1 til 23 af 23

Nýi Grettir

Ritað þann:    30. október 2008
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Ég er að spá í að taka upp nýtt nafn, Nýi Grettir.

Nýi Grettir þarf ekki að spá í skuldum þess gamla, en hirðir þær eignir sem sá gamli var búinn að sanka að sér - eins og 1 stk. konu og 2 stk. börn.

Þegar alþjóðasamfélagið áttar sig á því að Nýi Grettir er alveg skuldlaus verður engin kreppa lengur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. nóvember 2008 ( Hermann ) [H]
Hvernig er það með Nýja Gretti, bloggar hann ekkert?


 03. nóvember 2008 ( - grettir ) [H]
Sjáum hvaða snilld kemur þegar skilanefnd hefur lokið störfum.


Góðir grannar

Ritað þann:    28. október 2008
Efnisflokkar:  fréttir  þjóðarrembingur  

Færeyingar sýna það og sanna að þeir eru góðir grannar.

Annað en hægt er að segja um þjóðina í suðri hvers forsætisráðherra ber sama nafn og litur kúks. Vonandi hafa þegnar þess lands vit á að kjósa hann burt í næstu kosningum. Næstu kosningar á Íslandi verða einnig hreinsandi fyrir land og þjóð.

Ég held við ættum að gefa Færeyingum gott klapp. Þar býr greinilega hið besta fólk.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 29. október 2008 ( Hanna ) [H]
Mikið rosalega óska ég þess að þú sjáir fyrir hluti þegar þú segir "hreinsandi fyrir land og þjóð". Það er nú ekkert lítið sem Ísland þarf á því að halda.

Mér finnst nú barasta að þessir kjánar sem hafa haft sig í frammi og stjórnað strengjabrúðum eiga að hafa vit á því að draga sig í hlé.

Það er ágætt að vera í útlöndum þessar stundirnar ;-)


 29. október 2008 ( - grettir ) [H]
Því trúi ég. Bestu kveðjur í Danaveldi. Ætli það endi ekki með því að við segjum okkur til sveitar? Ef Danir vilja okkur ekki, þá má vera að Færeyingar taki við okkur :-)


Dugleg börn

Ritað þann:    23. október 2008
Efnisflokkar:  börnin  

Dóttir mín vaknaði fyrir sjö í morgun. Hún er nýbúin að læra að klifra út úr rúminu sínu, svo í stað þess að kalla: Mamma og Pabbi!, þá fór hún inn í herbergi bróður síns og dró hann á fætur. Hann fór með henni inn í eldhús og gaf henni morgunmat.

Við hjónin gátum því fengið okkar kríu til hálf átta.

Þegar við komum fram var stóri bróðir búinn að klæða systur sína. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að vera eldri.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Milljarður hér, milljarður þar

Ritað þann:    23. október 2008
Efnisflokkar:  fimmaurar  kaldhæðni  nördadót  

Í nútíma samfélagi eru peningar bara tölur í tölvukerfi og peningar í bankakerfum eru búnir til úr engu.

Með þessar upplýsingar að vopni hef ég sett saman smá SQL scriptu til að leysa gjaldeyrisvanda þjóðarinnar. Hér eru 4 milljarðar Evra, dollara og punds og ég smellti inn 100 milljörðum jena líka til að létta á bílaláninu mínu:

Update Rikissjodur set inneign = 4000000000 where currency_code = 'GBP', set inneign = 1000000000000 where currency_code = 'JPY', set inneign = 4000000000 where currency_code = 'USD', set inneign = 4000000000 where currency_code = 'EUR'


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. október 2008 ( Daníel ) [H]
Bíddu á þetta ekki eftir að yfirskrifa þá inneign sem er til fyrir...?
... æ hvernig læt ég. Það er auðvitað engin slík til.


 23. október 2008 ( Óli Fluva ) [H]
Hvar er 'Commit' ????


 23. október 2008 ( - grettir ) [H]
Já, ég var að pæla í að leggja við þá inneign sem er til fyrir, en fannst ekki taka því :D

Og auðvitað...
commit;


 23. október 2008 ( Kjartan S ) [H]
Spurt er...hvar er commit! Ég spyr hvar er begin transaction?


 23. október 2008 ( - grettir ) [H]
Já og hvar er lógíkin sem færir inn einn dollar í einu eins og í glæpamyndunum!


