1 til 18 af 18

Dömur mínar og herrar

Ritað þann:    30. október 2003
Efnisflokkar:  fyndið  

Það er nokkuð ljóst í hvað skattpeningarnir okkar fara. Strætóbílstjóra sem horfa ekki fram fyrir tærnar á sér.

...
- grettir :: græna kortið? Held ekki.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
ég fór nú í strætó um daginn... það var hressandi... en engin fiskilykt eins og var alltaf í tvistinum hérna í denn... saknaði þess nú aðeins...


 30. október 2003 ( LaLibra ) [H]
Jæks... frekar labba ég en að stíga fæti inní strætó... Öch


 31. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ég tók einu sinni strætó úr Hafnafirði og inn í Smiðjuhverfi í Kópavogi. Tók klukkutíma og korter og ég þurfti að labba úr Álfabakkanum.

Hefði verið fljótari að labba.


Lukkutölurnar þínar

Ritað þann:    30. október 2003
Efnisflokkar:  skandall  

Glænýr og skemmtilegur fídus á lottó.is sem leyfir manni að slá inn lukkutölurnar sínar og kanna hversu miklar lukkutölur það eru í raun.

Ég tók því fram áskriftar miðann minn og byrjaði að prófa. Leit illa út framan af, aldrei komið neinn vinningur.

Jæja, hugsa ég... held samt áfram. Þegar ég er búinn að slá inn allan miðann og aldrei hefur komið neinn vinningur á neina röð, ever, þá hugsa ég nú með mér að eitthvað hljóti að vera mis, því ég hef oft unnið 3 rétta, 2 og bónus og slíkt.

Þannig að ég slæ inn tölurnar sem komu upp í síðustu viku.

Og niðurstaðan: aldrei unnist neitt á þær heldur. Ætli vinningshafar síðustu viku viti að þeir fá ekki neitt? Þetta er bara allt í plati rassagati.

...
- grettir :: strákar mínir. Lagið þetta.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. október 2003 ( BraBra ) [H]
Þetta er kannski til að fæla fólk frá að kaupa lottó ?
Þeir gætu t.d. bara skrifað líkurnar á að vera með allar tölur réttar :) Það virkar mjög fráhrindandi á eins heppinn mann og mig :)


 30. október 2003 ( - grettir ) [H]
hehe, maður huggar sig við að þetta rennur til góðgerðamála.


 07. nóvember 2003 ( Brynja ) [H]
Vá sko ég er búin að vera með sömu fja...tölurnar í ábyggilega 8 ár og heildarvinningsupphæðin er 2700 krónur. Fari þeir í....Well minn tími mun koma. Og þá lottótölurnar mínar líka.


 07. nóvember 2003 ( - grettir ) [H]
Já, maður heldur í vonina. Ömurlegt að dömpa miðanum og þá koma helv. tölurnar.


Nú líst mér á það

Ritað þann:    29. október 2003
Efnisflokkar:  neytendur  skandall  

Ætli ég verði ekki að gista hérna uppi í vinnu? Farið að snjóa eins og einhver fái greitt fyrir það. Býst við að maður verði að sleppa því að borða í næsta mánuði og fjárfesta í vetrartúttum.

Annars er ég alveg æfur núna. Í lok sumars fékk ég kynningaráskrift að DV og átti að sjálfsögðu sjálfur að láta vita ef ég vildi ekki halda áfram eftir það ( sem ég að sjálfsögðu gleymdi, því ég held ég sé með snert af Alzheimer). Allavega, mér fannst einkennilegt að ég skyldi aldrei fá gíróseðil, sér í lagi vegna þess að manni skylst á fréttum að þeir hafi nú ekki alveg efni á að dreifa blaðinu frítt.

Haldið að ég sjái ekki á yfirlitinu mínu í einkabankanum að áskriftin hefur verið skuldfærð !! Ég gaf þeim aldrei upp reikningsnúmerið, hvað þá leyfi til að hirða út af reikningnum. Er hægt að fletta bankaupplýsingum um mann upp í símaskránni? Maður spyr sig.

Til að toppa þetta, þá kom blaðið ekki í dag.

...
- grettir :: someone is getting fired.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 30. október 2003 ( gunna ) [H]
Drífðu nú vetrardekkinn undir Grettir minn svo það fari að hlýna aftur! Hefur ekki klikkað síðustu árin! Það hlýtur að vera fólk hérna úti sem vill styrkja þig til dekkjakaupa til að lengja sumarið??


