1 til 17 af 17

Idol

Ritað þann:    21. febrúar 2006
Efnisflokkar:  sjónvarp  tónlist  

Ég hef verið að horfa á Idolið með öðru auganu þennan veturinn. Þetta er orðið ansi þreytt. Ég held líka stundum að dómararnir séu með tyggjó í eyrunum. Eitthvað sem hljómar ekki vel (falskt) er eins og þvílík list í þeirra eyrum. Svo drulla þeir yfir einhverja aðra sem mér finnst bara allt í lagi. Þetta er bara sama gamla lumman. Þau eru búin að finna sína uppáhalds keppendur og þó þeir drulli upp á bak er bara staðið upp og klappað. Og aðrir eru svo góðir að það er "haf og sjór" á milli þeirra og annarra keppenda. Orðheppnir alltaf hreint þessir dómarar.

En hvaða vit hef ég svo sem á þessu. Ég er bara heimskur kjósandi og kaupandi að plötum sem þetta lið á eftir að gefa út (riiight).

Páll Óskar og Einar mega þó eiga það að þeir eru ekki algerir dónar þó þeim líki ekki eitthvað. Þeir eru meira að segja nokkuð fyndnir bara.



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. febrúar 2006 ( ingunn ) [H]
Páll Óskar er búinn að biðja um að fá að koma inn um bakdyrnar hjá einum.......brilliant :)


 22. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Það var snilld! Gaurinn fór í kleinu.. skiljanlega.


 23. febrúar 2006 ( Fjóla ) [H]
Bubbi er náttúrulega BARA meistari í að orða hlutina illa „svo rangt“, ég elska hann sem idol dómara - ótrúlegt hvað vellur upp úr honum. Ætli það sé eitthvað á milli Hafs og sjós???


 24. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
There is a water at the bottom of the ocean sögðu Talking Heads um árið.
En grínlaust. Bubbi ætti að gefa þetta út :-)


 27. febrúar 2006 ( Írena ) [H]
Hvað seiguru ?? ætlarðu ekki að koma með pínu Coment .. skohh.. lífið mitt er tómt án brandarana .. ;) svoo koma með smá svona ..!!


 28. febrúar 2006 ( birna ) [H]
verð nú að vera sammála fyrri ræðumanni, Grettir.. hvað á það að þýða að hangsa svona og gera ekkert í því að sinna blogginu...


 01. mars 2006 ( - grettir ) [H]
Já maður.. nú eru stórfréttir í aðsigi.. STÓR fréttir.


Red Hot

Ritað þann:    20. febrúar 2006
Efnisflokkar:  ferðalög  tónlist  

Ertu ekki að grínast? Red hot chili peppers verða á Rock Werchter í sumar. Ég farinn að pakka.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. febrúar 2006 ( Ásgeir ) [H]
Þetta líst mér vel á Grettir... ég hugsa ég pakki líka... En mig langar að benda þér á Travel Pillow, http://www.thebackbook.com/ - sem þú getur fjárfest í fyrir $46,95, þá ættirðu að geta lagt þig hvar sem er og hvenær sem er og sofið á þínu græna eyra. Ég myndi svo bara vekja þig með öl daginn eftir... hvar sem þú lægir.


 21. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
ætli sé ekki hægt að fá stærri uppblásna bjórbakka?... og lamavesti, hver getur nú verið án þess?


 22. febrúar 2006 ( Ingunn ) [H]
...leiðin liggur alltaf fram hjá lestarstöðinni hvort sem er. Mér finnst að Grettir eigi að fá sér svona vesti líka...svo þið verðið alveg eins og tvíburar.


 22. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Ég fæ mér svona Travel Pillow, það er á hreinu. Þá getur maður orðið bráðkvaddur hvar sem er.


Lifað hættulega

Ritað þann:    20. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Ég blés á allan hræðslufréttaflutning í gær. Ég lifði á brúninni - tók gríðarlega áhættu - sem fáir í heiminum í dag myndu fyrir sitt litla líf þora að gera.

Ég fór og gaf öndunum brauð.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
þú ert nú meiri brjálæðingurinn!


