1 til 23 af 23
Vinstra vor
Ritað þann: 28. janúar 2009
Efnisflokkar: pólitík
Einu sinni hélt ég að það færi allt til andskotans ef hér kæmist vinstri stjórn til valda.
Nú er allt farið til andskotans án þeirra aðstoðar. Ég hef gert mig sekan um að kjósa hægri öll þessi ár sem ég hef haft kosningarétt og ekki séð í gegnum vinapólitíkina og spillinguna því mér var talið í trú um að hér væri allt svo frábært en yrði það ekki ef hér væri vinstri stjórn.
Óp særða mannsins er eins og þögn við hliðina á vælinu í Sjálfstæðismönnum í dag sem kenna Samfylkingu um að stjórnin hélt ekki.
Vita þeir ekki að engin treysti þessari stjórn lengur og þeir ættu frekar að reyna eigna sér heiðurinn af því að hafa slitið þeirri stjórnarómynd sem var hér við völd.
Nú sjáum við til hvort allt fer lengra en til andskotans þegar vinstri komast til valda.
Ég þurfti að vera bíllaus í dag, konan heima og ég fékk hana til að skutla mér í vinnuna með hjólið í skottinu enda gekk svo vel að hjóla heim á fimmtudag að ég er að spá í að gera þetta nokkrum sinnum í viku til að halda mér í formi.
Í morgun vildi þó ekki betur til en að aðeins annað heilahvelið var vaknað og ég gleymdi lyklunum að hjólinu heima. Hjólið er því læst hérna úti á plani og ég þarf að biðja elskulega eiginkonu mína að sækja mig og hjólið.
Vonandi gengur þetta betur á morgun.
Slæm tíðindi fyrir efnahagslífið
Ritað þann: 26. janúar 2009
Efnisflokkar: fréttir kaldhæðni
Ég var að renna yfir fréttir í morgun og rakst á grein á vb.is:
Jöklabréfaeigendur uggandi vegna ástandsins á Íslandi
Greinin lýsir því hvernig eigendur jöklabréfa hafa áhyggjur af aurunum sínum á meðan stjórnmálaástandið er í lausu lofti á Íslandi. Um miðja grein kemur þessi gullna setning:
Heimildir á Íslandi hermi að líklega verði mynduð bráðabirgðastjórn og síðan verði kosningar innan nokkurra mánaða. Sennilega muni pólitískt vald færast til vinstri sem kunni að boða slæm tíðindi fyrir umhverfi efnahagslífsins.
Hægri stefnan hefur einmitt haft svo góð áhrif á efnahagslífið undanfarin 20 ár.
Annars er vandséð hvernig hægt er að flokka pólitíkina hérna hægri og vinstri. Þeir sem eru við völd reyna bara að ota sínum tota, ráða vini sína í vinnu hjá ríkinu og báknið stækkar og stækkar.
Í dag er ég bóndi og ég á bestu húsfreyju landsins og þó víðar væri leitað.
Í morgun fékk ég pakka í tilefni bóndadags. Ekki einn, heldur tvo pakka. Í öðrum þeirra voru aukahlutir í
fjarstýrða bílinn sem hún gaf mér í afmælisgjöf og í hinum var bjórkippa.
Hún þekkir bónda sinn vel. Ekkert blómarugl.
Drengnum mínum fannst ómögulegt að gefa mér ekki neitt, svo hann dreif sig inn í herbergi og pakkaði inn einn seríu af Simpsons og gaf mér :D
Klukkan 9 var svo pabbakaffi á leikskólanum. Stúlkunni minni fannst sko ekki leiðinlegt að hafa pabba sinn með sér í heilan klukkutíma á leikskólanum.
Margir auðmenn eiga um sárt að binda
Ritað þann: 22. janúar 2009
Efnisflokkar: kjánalegt
Á þriðjudag loguðu eldar á Austurvelli og alþingismenn flúðu heim til sín í gegnum "leynigöng". Tugir voru handteknir í einum mestu mótmælum sem sögur fara af á okkar annars friðsæla landi.
