Það er ekki spurning um það hvort Noregur geti lánað okkur nægilega mikla peninga til að losna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, borga IceSave og yfirdráttarskuldir allra Íslendinga.
Stjórnvöld hér eru heppin að Norðmenn skuli yfirleitt taka upp símann þegar hringt er og dyrnar opnaðar þegar þeir vaða út með frekju og heimta peninga á sínum eigin forsendum.
Eins og frekir smákrakkar.
Bjarni Ben talar um Norræna fjölskyldu. Myndi "alvöru" fjölskylda halda áfram að moka peningum í svarta sauðinn í fjölskyldunni? Þann sem hefur sýnt að hann hefur ekki vit á því að fara með eigin fjárráð?
Ég - ásamt tugum þúsunda einstaklinga á Íslandi - bý við það ömurlega hlutskipti að reka bíl. Bíl sem ég keypti á bílaláni. Bílalánið hefur rúmlega tvöfaldast á rúmu ári.
Því fagnaði ég - ásamt tugum þúsunda einstaklinga eflaust - þeim fréttum að nú ætti loksins.. LOKSINS að rétta hlut þeirra sem gengu að þessum bílasamningum í góðri trú að hér væri vel rekið hagkerfi.
Á vefsíðunni ísland.is er þessu úrræði lýst: Greiðslujöfnunin miðar að því að færa greiðslubyrði af gengistryggðum bílalánum/bílasamningum í svipað horf og hún var í maí 2008. Hafi samningur verið gerður á tímabilinu 1. júní 2008 til 1. október 2008 verður greiðslubyrðin við upphaf greiðslujöfnunar svipuð og hún var á fyrsta gjalddaga samningsins.
Mismunurinn sem verður á reglulegum greiðslum eftir greiðslujöfnun og því sem þær hefðu verið að óbreyttum samningi færist til hækkunar á höfuðstóli skuldarinnar. Gjalddögum fjölgar sem þessu nemur en greiðslutíminn verður þó aldrei lengri en þrjú ár umfram það sem miðað er við í núgildandi samningi. Ef eftirstöðvar eru á samningi þegar þrjú ár eru liðin umfram núverandi samningstíma getur lántakandi/samningshafi farið fram á samningsslit með því að greiða eftirstöðvar að fullu eða skila bifreiðinni, samkvæmt ákvæðum samnings, til lánveitanda/leigusala án frekari kvaða.
Samningur sem stofnað hefur verið til eða var yfirtekinn eftir 1. október 2008 fellur ekki undir þessa skilmála. Feitletranir eru mínar.
Í stuttu máli sagt, lántakandi þarf að greiða lánið að fullu og ef eitthvað stendur eftir eftir þriggja ára lengingu, þá "má" skila bifreiðinni án eftirmála og standa eftir bíllaus (og væntanlega peningalaus).
Það stoppar samt ekki Lýsingu í að bjóða áfram "myntkörfulán". Sjá reiknivél. Takið eftir textanum Meðalvextir 13,27% gengistryggt Eiga gjaldeyrishöftin ekki að loka á lántökur í erlendri mynt? Hvernig getur Lýsing boðið upp á erlend lán?
Málið er; þú færð aldrei JPY að láni sem dæmi, heldur krónur sem eru svo verðtryggðar með því að binda skuldbindinguna við daggengi gjaldmiðla, en það er bannað með lögum nr. 38/2001 eins og Marínó bendir á í hlekknum að ofan.
Lýsing, í eigu Exista sem átti stóran hluta Kaupþings hefur því eflaust fengið sparifé viðskiptavina bankans að láni, diktað upp einhverjar myntkörfur en lánað í krónum.
Kaupþing gerir svo árás á krónuna með fíflalegum gjaldeyrisskiptasamningum á móti lífeyrissjóðunum okkar og Lýsing græðir svo á tá og fingri, því "gengistryggingin" hefur tryggt þeim 130% vexti.
Auðvitað eiga lántakendur að höfða mál gegn þessum fyrirtækjum. Það er útilokað að þetta sé löglegt.
Ég horfi stundum á CSI og það fer stundum nett í taugarnar á mér þegar verið er að súmma út í það óendanlega á myndir sem í fyrstu virðast vera í algerri drullu. Eins og í þessu gríni hér.
Ég hló samt upphátt þegar ég sá þessa klippu:
I'll create a gui interface using Visual Basic. See if I can track an ip address.
Fyrir þá sem ekki tala nördamál þá er þetta álíka asnalegt og ef hjúkrunarfræðingur í Grey's Anatomy myndi segja þegar sjúklingur lægi slasaður á börunum: Ég skal vefa sárabindi með prjónavélinni. Sjá hvort ég geti gert fínt munstur.
gleymdi að geta þess hér fyrir ofan, fyrir óvana, að ef vafrinn minnkar myndina þarf að stækka hana með því að smella á hana (músarbendill breytist í stækkunargler með plús).
Jón algjör snilld...
Maður þarf ekkert nýja reiknivél. Það er "goal seek" í Excel :)
Jólagjafir og aðrir punktar
Ritað þann: 19. október 2009 Efnisflokkar: líðandi stund
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Við versluðum fyrstu jólagjafirnar í gær. Enda verður að dreifa jólaútgjöldunum eftir að við lögðum kreditkortunum
Skjár einn verður áskriftarstöð í desember. Skjár 1 er í eigu Skásins sem er í eigu Símans sem er í eigu Skipta sem er í eigu Exista, sem á Lýsingu meðal annars. Og Vís (*hrollur*)
Er ég að fara borga 2200 krónur í vasa þeirra Exista bræðra mánaðarlega? Lommér að hugsa.. Nei.
Bölvaðir séu þessir útrásarkúkar.
Nýja barninu líður vel. Þeim gömlu líka. Við fórum með þau öll til ljósmyndara í gær til að festa dýrðina á pappír.
Það var smá hálka í morgun. Nagladekkin eru búin í erninum og ég hjólaði því ofurvarlega í morgun. Það er ekki töff að detta á rassinn á miðri leið.
Við "fjárfestum" í nýjum sjónvarpsflakkara um daginn. Nettengdum. Mitt fyrsta verk var að opna græjuna og rífa viftuna úr sambandi. Nú eru alger þögn í stofunni þegar glápt er á vídeó. Fyrir utan auðvitað sprengjulætin í myndinni sjálfri.
Það væri áhugavert að vita hvaða týpa af nærhaldi væri þarna á ferð. Gæti verið BOSS eða eitthvað útrásavíkingsins nærhald eftir bakskitu. Ég myndi skifta í lágan gír og skoða betur í næstu ferð Grettir. Við gætum þurft að kalla til munadeild þjóðminjasafnsins....