1 til 30 af 30

Gleðilega hátíð

Ritað þann:    24. desember 2008
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Nú þegar daginn er tekið að lengja er ekki úr vegi að halda upp á það með veglegri steik og jólagjöfum í kjölfarið.

Margrét var á næturvakt í nótt svo ég og börnin erum búin að tippla tánum hérna í dag, horfa á barnatímann og undirbúa steikina.

Nú fer að koma tími til að vekja hana með kossi og koma sér úr náttbuxunum.

Gleðilega hátíð.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Besta lag ársins

Ritað þann:    23. desember 2008
Efnisflokkar:  tónlist  

.. er án efa "Það koma vonandi jól" með Baggalút

Ég var með það á heilanum í allan gærdag. Og það verður bara betra.



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. desember 2008 ( Hjalti Einarsson ) [H]
Ég er alveg hugfanginn af röddinni í söngvaranum, næstum því jafn mikið og ég er hugfanginn af mottunni á gítarleikaranum :D


 24. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Já, þetta er ótrúlegur söngvari. Og textinn er snilld.


Skötuveisla

Ritað þann:    23. desember 2008
Efnisflokkar:  matur  

Það var skata í hádeginu hérna í vinnunni. Stybban er gríðarleg. Ég fékk mér smakk og þarf nú líklega að fara heim í bað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Útkeyrsla jólakorta

Ritað þann:    22. desember 2008
Efnisflokkar:  börnin  líðandi stund  

Við keyrðum út jólakort í gær. Um það bil helmingur kortanna er farinn út en hinn verður keyrður út í kvöld eða annað kvöld.

Við ætluðum að fara með þau öll í póst en komumst að því að það kostar 70 krónur að senda bréf nú til dags, svo við breyttum þessu bara í fjölskylduferð og bárum út jólakortin sjálf í ár. Það var ákveðinn Ölfus fílíngur í því - alltaf bara maður út sjálfur kortin í gamla daga.

Það er eitthvað verulega bogið við verðlagningu póstsins þegar það borgar sig að rúnta um bæinn sjálfur með jólakortin frekar en að senda þau með póstinum.

Kannski fóru markaðsmenn póstsins á námskeið hjá Alfreð Þorsteinssyni fyrrverandi Orkuveitu okrara.

Fólk sendir bréfin sín nú orðið rafrænt og það er ekkert að gera hjá okkur... hækkum verðin.

En kortin voru flott enda innihalda þau myndir af flottum börnum.

Mínum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Langur dagur

Ritað þann:    22. desember 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  

Dagurinn í dag er 14 sekúndum lengri en dagurinn í gær, sem var sá stysti á árinu.

Nú getur þetta bara batnað gott fólk - enda stutt í ljósahátíðina með purusteikinni, hangiketi og jólaöli.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Snjóhús

Ritað þann:    22. desember 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Ég fór með krökkunum út í gær og við byggðum okkur snjóhús á pallinum. Ég var búinn að gleyma hvað það er gaman að byggja snjóhús.

Ég þurfti að þrífa hluta af pallinum með klór því eitthvert kattaróféti hefur migið við svaladyrnar. Ef ég næ honum, þá væri fyndið að bera koppafeiti á loppurnar á honum. Þegar hann er búinn að spígspora í sófasettinu heima hjá sér munu eigendurnir hugsa sig um tvisvar áður en þeir senda köttinn aftur í hlandferð til mín.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hvers vegna lækkar bensínið ekki?

Ritað þann:    19. desember 2008
Efnisflokkar:  neytendur  skandall  

Rifjum aðeins upp hvernig tunnuverðið hefur áhrif hérna á Íslandi..









14.júlí5.sept19.des
Bensínlíterinn á Íslandi: 181,90165,7 141,8
Verð á tunnu: $147$105 $34
Gengi dollars: 76,987,7 122,16
Verð í íslenskum: 113049120 4153


Tunnuverðið er 2,7 sinnum lægra en þegar bensínlíterinn kostaði 181 krónu og 2,1 sinnum lægra en þegar líterinn stóð í 165.

Samt lækkar ekki líterinn um nema brot. Ég veit að ríkið tekur fasta krónutölu, en þetta er ekki bein verðbólguvæn verðlagning. Hvar eru neytendasamtökin? Fíb? Eggjakastandi mótmælendur?

