1 til 7 af 7

Jólin

Ritað þann:    28. desember 2006
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Jólin voru frábær. Þetta voru fyrstu jólin okkar á Háteigsveginum og þau fyrstu að heiman frá foreldrunum.

Við höfðum tvíréttaða jólasteik, því mér og drengnum finnst hamborgararahryggur vera jólakjöt, en Margrét getur ekki borðað svona reykt stöff, svo við höfðum líka kalkúnabringu. Tvö kíló af hamborgarahrygg fyrir mig og einn dreng er passlegt :D
Sú yngsta á heimilinu sýndi þá tillitssemi að sofa á meðan við borðuðum og tókum upp pakka. Eðalbarn.

Eftir að kirkjuklukkurnar hringdu í Háteigskirkju settumst við að snæðingi og ég hef sjaldan eða aldrei bragðað eins góðan mat.

Börnin fengu þvílíkt magn af pökkum sem sá eldri spændi upp eins og enginn væri morgundagurinn. Kvöldið fór svo í að setja saman Legó og bílabraut. Það er gaman að vera fjögurra í dag.

Á jóladag buðum við svo fjölskyldunum okkar í veislu. Ömmurnar komu með bakkelsi, við gerðum muffins og brauðtertu, sköffuðum osta og kakó.

En gleðilega hátíð öllsömul og hafið það sem allra best :-)

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. desember 2006 ( von ölves ) [H]
sömuleiðis gleðileg jól!
ég þykist gruna að bílabrautin hafi ekki fengið frið þó að sá fjögurra ára væri farinn að sofa... er ekki líka gaman að eiga einn fjögurra ára á jólunum?


 28. desember 2006 ( Kortaklippir ) [H]
Átti hann ekki bara við að hann hefði orðið fjögurra ára aftur.


 28. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Það er frábært.. og jú, það vilja allir verða fjögra þegar bílabraut er á heimilinu :D


Vitlaust veður

Ritað þann:    21. desember 2006
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  

Fréttir eru fullar af frásögnum af brjáluðu veðri víðast hvar, flóðum og ég veit ekki hvað.

Hérna á Háteigsveginum er allt í rólegheitum. Ég fór út með ruslið áðan og sá að nágranninn hefur komið fyrir hvítu gervijólatré úr Byko í garðinum. Þar stendur það þráðbeint í logninu hérna í 105.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. desember 2006 ( Ægir pípari ) [H]
mitt stendur nú líka þráðbein hér upp á heiði, maður þarf bara að muna að fergja það með 60kg af stuðlabergi


 22. desember 2006 ( Hjalti ) [H]
Það er nú bara lukka að hús og bílar haldist við jörðu hérna hinu megin við fjallið..


 22. desember 2006 ( von ölves ) [H]
ég er nú feginn að það er smá gola hérna á baldursgötunni... úlfar er byrjaður að elda skötuna!


 22. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Úlfar er illa lyktandi á þessum árstíma!


Vinna á morgun

Ritað þann:    19. desember 2006
Efnisflokkar:  ég  fjölskyldan  vinnan  

Þarf að mæta í vinnuna á morgun. Eftir það verð ég eitthvað lítið við fyrr en í febrúar.
Fæðingarorlof rokkar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. desember 2006 ( Margrét, betri helmingurinn :-D ) [H]
Það er líka svo ferlega næs að hafa þig heima hjá okkur, love you :*


 20. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Enda næs gaur ;-)


Vel gert

Ritað þann:    17. desember 2006
Efnisflokkar:  börnin  

Eins og sjá má vandaði ég mig gríðarlega þegar þessi var búin til...


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. desember 2006 ( Írena:) ) [H]
Það seiguru satt Grettir minn ;)!

Hún er auðvitað fallegust:)


 18. desember 2006 ( Anna Kristín ) [H]
Til hamingju með litlu sætu stelpuna :)


 18. desember 2006 ( von ölves ) [H]
hún er glæsileg!


 18. desember 2006 ( Bjorn ) [H]
Nice one, congratulations


 18. desember 2006 ( Anna Júl ) [H]
Hún er náttúrulega bara flott :)


 18. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D


 27. desember 2006 ( Lilja ) [H]
Til hamingju með dótturina og gleðileg jól :o)


 29. desember 2006 ( albin ) [H]
Þetta er myndarbarn hjá þér. Bara innilega til hamingju.


 09. janúar 2007 ( - grettir ) [H]
Takk öll aftur og gleðilegt árið :D


Barnafréttir

Ritað þann:    14. desember 2006
Efnisflokkar:  börnin  

Ég er búinn að vera heima þessa viku, skiptandi um bleyjur og hugsa um nýja erfingjann og konuna.

Við fórum í 5 daga skoðun í gær og fengum skoðun. Allt lítur vel út og stúlkan braggast vel. Það þykir gott að halda fæðingarþyngd í þessari skoðun og skeikaði ekki nema 25 grömmum að það næðist.
Rólegra barni hef ég varla kynnst. Fáir hafa fengið að sjá hana vakandi, enda snýst lífið um að éta, sofa og kúka svona fyrst um sinn.

Stóri bróðir tekur þessu með stakri prýði og er til fyrirmyndar. Enda vel upp alinn drengur :-)

Ég þarf svo að smella inn einni góðri mynd hérna við tækifæri.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. desember 2006 ( von ölves ) [H]
vúhúú... mynd!
enn og aftur til hamingju með þetta allt saman.