 21. febrúar 2006 ( ingunn ) [H]
Myndirðu panikka ef þú dyttir í tjörnina?


 22. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Já ætli það ekki.. maður yrði drulluskítugur og blautur.


Eurovision

Ritað þann:    19. febrúar 2006
Efnisflokkar:  sjónvarp  skandall  tónlist  

Ég er með harðsperrur í kinnunum eftir gærkvöldið. Djöfuls burst hjá Silvíu Nótt. Ég hló mig máttlausan yfir þessari vitleysu.

En common, við erum búin að reyna allt. Hvers vegna ekki að senda eitt grínatriði. Það versta sem getur gerst er að við komumst ekki upp úr undankeppninni - og það gerðist líka í fyrra með völdu lagi og Selmu í fararbroddi.

Fyrir utan það að þetta var bara ágætislag. Hin voru flest alger hörmung. Enda sjáum við það á atkvæðagreiðslunni, rúmlega hundrað þúsund atkvæði greidd, Silvía 70 þúsund, annað sætið 30 þúsund og það þriðja 9 þúsund.
Það gerir 109 þúsund. Hin lögin hafa fengið eitt atkvæði hvert - frá höfundinum sjálfsagt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. febrúar 2006 ( ægir ) [H]
en hvað finnst þér um að nú ætlar þorvaldur að enska lagið svo útlendingarnir fatti húmorinn, je ræt þetta er íslenskt jók og eigum að halda því svoleiðis. áfram evrósýn


 25. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Veit ekki hvort það breyti einhverju. Ekki eins og maður skilji svo sem það sem Silvía segi hvort eð er, svo íslenska útgáfan ætti alveg að rokka.


Murphy á ferðinni

Ritað þann:    16. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fyndið  vinnan  

Hvað gerist ef þið prentið eitthvað út í þríriti og eruð allt of sein og eruð að hefta þetta saman?

Það eru bara tvö hefti eftir í heftaranum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. febrúar 2006 ( Margrét ) [H]
Ég elska þig :-D


 16. febrúar 2006 ( göltur ) [H]
þá er ekkert annað að gera en öskra á gyltuna sem á að sjá um að skrifstofuvörurnar séu í lagi!!!
Þetta er að sjálfsögðu henni að kenna!


 17. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Auðvitað gerði ég það... þetta kemur ekki fyrir aftur..

Margrét, maður bara roðnar hérna :*


Elsku bíllinn minn

Ritað þann:    15. febrúar 2006
Efnisflokkar:  bmw-inn  

Oft pexar maður yfir okrinu á bílatryggingum og bensíni, en þetta er ástæðan fyrir því að ég elska bílinn minn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ferðapunktar

Ritað þann:    15. febrúar 2006
Efnisflokkar:  ferðalög  

Ég var að skoða yfirlitið mitt hjá Icelandair og ég á heila 33.000 punkta. Nú er bara að bíða eftir einhverju hressandi tilboði svo maður geti skroppið eitthvað út fyrir landsteinana.

Fyrir réttu ári kom ég heim frá Ríó. Þá fannst mér eins og veturinn væri búinn - byrjað að birta snemma morguns, ekki dimmt eins lengi á daginn og almenn gleði í gangi. Nú vil ég meina að það sama sé að gerast. Þetta getur bara batnað. Febrúar er stuttur anskoti og það verður komin sól og bjór á Austurvelli áður en við vitum af.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
hoegarden á austurvelli ;)


 17. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Ég er með!


Monty Python quote

Ritað þann:    10. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fyndið  

Brian (Talking to crowd): You need to be independant minded.
Crowd: We are! We are!
Person in crowd: I'm not!

- Monty Python




Snilld!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
:)


 13. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Nokkuð ljóst að maður verður að fara að horfa á þessar myndir aftur.


 13. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
jahá!


Teiknimyndir

Ritað þann:    10. febrúar 2006
Efnisflokkar:  efahyggja  fréttir  

Það hefur varla farið framhjá neinum að allt er arfavitlaust vegna skopmynda sem birtust af einhverjum löngu dauðum spámanni í dönsku dagblaði.