Árni helvítis Matt. er ekki verðbólguvænn heldur ef út í það er farið. Röflaði um umhverfisvernd þegar hann var spurður út í aukna álagningu ríkisins í útvarpinu. Hver þarf á umhverfi að halda þegar allir verða dauðir úr hor?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Burtu með lífeyrissjóðina

Ritað þann:    18. desember 2008
Efnisflokkar:  neytendur  peningar  

Eins og oft áður er Jóhannes Björn með góðan pistil og nú um lífeyrissjóðina:

Möppudýrin í lífeyrissjóðunum eru öll á bandi verðtryggingarinnar og segja afnám hennar stórhættulegt fyrir sjóðina. En eins og nýlegt stórtap þessara sjóða sýnir þá eru þetta ekkert sérstaklega sleipir peningamenn eða sjálfstætt hugsandi hagfræðingar. Best væri að leggja þessa sjóði niður og láta kerfið vinna alveg sjálfkrafa. Það er hægt að gera á þennan hátt:

Reikningar eru opnaðir í Seðlabankanum fyrir alla Íslendinga sem eru á vinnumarkaði. Lífeyrissjóðsgreiðslurnar fara sjálfkrafa inn á þessa reikninga í formi ríkisskuldabréfa. Ef einstaklingur deyr um aldur fram þá fá erfingjarnir peningana millifærða á sinn reikning. Það kostar sama og ekki neitt að reka svona kerfi rafrænt, allir fjárfesta í öruggum bréfum og fá síðan greitt til baka að fullu. Berið þetta saman við ruglið sem núna er í gangi.

Lífeyrissjóðirnir eru risaeðlur sem eiga að hverfa.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Enn af mótmælendum og meintum krakkaskríl

Ritað þann:    18. desember 2008
Efnisflokkar:  kreppa  peningar  pólitík  

Mótmælendur hafa verið að færa sig upp á skaftið undanfarið og smáborgararnir sem commenta á eyjunni ráða ekki við fingurna á sér við lyklaborðin fyrir vanþóknun.

Krakkaskríll og Vinstri Grænir hrópa þau.

Ég velti því fyrir mér hvers konar fólk það er sem er bara alveg sama þó við borgum fyrir þessa meintu útrás (innrás séð utan frá) - nema ef vera skyldu fjárhirðarnir sjálfir.

En þetta minnti mig á kvæði sem ég las fyrir löngu og fann aftur með aðstoð google á frjálshyggjuvefnum, en af einhverjum kaldhæðnum ástæðum hefur sá vefur ekki verið uppfærður síðan í september. Líklega er frjálshyggjan dauð.

En allavega, kvæðið er svona í þýðingu Geirs Ágústssonar sem þar er síðuritari:

Þegar nasistarnir ofsóttu kommúnistana,
þagði ég;
ég var ekki kommúnisti.

Þegar þeir fangelsuðu jafnaðarmennina,
þagði ég;
ég var ekki jafnaðarmaður.

Þegar þeir ofsóttu verkalýðsfélögin,
sagði ég ekkert;
ég var ekki í verkalýðsfélagi.

Þegar þeir ofsóttu mig,
þá var enginn eftir til að segja neitt.


Upprunalegu útgáfuna má nálgast hér

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. desember 2008 ( Ingvar J. ) [H]
Götubardagar í Reykjavík eru greinilega háðir með snjóboltum... Það er kannski ágætt.


 18. desember 2008 ( - grettir ) [H]
En nú spáir rigningu í næstu viku og þjóðargjaldþroti á næsta ári. Hvaða vopna grípa menn til þá?

Ég veit hvert mitt vopn verður - farseðill aðra leiðina til Ástralíu.


ESB "Hópnauðgun"

Ritað þann:    18. desember 2008
Efnisflokkar:  ESB  

Á fimmtudögum í desember hefur morgunblaðinu verið dreift frítt í hús sem er í sjálfu sér ágætis tilbreyting.
Í blaðinu í morgun er pistill á blaðsíðu 56 sem ber titilinn "Orka, vatn, fullveldi og evra". Pistillinn er hræðsluspádómur og lýsir því hvað gerist við inngöngu. Lítum á nokkra gullmola:

Gleymið ekki að skilyrði fyrir inngöngu í ESB er stöðugur gjaldmiðill og lítil verðbólga. Við skulum einmitt stefna að þessu marki og þegar því er náð verður annar gjaldmiðill óþarfur.

Þetta skilyrði hljómar eins og það sé gott að vera í ESB. Fyrir almenning það er að segja. Hversu mikið á það eftir að kosta okkur að hafa þennan óstöðuga gjaldmiðil?

Því víst er að með inngöngu í ESB munu aðildarþjóðirnar fjölmenna hingað sem sameinað afl og framkvæma á okkur hópnauðgun.