Fjölgun á Háteigsveginum

Ritað þann:    10. desember 2006
Efnisflokkar:  börnin  

Á föstudaginn 8. desember kom dóttir mín í heiminn. Við fórum upp á spítala um fjögurleytið eftir mallandi verki allan daginn og klukkan 18:16 sá ég það fallegasta barn sem ég hef augum litið - alla 47.5 sentimetrana.

Já, hún er ponsulítil. Ekki nema 11 merkur, enda mamman ekki stór og svo var hún á hraðferð.

Við gistum í Hreiðrinu um nóttina og komum heim í gærkvöldi. Hún er svefnpurka eins og ég og svaf frá hálfellefu til sjö í morgun.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. desember 2006 ( Elín ) [H]
Til lukku með dúkkuna.


 10. desember 2006 ( von ölves ) [H]
innilegar ölfus-hamingjuóskir til stóru fjölskyldunnar!


 10. desember 2006 ( Agnes ) [H]
innilega til hamingju með fallegu prinsessuna. Ég hlakka mikið til að koma að kíkja á hana, .... og ykkur náttúrulega líka :-)
bestu kv.
Agnes og co


 10. desember 2006 ( Írena ) [H]
Já , hún er án efa fallegust ;*


 10. desember 2006 ( Ægir pípari ) [H]
Til hamingju með nýja meðlim fjölskyldunar kv. ægir og co


 10. desember 2006 ( Anna Júl ) [H]
Innilega til hamingju með prinsessuna.


 10. desember 2006 ( Finnur Geir Sæmundsson ) [H]
Innilega til hamingju Grettir. Fagnaðarkveðjur úr danaveldi. Þá er það spurningin, verður það Þórarinsdóttir eða Grettisdóttir? Maður má nú spekúlera (og safna bunum)


 10. desember 2006 ( Ingunn ) [H]
hún er sætust ;*


 10. desember 2006 ( Ramage ) [H]
Til hamingju


 10. desember 2006 ( Heimir Rafn Bjarkason ) [H]
Innilega til hamingju með stúlkuna.

kv
Heimir Rafn Bjarkason, Sigrún Helgadóttir og Ólöf Vala Heimisdóttir


 11. desember 2006 ( Ingigerður Tómasdóttir ) [H]
Innilegar hamingjuóskir með prinsessuna. Kem í kaffi við tækifæri.

Kveðja Ingigerður og fjölsk.


 11. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir öll :-)

Og hún verður Grettisdóttir ;-)


 11. desember 2006 ( Srósin ) [H]
Til hamingju með dótturina.

Kv. Sigurrós


 11. desember 2006 ( Heiðrún, Beggi og Friðbergsdóttir ) [H]
Innilega til hamingju með litlu dúlluna. :-)


 13. desember 2006 ( gisill ) [H]
Innilega til hamingju med erfingjann:)


 14. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Takk takk :D


 16. desember 2006 ( sandra björk ) [H]
Innilega til lukku með dótturina.


Jólahjól

Ritað þann:    04. desember 2006
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Húsið okkar er tilbúið fyrir jólin. Við erum búin að setja upp seríur, jólagardínur, jóladúka, jólastyttur og baka piparkökuhús.

Það er ekki svo einfalt að baka piparkökuhús. Við ætluðum að reyna að festa það saman með bráðnu súkkulaði, en það tekur nokkra daga að harðna.
Þá reyndum við að festa það saman með bráðnum sykri en hann tekur nokkrar millisekúndur að harðna og þá þarf að hafa snör handtök.
Í hamagangnum datt önnur þakplatan í gólfið og hin er einhvern veginn skökk.

Þetta er samt flottasta piparkökuhús í heimi.

Vinnan mín fékk tilboð hjá Hagkaupum og var okkur boðið að koma eftir lokun í síðustu viku að versla í ró og næði með starfsmanna afslætti. Við notuðum tækifærið og kláruðum að versla jólagjafirnar og jólasteikina.

Eina sem vantar núna er jólabarnið, en það hefur ákveðið að láta bíða eftir sér. Ef hún er eitthvað lík pabba sínum þá er hún ekki að stressa sig og tekur sér góðan tíma í þetta.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 04. desember 2006 ( von ölves ) [H]
ef hún mætir eftir lokun um hátíðirnar er aldrei að vita nema hún hitti dr. sillu...


 04. desember 2006 ( Írena! ) [H]
Tiss , hún veit örugglega að ég er að bíða eftir henni! og er bara eitthvað að stríða mér:) þetta er nú meira barnið!


 05. desember 2006 ( - grettir ) [H]
Haha, já er Silla að vinna þá? Nei, ætli hún verði ekki búin að kíkja út fyrir hátíðarnar. Annars springur bumban.

Já, hún er að stríða þér Írena :-)


 05. desember 2006 ( Ingunn ) [H]
þegar þið fóruð á fæðingardeildina um daginn þá held ég að hún hafi verið að minna ykkur á að hún væri að koma og þið þyrftuð að klára að gera allt fyrir jólin ;)


 06. desember 2006 ( Margrét, betri helmingurinn :-D ) [H]
He he.. hún verður svona róleg eins og pabbinn og stríðin eins og stóri bróðir. Þannig að það er spurning hvað hún tekur sér langan tíma í þetta.

Þau þrjú pabbinn, sonurinn og dóttirinn eru með samantekin ráð held ég til að stríða mömmunni ;-)


 07. desember 2006 ( Hjalti ) [H]
Hún er allavega rólegri inní bumbuni en við fyrir utan bumbuna að bíða :D


 09. desember 2006 ( Ægir pípari ) [H]
Ég er nú eiginlega farin að bíða eftir uppfærslu hmmm.......... skil nú reyndar að það sé ekki tími sko