Það kvöld ákveður Stöð 2 í þættinum "Ísland í dag" að draga upp glansmynd af verðandi ráðherra, Bjarna Benediktssyni, Sjálfstæðisdindli og frænda Björns Bjarnasonar. Bjarni er einnig eigandi N1 bensínbúllunnar.
Horfið á
þetta og grátið eða hlægið. Ykkar er valið.
Ég leyfi mér að vitna í þáttinn:
Margir í hópi auðmanna eiga nú sárt um að binda vegna hlutabréfakreppunnar.
Væri ég með áskrift ennþá myndi ég segja henni upp.
Leynigöng frá Alþingi ekki lengur leyni
Ritað þann: 22. janúar 2009
Efnisflokkar: fréttir fyndið
Ég hélt að tilgangurinn með
leynigöngum væri að vera "leyni". Nú eru þau bara göng.
Það verður einhver bið á því að Grétari Mar verði treyst fyrir leyndarmálum þingsins.
Með því að spara í efnahagsbrotadeildinni hefur dómsmálaráðherra
getað nurlað saman fyrir táragasi.
Áherslurnar eru skýrar. Þjófar og spilltir pólitíkusar skulu koma öllu sínu undan. Lýðurinn sem fær reikninginn skal barinn til hlýðni.
Hugmyndin okkar um að flytjast af landi brott varð að plani eftir fréttalesturinn í morgun.
Bless Haarde.
Við erum búin að reyna að vera á einum bíl undanfarnar tvær vikur og gengur hreint ekki vel, enda vinnum við í sitthvoru bæjarfélaginu með mislangan vinnudag. Sjaldan næ ég að skila fullum vinnudegi með því fyrirkomulagi og því nokkuð ljóst að ég þarf að "gera við" gamla bílinn - en það felur í sér að kaupa nýjan rafgeymi.
Gallinn við rafgeyma er að þeir eru innflutt lúxusvara.
Ég fæ illt í veskið við tilhugsunina.
Vísað frá vegna formgalla
Ritað þann: 21. janúar 2009
Efnisflokkar: skandall
Hvernig má það vera að heilt embætti sem hefur þann eina starfa að búa til og gefa út ákærur
kunni það ekki betur en svo að málum er sífellt vísað frá vegna þess að þær eru vitlaust gerðar?
Ég ætla allavega ekki að halda niðri í mér andanum á meðan embættið gefur út ákærur á hendur þeim sem rústuðu efnahagslífi landsins.
Tannlæknir
Ritað þann: 20. janúar 2009
Efnisflokkar: fjölskyldan
Börnin mín fóru til tannlæknis klukkan átta í morgun. Á venjulegum morgni erum við um það bil að skríða fram úr rúminu á þessum tíma eða erum með andlitið ofan í grautarskálinni, svo það var gríðarlegt átak að koma sér á fætur.
Allar tennur voru heilar enda finnst þeim skemmtilegt að bursta og vera burstuð.
En þetta minnti mig á það að ég þarf að fara drífa mig til tannlæknis, hef ekki farið í eitt og hálft ár, því ég gleymdi að tilkynna tannlækninum nýja símanúmerið mitt og hann hefur ekki hringt (skrýtið) í mig ennþá til að boða mig í eftirlit.
Getum við borgað 2200 milljarða?
Ritað þann: 19. janúar 2009
Efnisflokkar: kreppa
Samkvæmt fréttaskýringu
moggans um daginn skuldum við rúma 2200 milljarða eftir bankahrunið.
Afgangur fjárlaga
árið 2005 var 10 milljarðar en það var
besta ár allra ára samkvæmt iðnaðarráðherranum okkar.
Það gerir greiðsludreifingu upp á 220 ár og þá á eftir að borga vexti.
Börnin okkar, barnabörnin og börnin þeirra eiga ekki eftir að tala við okkur ef við skiptum ekki um ráðamenn strax og frystum eignir þeirra sem stálu af okkur þessum peningum.