Ef nýjum aðildarlöndum er "hópnauðgað" af þeim eldri, hvers vegna í ósköpunum myndi nokkurt land vilja sækja um aðild? Er þetta busun?

Ef gengið verður í bandalagið munu Evvrópuþjóðir fljótlega finna leiðir til að flytja ódýrt og ómengað vatnið frá Íslandi til sambandsríkjanna.[..]Í krafti valds síns mun ESB skipa Íslendingum að selja sér vatnslítrann á lægra verði en við hefðum kosið.

Jón Ólafsson er að selja vatn. Davíð Scheving reyndi að selja vatn. Ef við sem þjóð viljum selja vatn, þá hlýtur að vera hægt að semja um verð og magn. Þetta eru ekki einhliða samningaviðræður. ESB hlýtur að geta selt okkur eitthvað gott í staðinn?

Flotar allra ríkjann munu flykkjast hingað og hreinlega ryksuga sjóinn.

Hvers vegna? Hvaða hag hafa þeir af því að rústa gjöfulum fiskimiðum? Þeir hafa enga veiðisögu í okkar landhelgi og samningastaða okkar ætti að vera sterk. Fyrir utan það að fæstir í hópi almennings eiga kvóta, svo það myndi litlu breyta fyrir okkur hvort við keyptum ýsudrulluna á 1000 kr. kílóið af frönskum fiskibáti eða íslenskum.

Undir pistilinn skrifar Guðrún Gunnarsdóttir viðskiptafræðingur.

Ég viðurkenni að ég þekki ekki starf viðskiptafræðinga til hlýtar, en það mætti segja mér að hluti starfsins færi að einhverju leyti í að búa til viðskiptasamninga.
Ég myndi ekki senda Guðrúnu Gunnarsdóttur fyrir mína hönd í neinar "samningaviðræður" þar sem aðilinn hinum megin borðisins fengi leyfi til að hópnauðga mér.

Það er nú mergurinn málsins. Á þessu stigi er aðeins verið að tala um samningaviðræður. Ef okkur lýst ekki á samninginn, þá skrifum við einfaldlega ekki undir.

Ég er farinn að hallast að því - eftir því sem ég ræði við fleiri um þetta mál - að þeir sem eru harðast á móti aðildarviðræðum eru þeir sem eiga einhverra hagsmuna að gæta í stjórnsýslunni eða eiga kvóta. Svo eru það auðvitað allir bláu pabbastrákarnir sem geta ekki myndað sér skoðun sjálfir.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. desember 2008 ( Ingvar J. ) [H]
Þessi viðskiptafræðingur hlýtur að vera úr HR eða Bifröst.... :-)


 18. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Hehe, þú segir það. Kannski á hún kvóta, bæði fiskikvóta og mjólkurkvóta.


Sparað í tryggingum og öðru aukadrasli

Ritað þann:    17. desember 2008
Efnisflokkar:  neytendur  peningar  

Í gær skrifuðum við undir tilboð sem okkur barst í tryggingar á líkömum, húsi, innbúi og bifreiðum. Tilboðið var 50.000 kr. lægra á ári en það sem við sátum uppi með eftir tilefnislausar hækkanir TM um mánaðarmótin. Við erum komin aftur til Sjóvá, en þá yfirgaf ég fyrir nokkrum árum og fór til Íslandstryggingar. Þá var hugsun mín að auka samkeppni og styrkja litla fyrirtækið á markaðnum. Þeir voru étnir af Vís og urðu svo að Verði.
Um leið hækkuðu tryggingarnar mínar um tugi vegna "allra ungu ökumannanna" sem voru að valda tjóni.

Ef þjónustufulltrúi TM hringir og spyr hví ég hafi ekki hringt og leitað betri tilboða hjá þeim er ég með svar á reiðum höndum: Ekki hringduð þið þegar þið ákváðuð að hækka

Eflaust hækkar Sjóvá að ári. Það verður þá að taka á því þegar þar að kemur. Kannski stofna ég bara mitt eigið tryggingafélag.

Tiltekt er samt ekki lokið.

Tugir þúsunda eru dregnir af mér árlega í "launavernd" í samvinnu við Íslenska Lífeyrissjóðinn. Ég hef haldið hingað til að það væri 500 kr. á mánuði, en það er sú upphæð sem TM er að hirða af mínum reikningi mánaðarlega fyrir utan aðrar tryggingar.

En þessar 500 krónur eru víst sjúkdómatrygging (sem gerir mig þá tvítryggðan, því ég er með sjúkdómatryggingu síðan fyrir löngu).
Launaverndin er víst dregin af greiðslum mínum í lífeyrissjóð - viðbótarsparnaðinn. Og við hana bætist þóknun fyrir að tapa peningunum mínum.