Það hefur kannski farið framhjá einhverjum að Danir birtu þessar teiknimyndir í september og það hefur líklega farið framhjá flestum að dagblað í Egyptalandi birti þær í október.

Afhverju eru allt vitlaust núna? Ég tek það fram að ég ætla ekki að segja að allir múslimar séu arfavitlausir, því eins og Sigga bendir réttilega á er slatti til af þeim og varla hægt að setja alla undir sama hatt.
En þessi fámenni háværi meirihluti setur vissulega svartan blett á Íslam. Og það er ekki eins og allir Danir hafi ákveðið að gera grín. Það væri svona svipað eins og allir yrðu fúlir út í Íslendinga ef DV birti einhvert grín.

Ég er ekki frá því að þetta sé nokkuð nærri sannleikanum, en þarna er talað um að Saudi Aröbum hafi vantað að benda í einhverja aðra átt eftir dauðatroðninginn í Mekka í Janúar.

And while the deaths of these pilgrims was a mere blip on the traditional western media's radar, it was a huge story in the Muslim world. Most of the pilgrims who were killed came from poorer countries such as Pakistan, where the Hajj is a very big story. Even the most objective news stories were suddenly casting Saudi Arabia in a very bad light and they decided to do something about it.

Their plan was to go on a major offensive against the Danish cartoons. The 350 pilgrims were killed on January 12 and soon after, Saudi newspapers (which are all controlled by the state) began running up to 4 articles per day condemning the Danish cartoons. The Saudi government asked for a formal apology from Denmark. When that was not forthcoming, they began calling for world-wide protests. After two weeks of this, the Libyans decided to close their embassy in Denmark. Then there was an attack on the Danish embassy in Indonesia. And that was followed by attacks on the embassies in Syria and then Lebanon.


Einn Saudi sem býr í UK er með blogg.

As Your Majesty requested recently, in order to divert public attention from the regrettable demise of a small number of pilgrims in Makkah during the last Hajj, Saudi newspapers were instructed to revive the four-month-old story of cartoons about the Prophet (PBUH) in a Danish newspaper, and turn it into an attack on Denmark, together with a "spontaneous demand by the people" for a boycott of Danish goods.

Því segi ég, trú er bara til vandræða. Kristni, Íslam og hvað þetta allt heitir. Bara rugl.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
heyrðu væni... skilaðu fermingjargræjunum!!


 13. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Haha, hvað meinarðu.. fermast ekki allir vegna gjafanna?


 14. febrúar 2006 ( Gunnar Sig. ) [H]
Þessi grein er samt snilld.
Var ekkert búinn að spá í þessu frá þessu sjónarhorni.
Djöfull þarf maður að verða spin-doctor þegar maður verður stór. Þeir eru ekkert smá klárir.


 14. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Úber klárir :-)


Of mikið sjónvarp

Ritað þann:    09. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Held að Bush sé eitthvað ruglast. Það var Jack Bauer sem bjargaði LA.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ég hélt það væri komið vor

Ritað þann:    08. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fjölskyldan  íbúðamál  

Hvaða svindl er þetta að dempa á okkur frosti núna þegar búið er að vera vorveður allan janúar? Ég var farinn að máta reiðhjólahjálminn - vongóður um að nú mætti fara að smyrja hjólið og hafa það skemmtilegt.

Ég og frúin erum búin að vera að líta í kringum okkur í leit að íbúð. Það gengur ekkert allt of vel. Menn eru að missa sig í verðlagningunni á þessum kofum. Samt fyndið þegar maður leitar eftir einhverjum götunöfnum og dettur niður á 300 fermetra hús einhversstaðar í rassgati fyrir 15 mills. Fyrir sama pening færðu niðurgrafna holu með ónýtum skítalögnum á versta stað í bænum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. febrúar 2006 ( Hjalti ) [H]
Það var svo kalt í morgun að ég hélt í alvörunni að ég myndi láta lífið úr kulda!


 08. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Ertu ekki bara þunnur ennþá? Hehe.


 08. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
ach so! flytur bara austur fyrir fjall... álíka lengi að keyra í vinnuna þaðan...