 30. október 2003 ( - grettir ) [H]
Já, kannski ég opni söfnunarreikning :-) Annars er þetta líka bróður mínum að kenna, hann seldi jeppann sinn fyrr á árinu vegna óvenju góðrar tíðar undanfarin ár.


 30. október 2003 ( Brynja ) [H]
En sko fyrst þú ert með snert af alzheimer gleymdirðu þá ekki bara að þú lést þá hafa bankanúmerið þitt? :þ Annars áttu ekki að láta þessa skíthausa hjá DV komast upp með þetta. Fyrr má nú rota en dauðrota ha?


 30. október 2003 ( - grettir ) [H]
Nákvæmlega.

Mig grunar að þeir hafi bara ákveðið að nota upplýsingarnar sem þeir veiddu upp úr mér þegar ég var áskrifandi fyrir þremur árum. En það er sama...


Fuglasöngur

Ritað þann:    28. október 2003
Efnisflokkar:  líðandi stund  

Vaknaði í morgun við fuglasöng og hlaupandi börn í Vesturbæjarskólanum. Lífið er gott á Framnesveginum. Á leiðinni í vinnuna byrjaði að snjóa. Það er eins og maður sé kominn upp á fjöll handan við Lönguhlíð.

Af hverju búa ekki allir í Vesturbænum? Ég legg til að stofnað verði sjálfstætt ríki vestan Snorrabrautar. Þá getum við selt sælu- og sólarferðir í Vesturbæinn. Og sett upp fríhöfn við Landspítalann.

...
- grettir :: hate snow

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 28. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
það er líka alltaf svona gott veður hérna í parliament hills... ekkert nema poppstjörnur og leikarar hér...


 28. október 2003 ( Rauði ) [H]
...þurfti að láta kellinguna skafa í morgun, veturinn byrjar alltaf mánuði fyrr í Breiðholti en annarsstaðar í Rvk.


 28. október 2003 ( - grettir ) [H]
Enda eru holtin velkomin í nýríkið mitt :-)

En Rauði, það gengur auðvitað ekki að búa þarna lengst upp á fjalli!


 28. október 2003 ( ægir ) [H]
Vér mótmælum allir (ég og bumban)


Word er viðbjóður

Ritað þann:    23. október 2003
Efnisflokkar:  nöldur  vinnan  

Ég held ég hati ekki neitt verkfæri eins mikið og þennan viðbjóð sem Word er. Maður ætlar í sakleysi sínu að búa til eitt hönnunarskjal og notar til þess þar til gert template, með lógói og svona.

Í hvert skipti sem ég vista spyr óbjóðurinn mig hvort ég vilji líka vista template-ið. Til hvers? Svo að sá næsti sem notar template-ið fái alla vitleysuna sem ég er búinn að semja?

Nei, heimska drulluforrit, ég vil það ekki!

Svo er síðasta blaðsíðan með einhverju fucked up margin drasli. Þegar ég reyni að eyða henni heldur crappið að ég vilji hafa svoleiðis margin á öllum síðunum á undan?! Hvað er að? Hættu að skipta þér af þarna helvítið þitt! Smart bullets og svoleiðis rusl. Þetta getur gert mann alveg spinni gal.

...
- grettir :: ef ég verð pirraður á því að nota þetta, þá er þetta bilað

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. október 2003 ( NöldurÖnd ) [H]
Það er svona þegar forrit fara að hugsa fyrir þig og þið eruð ekki á sömu bylgjulengd. Crystal Reports er einmitt svoleiðis verkfæri eins og word.


 24. október 2003 ( Wordur Wordursson ) [H]
Ferð í tools-options-->velur edit og hakar t.d. út allt smart-eittvhað.
En hvað um það. Átti að skila til þín frá vini mínum honum Píkusi Píkussyni að eitthvað sé svoldið að gleymast........


 24. október 2003 ( - grettir ) [H]
Eða nota bara notepad.

Já... damn. Gleymi þessu alltaf.


 27. október 2003 ( Hanna ) [H]
Hva.. eru menn e-ð zúrir þezza daganna?