Þetta er svo mikið gengdarlaust rugl sem maður hefur látið viðgangast í beingreiðslum, boðgreiðslum, þjónustugjöldum og greiðsluþjónustu að það tekur engu tali.

Það er spurning um að segja upp viðskiptum sínum við allar bankastofnanir og fá peninginn bara útborgaðan í umslagi eins og í frystihúsinu í gamla daga.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Barkabólga og Liðagigt

Ritað þann:    17. desember 2008
Efnisflokkar:  börnin  

Það er nú búið að vera auma heilsufarið á heimilinu undanfarna daga. Dóttir mín fékk barkabólgu (aftur) í síðustu viku og er enn að ná úr sér kvefi og skemmtilegheitum eftir það. Við vorum heima í gær vegna þessa.

Drenginn minn þurfti ég svo að sækja í skólann á hádegi í gær þar sem hann gat ekki beygt hnén vegna verkja sem hann fékk vegna gigtarinnar sem hann glímir við.

Öll hersingin var því keyrð til læknis seinnipartinn að sækja ráðleggingar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Aukalífeyrissparnaður

Ritað þann:    16. desember 2008
Efnisflokkar:  neytendur  peningar  skandall  

Þær kröfur sem ég geri til lífeyrissjóðs eru ekki flóknar. Þegar ég hætti að vinna vil ég vita af peningunum mínum á öruggum stað og að þeir hafi ávaxtast.

Kröfur um ávöxtun eru ekki gríðarlegar. 1,2 eða 3% myndu alveg duga mér. Ég lít ekki á mánaðarlegar greiðslur mínar í lífeyrissjóð sem einhver kaup á happdrættismiða þar sem ég get annað hvort orðið svakalega ríkur eða eiga ekki neitt. Þvert á móti vil ég bara leggja mína eigin peninga til hliðar og geyma þá.

Eru þetta flóknar eða ill uppfyllanlegar kröfur?

Ég hef greitt í þó nokkurn tíma í sjóði Íslenska Lífeyrissjóðsins en eitt af því sem þeir lofa er Góð ávöxtun

Nú bregður svo við að ég er að tapa 15% af því sem hef borgað í þeirra sjóði. Þetta er deal-breaker af minni hálfu. Ég hefði alveg eins getað geymt peningana í krukku á eldhúsborðinu og komið betur út.

Bless lífeyrissjóður.

Ég vil að lögum verði breytt og fólk verði ekki skyldað til að borga lengur í þessa spillingar pytti sem lífeyrissjóðirnir eru.

Það verður allt þeirra að vera verðtryggt, en svo er allt í lagi að tapa milljörðum í einhverjum áhættufjárfestingum.

Minn sparnaður verður á mínum forsendum héðan í frá.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. desember 2008 ( Margrét ) [H]
Var einmitt í bankanum í dag að segja upp viðbótarlífeyrissparnaðinum af sömu ástæðu.


 16. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Já, ég er hættur að borga undir einkaþotur og drasl.


 17. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Við þessar kröfur má kannski bæta að sjóðsstjórar á ofurlaunum vegna gríðarlegrar ábyrgðar drullist þá til að segja af sér þegar þeir tapa svo gríðarlega.

"Okkur þykir það leitt" á þykkum glanspappír í pósti er ekki að axla ábyrgð.


Byggingaframkvæmdir í kreppu

Ritað þann:    15. desember 2008
Efnisflokkar:  fjölskyldan  

Við létum ekki krepputal dragar úr okkur kjarkinn og byggðum heilt piparkökuhús um helgina.

Það er stærra en í fyrra, með svölum og ég veit ekki hvað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Amerískir bílar

Ritað þann:    12. desember 2008
Efnisflokkar:  fréttir  kaldhæðni  

Nú þegar bandaríkjaþing hefur hafnað frumvarpi sem átti að skaffa amerískum bílaframleiðendum neyðarlán, neyðast amerískir bílaframleiðendur kannski til að... tja.
Framleiða bíla sem einhver vill kaupa.

Kannski kennir þetta líka einkafyrirtækjum að það er ekki hægt að stinga hagnaðinum í vasann þegar vel gengur og fara svo í vasa almennings til að redda sér þegar kreppir að.

Svona eins og íslensku bankarnir.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ef ríkisstjórnin hefði bein í nefinu

Ritað þann:    12. desember 2008
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  kreppa  

Í skjóli myrkurs voru samþykkt lög á alþingi sem eiga eftir að hækka verðbólgu, kreista síðustu krónurnar út úr þeim sem minnst hafa og hirða lækkun bensínsverðs undanfarna daga. Og hver er ávinningurinn?

