í öllu falli þætti mér stundum betra að geta ýtt bensíngjöfinni alveg niður á asfaltlagða hraðbrautina þegar ég kem inn af aðreinunum á 1999 feliciunni minni með alla 1,3 L strokkavélina drynjandi af orku. Ég er nú sennilega með eldri gerðina of þarf að þrýsta þéttingsfast á eldsneytisgjöfina og nota vöðvana á vökvalausa stýrið. Svoldið svona rallý stýri hvað varðar stöðuleikann á miklum hraða, en þá hriktir í öllu í 140 þannig að við erum komnir hringinn í þessu máli öllu saman....


 17. mars 2008 ( Margrét ) [H]
Ég bruna svo bara nokkuð sátt á mínum BMW sem kallinn keypti fyrir frúna svo hún yrði nú ekki síðust upp brekkuna........ :-D


 18. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Bmw rúlar. Mér sérfróðari menn hafa bent mér á að hvarfakúturinn í mínum sé líklega orðinn stíflaður eftir 17 ára notkun. Þegar ég saga hann undan ætti ég að geta hrist þessa Yarisa af mér ;-)

En ég er alveg gáttaður á því að enn skuli vera til Skódar frá síðustu öld! Finnur, þú hlýtur að vera með topplyklasettið á lofti alla daga, hehe. Lýsingin minnir mig á ferðir mínar á Lödunni hérna í den. Það nötraði einmitt allt og skalf þegar vindátt var óhagstæð. Og hún var það vanalega.


 18. mars 2008 ( ægir pípari ) [H]
Af fenginni reynslu ekki segja löggunni að bílstjórinn sem hafi verið að sarga af rassgatinu á bílnum hjá þér og þú hafir aðeins ýtt á bremsuna til að láta hann vita að hann væri of nálægt og þegar það virkaði ekki þá ýtt aftur og hann lent aftan á. Nei segðu bara að það hafi farið köttur í veg fyrir bílinn og þé ertu í 100% rétti og líður svaka vel fyrir að hafa kennt hinum ökufantinum lexíu


 19. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Snjallt ráð með köttinn.. spurning um að nota það á Háteigsveginum, þegar maður er þar á 30 og dónarnir liggja svoleiðis í pústinu hjá manni, því þeim liggur svo á niður í bæ eða eitthvað.


 19. mars 2008 ( von ölves ) [H]
ég á skóda... héllt ekki að ég ætti eftir að viðurkenna það fyrir sjálfum mér en ég læt sem ég eigi vw... en samt ekki eins og þann eina sanna græna grip sem bar mig úr ölfusi að fsu og til baka... oftast ;)


 19. mars 2008 ( Jói ) [H]
Ég er núverandi og fyrrverandi Skoda eigandi og stoltur af því. Í eina skiptið sem ég hef fengð hraðasekt þá var það á Skoda 105L '87 í hlutlausum, ef ég hefði sett hann í gír hefði hann ekki komist svona hratt. Keyri núna um á Skoda Octavia Scout og þarf að passa mig að hemja tveggja lítra dísel vélina svo ég verði ekki einn af þeim sem þú minntist á.


 22. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Já, ég kannast við hlutlausa trikkið, það reyndist einkar vel á Lödunni undan vindi niður brekku.

Þeir mega reyndar eiga eitt þessir nýju Skódar að þeir eyða nánast engu, sem er prýðilegur kostur þessa dagana.


Trommusóló

Ritað þann:    12. mars 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Það eru seld trommusett í næsta húsi við vinnuna mína. Viðskiptavinir eru duglegir við að prófa.

Hressandi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. mars 2008 ( von ölves ) [H]
vúhúúú!! ég mæti...


 17. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Hlakka til :D


Fingrafaraskanni

Ritað þann:    10. mars 2008
Efnisflokkar:  fyndið  nördadót  vinnan  

Ég er með tvær fartölvur í vinnunni, eina IBM og eina Dell.
Ég hef aldrei nennt að nota fingrafaraskannann á Dell vélinni, enda um óhemju flóknar uppsetningar að ræða til að fá hann í gang.

IBM vélin var tilbúin til notkunar þegar ég fékk hana og virkar fingrafaraskanninn á henni svona ljómandi vel að ég ákvað að byrja að nota hann á Dell vélinni líka svo ég geti hugsunarlaust loggað mig inn með kaffibolla í annarri og með vísifingur út í loftið á hinni.

Skanninn á Dell vélinni olli mér vonbrigðum. Hann lætur mig ítrekað skanna og neitar að logga mig inn, er lengi að því þegar hann loksins auðkennir mig og þar frameftir götunum.

Í síðustu viku komst ég loks ekki inn, sama hvað ég reyndi alltaf kom "invalid user".

Rusl er þetta hugsaði ég og renndi bendifingrinum á IBM vélina.. Denied. IBM-inn líka í fýlu. Ég prófaði aftur.. og aftur.. þar til ég tók eftir því að ég var með stóra spartl klessu á fingrafarinu.

Tæknin gerir greinilega ekki ráð fyrir því að tölvunarfræðingar séu í húsaviðgerðum utan vinnutíma.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. mars 2008 ( Finnur ) [H]
Hmm, þetta myndi flokkast sem svona "notenda villa". Eins gott að þú hringdir ekki í hjálparlínuna hjá Dell og reynsla þín væri komin á vefsíðu yfir "stupid user calls"


 13. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Ég kýs að kalla þetta Byko heilkennið :D


Note to self

Ritað þann:    05. mars 2008
Efnisflokkar:  byltingarkennd hugmynd  

Muna næst þegar gerir asahláku - að leggja bílnum efst á bílastæðinu en ekki neðst.

Nú eða kaupa mér Nokia gúmmístígvél.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. mars 2008 ( Finnur ) [H]
Ég held að Nokia stígvélin væru góð kaup og skynsamleg. Nokia símarnir hafa margsannað vatnsheldni sína í ótalmörgum þvottavélaferðum, ekki satt! Myndi halda að mörg af þeim hönnunarmarkmiðum frá stígvélunum væru endurnýtt í símaframleiðslunni....


 06. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Það held ég líka. Nokia stígvélin eru líka þeim eiginleikum gædd að vera með endurskinsrönd sem nota má sem dýptarmæli.

Og já, ég er ekki frá því að það sé eitthvað gúmmístövler efni í símunum :D


Grunnskóli

Ritað þann:    04. mars 2008
Efnisflokkar:  ég  fjölskyldan  fyndið  

Í gær skráði ég drenginn minn í grunnskóla. Ef það verður ekki til þess að ég fullorðnist, þá veit ég ekki hvað ætti svo sem að verða til þess.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. mars 2008 ( Srósin ) [H]
Það er nú ekkert, í vikunni kveikti ég allt í einu á að elsti minn er orðinn 10ára... ég er næstum að fara ferma!!!

... en svona þegar ég hugsa meir, þá man ég þó að ég er ári yngri en þú haha


 05. mars 2008 ( Elsa Gunn ) [H]
Ég held að ég toppi ykkur, ég er að fara að ferma minn elsta =o)


 05. mars 2008 ( - grettir ) [H]
Mér líður eins og unglingi aftur. Takk stelpur :-)