1 til 10 af 10
Morgunblaðið - bezt í heimi?
Ritað þann: 30. janúar 2008
Efnisflokkar: fréttir
Hlýnun jarðar
Ritað þann: 29. janúar 2008
Efnisflokkar: fimmaurar
Ég er nú farinn að halda að þetta Global Warming sé eitthvað blöff.
Ég sá allavega ekki út úr augum í morgun fyrir snjókomu.
Sagt er frá því á mbl áðan að
fólk hafi mætt til að mótmæla því að spillingarkrákurnar sem voru hraktar frá völdum í október hafi náð að hrifsa til sín brauðið að nýju.
Að venju eru moggabloggararar eins og arfi á fjóshaug yfir þessum fréttum og skiptast í tvær fylkingar, fólki sem finnst þetta valdníðsla og svo þá sem kjósa alltaf íhaldið sama hversu ódýrt þeir selja sál sína fyrir völd.
Fólkið í seinni hópnum er hneykslað á þessum barnalátum og skilur ekki hvers vegna flokkurinn þeirra má ekki gera það sem honum sýnist. Spyr hvar þessir mótmælendur hafi verið í haust, bendir á að þetta fólk hafi verið lýðræðislega kosið og þar fram eftir götunum.
Nú kann að vera að þetta fólk sé lýðræðislega kosið, en ætti ekki sá sem flest atkvæðin fékk að sitja í hæsta stólnum?
Því er einnig auðsvarað hvar mótmælendurnir voru í október. Þeir sem hefðu hugsanlega vilja mótmæla þá voru fylgismenn Sjálfstæðisflokksins og þeir vissu sem var að spillingin myndi ná völdum á ný.
Venjulegt vinnandi fólk skilur ekki svona og fer og mótmælir þegar því finnst á því troðið.
Barnalegt? Kannski. En hvaða leiðir eru færar gegn spillingu á lokastigi?
Hversu langt á að ganga í skattlagningu fyrir tónlistarmenn?
Skattlagning á
háhraðatengingar?
Það má kannski minna á að skattur á óskrifaðan geisladisk er 17 kr. og 50 kr. fyrir DVD sem rennur
óskiptur til Stef.
Þannig að í framtíðinni borgarðu til Stef þegar þú vafrar um vefinn og skrifar fjölskyldu myndirnar á diska, en átt samt von á því að sjá ljótt smettið á Magnúsi Kjartans kvarta og kveina yfir því hvað tónlistarfólk hefur það skítt.
Á meðan skeinir hann sig á þúsundköllunum sem eru
aldrei borgaðir út til þeirra sem eiga þá.
Hvernig má það vera að þeir sem komast í borgarstjórn með fæstu atkvæðin fá mestu völdin? Fyrst framsóknar plebbinn þarna og nú Ólafur F.
Fyrsti "meirihlutinn" á þessu kjörtímabili var ekki einu sinni með meirihluta atkvæða. Hversu amerískt er það.
Við viljum nýjar kosningar! Á meðan þessir valdasjúklingar berjast um hæsta stólinn
drabbast borgin niður án þess að nokkuð sé að gert. Hvað er ég að fá fyrir fasteignagjöldin mín og útsvarið? Ég vil meira en að borga biðlaun endalausra raða af óhæfum borgarstjórum.
Mér er skapi næst að leigja skítadreifara, bakka honum inn í andyri ráðhússins og tæma hann yfir þetta skítapakk.
Rykfallin íbúð - rykfallin vefur
Ritað þann: 18. janúar 2008
Efnisflokkar: íbúðamál
grettir.net er að rykfalla þessa dagana. Ekki bara vegna dræmra skrifa, heldur í orðsins fyllstu merkingu, því við erum búin að rífa allt parket af íbúðinni, rífa niður einn vegg, taka alla ofna í burtu og innbyggðan fataskáp á ganginum.
Serverinn sem hýsir grettir.net hefur ekki farið varhluta af breytingunum og er byrjaður að rykfalla inni í geymslu.
Eldhúsinnréttingin kom á mánudaginn eins og um var samið. Okkur minnti að hún ætti ekki að koma fyrr en í byrjun næstu viku, en það var ekki.
