1 til 14 af 14

Sónar

Ritað þann:    30. október 2007
Efnisflokkar:  ég  slen  

Ég fór í sónar á föstudaginn. Hjá háls- nef og eyrnalækni.

Tilgangur ferðarinnar var að láta kíkja á hálsinn á mér og í leiðinni spyrja út í þrálátan hnerra sem ég er búinn að vera með í næstum tvö ár og fæ með því reglulega hálsbólgu.
Síðast þegar ég fór til læknis fékk ég ekki bót meina minna og hélt eftir heimsóknina að ég væri ímyndunarvéikur. Pensilín virkar víst ekki á það.

Ég var því ekkert alltof bjartsýnn.

Ég hafði rangt fyrir mér.

Nýji læknirinn kíkti ofan í kok og sagði að ég væri með íslenskan kverkaskít. Hann kíkti því næst inn í hausinn á mér með litlum handsónar og sagði að ég væri með bólgur í kinnholunum sem orsökuðu þetta og þetta væri alþekkt íslenskt ástand. Maður væri næstum því veikur, en ekki alveg. Bara svona tuskulegur - eins og hann orðaði það - og það oft á ári.

Ég fékk töflur við hálsbólgunni og nasasprey við kinnholubólgunum.

Mér hefur ekki liðið svona vel í marga mánuði.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. október 2007 ( Kjartan ) [H]
Hljómar eins og mitt ástand síðast liðin ár. Til hvaða læknis fórstu eiginlega?


 30. október 2007 ( - grettir ) [H]
Kristján heitir hann og er í Læknastöðinni í Glæsibæ.


Ferðalag

Ritað þann:    24. október 2007
Efnisflokkar:  djamm  vinnan  

Um næstu helgi erum við að fara í Stykkishólm í haustferð með vinnunni.
Systir mín ætlar að passa og við ætlum að sofa fram að hádegi. Það verður samt týpískt að við vöknum klukkan sjö eins og vanalega, en það verður samt reynt.

Það spáir rigningu eins og vanalega enda hefur ekki sést til sólar í þrjá mánuði. Verð nú að viðurkenna að ég er að verða pínku þreyttur á því.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Jólakjöt á sunnudegi

Ritað þann:    23. október 2007
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  

Þegar konan kom úr vinnu á sunnudagskvöld vorum við börnin búin að elda Bayonne skinku, með brúnuðum kartöflum og dijon sveppum. Í eftirrétt var súkkulaði múss.

Einhverjar konur í vinnunni hennar áttu von á heimsendri pizzu. Það var aldrei spurning um hver ynni keppnina um besta karlinn.

Það var reyndar ansi stressandi að sveifla slíkri máltíð fram úr erminni með tvö börn. Við fórum í búðina um fimmleytið, út að hjóla til sex, þá gerði ég súkkulaði múss og setti steikina í pott.
Þá þurfti að elda fyrir dótturina kartöflur og gulrætur, mixa það, gefa henni, baða hana og klæða í náttföt, steikja sveppi, brúna kartöflur og baka upp sósu.

Þegar allir pottar voru á eldavélinni og allt í gangi heyrist af klósettinu: Búinn!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. október 2007 ( Ingunn ) [H]
Hvaðan færðu þetta.......ég hefði örugglega pantað pizzu :D


 23. október 2007 ( Hjalti ) [H]
Fékkst líka verðlaunin besti bróðirinn, Ég er ennþá saddur ;)


 24. október 2007 ( Kona og börn ) [H]
Ert löngu búinn að vinna keppnina um besta kallinn og besta pabbann :-D


 24. október 2007 ( - grettir ) [H]
:*


Pabbahelgi

Ritað þann:    19. október 2007
Efnisflokkar:  börnin  fjölskyldan  vinnan  

Konan er að vinna alla helgina og því verður nokkurs konar pabbahelgi hjá mér og börnunum.

Við ætlum að elda okkur steiktan fisk í kvöld, en það er matur sem Margrét er ekki hrifin af en það eru þeir sem eru að safna Spider-Man vöðvum.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Fótbolti

Ritað þann:    19. október 2007
Efnisflokkar:  fréttir  fyndið  íþróttir  

Árangur Íslands í fótbolta á erlendri grund nýverið styður það sem ég hef alltaf sagt. Fótbolti er ömurleg íþrótt.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Sætir sófar

Ritað þann:    18. október 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  líðandi stund  neytendur  

Við erum búin að selja stóra leðurhlunkinn sem var í stofunni og kaupa okkur nýjan fluffy nettan í staðinn.