RS vírus
Ritað þann: 19. janúar 2009
Efnisflokkar: börnin
Dóttir mín er búin að vera lasin síðan á þriðjudag og hafði náð sér í hinn hressa RS vírus. Það er víst ekkert hægt að gera nema auðvelda henni hóstann með sterapústi og hafa hana heima.
Hún ætti að geta farið á leikskólann á morgun.
Ég var í sundi í gær. Ég lá í pottinum og lét áhyggjur og hálsríg líða út í heitt vatnið þegar þroskaheftan mann ber að garði.
Góðan daginn! segir hann hátt og snjallt við alla viðstadda.
Viðstaddir muldruðu eitthvað á móti sem hljómaði eins og góðan daginn.
Sá þroskahefti fær sér sæti og situr góða stund áður en hann segir: Og hvernig líst ykkur svo á kreppuna? Eins og hann væri að tala um veðrið.
Svo segir hann allt í einu og ekki eins glaður: Ljóta ástandið þarna á Gaza!
Þá allt í einu fattaði ég hverslags aumingjar við erum hérna á klakanum. Við vælum yfir kreppu á meðan sprengjum rignir yfir allt sem hreyfist þarna í Gaza borg.
Eina sem við þurfum að gera er að ýta þessu óhæfa liði út úr Alþingishúsinu og frysta eignir auðmanna.
Eftir hverju erum við að bíða?
Tölvuverið niðri
Ritað þann: 15. janúar 2009
Efnisflokkar: vefurinn
Tölvuverið á Háteigsveginum lagðist í dvala í dag. Ég var að installa einhverju drasli á serverinn sem hrærði eitthvað í netkortinu. Routerinn lokaði þá á ip töluna sem serverinn er á og úthlutaði honum nýrri, sem ég fattaði auðvitað ekki að kanna.
Til að gera langa sögu stutta, þá náðist ekki samband við vélina og ég þurfti að drösla skjá og lyklaborði inn í kompu til að koma netsambandi á að nýju.
Til að gera langa sögu enn styttri:
If it works, don't mess with it.
Þá er það komið á hreint. Konan mín fékk inn í háskólanum og hóf nám í hjúkrunarfræði í vikunni. Samhliða því minnkar hún starfshlutfallið í vinnunni í kópavogi og færir sig meira inn á spítalann, sem er gott, því hann er hérna í næsta húsi.
Hún er farin að safna háskólagráðum þessi elska.
Þegar því námi er lokið þarf ég að fara að kanna hvort ég ætti ekki að læra meira. Þá "þurfum" við kannski að flytja af landi brott - að minnsta kosti tímabundið.
Það gæti orðið gaman.
Það gleymdist alveg að fara í líkamsrækt í desember enda margt þarfara við tímann að gera á þeim tíma en að vera með blóðbragð í munni og svitastorkna boli í íþróttatösku.
Nei, í desember var étið og slakað á.
Í morgun er ég búinn að vera með hálsríg í næstum heila viku, enda búinn að liggja eins og lakkrísrör í sófanum í jólafríi. Síðasta vika var sú erfiðasta í áraraðir og mig hryllir eiginlega við tilhugsuninni að ég eigi eftir að vinna í rúmlega 30 ár áður en ég get legið í hengirúmi á einhverri suðrænni eyju með kókoshnetu í annarri og góða bók í hinni.
Alla vega, öll slen styttir upp um síðir og ég drattaðist loks í ræktina í dag og komst að því að reykta og salta kjötið hefur unnið sína vinnu vel í kringum hátíðarnar og ég hef sett á mig næstum tvö kíló.
Ég er ekki frá því að hálsrígurinn sé nokkru betri eftir sprettinn og vikan verður eflaust skárri en sú fyrri. Þessi tvö kíló eru líka hvort sem er bara vökvasöfnun eftir hangiketið og eiga eftir að enda í niðurfallinu í sturtuklefanum í form svita, svo ég kvíði engu.
Svo kemur sumar og maður verður búinn að gleyma því hvað maður var stirður í janúar og fer að borða grillkjöt og drekka bjór í hvert mál.
Hlakka til.