Óhætt er að mæla með HTH innréttingum hvað þetta varðar. Og alla þjónustu í kringum teikningar og slíkt. Allt hefur staðið eins og um var samið og frábær þjónusta í alla staði.
Um helgina ætlum við að reyna að klára allar lagnir, rafmagn og pípulagnir. Í næstu viku verður svo flotað yfir allt og þá getum við hafið spartl og málningarvinnu, uppsetningu eldhúss og parketlagnir.
Þetta verður eins og nýtt á eftir.
Við erum á fullu í endurbótum á íbúðinni okkar þessa dagana, því okkur vantar eitt barnaherbergi.
Með jólaskrautinu fékk parket að fjúka, eldhúsinnrétting og næstir verða gömlu pottofnarnir.
Næsta mál á dagskrá er að jafna hæðina á gólfinu og leggja hita í gólfið áður en nýja parketið verður sett á. Svo verður eldhúsið í sameinuðu rými borðstofu og stofu.
Ég hlakka til þegar þetta er búið.
Syfjandi vinna
Ritað þann: 07. janúar 2008
Efnisflokkar: fyndið vinnan
Það munaði engu að ég sofnaði í vinnunni í dag.
Ég var á fyrirlestri og þegar mig var farið að syfja all óheyrilega stoppaði fyrirlesarinn til að sýna smá demó.
Neðst í Power Point stóð að við værum stödd í glæru 21 af 312
Ég vissi ekki að það væri leyfilegt að búa til svona langt slideshow. Power Point ætti að stoppa mann af.
Hvítur Subaru YF-099
Ritað þann: 03. janúar 2008
Efnisflokkar: líðandi stund
Ég er nýbyrjaður að vinna fyrir viðskiptavin sem er með skrifstofu við Stórhöfða. Hérna er lítið af bílastæðum og hef ég tekið eftir því að einn hvítur Subaru station með númer YF-099 hefur staðið hér í nokkrar vikur.
Ef þú hefur týnt Subaru eða veist um einhvern sem saknar slíkrar bifreiðar, þá er hann hérna á bakvið Stórhöfða 27.
Árið 2007 var ljómandi gott á mínu heimili.
Það byrjaði með mánaðar fæðingarorlofi í tilefni af fæðingu dóttur minnar. Næstu mánuðir í kjölfarið fóru að mestu í bleyjuskipti og aðra umönnun, enda var ég í hálfu starfi til 1. júní.
Á vordögum byggði ég pall fyrir utan stofugluggann okkar og er hann sérlega vel heppnaður. Hann fauk í það minnsta ekki í óveðrinu sem geisaði í desember og er það vel.
Ég varð 32 á árinu og fékk við það tilefni fjarstýrðan bensínbíl í afmælisgjöf frá spúsu minni. Þar rættist gamall draumur enda hefur mig lengi langað í slíkt tæki.
Í sumar seldi ég litlu íbúðina mína á Framnesvegi. Í sumar varð ég líka brúnn, enda var sól og blíða obbann af sumrinu. Ég gaf konu minni reiðhjól þegar hún útskrifaðist sem þroskaþjálfi um miðjan júní og nýttum við þann ferðamáta talsvert í sumarblíðunni.
Á haustmánuðum endurnýjuðum við fjölskyldubílinn og fengum okkur svartan BMW 540. Það er eitursvalur bíll.
Við keyptum okkur líka nýja eldhúsinnréttingu, sem kemur eftir 2 vikur. Um næstu helgi stendur til að byrja á breytingum sem fela það í sér að rífa þá gömlu úr og færa eldhúsið inn í stofu ásamt því að gera stórt gat á einn vegg og leggja nýtt parket.
Jólin voru einkar heimilisleg og kósý, en annað árið í röð vorum við heima og héldum okkar eigin jól með hamborgarahrygg, kalkúnabringu og piparkökuhúsi (sem er svo svalt að það ætti að fá verðlaun). Á aðfangadag bað ég konuna mína að giftast mér. Og það sem meira er, hún sagði já.
Árið 2008 verður því brúðkaup.
Gleðilegt ár öll sömul og takk fyrir það gamla.