 28. október 2003 ( - grettir ) [H]
haha, neinei. Ég ætlaði nú ekki að eipa á ykkur, bara smá útrás svona í amstri dagsins.


Hólí mólí

Ritað þann:    23. október 2003
Efnisflokkar:  líðandi stund  nöldur  

Sá strætó í gær með jólaauglýsingu. Í morgun var jólaföndur í Íslandi í býtið. Það eru nýbúin að vera jól, for crying out loud. Það er eins og það hafi gerst í gær að ég var að bera búslóðina mína út úr Eskihlíðinni í bullandi snjókomu í mars. Hvert fór sumarið? Hvar var ég?

Svo eru menn eru byrjaðir að rúlla út í móa sökum hálku. Það fer ekki á milli mála að maður verður að fara að setja vetrardekkin undir svo það hlýni nú hressilega.

...
- grettir :: held að Ástralía sé málið, 9 mánaða sumar.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 23. október 2003 ( Inga ) [H]
ég held nú bara að það sé mjög takmarkaður vetur í Ástralíu! A.m.k. er meðalhiti eitthvað um 25 gráður í Norður Ástralíu yfir vetrartímann - mér finnst það nú barasta ENGINN vetur!!! :)
Held að ég mundi sakna vetrarins ef ég væri í hita allt árið.


 23. október 2003 ( - grettir ) [H]
Enda held ég að 9 mánaða sumar nái að halda hitanum vel uppi yfir "veturinn". Þú sérð að 3ja mánaða sumarið okkar heldur alveg hita á okkur næstu tvo mánuði :-)

En, nei. Ég held að ég myndi ekki sakna kuldans. Skafa, sitja fastur í skafli, alltaf kalt á puttunum, alltaf allt drullugt. Iss.


 23. október 2003 ( Inga ) [H]
Fjarstartari, bíll sem drífur eitthvað og vettlingar :)


 28. október 2003 ( - grettir ) [H]
Fjarstartari: on the christmas list
Bíll sem drífur eitthvað: todo (not)
Vettlingar: checked.


iTunes

Ritað þann:    21. október 2003
Efnisflokkar:  nördadót  

Ég prófaði nú þetta iTunes og já, þetta er svona lala. Hverjum finnst sinn fugl fagur og allt það þvaður um hvort það sé betra að vera með Mac eða PC. Fyrir þá sem ekki vita, þá er þetta frír muzik spilari frá Apple og fæst einnig fyrir Windows.

Ég hef nú persónulega aldrei notað Media Playerinn í Windows fyrir múzik spilun, svo ég hef engan samanburð á því hvort að það sé þægilegra að brenna, versla og gera og græja í iTunes.

Mér finnst nú Winamp-inn bara alltaf standa fyrir sínu. Hann er með "Play" takka og "Stop" takka og í nýjustu útgáfunni 2.91 er komið þetta fína music library. Ég meina, þetta er nú bara spilari, hann þarf ekki að geta tekið afrit, verslað fyrir mann og hellt uppá kaffi.

...
- grettir :: en þetta er frítt. Kúdos fyrir það.


Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 21. október 2003 ( Tryggvi R. Jónsson ) [H]
Winamp 2.91 er dúndurgóður spilari ólíkt Winamp 3.xxx sem er ekkert skemmtilegur. iTunes er frekar að keppa við "jukebox" forritin eins og WMP og MusicMatch og í þeirri samkeppni er iTunes að standa sig mjög vel. Þeir sem ég þekki sem hafa verið komnir í WMP með tónlistina sína og verið að skipuleggja, rippa, brenna og spila í honum þá er viðmótið þægilegra í iTunes.
Og svo er auðvitað snilld að geta share-að tónlist á milli véla á sama neti og spilað beint af þeim með streaming. Já og svo er þetta frítt! Ekki slæmt.


 21. október 2003 ( - grettir ) [H]
Já Winamp 3.0 er algjört crap. Ég er reyndar algjör mp3 sjúklingur og allt er raðað og taggað eftir kúnstarinnar reglum. Library-ið í Winamp hentar mér því bara ljómandi.

En ég hef ekki nennt að brenna, því spilarinn í bílnum spilar bara original diska, sem er reyndar vont, því maður á bara að vera með afrit í bílnum.