Ég fór með börnin í ævintýraferð í gær til að koma í veg fyrir að við rykféllum í sófanum á meðan Margrét er í vinnunni.
Við pökkuðum saman útifötum og héldum út í Heiðmörk, skoðuðum Rauðhóla og Elliðavatn. Í Heiðmörk var svo mikil hálka að ABS og skrikvörnin unnu yfirvinnu við að halda okkur á réttu róli. Við vorum heppnari en óþolinmóði ökumaðurinn fyrir aftan okkur, sem komst ekki upp eina brekkuna, sem honum lá þó töluvert á að vera á undan okkur upp.
Eftir Heiðmörkina ætluðum við að hlaupa í sandfjörunni fyrir neðan Grafarvog, en ákváðum óvænt að skreppa út í Gróttu. Þar fengu krakkarnir að hlaupa í fjörunni og henda steinum í sjóinn. Það var æðislegt að finna fyrir salt rokinu í andlitið.
Eftir svona dag er ekkert smá erfitt að vakna á mánudegi og fékk snúshnappurinn að finna fyrir því í morgun. Ég hrökk upp korter yfir átta - en þá voru allir íbúar hússins enn í fastasvefni. Drengurinn borðaði morgunmat á nýju Íslandsmeti og ég skutlaði honum í skólann áður en ég sótti konurnar á heimilinu.
Við erum einbíla þessa dagana þar sem rafgeymirinn í gamla bílnum er alveg steindauður. Við erum svona að gera það upp við okkur hvort við eigum að tíma að splæsa í nýjan (kostar meira en bíllinn) eða hvort við eigum að taka kreppuna á þetta og vera á einum bíl.
Sjáum til.
Við vorum að fá ansi spennandi fréttir sem eiga eftir að breyta ansi miklu hjá okkur hjónum.
Meira um það síðar.
Annars er vinnuhelgi hjá Margréti núna og við erum að reyna að hafa það gott ég og krakkarnir í hennar fjarveru. Djúpsteiktum okkur til dæmis þorsk í gærkvöldi og fengum okkur piparkökuhús í eftirrétt.
Í dag brugðum við okkur í Kringluna og í Nammiland - fyrst það er nú laugardagur. Það virðist hafa frést, að það væri laugardagur þ.e.a.s. og það var varla hægt að komast að nammiboxunum.
Drengurinn minn smeygði sér því lipurlega á milli nammifíkla og mokaði í poka fyrir sig og systur sína.
Eftir þessa svaðilför þrifum við bílinn. Eftir þvott komumst við að því að hann var svartur en ekki malbiksryk grábrúnn. Upplýsandi það.
Skelfilegt fyrir landsmenn að upplifa þetta
Ritað þann: 08. janúar 2009
Efnisflokkar: kaldhæðni
Mjúka lending hagkerfisins
Ritað þann: 07. janúar 2009
Efnisflokkar: kaldhæðni
Þann 3ja apríl 2007
skrifaði ég smá raus um íbúakosninguna í Hafnarfirði vegna stækkunar álversins í Straumsvík.
Þar nefni ég að bankarnir hafi talað um að líkurnar á mjúkri lendingu hagkerfisins hafi aukist þegar íbúar Hafnarfjarðar kusu gegn stækkun.
Vitandi það sem við vitum öll í dag - að greiningardeildir bankanna töluðu með rassgatinu - þá veit ég hreint ekki hvernig hefði farið ef um harða lendingu hefði verið að ræða.
Í þessum sama pistli stakk ég upp á því við myndum leggja niður Davíð, krónuna og Seðlabankann. Þann 3ja apríl var gengisvísitalan í 120. Í dag er hún 216. Evran kostaði 88 krónur en kostar í dag 187 krónur.
Seðlabankinn er okkur dýr.
Ég er ekki að segja að við værum ekki í kreppu ef á mig hefði verið hlustað, en við værum kannski ekki í 18% verðbólgu og í gjaldeyriskreppu. En þið vitið, ég er alveg til í að þiggja greiðslur fyrir góð ráð. Einhver erlendur sérfræðingur sagði í haust að hagkerfi landsins hefði verið betur borgið þó að fólkið við stjórnvölinn hefði verið valið af handahófi úr símaskrá.