 25. október 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Já, sjitt hvað við erum slappir...


Hraðallinn í Swiss - Bankaeyðir

Ritað þann:    22. október 2008
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Upp úr miðjum september var rafeindahraðall nokkur settur í gang í Swiss sem hefur sett allt bankakerfi heimsins í uppnám.
Prófanir gengu ágætlega framan af og á meðan prófunum stóð náði hraðallinn að fella risastóran banka í bandaríkjunum kenndan við Lehman bræður.

Að því tilefni lét Fjármálaeftirlitið hafa eftir sér
Gjaldþrot Lehman Brothers ekki áhyggjuefni fyrir fjármálakerfið á Íslandi

Síðan þá hefur hraðallinn náð að hreinsa alla erlenda bankastarfsemi á Íslandi af yfirborði jarðar. Hraðallinn virkaði of vel og var farinn að hafa áhrif á innlenda bankastarfsemi þeirra í Swiss og var því slökkt á honum.

Nú hafa þessir böggar verið lagaðir og var hann ræstur að nýju í gær, með pompi og prakt eins og segir í fréttinni.

Við megum því búast við því að öll bankastarfsemi utan Swiss verði komin á hliðina fyrir lok þessa mánaðar. Allir gjaldmiðlar heimsins falla þá líkt og krónan og jafnvægi næst milli krónu og annarra gjaldmiðla.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 22. október 2008 ( jón óskar ) [H]
það varð sumsé til pjéningasvarthol þegar þeir settu græjuna í gang, sem eyðir þá heiminum hægt og bítandi - aur fyrir aur. þannig séð.


 22. október 2008 ( - grettir ) [H]
Akkúrat :-)


Hringana takk

Ritað þann:    20. október 2008
Efnisflokkar:  fyndið  netið  

Vá hvað þetta er fyndið:




Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. október 2008 ( Ingunn ) [H]
Snilld........ég myndi kála þessum gæja :D


Innlitskvitt

Ritað þann:    20. október 2008
Efnisflokkar:  netið  

Það er fyrirbæri á moggablogginu sem ég hef hvergi séð annarsstaðar á netinu og það er hið svokallaða "Innlitskvitt" sem bloggvinir skilja eftir sig í athugasemdakerfi hvers annars.

Einn bloggar kannski um alvarleg mál og í framhaldinu verða fjörugar, stundum misgáfulega umræður um málefnið. Þá kemur einn "vinur" í heimsókn og skrifar "Innlitskvitt"
Þarna er vinurinn að láta vita að hann hafi komið í heimsókn (til að missa ekki vininn?), en hefur ekkert nýtt til málanna að leggja.

Þetta heitir spam og hefur þann einn tilgang að vekja athygli á sjálfum sér.

Það væri svona eins og ef ég héldi veislu og einhverjir "vinir" opnuðu bréfalúguna og kölluðu inn: "Heimsóknarkvitt" og færu.

Væri ég mannfræðingur myndi ég velja moggabloggið til rannsóknar. Ég er ekki frá því að ákveðin verðbólga hafi átt sér stað á netinu undanfarið. Magnið af síðum er orðið svo gríðarlegt að upplýsinga- skoðana magnið er að drepa mann.
Mengella segir í dag að við höfum kjaftað okkur á kúpuna.

Ég held að það sé rétt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. október 2008 ( - grettir ) [H]
Hérna fann ég mikinn sannleik sem lýsir nákvæmlega þeirri verðbólgu sem hefur orðið á netinu:
http://www.dv.is/blogg/thorarinn-thorarinsson/2008/10/20/bloggfiflin/


 21. október 2008 ( jón óskar ) [H]
Langur pistill hjá Þórarni sem inniheldur góða punkta en moggabloggið finnst mér álíka merkilegt og skeinipappír - er laungu hættur að veita því athygli.

Annað: Þú mættir græja tengla sem þú póstar í athugasemdir þannig að úr verði "clickable" tengill eða leyft afritun (ctrl+c), það er afskaplega leiðinlegt að rita tengilinn sjálfur í address bar ;o)


 21. október 2008 ( - grettir ) [H]
Góð athugasemd, ég er búinn að gera linkinn clickable. Ég var búinn að útfæra svona autolink dæmi í gömlu ASP síðunni, en átti alltaf eftir að útfæra það í PHP.