 21. október 2003 ( Oddur Snæ´r Magnússon ) [H]
langt best að nota bara winamp 2 og vera svo bara með ipod í bílnum ;)


 21. október 2003 ( - grettir ) [H]
Reyndar langar mig alveg geðveikt í svona iPod. Spurning um að byrja að semja jólagjafalistann :þ


 22. október 2003 ( Óli Fly ) [H]
Var að pæla í því að fá mér IPod um árið, að fannt nú aðeins of mikið að borga 60.000+ krónur fyrir 20 GB stykki.

Fór á netið og keyðti mér svona í staðinn: http://www.nomadworl d.com/products/Jukeb ox_ZenXtra/

Sé svo sannarlega ekki eftir því. Toppgræja sem er betur integruð í windows heldur en Ipod.


 23. október 2003 ( icelily ) [H]
MusicMatch er alveg að virka fyrir mig. Snilldarforrit sem leyfir mér að tagga og flokka eins og mig lystir.


 23. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ég var að prófa að setja inn nýjasta Winampinn, númer 5.


Helgarsprell án áfengis

Ritað þann:    20. október 2003
Efnisflokkar:  fyllerý  fyndið  sjónvarp  

Helgin var með rólegra móti, en hún litla systir mín var í heimsókn og sprelluðum við ýmislegt saman. Fórum í sund, átum McDonalds, fórum í matarboð og í Smáralindina. Maður fékk svona helgarpabba fílínginn, án þess að ég viti nokkuð hvernig það er. Sem er hressandi.

Á föstudagskvöldið var grillað og haldin veisla yfir Idol. Ég bjóst nú ekki við miklu af þessum Idol þætti. Horfði til dæmis ekki á American Idol, enda leiðast mér svona þvaður þættir. En íslenska Idolið finnst mér hin besta skemmtun og finnst Bubbi alveg stórkostlegur í hlutverki vonda kallsins *irony*.

Ef máltakið "Að kasta steini úr glerhúsi" hefði ekki verið til fyrir nokkrum misserum, þá hefði það verið fundið upp eftir að Bubbi fór að segja fólki að velja lög sem það getur sungið og er ég þá að vísa í háu tónana í nýjasta lagi Bubbans, þúsund kossa nótt. Ekki misskilja, Bubbi er stórgóður á köflum, en persónulega finnast mér fyrstu plöturnar alltaf standa upp úr. Ég er ekki að fíla þessar vælu melódíur sem hafa verið að koma undanfarið, ef undan er skilið lagið Kveðja á síðustu plötu kappans.

Að allt öðru. Ég hélt að símaöt í útvarpi væru löngu liðin undir lok, en Ding Dong eru bara með alveg ágætlega hressandi slík á morgnanna þegar ég er að vakna. Í morgun var þó eitt alveg illkvittið, en Doddi hringdi í stelpu sem lá veik heima, þóttist vera yfirmaður hennar og sagði henni að hún þyrfti ekkert að mæta aftur í vinnuna. Stelpugreyið fór að háskæla og Doddi varð ýkt vandræðalegur.

...
- grettir :: nokkrir vinir og vinnufélagar skulda feita afsökunarbeiðni í dag.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 20. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
já ertu farinn að æfa þig fyrir pabbahelgarnar... okkur fækkar nú stórlega þessum sem hafa ekki prufað þann pakkann...


 20. október 2003 ( - grettir ) [H]
Já kannski maður ætti bara að ættleiða eitt stykki. Eða ekki...


Stærri typpaling

Ritað þann:    16. október 2003
Efnisflokkar:  nördadót  

Barst í morgun tilboð í emili um að stækka typpalinginn fyrir lítinn pening. Nei, veistu, ég held ekki.

En þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ spam í ár og daga, en ég nota mailwasher til að hreinsa mailboxið mitt. Lítið næs forrit sem keyrir bara á tölvunni heima og hreinsar óværuna sjálfvirkt fyrir mig. Það sem betra er, það sendir sendandanum skilaboð um að þetta email sé ekki til (bounce).

...
- grettir :: óþolandi þetta spam drasl

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. október 2003 ( Durgur ) [H]
Já, þú segir nokkuð. Spam er eitthvað sem ég þarf að fást við í miklu magni á hverjum degi og hef ekki fundið græju enn sem virkar nægilega vel.
Er þetta jafn gott og þeir segja á síðunni sinni?