Ég er reyndar ekki í símaskrá, en ég er vissulega af handahófi.
Spurning um að stofna flokk og hreinsa út úr stjórnarráðinu.
Fréttir sem týnast
Ritað þann: 06. janúar 2009
Efnisflokkar: skandall
Ég nota
Google Reader nánast eingöngu fyrir fréttalestur nú orðið, enda frekar leiðingjarnt að heimsækja allar fréttasíður til þess eins að fá sömu fréttirnar eða engar uppfærslur frá því síðast.
Google Reader geymir upplýsingar um fréttirnar um leið og þær berast og "man" þess vegna villur í fyrstu útgáfu frétta og fréttir sem "týnast".
Eins og þessi frétt um Björgólf:
Smelli maður á fréttina fær maður þau skilaboð að engin frétt finnist með þessu númeri.
Mbl og Morgunblaðið eru að verða minna traustsins verðir en DV.
Hvernig fer dagblað að því að
skulda á fimmta milljarð? Hvar eru þessir peningar?
Skuldirnar lenda svo á nýju ríkisbönkunum og almenningur borgar brúsann. Það lengist alltaf skuldahalinn sem Bjöggarnir skilja eftir hér á landi.
Kommatittur eða Sjálfstæðisdindill
Ritað þann: 05. janúar 2009
Efnisflokkar: pólitík skandall
Helvítis kommatittur! görguðu tveir sjálfstæðisdindlar á
Gamlársdag á mótmælendur á Austurvelli og munduðu hnefana. Þegar upp um þá komst og þeir nafngreindir
báru þeir við sjálfsvörn.
Merkilegt nokk er að hnefar frjálshyggjunnar virðast vera í vinnu hjá ríkinu.
Sá eldri er hagfræðingur í Seðlabankanum og vinnubrögðin við hagstjórn landsins að komast í dagsljósið. Hvernig skyldi sá sem bregður upp hnefa á móti hóp sem er hann er ósammála bregðast við gagnrýni í sinni vinnu?
Ég held að sjálfstæðisdindlarnir ættu að hætta að gaspra það að VG og kommar standi á bakvið mótmæli í landinu, því samkvæmt öllum skoðanakönnunum rýkur fylgi VG upp dag frá degi - hvort sem það er vegna þess að fólk vill mótmæla eða kannski vegna þess að VG kom hvergi að hruninu.
Vegna þess að þeir eru alltaf á móti öllu auðvitað.
Kannski er betra að vera á móti en að vera með og vita ekkert í sinn haus.
Ágætis
ræða Einars Más segir flest af því sem allir eru að hugsa en koma ekki orðum að.
Það kemur að því að kommatittur verður ekki neikvætt orð á Íslandi heldur hrósyrði.
Ég skammast mín allavega fyrir það í dag að hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn í öll þessi ár og hleypt þessum mönnum að kjötkötlunum. Núverandi fylgi flokksins liggur örugglega allt á ríkisspenanum og neitar að fara.
Það sorglega við þetta er að ég er í raun hægri sinnaður. Það er bara ekkert hægri lengur í Sjálfstæðisflokknum. Og ekkert vinstra heldur. Bara eiginhagsmunapot og malbikun að eigin heimreiðum.
Þetta þarf að vinna hratt sagði yfirmaður spillingamála hjá flokknum þegar talað er um að afskrifa skuldir kvótagreifana. Að vinna hratt er einmitt þeirra aðalsmerki þegar kemur að því að sópa skít undan eigin rúmi og að útidyrum almennings.
Hvað með að vinna hratt að því að koma verðtryggingunni af og leggja niður lífeyrissjóðina?
Gleðilegt ár
Ritað þann: 05. janúar 2009
Efnisflokkar: annáll
Gleðilegt ár kæru lesendur. Árið var viðburðaríkt sem aldrei fyrr og ætla ég að renna yfir það helsta.