Kannski ég geri það í kreppunni :D


Humar

Ritað þann:    20. október 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  kreppa  nostalgía  

Þegar ég var í háskólanum átti ég varla bót fyrir boruna á mér né bekk undir afturpartinn, enda dýrt að djamma, leigja og mennta sig á þeirri hýru sem námslánin eru.

Eitt sinn á sunnudegi seinnipart mánaðar átti ég hálft smjörlíkisstykki í ísskápnum og sultukrukku. Veskið var galtómt og leit þetta út fyrir að verða ömurlegri sunnudagur en flestir, enda smjörlíki með sultu sjaldan verið talin herramannsmatur einn og sér.

Þegar ég fór að athuga betur fann ég í frystinum humar sem pabbi hafði gefið mér eftir humarvertíðina um sumarið. Uppi á skáp átti ég svo hvítvínsflösku sem ég hafði fengið í afmælisgjöf um vorið.

Þessi dagur sem leit ekki vel út í byrjun endaði því með því að ég borðaði humar og skolaði honum niður með dýrindis víni. Það var vissulega súrealískt að sitja með slíka máltíð fyrir framan sig og eiga ekki fyrir kaffibolla.

Þrátt fyrir þessar þrengingar er ég nú á lífi í dag, næstum 10 árum síðar.

Boðskapur sögunnar er sá að það kemur alltaf eitthvað gott upp í hendurnar á okkur ef við leitum að því.

"When life gives you lobsters, make a meal out of it"

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. október 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
Þetta er sennilega ein besta dæmisaga sem ég hef lesið í seinni tíð :)


 21. október 2008 ( - grettir ) [H]
Kærar þakkir :)


Næsta Ísland

Ritað þann:    17. október 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  byltingarkennd hugmynd  kreppa  þjóðarrembingur  

Hér er frétt á mbl.is varðandi stöðu Svissneskra banka sem virðast stefna í sömu ógöngur og þeir íslensku.

Mig grunar nefnilega að það verði þegar upp er staðið ekki endilega verst fyrir okkur að hafa verið "frumkvöðlar" í bankahruninu. Þetta verður vont fyrst, svo versnar það aðeins og svo fer að vora og allt verður gott.

Aðrar þjóðir horfa nú okkur eins og forvitnir krakkar horfa á rottur í völundarhúsi og velta því fyrir sér hvernig við "reddum okkur" út úr þessu. Áður en langt um líður fáum við hjálparhendur héðan og þaðan, því hagkerfið hér er frekar lítið og fljótt að taka við breytingum og ég hef trú á því að um leið og réttar ákvarðanir verða teknar, þá poppum við upp úr þessu rugli eins og korktappi í sundlaug.
Þá geta aðrar þjóðir fylgt í kjölfarið enda búnar að nota okkur sem tilraunadýr.

Eftir nokkur ár verður litið á Ísland sem landið sem reið á vaðið í bankakreppunni, en einnig landið sem fann leiðina út úr henni.

Þessi bjartsýnisspá var mitt framlag í dag handa hræddri þjóð.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. október 2008 ( Hófí ) [H]
Mér líst vel á svona hugsanahátt :)


 20. október 2008 ( - grettir ) [H]
Maður verður að reyna að vera jákvæður.. annars getur maður alveg eins lagst í bælið :-)


Hvernig étur maður fíl?

Ritað þann:    17. október 2008
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  slen  

Maður fær sér einn bita í einu.

Mér datt þetta nú bara í hug af því að úr tölvutöskunni minni datt lítill leikfangafíll í morgun þegar ég tók tölvuna upp. Mig grunar að dóttir mín hafi sent mér þessa gjöf.

Við erum bæði búin að vera lasin í vikunni. Ég byrjaði vikuna á streptókokkasýkingu og hún var með hitavellu, svo við vorum heima á mánudag. Aðfaranótt þriðjudags fékk hún svo heiftarlega barkarbólgu að við héldum að hún væri að kafna, drifum okkur upp á bráðamóttöku barna þar sem hún fékk stera og púst. Öll fjölskyldan eyddi nóttinni þar, svo drengurinn fékk að koma mjög seint skólann - sem hann var reyndar ekki alveg ánægður með, því það er svo gaman í skólanum. Um morguninn fór ég til læknis og fékk pensilín svo ég gæti kyngt.

