1 til 12 af 12

Ítök Framsóknar í borginni

Ritað þann:    29. nóvember 2007
Efnisflokkar:  fréttir  handbók kjósandans  pólitík  

Nú eru Sjálfstæðismenn hissa á því hvað Framsókn ræður miklu í borginni, verandi með 6% fylgi.

Ég er ekki hissa á því að þeir séu hissa. Þetta er fáránlegt.
Ég er hinsvegar hissa á því að þeir skyldu ekki vera jafn hissa þegar þeir voru með sama Framsóknarmanninum í meirihluta samstarfi fyrir nokkrum vikum síðan í nákvæmlega sama leiknum.
Það er ekki eins og kjörfylgi Framsóknar hafi minnkað síðan þá - því miður.

Það er kannski auðveldara að vera hissa úr fjarska. Þetta var alveg jafn fáránlegt í gömlu borgarstjórninni og það er nú.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Nærbuxur

Ritað þann:    29. nóvember 2007
Efnisflokkar:  íþróttir  klám  líðandi stund  

Svartar nærbuxur sjást ekkert rosalega vel í botninum á svartri íþróttatösku. Eftir ræktina hélt ég augnablik að ég þyrfti að vera brókarlaus í vinnunni - aftur.

Það sem hræddi mig hinsvegar var að ég hlakkaði smávegis til. Væri ekki svona kalt er aldrei að vita nema þær svörtu væru enn á botninum á íþróttatöskunni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Jólaseríur - Jólaokur

Ritað þann:    28. nóvember 2007
Efnisflokkar:  bmw-inn  fjölskyldan  neytendur  nöldur  peningar  

Við dustuðum rykið af jólaseríunum okkar í gær og settum út í glugga. Við erum aðeins fyrr á ferðinni en í fyrra, en það er af því að Margrét verður að vinna alla næstu helgi.


Tvo daga í röð er ég búinn að fara á nýja bílnum í vinnuna, því gamli minn er ennþá á sumardekkjum. Ég er að spá í að hafa það bara þannig ;-)


Ég keypti mér rakvél í Bandaríkjunum um daginn og splæsti heilum 50 dollurum í það (3500 kr. þá). Eini gallinn við hana er sá að hún er auðvitað með amerískri rafmagnskló. Ég skrapp í Elko og keypti mér svona traveller millistykki sem breytir á alla mögulega vegu og borgaði fyrir það 700 kr. Gaman að segja frá því að slíkt stykki kostar um það bil helmingi meira í "fríhöfninni" því þá hefur maður ekki um annað að velja.

Anyways.. ég rak augun í nákvæmlega eins rakvél og ég keypti mér. Ekki svipaða. Ekki næstum eins, heldur nákvæmlega eins rakvél.
Hún kostaði 8000 kr.

Svipað var uppi á tengingnum þegar við fórum í Just4Kids að skoða. Enduðum á því að versla bleyjur, eina ofurhetju handa drengnum og tvennar sokkabuxur á stelpuna.
Á leiðinni út rak ég augun í veggfestingu fyrir LCD skjáinn sem við erum að fara að hengja á vegginn hjá okkur. 1490 kr. Hagstætt verð hugsa ég og gríp pakkann með mér.

Á kassanum rennir stúlkan vörunum samviskusamlega í gegn: 22 þúsund og eitthvað.
Ég spyr hvað sé svona dýrt, þetta séu nokkrir hlutir. Stúlkan fer yfir listann og bendir svo á veggfestinguna og segir: 14.900 kr.

Okrið!

Það þarf varla að segja frá því að veggfestingin sú fékk að vera eftir í búðinni.

Við stefnum á að hætta að versla innanlands á okkar heimili - nema mat auðvitað - maður losnar ekki við þann ósið að troða í andlitið á sér.
Við erum búin að nokkrar netverslanir sem uppfylla okkar fata- og drasl þarfir og verður okkar viðskiptum beint þangað í framtíðinni nema brýna nauðsyn beri til.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. nóvember 2007 ( von ölves ) [H]
þið eruð ekki fyrsta fólkið sem ég verð var við að lýsi þessu yfir með íslenska-innkaupastraffið... ansk. margir sem fara út með tómar töskur þessa dagana... en verst hvað maturinn er samt stór hluti af pakkanum... takk annars fyrir góð ráð varðandi lántöku í erlendum gjaldeyri... sama hvernig það er reiknað, virðist alltaf borga sig :)


 29. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Það var nú lítið. Krónan er ekki að gera sig á meðan hún er verðtryggð. Það er töluvert meiri áhætta í verðtryggingu en í smá sveiflum á gengi. Það fer upp og niður, en verðbætur hverfa aldrei.


