1 til 10 af 10

Kastljós lagt niður í sparnaðarskyni

Ritað þann:    23. desember 2009
Efnisflokkar:  skandall  

Þeir eru hressir á þinginu, það er ekki hægt að segja annað.

Um leið og Kastljós vekur athygli almennings á því að þingmenn eru ölvaðir í vinnunni kemur fyrirspurn frá Framsóknarflokknum hversu mikið það kosti á ári að framleiða Kastljós.

Ætli flestir yrðu ekki reknir ef þeir mættu ölvaðir til vinnu. En kúltúrinn á þinginu virðist vera sá að þeir eru hafnir yfir almennar reglur samfélagsins. Elítan.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 31. desember 2009 ( spritti ) [H]
Er ekki fínt að menn sét bara nokkuð léttir svona þetta á þinginu ?


 08. janúar 2010 ( - grettir ) [H]
Þetta er auðvitað svo mökkleiðinleg vinna að ég skil svo sem að menn þurfi að fá sér öl.

En þá ættu menn kannski að finna sér eitthvað annað :-) Kannski þarf að setja reglur um hámark þingsetu. Koma í veg fyrir atvinnupólitíkusa.


Hvernig skilgreinir þú ofbeldi?

Ritað þann:    15. desember 2009
Efnisflokkar:  nöldur  peningar  

Bankar fara á hausinn og draga fólk og fyrirtæki með sér í fallinu. Skattfé er notað til að reisa bankana við sem eignast þá fyrirtækin og eignir fólksins sem þeir settu á hausinn.

Er ekki eitthvað öfugsnúið í þessu kerfi sem lögfræðingar og pólitíkusar hafa búið til og stjórna?

Ég sé ekki alveg muninn á þessu og að fara til dæmis niður í Kaupþing eða Lýsingu og gefa einum lögmanni þar á kjaftinn.

Eini munurinn er sá að lögfræðingar hafa skilgreint það seinna sem refsivert athæfi. Ofbeldi.

Það er bara tímaspursmál hvenær almenningi brestur þolinmæði. Það verður gaman að sjá lögfræðingana verjast tjöru og fiðri með innheimtuþóknunum og seðilgjöldum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. desember 2009 ( von ölves ) [H]
Banki fer á hausinn. Eign þín í bankanum rýrnar á sama tíma og skuldir þínar í bankanum margfaldast. Sanngjarnt?


 16. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Nei, þetta sökkar big-time. Það þarf að endurræsa þetta kerfi. Forsendurnar eru kolvitlausar.


 17. desember 2009 ( spritti ) [H]
Jább... fiðrið og tjöruna á liðið.


Af reiknivél Sjálfstæðisflokksins

Ritað þann:    15. desember 2009
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  pólitík  

Hjálmar Gíslason (hjalli.com) lýsir ágætlega þeim sjónhverfingum sem helvítis íhaldið beitir með skattareiknivélinni sem er eins og krabbamein um allt internet þessa dagana.

Henry Þór afhjúpar blekkingarnar á mjög einfaldan hátt.

Síðasta bólan í teikningunni segir allt sem segja þarf.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Að eiga bíl er góð skemmtun - eða þannig

Ritað þann:    14. desember 2009
Efnisflokkar:  bílar  nöldur  

Ég er alltaf að komast að því betur og betur hvað bílar eru mikið bras.

Nú eru bremsuklossarnir í bílnum búnir að aftan og ég gerði mér ferð í annað bæjarfélag til að kaupa eitt slíkt sett. Ég stillti mér svo upp fyrir framan húsið mitt, tjakkað bílinn upp og byrjaði að rífa dæluna í burtu. Hún er fest með 16mm bolta.

Í ódýra "LuxTools" topplyklasettinu mínu er ekki 16mm lykill. Hvorki toppur né fastur. Reyndar er ekki 11mm heldur - en tveir 10mm hinsvegar.

Ef þetta er Lux útgáfan af Tools, þá veit ég ekki hvernig strípaða útgáfan er.

Ég fékk því mág minn til að skutlast með 16mm lykil á svæðið og kláraði að rífa dæluna undan.

Þá passa ekki klossarnir sem ég hafði nýkeypt. Allt of stuttir og feitir. Líklega fyrir frambremsur. Eða á Skoda. Þegar ég uppgötvaði mistökin var lítið annað að gera en að setja bifreiðina saman með gömlu klossunum og bölva í hljóði.

Ég labba einn hring í kringum bílinn til að ganga úr skugga um að ég sé með öll verkfæri og tek þá eftir því að það sprungið að framan! Helvítis rugl!