Við erum orðin hress núna - en við erum búin að vera ansi lazarusleg í vikunni. Og hún var hrikalega spennt að fara aftur á leikskólann í morgun, þar sem hún er búin að læra að syngja Gamla Nóa og Afi minn og Amma mín, úti á Bakka búa.

Það var frábært að eyða fyrripart vikunnar í að horfa á Tuma Tígur og hafa engar áhyggjur stærri en þær hvað við feðgin ættum að borða í hádeginu eða hvort við ættum að sofa í sófanum eða inni í rúmi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 17. október 2008 ( Ingunn ) [H]
Gott að þið eruð búin að jafna ykkur á þessum vibba :) Það er svo gott að vera svona lítill þessa dagana.....litla stelpan mín hugsar bara um að sofa, borða, kúka, halda haus og skoða á sér puttana þessa dagana. Ótrúlega nice líf.


Streptókokkar

Ritað þann:    16. október 2008
Efnisflokkar:  slen  

Fékk ansi svæsna sýkingu í hálsinn á mánudaginn og var skipað af lækni að umgangast ekki fólk til að dreifa ekki sýkingunni meir en þörf var á.

Sýkingin var streptókokkar og var komin upp í eyru. Ég fékk pensilín af sterkustu gerð til að ráða bót á vandanum. Ég er allur að koma til og farinn að geta kyngt munnvatni vandræðalaust.

Ég ætla að fara í flensusprautu við fyrsta tækifæri svo inflúensa bætist ekki ofan á þessa veikindadaga líka.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Bjór neyðarlög

Ritað þann:    10. október 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  bjór  fyndið  kreppa  þjóðarrembingur  

Í "veljum íslenskt" átakinu sem hófst í kjölfar gjaldeyrisskorts á landinu kalda hefur alveg gleymst að tala um íslenska bjórframleiðslu.

Íslenski bjórinn er einn sá albesti í víðri veröld, enda bruggaður úr besta og hreinasta vatni alls heimsins og þó víðar væri leitað. Bretar horfa nú öfundaraugum til Íslands þar sem íslenskur bjór fæst fyrir örfá pund.

Ég legg til að sett verði neyðarlög (e. terrorist law) sem fela það í sér að áfengisgjald verði stórlækkað af íslenskri bjórframleiðslu til að koma í veg fyrir að dýrmætur gjaldeyrir flæði úr landi.

Íslensku bjórkippuna á 500 kr.!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. október 2008 ( Ingvar J. ) [H]
Heyr heyr. Nú þarf bara að hefja framleiðslu á Guinness á Íslandi...


 11. október 2008 ( Kjartan Sverrisson ) [H]
I second that motion!


 15. október 2008 ( o.veigar ) [H]
skál fyrir því!


Niðurgreiðsla skulda

Ritað þann:    10. október 2008
Efnisflokkar:  bjartsýni  kreppa  peningar  

Ég rakst á fína grein á netinu sem lýsir því hvernig kona ein borgaði niður hrikalega háar kreditkortaskuldir með snowball kerfinu sem spara.is er að presentera.

Þetta á kannski ekki rakleitt og ómatreitt við fyrir blanka Íslendinga þar sem við höfum yfirleitt ekki þessi veltukort í sama mæli og Ameríkanar, en auðvelt er að heimfæra aðferðina upp á niðurgreiðslu skammtímaskulda og yfirdrátta.

Góð ráð handa blankri þjóð.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Bílalánasjóður

Ritað þann:    07. október 2008
Efnisflokkar:  kaldhæðni  kreppa  nostalgía  

Ætli ríkið stofni bílalánasjóð til að taka yfir bílalán landsmanna þegar menn hætta að geta borgað af góðærisbílunum?

Það mætti þá flytja þá út í stórum stíl, afla með því gjaldeyristekna og flytja inn Lödur í staðinn.

Ahh, Lödur. Brings back memories.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. október 2008 ( Jónína Guðrún ) [H]
ahhhh, lödurnar okkar voru góðar....þín fór meira að segja með okkur hringinn, pældu í því, og kvartaði ekkert :-)
hehehe.....spurning um að athuga hvort þær séu enn á lífi, og endurheimta þær bara ;-)


 07. október 2008 ( - grettir ) [H]
Lödur eru frábærir bílar. Engin bílalán og maður gerir við allt í þeim með góðum hamri og skiptilykli.