Ávextir heima að dyrum

Ritað þann:    27. nóvember 2007
Efnisflokkar:  djamm  fjölskyldan  matur  

Við höfum nýtt okkur vel þjónustu Ávaxtabílsins til að panta ferska ávexti og grænmeti heim að dyrum. Nú síðast voru þetta:

Vínber 1 pk.
Jarðaber 1 pk.
Epli rauð 1 Kg.
Appelsínur 1 Kg.
Perur 1 Kg.
Bananar 1 Kg.
Grænmetispakki (íslenskt) 1 pk.
Sveppir 1 pk.
Smágulrætur 1 pk.

Nú voru að berast þær fréttir að slíkum heimsendingum verður hætt og verðum við því að kjaga með epli og appelsínur sjálf heim úr búðinni. Það er auðvitað afleitt.
Fyrir utan það hvað það er mikil snilld að eiga alltaf svona mikið af ávöxtum til að maula á kvöldin.

Hvað eigum við nú að fá sent heim? Sveitta hamborgara og volgar pítsur?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Hrunin vél - kosturinn við að taka afrit

Ritað þann:    27. nóvember 2007
Efnisflokkar:  nördadót  vefurinn  

Kostirnir við að taka afrit eru ótvíræðir. Það kom nefnilega á daginn að harði diskurinn í servernum mínum var ekkert svo harður eftir allt saman. Hann ákvað allavega að leggjast í dvala í gærmorgun eftir að hafa snúist nánast stanslaust í 4 ár.

Um það bil 15.137.280.000 snúninga fór hann á þessum 4 árum, sem er býsna gott, en voðalega var ég feginn að einhverjir af þessum snúningum fóru í að afrita hann á hverri nóttu.

Ég þurfti að setja vélina upp frá grunni í gær og notaði tækifærið og endurnýjaði móðurborðið, örgjörvann og minnið í leiðinni. grettir.net ætti því að vera hressari í dag en í gær, kominn með 2GB í minni, 2.2 GHz örgjörva og síðast en ekki síst: USB 2.0 (=2.2.2.2.0)
Gamla móðurborðið var bara með USB fyrir mýs, enda mátti þakka fyrir að afritun var lokið þegar komið var að því að afrita aftur.

Vonandi dugir nýja vélin eins vel og sú gamla, sem ég er að spá í að breyta í fileserver eða eitthvað skemmtilegt.

Við ykkur sem aldrei takið afrit segi ég: drífið í því ekki seinna en í dag.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ráðherra?

Ritað þann:    24. nóvember 2007
Efnisflokkar:  fimmaurar  fréttir  handbók kjósandans  

Nú þykir konum ekki lengur nógu töff að vera kallaðar ráðherrar.

Sverrir stingur upp á nýyrðinu Ráðherfu, en vandamálið er auðleystara en það.

Hætta að kjósa konur á þing.

Og karla líka. Leggja Alþingi niður og reka þetta eins og fyrirtæki. Þetta lið sem hópast í stjórnunarstöður á Íslandi er svo spillt, rotið og með ranga forgangsröðun í heilanum að það á ekki skilið að anda að sér sama lofti og heiðarlegt fólk.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 24. nóvember 2007 ( Ægir pípari ) [H]
heyrðiru bullið í henni steinunni v? ég hélt að þetta samfylkingarlið hefði eitthvað betra að gera enn að finna upp á svona rugli


 24. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Þeim leiðist greinilega. Það dettur engum svona rugl í hug nema leiðast óheyrilega í vinnunni.

Þetta minnir um margt á gangbrautarkarlinn vs. gangbrautarkerlinguna um árið.


Draugabær - Aukavinna - Fasteignasölur

Ritað þann:    22. nóvember 2007
Efnisflokkar:  fyndið  íbúðamál  líðandi stund  nöldur  peningar  vinnan  

Það er ekki sála hérna í vinnunni. Allir einhversstaðar að vinna úti í bæ.

Hér hangi ég einn og vélrita í Word. Reyni að fá Bullets and Numbering til að virka. Afbragð.


Ég var á fundi seinnipartinn í gær vegna vefverslunarinnar sem ég er að gera. Útkoman eru 16 atriði sem þarf að bæta við eða breyta og svo er ég búinn í bili. Þá get ég farið að gera skemmtilegasta hluta verksins, búa til reikning :-)


Ég fékk símtal frá kaupandanum að íbúðinni minni í fyrrakvöld. Hann var að fara yfir afsalið og lánið sem hann tók yfir og kom í ljós að hann hafði byrjað að borga mánuði of snemma miðað við það sem stóð í kaupsamningi. Ég kannaði málið og komst að því að ég hafði fengið ágúst mánuð endurgreiddan, en átti að borga hann samkvæmt samningi.