 16. október 2003 ( - grettir ) [H]
Já alveg merkilega gott. Það fer auðvitað smá vinna í það að búa til filtera fyrst, en svo er þetta bara helvíti fínt.


 18. október 2003 ( gunna ) [H]
Þar sem ég hef ekkert að segja um umræðuefni dagsins.... fór að prófa útlitin, að mínu mati gallar á fusion og coty, svartur texti á dökkum grunni og ljós texti á hvítum grunni er hrikalega erfitt að lesa, varstu nokkuð fyrir frama aftökusveit þegar myndin var tekin? ;), endaði að sjálfsögðu með gamla góða.....


 19. október 2003 ( - grettir ) [H]
Um að gera að fikta í þessu, takk fyrir ábendingarnar.

Hehe, nei, það var engin aftökusveit. Bara asskoti margir vodka redbull og klukkan orðinn fimm sex í Madrid í fyrra.


 25. október 2003 ( Finnur ) [H]
Verð nú að koma inn á þetta umræðuefni. Hef lengi háð mikla rimmu við þetta krabbamein tölvupóstsins. Fæ endalaust af "lánið þitt var samþykkt", "tippalíngurinn mun verða risastór", "víagra á botnprís" osfr. Prófaði ansi mörg tól til að fjarlægja þetta sjálfvirkt fyrir mig og það sem kom langsamlega best út var Outlook addin af Spambayes filtergræjunni. Flott tölfræðipæling með flokkun í "spam og ham" og tólið "lærir" stöðugt. Nánast feillaust frá fyrsta degi :
http://starship.p ython.net/crew/mhamm ond/spambayes/


 27. október 2003 ( - grettir ) [H]
hm, spurning um að prófa þetta hérna í vinnunni. Mailwasher-inn virkar bara á POP3, en Exchange-inn hérna í vinnunni leyfir það ekki.


 27. október 2003 ( Finnur ) [H]
Það sem er kannski gallinn við þetta tól og önnur sambærileg, er að það sækir allan ruslahauginn og flokkar hann svo, í stað þess að hreinsa beint af pop servernum. Það er kannski það sem þú ert að leita af. En alla veganna þetta virkar fínt fyrir mig heima, meðan ég finn ekkert flottara fyrir 0 kr.


Október frítt

Ritað þann:    14. október 2003
Efnisflokkar:  fimmaurar  

Norðurljósin auglýsa Stöð 3 af kappi þessa dagana og segja að þeir sem kaupi Stöð 2 fái Október frítt.

Ég er greinilega eitthvað að misskilja. Nú kaupi ég Stöð 2 og stóð í þeirri meiningu að auglýsingin þýddi að ég fengi áskrift að Stöð 3 í Október frítt, en það er nú bara ruglirugl í gangi.

Líklega meina þeir bara það sem þeir segja og maður fái Október frítt. Ég er mikið að spá í að nýta mér þetta tilboð. Ekki ónýtt að eiga heilan mánuð skuldlausan fyrir sig einan.

...
- grettir :: ætli maður geti rammað svona mánuð inn?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. október 2003 ( Mánaðarönd ) [H]
Já, það væri ekki slæmt að fá heilann mánuð sem maður gæti gert það sem maður vildi við.... bíddu heitir þetta ekki sumarfrí á mannamáli ?
Eru Stöð 2 að gefa sumarfrí ?


 15. október 2003 ( - grettir ) [H]
Hljómar þannig. Engin spurning um að nýta sér það.


 15. október 2003 ( icelily ) [H]
Var það ekki: ef þú gerist áskrifandi að Stöð 3 núna, færðu október frían? Heilir 15 dagar eftir ;o)

Er samt ekki sjúr á þessu.


Ermaloforð

Ritað þann:    13. október 2003
Efnisflokkar:  íþróttir  

Nú er ég búinn að skíta upp á bak með því að lofa Ægi að mæta galvaskur í gymmið klukkan hálf sjö í fyrramálið. Síðast þegar ég var vakandi svo snemma var ég ekki farinn að sofa.

Það verður sko farið í háttinn klukkan tíu í kvöld og ekkert múður.

...
- grettir :: kvíðir mikið fyrir...

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Riiiiiiiiiiiiiiiight ;o)


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
Hahaha, ég mætti sko galvaskur. Núna er ég reyndar að andast úr þreytu og verð líklega kominn í bólið klukkan 9.