 07. október 2008 ( Jónína Guðrún ) [H]
Nákvæmlega....


 07. október 2008 ( Jónína Guðrún ) [H]
Ertu ekki á facebook, er búin að stofna group með 1975 árganginum :-) Allir að vera með :-)


 08. október 2008 ( - grettir ) [H]
Nei, ég er ekki þar. Kannski síðar.


 08. október 2008 ( Ægir pípari ) [H]
Kvað kostar að fá tölvumann í vinnu í kreppuni ?


 09. október 2008 ( - grettir ) [H]
Það kostar kannski ekki svo mikið. Tengingu á baðofni ca. :D

Það er bara ekki mikill tími aflögu þessa dagana.


 10. október 2008 ( Fannar ) [H]
Spurning hvernig þetta fer allt saman næstu mánaðarmót.... Hvar á maður að leggja inn launin sín? Ég held ég biðji bara um að fá þau í brúnum bréfpoka eins og í gamla daga... Alveg hættur að treysta þessum svínum. Þetta er allt sama svikamyllan, bankinn og ríkið....


 10. október 2008 ( - grettir ) [H]
Ég hlakka í það minnsta ekki til þegar bílalánið dettur inn um lúguna.


Tökum upp rúblu

Ritað þann:    07. október 2008
Efnisflokkar:  fréttir  kreppa  

Rússar lána hræddri þjóð 4 milljarða evra

Nú er líka búið að festa gengi krónunar í 175 sem er í sjálfu sér ágætt miðað við hvernig staðan var orðin og vonandi að hún styrkist svo í kjölfarið.

Ríkið er búið að taka yfir stjórn Landsbankans og ég er aftur kominn með mín bankaviðskipti til ríkisins.

Já, við erum að byrja upp á nýtt. Dagur eitt. Þetta getur bara lagast úr því sem komið er. Síðustu 14 mánuðir hafa verið dýrir.

Ég er afar sjaldan sammála Steingrími J. en það hlýtur að vera hægt að sækja einhvern til saka fyrir það hvernig komið er fyrir heilli plánetu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. október 2008 ( Ingvar J. ) [H]
Adam Smith??? Hannes Hólmstein??? Eða kannski orsökin á bak við þetta allt saman: Of mikil afskipti stjórnmálamanna af fasteignalánum í Bandaríkjunum. Spurning um að leita uppi þessa stjórnmálamenn og flengja þá út á torgi...


 07. október 2008 ( - grettir ) [H]
Spanking is to good for them.

En gott að heyra að Hannes Smárason sé að safna kröftum í útlöndum. Og að Bjarni Ármanns sé í fríi frá skarkala fjármálalífsins - einnig í útlöndum.

Við hérna á klakanum erum að fara í fiskinn, súpukjötið og Lödurnar og veitir ekki af jákvæðum fréttum að viðskiptasnillingum sem eru að jafna sig eftir kavíarát og kampavínsdrykkju. Vei.


Doomsday Clock

Ritað þann:    06. október 2008
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  kreppa  peningar  skandall  

Eftir ávarp forsætisráðherra eru enn ekki uppi áform um að reka seðlabankastjórana en dýralækninum í fjármálaráðuneytinu er veitt heimild með neyðarlögum til að taka yfir fjármálastofnanir landsins.

Gengisvísitalan er komin í 230.

Dömur mínar og herrar.
Doomsday Clock með Smashing Pumpkins.

Is everyone afraid?
Is everyone ashamed?
They're running towards their holes to find out
Apocalyptic means are lost amongst our dead
A message to our friends to get out

There's wages on this fear
Oh so clear
Depends on what you'll pay to hear

They're bound to kill us all
In white-washed halls
The jackals lick their paws

Please don't stop
It's lonely at the top
These lonely days
When will they ever stop?
This doomsday clock tickin' in my heart
Not broken

I love life everyday
in each and every way
Khafka would be proud, to find out
I'm certain of the end,
it's the means that has me spooked
It takes an unknown truth to get out
I'm guessing that I'm born free, silly me
I was meant to beg from my knees

(chorus)
Please don't stop
It's lonely at the top
These lonely days
wWhen will they ever stop?
This doomsday clock ticking in my heart
These lonely days when will they ever stop?