Fyrir réttu ári byrjuðum við að pakka búslóðinni saman vegna breytinga á íbúðinni sem við vorum búin að plana til að fá auka barnaherbergi. Breyta átti tveimur samliggjandi stofum í eitt alrými með eldhúsi og breyta gamla eldhúsinu í herbergi.
Búslóðinni var komið fyrir í tveimur herbergjum og svo var parketið rifið af. Þá kom í ljós að allar hitalagnir voru handónýtar, gólfið var mishátt á milli herbergja og eftir miklar þreifingar var ákveðið að flota og skipta um hitalagnir. Búslóðin var því sett í gám í garðinum.
Það sem átti að taka mánuð tók þrjá mánuði og verki loknu var búið að skipta um allt í íbúðinni. Við fluttum inn aftur í byrjun apríl og notuðum þann mánuð vel til að koma okkur fyrir.
Þann 25. mars giftum við okkur. Sýslumaðurinn í skógarhlíðinni las fyrir okkur stutt og laggott hvað fælist í því að vera í hjónabandi, hverjar okkar skyldur væru gagnvart heimilinu og fjölskyldunni og lýsti okkur svo hjón.
Það var gaman.
Á vormánuðum fórum við í árshátíðarferð með vinnunni til Bilbao á Spáni. Á þeim tíma kostaði Evran 120 krónur og þótti mikið.
Sumarið byrjaði ekki vel, en þá var lögð niður deild í bankanum sem ég hafði verið að vinna fyrir frá því um haustið 2007. Ég var því verkefnalítill til skamms tíma en notaði tímann til að huga að eldri verkefnum og sinna nokkrum málum sem voru á skrifborðinu.
Í byrjun júní fékk konan mín tækifæri til að kynna niðurstöður rannsóknar sem hún hefur verið að vinna að í Zagreb í Króatíu. Á sama tíma rofaði til í verkefnamálum og fékk ég það verkefni að reka og hugsa um kerfi í bankanum sem var orðið munaðarlaust eftir uppsagnir þá um vorið.
Sumarfríinu eyddum við á Tenerife. Ein vika í sól og blíðu með krakkana. Sumarfríið notuðum við líka til að halda veglegt brúðkaupspartý í garðinum fyrir fjölskyldu og vini. Veðrið og veislan hefði ekki getað heppnast betur.
Um haustið fór allt í fokk í þjóðfélaginu. Stjórnvöld og auðmenn sendu þjóðina út í skuldafen sem sér ekki fyrir endann á. Grundvöllur hefur skapast til að sparka í púnginn á ráðamönnum og auðmönnum hvar sem til þeirra næst.
Jólin voru með besta móti. Ég tók mér frí milli jóla og nýárs og 2. janúar og náði þess vegna heilum 13 dögum í samfelldu fríi. Við héldum okkar þriðju jól á háteigsvegi. Í ár prófuðum við að elda purusteik sem heppnaðist alveg hreint með afbrigðum vel. Á jóladag skelltum við upp smá kökuboði fyrir fjölskylduna og á annan í jólum fórum við að venju í sveitina til ömmu og afa.
Áramótin voru með besta móti. Leiðinlegasta þætti ársins var sjálfhætt þegar mótmælendur gengu berserksgang um tæki og tól auðvaldsins við lítinn fögnuð hagfræðings úr seðlabankanum sem hótaði að banka litlar stelpur og hafði með sér svæfingalækni til verksins.
Ísland í dag er ekki það Ísland sem var fyrir ári.
Áramótaskaupið var afar hressandi. Ég ætlaði að segja að skaupið hafi verið mun betra en árið, en þegar ég fór að rifja árið upp, þá var það ekki alslæmt. Ég er allavega feginn að sparifé okkar hjóna liggur á gólfinu sem parket og hangir á veggnum sem eldhúsinnrétting. Það hefði getað verið í Sjóði 9.
Á nýársdag buðum við vinafólki í hamborgarhrygg og svínalund. Góð byrjun á vonandi góðu ári. Ári breytinga.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.