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Æsjítt, þarna tapaði ég veðmáli.

Heppin ég að ég veðjaði við sjálfa mig ;o)


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
Gæti verið að þú ynnir næst. Stefnan er núna sett á annan hálf sjö morgun í fyrramálið.


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Veðbankinn hefur verið opnaður!


 14. október 2003 ( Ægir pípari ) [H]
BÍDDU NÚ VIÐ aftur á morgun? Þetta er þá í alvöru þá, whoa gæti verið komin í whole lotta trouble hér gæti meira segja þurft að borga í morgen
by the way i´ll be there dude


 15. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ég er aumingi.


 15. október 2003 ( icelily ) [H]
Hvað? Mættirðu ekki?


 15. október 2003 ( - grettir ) [H]
Neibb. Það kom ekkert vakn.


 15. október 2003 ( icelily ) [H]
pppppppppffffffffttt tttttttt........


 16. október 2003 ( Ægir pípari ) [H]
Grettir minn var of mikið að skokka þessa 200m ég hef bara ekki séð þig síðan maður hefði nú haldið að maður í þínu formi þyrfti ekki að vesenast með harðsperrur eða er þetta bara of snemmt fyrir svona tölvugauka eins og þig?
Annars bara kveðja Ægir


 17. október 2003 ( - grettir ) [H]
ég þarf minn svefn...


 18. október 2003 ( icelily ) [H]
Bjútíslíp :Þ


 19. október 2003 ( icelily ) [H]
bjútíslíp? :Þ


Tómt píp

Ritað þann:    13. október 2003
Efnisflokkar:  fyndið  líðandi stund  

Vaknaði frekar úrillur í nótt við eitthvað anskotans píp. Fór fram og hélt að tölvan mín væri að eipa. Það var ekki. Svo heyri ég að nágrannarnir eru komnir á stjá og hélt þá að sjálfsögðu að þeir væru með eitthvað píp, þegar ég allt í einu heyri að þetta kemur úr stofunni minni.

"Aahh," hugsa ég, "helvítis reykskynjarinn að verða batteríislaus." Ég fer inn í stofu, en fatta þá að reykskynjarinn er frammi á gangi. "Djöfullinn er þetta?" hugsa ég, allsber og orðinn mjög úrillur. Þá kemur eitt hávært píp í viðbót af stofuborðinu.

Sökudólgurinn? Þráðlausi heimilissíminn að verða batteríislaus. Og það átti sko ekki að fara framhjá neinum í götunni.

...
- grettir :: "þetta leikrit er hvort sem er bara tómt píp" - Harrý og Heimir

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
ég held að það séu einhverjir pípandi batteríslausir eftir ballið á laugardaginn...


 13. október 2003 ( - grettir ) [H]
Þar á meðal ég. Var ekkert yfir mig hress í gær.


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Ha? Allsber??


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ekki sefur þú í klæðnaði?


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Nei, en það er ekki til umræðu hér. Tókstu myndir? :Þ


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
hehe, nei.. skal reyna að muna það næst.


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Já, hvernig væri það?


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
það væri kinký, en það er svo skemmtilegt :þ


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Kinky er nauðsynlegt.

Úff, týndist alveg í útlitum. Búinn að breyta tenglunum allverulega. Ég finn ekki baun! (Var reyndar ekki að leita að baun, but you know what I mean)


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ach so... man það núna að ég átti eftir að laga linkasíðuna.

Geri það í kvöld ef ég nenni :-)


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Þá fyrir níu?

Muahahahahaha :Þ


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
Æjá, ég ætlaði snemma að sofa. Oh, well..


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Er það bara ég, eða erum við orðin einhverf á þessu commentskerfi? O.O


 14. október 2003 ( - grettir ) [H]
Hehe, já. Erum við svona leiðinleg að enginn nennir að vera með?


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Þetta er allt í lagi meðan við höfum hvort annað *fiðluspil*


Byltingarkennd nýjung

Ritað þann:    10. október 2003
Efnisflokkar:  vefurinn  

Nýjum fídus hefur verið bætt við hérna á bestu síðu í heimi, ef ekki geimi. Nú getið þið skipt um útlit á síðunni með því að velja "Útlit" valmöguleikann.

