1 til 11 af 11
Fékk nýja tölvu í vinnunni í gær, enda sú gamla löngu komin á tíma og ferðast víða um heiminn.
Sú nýja er með fingrafaralesara og einhverja öryggisfídusa til að vernda gögn fyrir óprúttnum aðilum.
Kerfið er svo öruggt að ég hef ekki einu sinni fundið út hvernig á að nota það.
Það er búið að vera mikið um að vera hjá mér undanfarna viku.
Ég var að byrja á nýju verkefni í vinnunni sem ég þarf að klára áður en ég fer í fæðingarorlof, gríðarskemmtilegt verkefni og tilbreyting frá því sem ég er búinn að vera fastur í undanfarin misseri.
Gömlu verkefnin gufa þrátt fyrir það ekki upp og hefur áreitið því verið tvöfalt.
Ofan á þetta tók ég að mér að gera nýja heimasíðu fyrir
Rafmidlun og er nokkuð ánægður með útkomuna. Setti hana upp á síðasta föstudag, en þá hélt fyrirtækið upp á 10 ára afmæli.
Ég verða að hrósa
Vodafone fyrir snör viðbrögð, en með einu símtali fékk ég aðgang að netþjóni og database og greinargóðar lýsingar á því hvað ég þyrfti að gera til að koma síðunni í loftið á mettíma.
Til að tryggja að síminn stoppaði nú örugglega ekki skráði ég litlu íbúðina á leigulistann, því fasteignamarkaðurinn er dedd þessa dagana.
Leigumarkaðurinn er vægast sagt bilaður. Síminn stoppaði ekki í allan gærdag. Ég filteraði út þrjá sem virkuðu vel á mig í síma og komu þeir að skoða í gær.
Leist mjög vel á einn þeirra og fékk hann kotið. Við skrifum undir í dag.
Og ekki má gleyma endurnýjun á frúarbílnum. Konan fór í Toyota í síðustu viku og gerði mögnuð skipti á Corollunni upp í glænýjan Avensis. Sjálfskiptan. Gott stöff það.
Ég notaði þess vegna tækifærið um helgina og reif miðstöðvarmótorinn úr BMW-inum og gerði við hann með aðstoð tengdó. Nú blæs hann sem aldrei fyrr og ég þarf ekki að kíkja á hann fyrr en 2020.
Stórfréttir
Ritað þann: 20. nóvember 2006
Efnisflokkar: fjölskyldan
Ég og frúin settum upp hringana um helgina.
Við erum einu skrefi nær því að verða hjón einhvern daginn.
Frábær tímasetning
Ritað þann: 16. nóvember 2006
Efnisflokkar: bmw-inn íbúðamál
Frábær tími hjá miðstöðvarmótornum að andast núna. Maður verður að klæða sig í lopapeysu, setja á sig húfu og vettlinga til að komast til vinnu.
Ég er búinn að tala við B&L og þeir eiga mótorinn ekki til en geta pantað hann og kostar hann litlar 20.000 krónur (Siemens okur). Þá á eftir að setja hann í. Maður áttar sig ekki á því að hvað miðstöðin er mikilvæg fyrr en hún er dáin.
Hvað er maður annars að kvarta. Ef ég set nýja í núna og hún endist eins og sú gamla, þá dugir hún til 2022. Þetta er rétt rúmur einn fjólublár á ári.
Nema við auðvitað tökum upp Evru.
Íbúðin mín á Framnesveginum er komin á sölu. Ef þú átt 15.7 milljónir og vantar íbúð í fallegu gulu húsi* á besta stað** í bænum endilega kíktu á hana.
*Hússjóður stendur í 500.000, svo ef þig langar að mála eða sjæna til þá er það minnsta mál.
** Í 100 metra fjarlægð er Bónus Vídeó, Dominos, Hrói Höttur, Nóatún, Þvottahús/Fatahreinsun, Subway, Krónan og Fiskbúð. Háskólinn er í ca. 1 km göngufæri.
Ég heyrði sögu af manni sem ætlaði að kjósa Árna Johnsen á lista Sjálfstæðismanna til að eitra fyrir þeim fyrir næstu kosningar.
Maðurinn var að sjálfsögðu að grínast. Hann myndi aldrei láta sjá sig á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Hins vegar fjölmenntu eyjamenn til kosninga eins og sjá mátti á niðurstöðunum. Ég meina hver tekur mark á stuðningsmannalista sem inniheldur Russel Crowe? Bara grín segja þeir - eins og allt þetta mál var áður en niðurstaðan var staðreynd.
En það er ekki laust við að mann hlakki til kosninga. Mig grunar og ég vona að stjórnin falli að þessu sinni þó ég hafi alltaf kosið blátt. Hingað og ekki lengra - segi ég - af valdníðslu, hroka og vinapoti í embætti.
Enginn með viti kýs Framsókn, því flestir eru held ég komnir með nóg af því að sá flokkur komist til æðstu valda með ekkert fylgi.
En þetta er einkar snjallt hjá Sjálfstæðisflokknum, því þegar hann fellur þá geta þeir sagt að það sé Árna að kenna og taka af honum æruna aftur.
Fæðingardeildin
Ritað þann: 13. nóvember 2006
Efnisflokkar: börnin
Aðfaranótt miðvikudags fékk konan ægilega fæðingarverki, fimm vikum á undan áætlun. Við drifum okkur upp á spítala og vorum lögð inn með útvíkkun 1.