3,5 milljarðar

Það eru öll ósköpin. Ef ríkisstjórnin hefði einhvern kjark, þá myndi hún sækja þennan pening í vasa þeirra sem eru búnir að ræna landið en ekki í vasa almennings. Það virðist vera auðveldara að sækja peninginn í marga hálftóma vasa en einn þjófavasa.

En ríkisstjórnin hefur engan kjark og bráðum verða öll sönnunargögn horfin því forgangur ríkisins er að kreista almenning til hlýðni.

Aumingjar.

Sjálfstæðisflokkurinn er það versta sem hefur komið fyrir þetta land og nú ætlar Samfylking að slást í hópinn enda búinn að vera í of mörg ár utan kjötkatlanna.

Maður gefur þessu landi ekki marga mánuði í viðbót.



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 12. desember 2008 ( Hanna ) [H]
Ég segi nú bara eins og hún Anna vinkona hennar Línu Langsokkar, DRULLUHALAR!! Og mig langar að bæta "djöfulsins" við frá mínu eigin hjarta.

Hækkun tekur gildi í dag sá ég í fréttinni - með "bestu" jólakveðjum til allra Íslendinga!

Komiði bara hingað - hér fær maður frið fyrir kreppunni.

Köbenzknúz
Hanna


 12. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Maður bíður í veikri von um að við göngum kannski í ESB. Valdið til Brussel!

Annars komum við til Köben :-)


Hækkun trygginga

Ritað þann:    11. desember 2008
Efnisflokkar:  neytendur  

Við erum með allt okkar tryggt hjá TM. Í vikunni fengum við pappíra varðandi endurnýjun og á einu bretti hækkar önnur bílatryggingin um 38% og það þrátt fyrir að ekkert tjón hafi orðið á liðnu ári. Aðrar tryggingar hækka einnig, þó ekki um tugi prósenta.

Þegar ég hætti viðskiptum við Vörð (Mörð), þá var það vegna hækkunar sem mátti rekja til tjóna ungra ökumanna.

Hækkun TM má líklega rekja til fjármálagjörninga forstjóra.

Hver sem skýringin er, þá eru þetta ekki viðskiptahættir sem ég kann að meta. Bless TM.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Góðar fréttir

Ritað þann:    11. desember 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  

Haldið að ég hafi ekki unnið í Happdrætti Háskólans í gær. Í miðri kreppu. Það kemur sér alltaf vel.

Ég er nýbúinn að segja upp lottó áskriftinni minni sem ég er búinn að vera með í 7 ár eða eitthvað án árangurs, en hélt eftir HHÍ miðanum, enda hefur hann staðið undir kostnaði.

Heppinn.

Ég sé reyndar í fréttum að Árni helvítis Matt ætlar að hækka skatta og hirða þannig af mér vinninginn.

Skítseiði.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Jólamatur

Ritað þann:    10. desember 2008
Efnisflokkar:  matur  

Háteigsskóli bauð foreldrum upp á hangikjöt í hádeginu. Ég er enn að ropa bragðinu. Það er nú fátt jólalegra en hangikjötsropi.

Í kvöld hittist svo matarklúbburinn minn og við ætlum að farga eins og einni purusteik. Það verður enn jólalegra.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hvað er of há skuldsetning?

Ritað þann:    10. desember 2008
Efnisflokkar:  fréttir  kreppa  

Samkvæmt frétt á vísir.is er tíunda hver fjölskylda með yfir 80% veðsetningu hjá íbúðalánasjóði.

Þýðir þetta að tíunda hver fjölskylda hefur of skuldsett sig?

Fyrir ári var íbúðin okkar 59% veðsett en er nú að skríða yfir 70%

Það segir mér að þetta fólk sem skuldar 80% nú hefur verið í um það bil 70% skuldsetningu fyrir ári. Til að eiga fyrir 30 milljóna íbúð, en það er verðið á 90-120 fm íbúðum í dag og var það í fyrra líka þurfti maður að eiga 9 milljónir til að fara ekki upp fyrir 70% veðsetningu.

Með 9 milljónir að vopni fyrir ári síðan hefði verið skynsamlegra fyrir marga að yfirgefa landið, því þær eru óðum að brenna upp.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. desember 2008 ( Gunnar J ) [H]
Líklegast áttu þó fáir 9 milljónir i fyrra. Allir voru bara að skipta út einu húsnæði fyrir annað eða verðbréfum fyrir húsnæði. Allur peningurinn bundinn í loftbólubrask. Ef 1% húsnæðiseigenda hefðu reynt að leysa út hagnaðinn í fyrra og farið til útlanda þá hefði markaðurinn hrunið.