Við skoðuðum á laugardaginn í Sætir sófar og ég held að það sé óhætt að mæla með þeirri búð. Frábær þjónusta og konan sem stýrir þeirri verslun vill allt fyrir mann gera.

Við prófuðum svo að auglýsa dótið okkar á barnalandi og fengum fullt af dónalegum tilboðum, en loks hringdi einhver með viti, fékk að skoða sófann og leist vel á.

Einhver vildi borga 10.000 fyrir Lazy-boy-inn.
Ég var að mana Margréti í að senda til baka að viðkomandi mætti koma og setjast í stólinn fyrir þann pening, en hún er alltof kurteis.
Stóllinn sá er nú kominn inn í barnaherbergi þar sem drengurinn situr eins og furstinn af Brunei og horfir á teiknimyndir.

Betra að hann njóti stólsins en að einhver dóni fái hann næstum ókeypis.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 18. október 2007 ( Ingunn ) [H]
ég á líka svona sætan sófa. Mjög góðar vörur og þjónusta :)


 19. október 2007 ( Emil ) [H]
Fékk mér einmitt svona fyrir hálfu ári og kostaði ekki bílverð eins og í sumum sófaverslunum hérna.


 19. október 2007 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega. Ekkert Vísa rað. bull.


Framsóknarflokkur

Ritað þann:    12. október 2007
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  pólitík  

Djöfull held ég að Sjálfstæðisflokkurinn nagi sig í handarbökin að hafa ekki gengið til liðs við Frjálslynda í síðustu kosningum - þegar þeir ákváðu að stinga þá í bakið og semja við Framsókn.

Nú er hnífurinn á kafi í bakinu á þeim.

Ég er fyrir margt löngu hættur að styðja Sjálfstæðisflokkinn, en mér finnst í hæsta máta óeðlilegt að einn maður, Björn Ingi, geti hreinlega ráðið því hverjir eru í meirihluta. Eðlilegra hefði verið að arftaki Villa hefði rætt við aðra flokka um samstarf þegar ljóst var í hvað stefndi.
Enn eðlilegra hefði verið að þeir báðir, Villi og Björn hefðu tekið pokann sinn.

Skv. frétt á visir.is lítur út fyrir að Alfreð hafi komið að málum:
Aðspurður um það hvort kalla megi nýja borgarstjórnarmeirihlutann Alfreðsstjórnina segir hann "Ég var nú hættur í pólitík og farinn að snúa mér að öðrum verkefnum - byggingu nýs sjúkrahúss. Mér var síðan kippt út úr því verkefni af Guðlaugi Þór Þórðarsyni heilbrigðisráðherra. Þar með gafst mér tími til annarra verkefna. Það má því kannski allt eins eigna Guðlaugi heiðurinn að nýjum meirihluta," segir Alfreð.

Fyrir mér lítur þetta út eins og Alfreð sé að hefna sín á Sjálfstæðismönnum fyrir að fá ekki að byggja sjúkrahús.

Við eigum kannski eftir að sjá Alfreð aftur í Orkuveitunni. Hans fyrsta verk verður þá að selja Orkuveituna og REI og byggja einkasjúkrahús fyrir aflóga framsóknarmenn. Og það verður grænt á litinn.

Ég vona að fólk sjái hverskonar skítmenni (og konur) eru í Framsókn og gleymi því ekki fyrri næstu kosningar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Apple ást

Ritað þann:    11. október 2007
Efnisflokkar:  nördadót  

Ég skil ekki þessa ást á Apple. Nú er iPoddinn minn fínn, en iTunes og það drasl sem því fylgir er eilíft í einhverjum uppfærslum - iðulega þarf ég að restarta eftir uppfærslu og oftar en ekki þarf ég að laga skjáupplausnina á vélinni af einhverjum ástæðum eftir hamaganginn. Um daginn virkaði ekki stóri skjárinn með lappanum. Ég þurfti að restora vélinni til að fá hann inn.

Ekki nóg með að þetta sé ófriður, þá er iTunes orðið 60MB.
Þetta er mp3 spilari for crying out loud.