Við borðuðum rómatískan morgunverð úr plastbökkum í boði Landsspítala á miðvikudagsmorgun, alveg ósofin.
Barnið hætti svo bara við að koma og við vorum send heim með þau vinsamlegu tilmæli að geyma barnið þarna í viku tíu daga í viðbót.
Ég þurfti því að vera heimavinnandi húsfaðir það sem eftir lifði síðustu viku.
Nú er ég kominn í vinnu aftur, en það er nokkuð ljóst að nýtt barn verður komið á heimilið áður en ný helgi lítur dagsins ljós.
Það er ekki laust við að ég sé kominn með smá kvíða, dass af tilhlökkun en mest pabbaverki.
Nú styttist óðum í nýjasta meðlim fjölskyldunnar.
Við fórum í vaxtarsónar í gær og er daman orðin 10 merkur og fylgir
meðaltalinu ansi vel. Við fengum útprentaðar myndir af andlitinu og var hún bara ansi smart þó ég segi sjálfur frá.
Og það styttist líka í fæðingarorlofið. Sem verður excellent.
Við fórum út á Framnesveg í gær að ganga frá íbúðinni fyrir sölu. Magnús hefur þrifið íbúðina hátt og lágt og fær hann hér með hæstu einkunn og fyrirmyndar meðmæli sem leigjandi.
Við byrjuðum á því að festa upp trégrind í loftið á svefnherbergið og settum loftklæðningu ofan á gipsið góða sem ég setti upp í fyrravetur en átti eftir að ganga frá.
Á morgun kemur svo fasteignasali og metur hana.
Svo er bara að sjá til hvort hún selst. Ef ekki, þá verð ég bara að leigja hana áfram. En ég er þegar búinn að fá eina fyrirspurn um sölu, svo ég á ekki von á því að það verði erfitt að selja hana.
Það eru ekki allar íbúðir sem eru á sölu með 500 þúsund króna hússjóð í kaupbæti.
Það var svo mikið að gera í síðustu viku að ég gleymdi að fylgjast með fréttum og því fór fram hjá mér þessi umræða um að breyta græna gangbrautarkallinum í græna kerlingu.
Þetta er auðvitað ekki auðvelt mál. Hvernig breytir maður gangbrautarljósi þannig að það líti út fyrir að vera "kerling"? Er sniðugt að setja "kallinn" í pils?
Nei, lausnin er einfaldlega að setja hátalara á gangbrautarstaurinn. Úr hátalaranum kæmi svo allskonar tuð, eins og: "Ekki labba út á götuna án þess að líta í kringum þig. Hlustaðu á mig. Er komið grænt. NEI. Gyrtu upp um þig."
Það myndi ekki velkjast í vafa um að þar væri gangbrautar "kerling".
Í alvöru, eru engin meira áríðandi mál í jafnréttisumræðunni en þetta? Ég er jafnréttissinni. Ég vaska upp, elda, þvæ þvott, skúra og sinni heimilisstörfunum jafnt minni konu, enda fyndist mér ósanngjarnt að hún sinnti því eingöngu enda útivinnandi eins og ég.
Mér finnst ósanngjarnt þegar konur fá minna útborgað fyrir samskonar vinnu og karlar. Mér finnst ósanngjarnt að flest atvinna sem inniheldur að meirihlutanum til konur skuli vera láglaunavinna.
Mér finnst líka ósanngjarnt að þegar kona og karl sækja um vinnu þá eigi að ráða konuna af því að hún er kona.
Mér finnst fáránlegt þegar konur í pólitík kvarta og kveina yfir uppröðun á lista skuli ekki innihalda fleiri konur þegar kjósendur fara í prófkjör og kjósa fólk á listann.
Mér finnst líka fáránlegt þegar verið er að bera saman fjölda kvenna og karla í stjórnunarstöðum. Kannski vilja færri konur sinna slíkri vinnu en karlar og hlutfallið endurspeglast í fjölda þeirra í slíkum stöðum. Ef 10% prósent kvenna vill vera forstjóri, af hverju ættu 50% forstjóra að vera konur?
Nei, ég er jafnréttissinni. Ekki kvenréttindasinni. Ekki karlréttindasinni.
Svona þvæla verður eins og hvert annað tuð í mínum eyrum og ósjálfrátt missi ég samúð með málsstaðnum - hversu góður sem hann kann að vera. Þá verður þetta eins og tuð í gangbrautarljósi sem enginn nennir að hlusta á.
Kennari
Ritað þann: 03. nóvember 2006
Efnisflokkar: vinnan
Ég er að fara að kenna eftir hádegi.
Sem væri vart í frásögur færandi ef ég væri ekki að fara að kenna á tól sem ég hef ekki snert í nærri fjögur ár.
Það er ekki laust við að ég sé að fá smá kvíðaniðurgang.
Grettir gerir það gott
Ritað þann: 01. nóvember 2006
Efnisflokkar: ég fréttir
Smiðir
Ritað þann: 01. nóvember 2006
Efnisflokkar: fyndið vinnan
Vá hvað smiðir eru duglegir að nota borvélar. Þeir eru búnir að vera að bora í allan dag.