We gotta dig in
Gas masks on
Wait in the sunshine, all bug-eyed
If this is living?
Sakes alive!
Well then they can't win, no one survives

Is everyone afraid?
You should be ashamed
Apocalyptic screams mean nothing to the dead
Kissing that ol' sun to know all there is
Come onn, last call!
You should want it all!

(chorus)
Ah, it's lonely at the top
These lonely days when will they ever stop?
This doomsday clock
Ticking in my heart
These lonely days when will they ever stop?
This ticking in my heart
Is everyone afraid?


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Ekki sama frá hverjum hálfkæringurinn kemur

Ritað þann:    06. október 2008
Efnisflokkar:  fréttir  pólitík  

Frægasti hálfkæringur sem hefur lekið í fjölmiðla voru ummæli þeirra baugsmanna um að réttast væri að borga Davíð 300 milljónir undir borðið til að fá hann til að hætta ofsóknum sínum á Baug.

Þessi hálfkæringur var auðvitað grafalvarlegt mál.

Nýr hálfkæringur leit dagsins ljós í síðustu viku, en ummæli hans um þjóðstjórn fóru eitthvað illa í ríkisstjórnarliða á fundi í stjórnarráðinu.
Davíð vill meina að hann hafi ekki mælt með þjóðstjórn, en fréttin er
hér
Davíð sagði það vera skoðun sína að allar ríkisstjórnir hefðu gott af gagnrýni og aðhaldi og að því væri hann almennt mótfallinn þjóðstjórnum. Við sérstakar aðstæður gæti þó reynst nauðsynlegt að mynda slíka stjórn.

Takið eftir andlega ofbeldinu sem þarna er beitt. Þarna byrjar hann á að segja að hann sé á móti þjóðstjórn. Einhverjir eru þó hlynntir slíkum stjórnum og við sérstakar aðstæður ætti að mynda slíka stjórn. Hann er búinn að planta eitrinu, hræða stjórnarliðana. Ef þið rekið mig, þá kem ég aftur og læt setja ykkur af.

Þessi hálfkæringur er trúnaðarbrestur.

Ríkisstjórnin er álíka hrædd við þjóðstjórn og seðlabankastjóri við Evru. Í báðum tilvikum missir viðkomandi vinnuna.

Allt tal um að ekki eigi að skipta um hest í miðri á eins og einhver komst að orði í vikunni sem leið á ekki við lengur. Hesturinn er að drukkna og knapinn fer sömu leið ef hann sleppir ekki beislinu og hóar í einhvern á bakkanum til að draga sig að landi.

Það er nóg til af hestum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. október 2008 ( Ægir pípari ) [H]
Það var eitthvað fjallað um það á bylgjunni á sunnudag að einhver ekkja sem seldi allt sitt í glitni viku fyrir ballið með davíð, svo var minnst á að sonur hennar eða hún hefði verið veislustjóri í afmæli hjá Dabba eða eitthvað þess háttar. Spillingin er ekki langt undan eða hvað


Góður húmor í rigningunni

Ritað þann:    06. október 2008
Efnisflokkar:  vinnan  

Frábært veður til að framkvæma brunaæfingu.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sumarblöðrurnar

Ritað þann:    03. október 2008
Efnisflokkar:  bmw-inn  fjölskyldan  líðandi stund  

Við skildum nýja bílinn eftir heima í morgun og ég tók að mér að keyra fjölskylduna í skóla og vinnu.
Sumardekkin eru eins og bónuspokar á svelli og ég fór því seinna lagi af stað og lullaði í rólegheitunum í Kópavog og skildi konuna eftir þar til að vinna fyrir okkur á meðan ég fór og sótti vetrardekkin í geymslu.

Nú eru vetrardekkin komin undir og því ekki meiri hætta á hálku fyrr en í fyrsta lagi um jól.