Um daginn lenti ég svo í því að iTunes heimtaði að uppfæra iPoddinn, sem ég leyfði. Uppfærslan hreinsaði allt út af honum og það kom einhver hræðileg villa. Ég þurfti að nördast á netinu heillengi áður en ég kom honum aftur í gang og svo var ég heillengi að velja músik inn á hann aftur.

Hvernig eiga venjulegir notendur að bjarga sér eftir svona uppfærslu rugl? Hvað ætli margir iPoddar séu í ruslatunnunni núna því venjulegir notendur halda að þeir séu ónýtir.

iPhone?
Nei takk. Ekki nenni ég að eiga síma byggðan á sama grunni með sömu uppfærslu þörf.

Ég efast líka um að iPhone þoli að lenda í þvottavél.. tvisvar. Það þolir gamli Nokia síminn minn.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Eldhús innrétting

Ritað þann:    11. október 2007
Efnisflokkar:  fjölskyldan  íbúðamál  

Okkur vantar barnaherbergi. Við erum með tvær stofur, en bara eitt barnaherbergi.

Þegar við vorum að velta fyrir okkur möguleikunum í sumar, þá ákváðum við að hreinsa eldhúsið í burtu, breyta því í barnaherbergi og setja eldhúsið í aðra stofuna og opna á milli þeirra.

Við tímum ekki að flytja í stærra. Okkur líður svo ljómandi vel í þessari íbúð.

HTH tók að sér að teikna fyrir okkur eldhús og fengum við teikningar í gær. Þær líta vel út og við eigum bara eftir að ganga frá smáatriðum eins og innvolsi í skápum og slíkt.

Í janúar verður svo tekin upp sleggjan.

Herbergjaskipan hjá okkur breytist töluvert við þetta og við ætlum að nota tækifærið og endurnýja nokkrar mublur.

Til sölu er því:

1 árs Lazy-Boy - svartur leður.
3-4 ára brúnn leðursófi (L laga) 5-6 sæta
5 ára eldhús innrétting, líklega úr Ikea, hvítlökkuð.
1 árs borðstofuborð 100cm x 200cm

Ef þið þekkið einhvern sem vantar eitthvað af ofangreindu, þá má hafa samband við mig á gmail punktur com.
Á undan því kemur grettir punktur einarsson og svo hjá merkið á milli skiljiði?

Eða skilja eftir símanúmer og nafn í comments. Ég get eytt þeim þegar ég er búinn að hafa samband.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. október 2007 ( ægir pípari ) [H]
já og ég er með oriental skáp til sölu passar undir video dvd og græjur og svoleiðis. Sjá nánar á barnalad.is Frábær þessi flóamarkaður hehe. btw til þjónustu reiðubúin í janúar


 11. október 2007 ( von ölves eldhúslausi frá júní ) [H]
passaðu bara að vera öruggur á að þú fáir innréttinguna á réttum tíma... þe. áður en þú ferð að rífa þá gömlu út... það er mjög mikilvægt!!!


 12. október 2007 ( - grettir ) [H]
Ég tek þig á orðinu hr. ægir..

Já, það gleymdist kannski að taka það fram að gamla innréttingin er að sjálfsögðu ekki til sölu fyrr en í lok janúar - þegar hin kemur í hús :)


 12. október 2007 ( ægir pípari ) [H]
já maður skuldar svo marga greiða að ég verð að reyna deila þeim einhverjum til baka


Hressandi spilling

Ritað þann:    09. október 2007
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. október 2007 ( Hjalti ) [H]
Haha! Mér fannst líka Helvíti gott grínið hjá spaugstofunni um hann þegar hann vildi ekki kveikja á friðarsúlunni fyrir Ono því við ættum ekki nóg rafmagn, Þar sem Laddi fór á kostum sem Old Willy :D


 10. október 2007 ( von ölves ) [H]
vilti spillti villi...


 11. október 2007 ( - grettir ) [H]
Munið þegar Þórólfur Árnason var neyddur til að segja af sér, því hann var einu sinni að vinna hjá Esso?

Reyndar á þeim tíma þegar Esso var í samráði, en samt...


Nýtt símanúmer

Ritað þann:    09. október 2007
Efnisflokkar:  ég  líðandi stund  

Ég skipti loks um símanúmer í gær, en ástæður þess má lesa hér..