Ég er alvarlega að spá í að hætta þessu bílarugli bara og nota leigubíla og reiðhjólið.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. desember 2009 ( Hjalti ) [H]
Ekki hefur þetta alveg verið þinn dagur bróðir kær !


Og svo horfðum við bara á klám

Ritað þann:    14. desember 2009
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Ég var í matarboði hjá vinafólki okkar fyrir nokkru síðan og var að venju spjallað um daginn og veginn.

Umræðan var farin að snúast um bíómyndir, sjónvarpsþætti og fleira í þeim dúr þegar ein í hópnum segir: Við bara farin að fara í rúmið eldsnemma og horfa á klám.

Ég lít svona í kringum mig og finnst skrýtið að engum öðrum en mér hafi fundist neitt athugavert við þessa hreinskilnu yfirlýsingu.

Já, við fengum helling hjá bróður hans [..nafn..] og erum bara húkt!

Vá, hugsa ég. Voða eru allir opnir og hressir í þessu matarboði.

Ég verð að viðurkenna að ég var dáldið spældur þegar ég fattaði að hún var að tala um Klovn

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. desember 2009 ( Jón Óskar ) [H]
Ha ha ha! Veistu þetta er nákvæmlega það sama og ég heyrði þegar einhver sagði mér hann væri að horfa á "Klovn".

Viðurkenni að ég er líka húkt á þessu - sko Klovn, ekki klámi :o) Snilldar þættir.


 14. desember 2009 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Vá hvað ég er feginn að fleirum misheyrist þetta en mér! Hélt að þetta væri eitthvað freudískt.
Finnst hins vegar Klovn ekkert skemmtilegt efni get síður horft á neyðarlegheit í sjónvarpi en argasta hrylling.


 14. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Ég er búinn að sjá nokkra og finnst þeir alveg fyndnir, en ég einhvern veginn gleymi alltaf að kveikja á Rúv á réttum tíma.


 14. desember 2009 ( Ægir ) [H]
kannski vantar bara einn til að byrja að vera hreinskilinn, en ekki byrja samt næst er þú kíkir til mín:)


 15. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Nokkuð til í því. Allir eru að byrgja inni einhverjar sögur sem alla hina langar að heyra.


Kjöthöllin

Ritað þann:    09. desember 2009
Efnisflokkar:  matur  

Við byrjuðum að versla við Kjöthöllina í sumar eftir vinnustaðagrill konunnar í vor þar sem boðið var upp á bestu hamborgara sem við höfum smakkað.
Okkar helstu innkaup til að byrja með voru hinir frábæru hamborgarar, en þeir eru í algjörum sérflokki.
Annað en fjöldaframleiddu vatnsborgararnir sem eru seldir í verslunum og má þakka fyrir að detti ekki ofan í grillið þegar þeir skreppa saman. Og kosta ekkert minna.

Brauð í fullri stærð fylgir með.

Í kjötborði Kjöthallarinnar er líka að finna allskyns buff og fleira gott í hversdagsmatinn og á þriðjudögum er tilboð á kjötfarsi. 250 kall kílóið minnir mig. Börnin eru sjúk í það.

Svo er líka hægt að fá steikur. Svona fyrir helgarmatinn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. desember 2009 ( Sigrún Þöll ) [H]
...ooooog kaupa sparkassa ooooog jólakassa oooooooggg.....


 10. desember 2009 ( spritti ) [H]
Það er fátt eins gott og safaríkur grillaður hamborgari.


 14. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Ójá..


Hagkaups beygla í Smáralind

Ritað þann:    09. desember 2009
Efnisflokkar:  skandall  

Einhver illa innrættur einstaklingur opnaði hurð svo hressilega utan í heimilisbifreiðina fyrir utan Smáralindina/Toys 'r Us á mánudaginn að hún fór hálfa leið inn í bretti.

Við hliðina á bílnum var hvítur bíll - hugsanlega Golf, en þó ekki víst - sem var farinn þegar að var komið.

Ef einhver varð vitni að þessu skemmdarverki má hafa samband við okkur í netfangið bmw hjá grettir punktur net.

Vonandi brennur jólasteikin við hjá skemmdarvarginum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Fyrir 3 árum

Ritað þann:    08. desember 2009
Efnisflokkar:  börnin  

Fyrir nákvæmlega þremur árum gerðist þetta!

Og nú er dóttir mín er orðin 3ja ára. Vinir hennar og ömmur og afar, frændur og frænkur kíktu í kaffi á sunnudag og gáfu henni bleika pakka sem hún kunni svo sannarlega að meta.