Ég hélt kannski að þetta hefði verið gert upp í afsali og sendi fasteignasölunni póst þar sem ég spyr hvort þetta hafi verið gert upp (einföld já/nei spurning).

Skömmu síðar fæ ég póst, án skýringa, en búið er að hengja kaupsamninginn við.

Það snögg fauk í mig. Ég er var frekar pirraður á þjónustunni sem ég fékk við söluna, borgaði há sölulaun og þetta var dropinn sem fyllti mælinn. Ég skrifaði harðort svarskeyti þar sem ég spurði fyrir hvað ég hafi borgað sölulaun, ég sé ekki fasteignasali, hvort enginn þarna væri starfinu vaxinn, ég myndi básúna út um allt hvurslags skítafyrirtæki þetta væri og ég veit ekki hvað.

Í þann mund sem ég er að fara að senda póstinn, kemur vinnufélagi minn í spjall. Á meðan rennur mér reiðin og þegar ég sendi skeytið er ég búinn að hreinsa út öll fúkyrði, en set eina línu "Þetta hjálpar mér ekki neitt"

Þegar ég er búinn að senda skeytið tek ég eftir því að annar póstur frá sölunni er í Inboxinu. Sá hafði komið seinna, en var greinilega sendur á undan, því í honum er uppgjörið, texti sem útskýrir málið og í lokin er sagt: "Ég sendi þér svo kaupsamninginn á eftir.."

Ég var fljótur að svara þessum pósti með "Sæll aftur.." og þakka fyrir mig og segja að þetta sé akkúrat það sem ég hafi verið að spyrja um.

Maður á alltaf að anda með nefinu og telja upp að tíu áður en maður hreytir skít.
Mér til varnar fékk ég lélega þjónustu við sölu, þó að þessi tiltekni aðili sem sá um afsalið hafi staðið sig vel og svarað mér þegar ég spurði.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Andlát

Ritað þann:    20. nóvember 2007
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Þvottavélin okkar gafst upp á lífinu í gær. Við þurftum því að versla nýja. Hressandi það.

Konan í búðinni sagði mér eitt merkilegt. Við eigum ekki að nota mýkingarefni, þess þarf ekki á Íslandi. Á næstu 10 árum verð ég því búinn að spara fyrir nýju vélinni.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. nóvember 2007 ( Ægir pípari ) [H]
skoða síðu neytendasamtakana


 20. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Selja þeir þvottavélar?


 21. nóvember 2007 ( Ægir pípari ) [H]
nei þarna þeir voru hins vegar með gæðakönnun á slíkum apparötum


 22. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Ég var nú líka bara að sprella :D


 22. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
En nýja vélin (AEG) er afbragð. Það liggur við að maður geti farið beint í fötin þegar þau koma úr vélinni, svo mikill er krafturinn í þeytivindunni.


Veikindi á heimilinu

Ritað þann:    15. nóvember 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  nördadót  slen  

Konan mín fór í aðgerð á fæti á mánudag svo ég var búinn að gera ráð fyrir því að þurfa að vinna heima að einhverju leyti þessa viku - verandi þá bland af tölvunarfræðingi og hjúkku. Fátt meira sexý en það.

Ég átti hinsvegar ekki von á því að hún fengi ælupest líka. Það var bara bónus.

Þegar maður réttir litla fingur..

Ég hef, fyrir utan hjúkrunarstörfin, haft í nógu að snúast, því ég tók að mér að gera stóra vefverslun í byrjun september sem er nú að taka á sig mynd og er á lokasprettinum. Ég ljóstra upp hver verslunin er þegar þar að kemur, en ég er nokkuð ánægður með útkomuna.

Mig vantar núna bara eins og einn til tvo klukkutíma í sólarhringinn og einn dag í helgina til að leika mér með fjarstýrða bílinn min, sem ég hef varla hreyft undanfarið sökum monsún rigninga.
Ég sem var nýbúinn að kaupa bensín og ný dekk áður en ský dró fyrir Ísland.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. nóvember 2007 ( Ægir pípari ) [H]
til hamingju, ég bíð reyndar eftir að verða boðið með í bíló


 15. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Þú verður bara að kaupa þér svona kvikindi.. ótrúlega hressandi tæki. Fást í Tómstundahúsinu sko.. :-)


 18. nóvember 2007 ( Kona og börn ) [H]
Grettir er án efa sá allra besti, enda elskaður í klessu :-D Stendur sig stórvel í að hugsa um konu og börn.


 19. nóvember 2007 ( Hjalti ) [H]
Keyptiru ekki örugglega nagladekk? ;o)


 20. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Hehe, nei..