Ég er samt ansi hræddur um að þetta verði síðasti vetur gamla bílsins. Sílsarnir það drasl er orðið þvílíkt ryðgað þarna undir að það er varla óhætt að tjakka hann upp lengur.
Við sjáum til. Ef kreppan verður viðvarandi, þarf ég kannski að láta sjóða í þetta og dytta að honum. Annars sel ég hann á einhvern smáaur næsta sumar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. október 2008 ( Ægir pípari ) [H]
er ekki billinn að verð antík mátt ekki fara að gefast uppá honum núna


 06. október 2008 ( - grettir ) [H]
Það væri auðvitað ljótt af mér. Ég þarf samt að laga bremsurnar á honum núna, fastur öðru megin að framan. Ekki beint sparakstur sem hlýst af því.


 06. október 2008 ( Ægir pípari ) [H]
er ekki nóg að hafa handbremsu


Og þá kom vetur

Ritað þann:    02. október 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Mér finnst eins og það hafi gerst í gær að við lágum úti á palli og sleiktum sólskinið. Nú snjóar eins og enginn sé morgundagurinn.

Það mætti segja mér að það yrði eitthvað að gera á dekkjaverkstæðum í fyrramálið. Svona fram að tíukaffi.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Að vera þroskaheftur

Ritað þann:    02. október 2008
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Konan mín vinnur með þroskaheftum og vangefnum. Ég heyrði í henni í hádeginu og það var glatt á hjalla á bakvið hana, sungið og trallað.

Heimurinn væri einfaldari ef allir myndu syngja og tralla. Við getum lært margt af vangefnum.

Ég ætla að horfa á einhverja gamanmynd í kvöld. Gá hvort krónan hressist ekki við það og ráðstöfunartekjurnar með henni. Þá verður sungið og trallað.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Agnes Bragadóttir vs. Sigurður Guðjónsson

Ritað þann:    01. október 2008
Efnisflokkar:  fréttir  

Agnes Braga og Sigurður Guðjónsson ræddu Glitnismálið áðan.

Ég veit ekki hvernig Sigurður hélt ró sinni. Hann hlýtur að vera með stáltaugar. Ég lamdi ósjálfrátt í sófann og sagði stundarhátt þegiðu. Það er eitt að ræða málin - og þarf vissulega að ræða þetta mál - en að vera gjammandi fram í eins og smákrakki er algerlega óþolandi og hæfir ekki manneskju sem vill vera tekin alvarlega.

Ég skil næstum því hvers vegna Árni Johnsen hótaði að höfða mál gegn henni.

Næstum því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 05. október 2008 ( Una ) [H]
Aaaaalgerlega sammála


Zimbabwe dollar vs. íslenska krónan

Ritað þann:    01. október 2008
Efnisflokkar:  fréttir  kreppa  peningar  

Ef maður ætti að nefna dæmi um misheppnaða hagstjórn, þá dytti manni líklega Zimbabwe í hug sem hræðilegt land að búa í. Óðaverðbólga og verðlaus gjaldmiðill.

Íslenska krónan er að verða jafn verðlaus og Zimbabwe dollar.

Skv. Quote.com í dag er staðan svona:
1.00 USD = 107.22 ISK
1.00 ZWD = 0.75774 ISK

Krónan er að verða jafnverðlaus og gjaldmiðill lands sem er rústir einar eftir áratuga einræðis- og harðstjórn spilltasta og grimmasta stjórnmálamanns fyrr og síðar.

Ég segi nú ekki að Ísland sé að verða jafn ömurlegt og Zimbabwe, en menn sögðu fyrir mörgum vikum að botninum væri náð í gengisfalli krónunnar. En það sér ekki fyrir endann á þessu gengisfalli frekar en stjórnartíð Davíðs Oddsonar.

Ef ég tímdi því myndi ég kaupa egg og tómata og henda í hausinn á þessum fíflum sem stjórna þessu rugli hérna. Það fer að verða spurning um að yfirgefa sökkvandi skip áður en það er um seinan.

Skipstjórinn í seðlabankanum má fara niður með skútunni ef hann vill.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 01. október 2008 ( Finnur ) [H]
Tja, talandi um sökkvandi skip. Nú voru teikn um verri tíð orðin nokkuð skýr þegar pólverjarnir yfirgefa skerið (skipið). Það er alltaf pláss fyrir öfluga snillinga í hugbúðarbúllunni minni....


 01. október 2008 ( - grettir ) [H]
Já, svo voru menn hræddir um að útlendingarnir myndu hirða djobbin okkar. Í þá gömlu góðu daga þegar það voru djobb til að hirða. Ég er ekki viss um að það verði mikið lengur.