Rétt eins og með eignir bankanna þá voru eignir almennings flestar bara til á pappír og héldust bara háar á meðan það var lítið leyst út úr kerfinu.

Vandamálið á Íslandi er hræðslan við hrun. Við hræðumst það svo að nokkuð fari illa að það er púkkað endalaust upp á vonlausar hugmyndir þar til að mistökin verða það stór að ekki er hægt að redda þeim.


 10. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Það er nú málið.
Þess vegna eru ummælin í fréttinni út úr kú:
------------------------
Almennt þarf ekki að hafa áhyggjur þótt eigið fé í fasteignum fólks lækki og veðsetningarhlutfall hækki, segir Sigurður. Það breyti litlu þótt fólk skuldi meira en andvirði húsnæðisins ef það ætli sér að búa áfram í húsnæðinu, og ráði við afborganir.
------------------------

Flestir eru nefnilega að fjármagna mismuninn með dýrari lánum en húsnæðislánum og þess vegna full ástæða til að hafa áhyggjur þegar eigið fé brennur upp.

Fasteignamarkaðurinn á eftir að hrynja þegar þeir fyrstu gefast upp á að hafa +70 milljóna húsin sín á sölu og selja þau með 20% afslætti eða meira.

Þá verður kreppa.


Nafnlausar gungur

Ritað þann:    09. desember 2008
Efnisflokkar:  netið  

Rétt í þessu fékk ég póst frá blog.is þar sem ég er beðinn að staðfesta heimskulega athugasemd við enn heimskulegri skoðun á bloggkerfi blog.is eða moggabloggs.

Þar hefur einhver einstaklingur skrifað mitt nafn og mitt netfang við pistil en til allrar lukku hefur höfundur bloggsins stillt kerfið þannig að það krefst þess að nafnleysingjar (þeir sem ekki eru skráðir á blog.is) staðfesti netfangið með því að smella á linkinn sem sendur er í tölvupósti.

Það er eitt að vera nafnlaus á netinu en annað að þykjast vera ég. Það er meira að segja saknæmt. Ef þetta gerist aftur hef ég samband við eiganda bloggsins og fæ hann til að afhenda mér ip tölu viðkomandi. Sá á þá von á Birni Bjarna í heimsókn.

Hver vill það?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. desember 2008 ( Teitur Atlason ) [H]
..ég væri nú alveg til í að vera þú...


 09. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Þú ert greinilega ekki einn um það.

En ég áskil mér rétt til að vera ég sjálfur.


2 ár

Ritað þann:    08. desember 2008
Efnisflokkar:  börnin  

Fyrir nákvæmlega tveimur árum eignaðist ég litla fallega dóttur. Fyrir tveimur árum lá hún slímug og hissa á maganum á mömmu sinni og horfði á mig eins og hún væri að reyna að átta sig á því hvaða fyrirbæri þetta væri sem glápti á hana eins og tíminn hefði stoppað.

Í morgun vakti hún mig með orðunum: Pabbi.. langa bolla molgunmat

Tíminn stoppaði kannski í smástund og svo flaug hann bara áfram.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 08. desember 2008 ( Hanna ) [H]
Dásamlegt!!

Til hamingju með prinsessuna ykkar.



 08. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það :-)


 08. desember 2008 ( Una Björg Einarsdóttir ) [H]
Til lukku með hnátuna :)


 08. desember 2008 ( Anna Júl ) [H]
Til lukku með prinsessuna :)


 09. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D


Davíð aftur inn!

Ritað þann:    05. desember 2008
Efnisflokkar:  fyndið  pólitík  

Ég er búinn að komast að því að það væru frábær tíðindi ef Davíð Oddson kæmi aftur í pólitíkina.

Við getum þá valið að kjósa hann ekki, við myndum losna við hann úr Seðlabankanum og trúlega myndi hann splundra sjálfstæðisflokknum.

Hver þarf óvini þegar hann á svona flokksfélaga?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ísland í dag - í fyrra

Ritað þann:    04. desember 2008
Efnisflokkar:  fyndið  

Rakst á þennan link á netinu í dag:

Ísland í dag - einhvern tíma haustið 2007
Í byrjun þáttar er viðtal við Hannes Hólmstein og hann ræðir íslenska efnahagsundrið:
Mig óraði ekki fyrir því að síðan með því að einkavæða bankanna þá myndum við skyndilega fá nýja kynslóð ungra sprækra manna sem sko hafa gerbreytt Íslandi og bankakerfinu[...]