Til hamingju með daginn Elísabet Lilja


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. desember 2009 ( Sigga Hrönn ) [H]
Til hamingju með fallegu stúlkuna þína Grettir og frú :)


 08. desember 2009 ( Hjalti ) [H]
Til hamingju með Krúttið ykkar Grettir minn.. :) Kysstu hana rækilega frá mér


 08. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :)

Já, ég skal knúsa hana frá fyrir þig Hjalti..


 08. desember 2009 ( Ingunn ) [H]
til hamingju með fallegu stelpuna ykkar ;)
Þessi mynd er alveg geggjað flott af henni, litla krútta ;*


 08. desember 2009 ( Anna Júl ) [H]
Innilega til hamingju með fallegu prinsessuna :)



 08. desember 2009 ( Írena ) [H]
Hún er svo falleg þessi litla snúlla:) Til hamingju með litlu stelpuna þína Grettir minn ;*


 09. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D


Um afnám sjómannaafsláttar

Ritað þann:    07. desember 2009
Efnisflokkar:  líðandi stund  skandall  

Í matsal hjá viðskiptavini heyrði ég á tal tveggja um sjómannaafsláttinn:

Það er að kafna úr frekju þetta lið. Veit það ekki að við gætum skipt út öllum áhöfnum fyrir pólverja á innan við viku!

Ég varð eiginlega svo orðlaus yfir þessari heimskulegu skoðun að ég hafði mig ekki út í orðaskipti við manninn. Hugsanlega hefði ég orðið svo reiður að ég hefði séð eftir einhverju sem ég hefði sagt eða gert. Svo ég sleppti því.

En ef þetta er viðhorfið, hvar ætti að stoppa? Ef tölvunarfræðingar eins og ég (og þessi maður) færum fram á kjarabætur, værum við sáttir við að vinnuveitandi segðist geta skipt öllum í deildinni út fyrir Indverja?

Í öll þjónustustörf væri hægt að raða Tailendingum ef afgreiðslufólk ætlaði að fá launahækkun eða aukna desember uppbót og svo mætti lengi telja.

Hluti af launum sjómannsins fer í að kaupa mat, svo ef manninum við borðið í matsalnum líður betur, þá mætti greiða sjómönnum dagpeninga líkt og öðrum sem ferðast vegna vinnu, en dagpeningar eru skattfrjálsir, enda eiga þeir að duga til fæðis og uppihalds á meðan á ferðalaginu stendur.

Það sem fáir vita er að sjómenn greiða einnig olíugjald og leigu á kvótanum.

Hvað borgar þá útgerðamaðurinn? Já, það er von að þið spyrjið. Hann þarf auðvitað að borga flugfargjald út til að selja skúffufyrirtækinu sínu fiskinn á ódýra verðinu svo hann geti stolið gjaldeyrinum framhjá hlut sjómannanna og nú undanfarið - framhjá gjaldeyrishöftum.

Það er nefnilega misskilningur að þjóðin lifi á fiskveiðum.

Útgerðarmenn lifa á þjóðinni. Eins og sníkjudýr.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. desember 2009 ( Ingunn ) [H]
fólk er fífl.......ég er viss um að þessi maður þiggur dagpeninga eins og aðrir í vinnuferðum sínum. Piirrr


 07. desember 2009 ( spritti ) [H]
Maðurinn er aumingi. Ég er sjálfur sjómaður og hann ætti að vita hvað það er að vera fjarverandi frá fjölskyldunni og í miklu eftiðari vinnu en skrifstofumaður þarf nokkurntímann að þola. Ég les að þú ert nokkuð f´ður um þessi mál


 08. desember 2009 ( - grettir ) [H]
Já, það eru sjómenn í minni fjölskyldu, svo ég veit alveg hvernig þetta er.


Myndaval með fréttum

Ritað þann:    04. desember 2009
Efnisflokkar:  fréttir  kjánalegt  

Í því fjölmiðlarugli sem við búum við í dag er myndaval með fréttum sérlega árangursríkt áróðurstæki. Allir sjá myndir, en ekki nærri allir nenna að lesa í gegnum leiðinlegar fréttir sem fylgja myndunum.

Frétt mbl.is af því hversu miklar áhyggjur blaðamannafélögin á norðurlöndunum hafa af elsta blaði landsins vegna ritstjóraráðningarinnar er samt best.
Að mati þeirra sem fréttatilkynninguna rita er staða Morgunblaðsins, elsta dagblaðsins á Íslandi, sérlega alvarleg. Þar hafi eigendur ráðið Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráðherra landsins sem var Seðlabankastjóri þegar efnahagur landsins hrundi, í ritstjórastólinn. Hann sæti nú rannsókn fyrir þátt sinn í íslenska efnahagshruninu.

Með fréttinni fylgir nefnilega mynd af fréttablaðinu. Og 24 stundum, sem er löngu hætt.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..