Ónæðið af óumbeðnum símhringingum var sérlega slæmt í síðustu viku og dreif ég mig því í því að skipta ónýta númerinu út. Það er nú orðið frelsisnúmer og ykkur er velkomið að lesa einhver skemmtileg skilaboð inn á talhólfið ef þið nennið.

Ég er byrjaður að senda út nýja númerið til þeirra sem eru í bókinni, en ég komst ekki langt áður en síminn varð batteríislaus. Ég verð því að klára það síðar. Einnig má senda mér póst, en ég er með netfang hjá gmail.com
Þið setjið bara grettir punktur einarsson fremst í til línuna og "hjá" merkið góða þar á milli. Þá ætti mér að berast rafpóstur.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Einvaldur í borginni

Ritað þann:    05. október 2007
Efnisflokkar:  handbók kjósandans  pólitík  

Til hvers er verið að kjósa allt þetta lið inn í borgarstjórn ef borgarstjórinn ræður bara?

Fyrst fyllist tjörnin af mávum, þá tekur Villi bjórkælinn úr sambandi og svo sameina þeir dótturfyrirtæki Orkuveitunnar öðru án þess að spyrja kóng né prest. Það er með ólíkindum hvað Björn Ingi hefur mikil völd í borginni með ekkert fylgi.

Maður er farinn að skilja hvers vegna Villa leist svo vel á að hafa hann með sér í meirihluta. Þeir eru eins.

Þetta fer í handbók kjósandans.

Ég veit að þeir eru ekki að vinna fyrir borgarbúa. Kannski eru þeir að vinna fyrir þessa gaura?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. október 2007 ( Ingvar J. ) [H]
Eru Bjögn Ingi og Villi volgibjór ekki bara í bissnesskallaleik....


 08. október 2007 ( von ölves ) [H]
þeir eru í bissnesskallaleik með almannafél... ekki í fyrsta skipti sem það gerist en ég héllt bara að flestir væri vaxnir upp úr þessu... einkavinavæðingin lifir...


 08. október 2007 ( - grettir ) [H]
Ég gleymdi auðvitað að minnast á það þegar Villi bannaði heilum hóp af fólki að koma til Reykjavíkur og gista á Hótel Sögu.

Handbók kjósandans verður þykk eftir þetta kjörtímabil.


Ræktun

Ritað þann:    03. október 2007
Efnisflokkar:  fyndið  íþróttir  

Ég fór í ræktina áðan til að rækta líkama og sál.

Verandi byrjaður á fjórða tug ævinnar tel ég mig hafa sé ýmislegt en fátt hefði getað undirbúið mig undir það sem ég sá í búningsklefanum í dag.

Við spegilinn stóð drengur og gelaði á sér hausinn. Hann stóð með lítinn puntspegil og hélt honum þannig að hann gæti einnig gelað á sér hnakkann. Gelið var hvergi til sparað og mætti ætla að drengurinn væri á íþróttastyrk hjá Gel og Wax verksmiðju ríkisins - væri slík til.

Ekki það að ég sé með óbeit á gelurum - gekk meira að segja í skóla á Selfossi. Ónei. Það sem áhugavert við þessa gelun var að drengurinn var á leiðinni inn í sal til æfinga en ekki á leiðinni í nammibúð að dýfa hausnum í lakkrískurl.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. október 2007 ( von ölves ) [H]
var hann ingason þessi gelari?


 04. október 2007 ( - grettir ) [H]
Nei, það var nú það merkilega við það.. hann var ekki einu sinni rauðhærður!


 10. október 2007 ( Ingunn Helgad ) [H]
hahaha...ég hugsaði einnig um þann rauða þegar ég las þetta :)


Flórída

Ritað þann:    03. október 2007
Efnisflokkar:  ferðalög  fyndið  vinnan  

Ég er að fara á ráðstefnu í Orlando/Flórída um næstu mánaðarmót. Ég er farinn að hlakka aðeins til, enda hefur rignt án afláts hérna á skerinu síðan í byrjun Ágúst.
Það verður líklega farið að snjóa um það leyti sem ég fer.

Ég hef aldrei komið til Flórída, en heyrði helvíti góðan brandara einu sinni og fann hann á netinu:

A man called, furious about a Florida package we did. I asked what was wrong with the vacation in Orlando. He said he was expecting an ocean-view room.

I tried to explain that is not possible, since Orlando is in the middle of the state.
He replied, "Don't lie to me. I looked on the map and Florida is a very thin state."



Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..