[...]hugsið ykkur að bankakerfið hefur á milli sjö og tífaldast á svona þessum fjórum fimm árum og hugsaðu þér hvað það væri nú gaman ef við bara héldum áfram og gæfum í.. þannig að sko fyrst kemur kvótakerfið svo kemur lagfæring á ríkisbúskapnum svo kemur einkavæðing bankanna og útrásin og ef við gætum svo farið að selja þekkingu til útlanda það væri sko alveg frábært


Já það væri sko frábært.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sekt fyrir að koma ekki í skoðun

Ritað þann:    04. desember 2008
Efnisflokkar:  bmw-inn  kjánalegt  neytendur  nöldur  

Það er ekki nógu mikil samkeppni í bílaskoðunum. Ég fór með gamla bílinn minn í árlega skoðun um daginn til að fá nýjan grænan, en ég fæ aldrei heila skoðun vegna þess að hann er með filmum í hliðarrúðum að framan.

Ég fer samt alltaf á hverju ári til að athuga hvort bremsur og svona eru ekki í lagi, spindlar og stýrisendar. Það eru svona hlutir sem skipta máli. Ekki plastfilmur. Endurskoðunarmiðinn pirrar mig ekki neitt, því ég veit að bíllinn er í lagi.

Þegar ég kem með bílinn inn fæ ég hreyting og skítkast, hvers vegna ég sé ekki búinn að laga það sem var að síðast, bíllinn fái akstursbann og eitthvað pex. Ég benti honum á að þessi græni miði sé síðan í fyrra og ég sé að koma í aðalskoðun, ekki endurskoðun. Til að athuga hvort bíllinn sé í lagi.

Fyrir þetta pex borgaði ég 7000 krónur með afslætti, en ég dró með mér einhvern heimsendan miða sem gaf mér 10% afslátt. Skoðunin sjálf tók innan við 10 mínútur. Þetta er tannlæknataxti.

Það var lítið að bílnum. Filmurnar eins og vanalega, bremsudiskur orðinn slitinn og svo merkti hann við að bíllinn væri orðinn ryðgaður. Auðvitað er hann ryðgaður. Hann er að verða 20 ára.

Með nýjum reglum frá Umferðarstofu sé ég ekki fram á annað en að þessi ágæti bíll fari á haugana. Ég ætla ekki að borga 15-30 þúsund á hverju ári fyrir að koma of seint í skoðun til að láta segja mér að það séu filmur í hliðarrúðum og bíllinn sé ryðgaður.

Reyndar stendur í auglýsingunni að ef þeir fari ekki með bíla sína í skoðun á réttum tíma geti þeir átt von á 15.000 króna sekt

Hvort það er rukkað eður ei fyrir brot á reglunum er sett í hendur á þverhausanna á tannlæknatöxtunum. Það er traustvekjandi eða hitt þó heldur.

Það mætti halda að allir Georgar Bjarnfreðarsynir þessa lands sitji á rökstólum hjá Umferðastofu og semji reglur sem snúa að mestu leyti um að plokka pening af bifreiðaeigendum. Og frændur þeirra vinni hjá skoðunarstöðvunum.

Ríkisbákn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. desember 2008 ( Finnur ) [H]
Þarf ekki bara að taka næsta skref og einkavæða. Það er búið að stofu-væða og nú eru fullt af hressum og sniðugum fjármálasnillingum á lausu sem geta leyst allan heimsins vanda með því að einkavæða, fá lán, hefja útrás og.... við þekkjum framhaldið.....


 08. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Við þekkjum nefnilega framhaldið of vel :-|


Góðæris jólakúlur

Ritað þann:    03. desember 2008
Efnisflokkar:  fyndið  

Ég fór með konu minni í IKEA um þar síðustu helgi. Þá voru sænsku kaupahéðnarnir byrjaðir að selja landanum jólakúlur. Grænar, rauðar, gular.. þið vitið, svona jólalegar.

Í fyrra voru allar kúlurnar svartar og silfraðar. Eins og flestar byggingarnar sem hafa risið í Reykjavík síðustu 8 árin eða svo. Þið vitið, svona bankalegar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skessuleikur í hlíðunum

Ritað þann:    03. desember 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  börnin  fjölskyldan  líðandi stund  

Dóttir mín var að bíða með mér í bílnum í gær á meðan mamma hennar skrapp að sækja myndir í framköllun.

Á meðan við biðum tókum við nokkur lög til að stytta okkur stundir, en hún kann Gamli Nói, Afi minn og Amma mín (úti á bakka búa) og einhver fleiri lög sem eru stutt og skemmtileg.