Ameríku ferð

Ritað þann:    09. nóvember 2007
Efnisflokkar:  ferðalög  vinnan  

Ég kom heim frá Flórída í gærmorgun þar sem ég var á tölvunörda ráðstefnu í Orlando.

Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til Flórída, en við gistum á Holiday Inn rétt hjá ráðstefnuhöllinni.
Hinum megin við götuna var "skemmtigarður" með nokkrum tækjum og pöbbum sem heitir Old Town. Þar er allt eins og það var í eldgamla daga. Þrátt fyrir að þetta væri hinum megin við götuna var engin hægðarleikur að komast þangað.
Við þurftum að taka til fótanna yfir 8 akreina götu takk fyrir.

Það er betra að vera hundur en gangandi vegfarandi í Flórída. Ekkert er hægt að komast án þess að vera á bíl og ekkert er hægt að rata nema vera með GPS tæki. Allt er eins. Hraðbrautir í gegnum kjarr og skóg, engin íbúðabyggð sjáanleg og verslanir við hraðbrautina hafa bílastæði á stærð við Grafarvog.

Á laugardaginn fórum við í vettvangsferð í Florida Mall. Það var ábyggilega 50 km í burtu. Á leiðinni sáum við Best Buy og stoppuðum þar. Hinum megin við götuna var krá með bjór og hamborgurum. Það var lítið annað að gera en að setja undir sig hausinn og hlaupa eins og vitlaus maður yfir. Engar gangbrautir, gönguljós, undirgöng eða göngubrýr.
Það er líkt og byggingarfulltrúi Orlando borgar hafi ekki verið með "Gangandi vegfarendur" pakkann uppsettan í teikniforritið sitt.

Kosturinn við Orlando er hinsvegar verðið og veðrið. Ýmislegt er hægt að skoða. Þarna er til dæmis Disney World, en flestir ættu að finna skemmtigarð við sitt hæfi þar.

Við fórum í garð sem heitir Epcot, en á sunnudag var þar Food and Wine festival sem okkur líkaði stórvel. Garðurinn er settur saman úr hinum ýmsu löndum, en þarna er til dæmis Noregur, Þýskaland, Kanada, Kína, Japan og svo mætti lengi telja. Í hverju landi var hægt að kaupa vörur frá landinu, smakka mat og vín og ýmislegt fleira.
Þarna var sem sagt hægt að fara í heimsreisu, án þess að yfirgefa fylkið.
Hversu amerískt er það?

Flórída er dáldið þannig. Allt er sett upp í görðum og svæðum sem þarf að koma keyrandi að. Við heimsóttum til dæmis Downtown Disney, sem var nokkurskonar eftirherma af miðbæ. Þar mátti drekka á almannafæri, fara með bjór keyptan á einum stað yfir á annan og fara út að borða.

Klukkan tvö lokaði svo "miðbænum" og hann var rýmdur og þrifinn.

Kannski ætti að rukka inn á 101 um helgar?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Flórída

Ritað þann:    06. nóvember 2007
Efnisflokkar:  ferðalög  vinnan  

Ég er á Flórída. Hversu svalt er það?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. nóvember 2007 ( sjérann ) [H]
ekki rassgat. hlýtur að vera ömurlegt þarna ;o)


 06. nóvember 2007 ( Hermann ) [H]
Það er örugglega SVALARA hér á íslandi, ef út í það er farið : )


 06. nóvember 2007 ( von ölves ) [H]
já hér er sko gríðarlega svalt... en hvað ertu að gera á Flórída?


 07. nóvember 2007 ( Ingunn ) [H]
það er geðveikt svalt ;) ég er græn af öfund.


 07. nóvember 2007 ( - grettir ) [H]
Það er ekkert svalt hérna sko :-) Nema kannski Disney World.

Ég er að vinna hérna. Kem á fimmtudag.


Stýrivextir hækkaðir

Ritað þann:    01. nóvember 2007
Efnisflokkar:  neytendur  peningar  

Stýrivextir hækkaðir um 0.45%

Þetta er mjög skiljanlegt. Davíð er að setjast í helgan stein og verður að fá hæstu mögulegu innlánsvexti af sínu sparifé áður en hann verður settur af.

Í sumar þegar krónan tók dýfu var frétt í sjónvarpinu um að þeir sem skulduðu 20 milljónir í erlendri mynt skulduðu nú 22 milljónir.

Hvar er fréttin um að sú skuld sé nú gengin tilbaka vegna styrkingu krónunnar? Það talar enginn um áhættuna af því að vera með skuldir í íslenskri krónu með eiginhagsmunaseggi við stýrið upp í Seðlabanka?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..