Endilega vafrið um útlitin, segjið ykkar álit og fyrir alla muni látið mig vita ef eitthvað er bilað. Ein af nýjungunum er sú að nú má sjá mynd af stráknum á veraldarvefnum, how about that?

Nú, eitthvað fleira er nýtt.. skoðið bara.

...
- grettir :: ferskur sem aldrei fyrr

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 10. október 2003 ( Ægir tuðari ) [H]
bannað að breyta því sem gott er og hana nú, nema hvað er ég klikkaði á þig birtist skvísa sem var bara meget gott. hvar var þetta á spáni?


 11. október 2003 ( - grettir ) [H]
Það er aldrei verra að það birtist pæja þegar þrýst er á mig ?!


 11. október 2003 ( icelily ) [H]
Finnst þetta gamla best.

Annars er dálítið ruglandi að commentin eru ekki lengur litaskipt.

Nema ég sé bara rugluð..... o.o


 11. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ég er að vinna í að fínstilla þetta. Litaskipt segirðu, sjáum hvað við getum gert í því...


 11. október 2003 ( Ægir tuðari ) [H]
hvað er þetta
innskráning dót ég vil vita ef ég má


 12. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ef þú ert grettir (sem þú ert ekki :-), þá gefur þetta færi á að slá inn nýtt bull.


 13. október 2003 ( icelily ) [H]
Þessi strik gera allan mun ;o)


 13. október 2003 ( - grettir ) [H]
það eru litlu hlutirnir sem gleðja mann svo mikið sjáðu.... :-)


 14. október 2003 ( icelily ) [H]
Nákvæmlega :o)


Fyndnasti skítur í heimi

Ritað þann:    10. október 2003
Efnisflokkar:  netið  þjóðarrembingur  

Ég fer ekki ofan af því, að baggalútur er bara fyndnasta síða í heimi, ef ekki á öllu Íslandi.

Nú hafa þeir sett saman stuðningslag til að hvetja landsliðið í fótbolta. Þetta lag ætti umsvifalaust að verða nýji þjóðsöngur Íslands, enda er þjóðsöngurinn okkar bæði ófyndinn og illlæranlegur. Eilífa smáblóm skáblóm.

...
- grettir :: áfram Ísland

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Geiflur

Ritað þann:    09. október 2003
Efnisflokkar:  ég  

Jæja, þá er komið að hinu óumflýjanlega, tannlæknirinn vill skoða geiflurnar í dag og athuga hvort að hann geti ekki stækkað hjá sér baðið.

Ég vil meina að ég sé búinn að vera svo þægur að bursta og græja á þessu ári að hann hafi í mesta lagi efni á bjórkippu eftir heimsóknina. En á þessum tímamótum held ég að það sé rétt að rifja upp þegar ég lét taka endajaxlana

...
- grettir :: maður er samt alltaf pínu stressaður

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 09. október 2003 ( - grettir ) [H]
hahaha, engar holur. Rafmagnstannburstinn er sko fyrir löngu búinn að borga sig...


 09. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
til hamingju með það... þarftu ekki að halda upp á þessi tímamót ... t.d. með því að fá þér í könnu....?


 10. október 2003 ( - grettir ) [H]
Svei mér þá ef það væri ekki hressandi.


Hin árlega leikhúsferð

Ritað þann:    07. október 2003
Efnisflokkar:  ég  líðandi stund  vinnan  

Um næstu helgi stendur til að kíkja í leikhús með vinnufélögunum. Síðast þegar ég fór í leikhús sá ég Panódíl fyrir tvo, núna á að sjá Erling. Þannig að það má eiginlega segja að ég fari nánast bara á leiksýningar með Jóni Gnarr, ekki beint þessi leikhústýpa, hann ég.
Í fyrra var vinnustaðar leikhúsferð til Hafnarfjarðar að sjá eitthvað leikrit sem ég man ekki hvað heitir vegna þess að ég gleymdi að mæta, gleyminn hann ég. Gleymdi til dæmis að mæta í próf á föstudaginn, en það er önnur saga.

...
- grettir :: finnst ég vera að gleyma einhverju

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 07. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
ekki gleyma ballinu í þorlákshöfn city næstu helgi... hestamannaball.. country!!!


 07. október 2003 ( - grettir ) [H]
Ég skal reyna að muna það :-)


 08. október 2003 ( icelily ) [H]
Hefurðu séð myndina Elling?