Í gær spurði ég hana hvort hún kynni einhver ný lög og byrjaði hún þá að syngja Allir krakkar. Og hún söng allt lagið. Það eru ábyggilega 25 orð eða eitthvað.

Hún er ekki orðin tveggja ára.

Þetta er bara vegna þess hversu miklir snillingar eru að vinna á leikskólanum hennar. Á hverjum morgni vaknar hún, rekur pabba sinn úr rúminu til búa til graut og getur svo ekki beðið eftir því að komast út að "leika við kakkana" eins og hún orðar það. Á hverjum morgni rífur hún af sér húfuna og hleypur inn á undan mér inn á deild - í fangið á fóstrunum eða í bókahilluna og fer að lesa með krökkunum.

Svona líðan barnanna er ekki hægt að verðleggja í krónum og aurum.

Ég held að við höfum valið gott hverfi að búa í.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. desember 2008 ( Ingunn ) [H]
Hún er svo dugleg litla frænkan okkar. Ég kann ekki einu sinni öll lögin sem hún er farin að syngja :D


 03. desember 2008 ( - grettir ) [H]
Hún er svaka dugleg. Hún verður orðin fullorðin áður en maður veit af.


 04. desember 2008 ( Margrét ) [H]
Við eigum eðalbörn og Klambrar er alvöru leikskóli, starfsfólkið þar er frábært, þvílíkir snillingar.


Rúv kreppa

Ritað þann:    03. desember 2008
Efnisflokkar:  fréttir  

Ég er ekki að skilja hvernig stendur á því að Rúv ætlar að fara sérlega illa út úr kreppunni sem þó er varla byrjuð.

Við erum að tala um ríkisfyrirtæki sem fólk greiðir af skylduáskrift. Hversu gengarlaust bruðl er búið að vera í gangi ef fyrirtækið fer í þrot um leið og ekki er hægt að fá ný lán?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Skrílslæti

Ritað þann:    02. desember 2008
Efnisflokkar:  ESB  pólitík  spilling  

Sjálfstæðisfólk notar það sem afsökun að fara ekki á mótmæli vegna þess "að Vinstri Grænir standa fyrir þeim". VG eru nefnilega svo vondir að vera að efna til mótmæla gegn húsbóndanum. Það er bara skríll sem mótmælir ófagmennsku, ofurlaunum, ábyrgðarleysi og spillingu. Skríll.

Þægur er laminn þræll.

Ég hef aldrei kosið VG og mun ekki gera á meðan þeir vilja ekki ganga í ESB. En ef þeir eru til í að rísa upp á afturlappirnar og mótmæla því að hér sé allt komið í kaldakol og enginn virðist eiga að fara í fangelsi vegna þessa, þá er ég til í mæta. Og það jafnvel þó að mótmælendur séu ekki sammála um hverju sé verið að mótmæla. Mótmælendur geta ekki verið sammála. Það væri þversögn. Fólk mótmælir vegna þess að það er ósammála.

Í þjóðarpúlsi Gallup styðja enn 21% sjálfstæðisflokk.

Einhverjir af þeim sem tuða undir fréttinni að ofan vilja meina að VG þýði sjálfsþurftarbúskap, forræðishyggju og spillingu.

Mér sýnist sjálfstæðisflokk ganga ágætlega við að uppfylla blauta drauma þessa fólks.

Stundum er svo auðvelt að benda á flísina í rasskinn náungans og finna ekki fyrir símastaurnum í eigin endaþarmi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ég gefst upp

Ritað þann:    01. desember 2008
Efnisflokkar:  netið  

Það er einmannalegt að vera ekki á fésbók og ég hef látið undan hópþrýstingnum.

Eins gott að allir vinir mínir fari ekki að nota fíkniefni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 02. desember 2008 ( Svava Rán ) [H]
NO! Don´t do it man! Ég lét undan hópþrýstingi og er núna húkkt á þessu helvíti, fæ senda virtual jólaóróa og tilkynningar um að ég sé jömmí mömmí. Þvílík ömurlegheit. Og ég sem var svo kúl áður ein ekki á fésbók. Nú fæ ég þann staðal aldrei aftur...nöturlegt.


 03. desember 2008 ( - grettir ) [H]
haha... þessu trúi ég vel.

En svona er hjarðeðlið. Lengi vel var ég eini Íslendingurinn sem átti eftir að fara í Smáralind og allir töluðu um að hana eins og hún væri einhver útópía. Sjáum hvað fésið gerir fyrir mig. Kannski eignast ég fullt af vinum.