 08. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Been there, done that :-)


 08. febrúar 2006 ( ægir pípari ) [H]
ég mæli með að þú kaupir íbúðina mína í hamravíkini gef þér meira að segja afslátt vegna vangoldinar bjórskuldar


 09. febrúar 2006 ( Srósin ) [H]
Er verið að leita í Garðabænum... þá kannski Arnarnesinu ;)


 09. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Hehe, Grafarvogur Ægir? Nei, sama og þegið.

Ég veit ekki alveg með Garðabæinn. Skoðaði 3 íbúðir í Sjálandshverfinu um daginn. Verulega kúl, við sjóinn með ylströnd í kallfæri. En 30-35 milljónir? Kannski þegar ég verð gamall og nenni ekki að skoða heiminn lengur, þá er ég til í að öll launin mín fari í einhvern húskofa. Ekki fyrr.


Númer 2

Ritað þann:    08. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fyndið  

Ég er búinn að fatta afhverju númer 2 er kallað númer 2...

Maður þarf alltaf að gera númer 2 tveimur tímum eftir vakn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

WulffMorgenthaler

Ritað þann:    04. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fyndið  

Wulff og Morgenthaler klikka ekki á því frekar en fyrri daginn.

Beikon tré Danmerkur.

Þriðja bókin er líka snilld.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. febrúar 2006 ( glutteur ) [H]
Hver er þín skoðun á þessu silvíu nóttar dæmi?
Og HVAR ERU BRANDARARNIR?


 06. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Ég held með Silvíu Nótt. Fyrst hélt ég að þetta væri grín en svo sá ég sé snilldina í þessu.
Við erum búin að prófa að semja lag fyrir Bo sjálfan, búin að senda vinsæla dægurlagasöngvara, Pál Óskar, róleg lög, hress lög og ég veit ekki hvað. Ekkert gengur.
Hvers vegna ekki að senda eina Silvíu Nótt með attitute? Versta sem gerist er að við komumst ekki áfram.

Já brandararnir. Báðar síðurnar sem ég hef notað fyrir source til þýðingar eru lokaðar. Bömmer.


Einmitt

Ritað þann:    03. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fréttir  

Það er snyrtilegra að mæta með sprengjuflugvélar og teppaleggja.

Það er óviðunandi að kynt sé undir trúar- eða kynþáttahatri með þessum hætti. Við hvetjum til umburðarlyndis og virðingar fyrir öllum hópum og trúarskoðunum þeirra

Jahá. Maður veit ekki hvort þetta eigi að vera grín eða...

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
þessir ameríkumenn eru nú alveg frábærir!


Þorrablót

Ritað þann:    03. febrúar 2006
Efnisflokkar:  djamm  ferðalög  matur  

Á morgun fer ég á þorrablót. Þar verður étið úldið tros og drukkinn bjór með.

Í fyrra missti ég af hinu árlega þorrablóti þar sem ég var staddur í Ríó de Janeiro. Ekkert úldið tros þar. Bara sól, sandur og ferskar kókoshnetur. Og bjór á 50 kall.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
og hvurnig var þetta þorrablót?


 06. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Það var snilld. Held reyndar að maturinn hafi verið búinn að standa heldur lengi.. ekki frá því að hann hafi verið hálf súr.


Skopi skop

Ritað þann:    02. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fréttir  innflytjendur  líðandi stund  

Meiri æsingurinn yfir þessum skopmyndum af þessum Múhameð. Alveg væri mér sama þó einhver birti skopmynd af mér í einhverju blaði (því ég trúi á sjálfan mig). Ég yrði bara dáldið montinn meira að segja.

Ef þetta pakk vill búa á vesturlöndum, þá verður það bara að kyngja því að við gerum grín og segjum það sem við viljum. Þetta voru bara teiknimyndir for crying out loud. Veriði barnalegir.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Counter attack

Ritað þann:    01. febrúar 2006
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  innflytjendur  

Miðausturlandabúar eru hættir að versla norræn matvæli skv. frétt á visir.is

Það er bara eitt við því að gera... hætta að éta Kebab.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 01. febrúar 2006 ( von ölves ) [H]
og éta þá dürum kip?


 01. febrúar 2006 ( - grettir ) [H]
Eða Mekong. Það er gott stöff.