Brilliant ræma!


 08. október 2003 ( - grettir ) [H]
Nei, hún hefur alveg farið framhjá mér...


 08. október 2003 ( Una ) [H]
ætla einhverjir að fara á ballið í Cityinu?


 08. október 2003 ( - grettir ) [H]
Það er aldrei að vita nema maður bregði sér. Fer eftir heilsu á lau.


 08. október 2003 ( Una ) [H]
Já, ég held að ég geri það sama.


 08. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
hvurslax... auðvitað mæti ég... hljónstræng maðr.... HGBH... missi ekki af því


 08. október 2003 ( Tobbi ) [H]
Hesta hvað????


 08. október 2003 ( - grettir ) [H]
Það er verið að vígja nýja reiðhöll :þ


 09. október 2003 ( Srosin ) [H]
Ohh...mig langar líka :(


 09. október 2003 ( Tobbi ) [H]
glæsilegt, stórkostlegt framtak, nú getur Þorlákshöfn farið að flytja inn hljómsveitir eins og Whitesnake, sem spilaði einmitt í reiðhöllinni í Víðidal. Man það eins og gerst hefði í gær, David égmanekkihvaðheitir og Steve Wai voru geðveikir!!!!!! Frábærir tónleikar, man reyndar ekki eftir neinu tilteknu lagi..........merkilegt hvað minnið klikkar þegar maður á von á sér.


 09. október 2003 ( - grettir ) [H]
Say what! Ertu að fara að fjölga þér?


 09. október 2003 ( Tobbi ) [H]
Jú jú einhvern æxluðust hlutirnir þannig að ég barnaði frúnna. Í upphafi desembermánaðar er svo von á að erfinginn að Ásakoti II horfi upplitsdjarfur framan í stolta foreldra.


 09. október 2003 ( hressi gaurinn ) [H]
ásakot... heitir þetta ekki Selfork!!!


Andlát

Ritað þann:    02. október 2003
Efnisflokkar:  vefurinn  vinnan  

Í fimmta skipti á tveimur árum gaf vinnutölvan mín upp öndina. Hingað og ekki lengra og ég fékk nýja tölvu í morgun, splendid vél með innbyggðum skrifara og þráðlausu netkorti. Já, nú er gaman að vera ég.

Annars er ég að vinna í breytingum á síðunni svo ekki láta ykkur bregða þó að allt verði bilað innan skamms..

...
- grettir ::

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. október 2003 ( Blaise Pascal ) [H]
Rosalega ferðu illa með tölvur


 03. október 2003 ( - grettir ) [H]
Hehe, það verður að láta þetta vinna...


Sniðug leið til að hafa af manni pening

Ritað þann:    01. október 2003
Efnisflokkar:  fyndið  neytendur  nöldur  

Gíróseðlar og svoleiðis drasl kemur aldrei til mín fyrr en bara daginn áður en gjalddagi rennur upp, svo það sé smá séns að maður gleymi að greiða eða sé búinn að eyða peningnum í vitleysu.

Nú var ég að fá ástarbréf frá Tollstjóra þar sem hann heldur því fram að ég skuldi fasteignagjöld. Mig endilega minnti að ég hafi greitt seðilinn og finn færsluna í einkabankanum. Finn svo gíróseðilinn og sé að ég hef krassað á hann greitt. Hvað er þá vandamálið? Hugsa ég og strýk hökuna og set upp spökuleringasvipinn, sem er alger sparisvipur og notast helst ekki nema á tyllidögum.

Þá rek ég augun í línu neðarlega á greidda seðlinum: "Vinsamlega gerið upp eldri skuld". Hvaða eldri skuld? Ég var ekki einu sinni fluttur inn þegar ég greiddi þennan seðil, hvað þá að ég eigi einhvern eldri ógreiddan!

...
- grettir :: útburður í nánd...

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. október 2003 ( LaLibra ) [H]
Þú ert sko ekki einn um það að fá þessa greiðsluseðla alltaf á síðasta degi eða daginn áður... ég fæ þá svona líka *ARG* og daginn eftir gjalddaga *PIRR* Álög I tell U!!!!!!!!!


 06. október 2003 ( - grettir ) [H]
Þetta eru pottþétt samantekin ráð hjá þessum anskotum til að hala inn dráttarvexti.