1 til 9 af 9

Veriði bless

Ritað þann:    24. janúar 2005
Efnisflokkar:  djamm  ferðalög  

Nice í fyrramálið, vinn þar í tvo daga og svo er það bara Ríó á fimmtudaginn. Fokk hvað ég er komið með góða ræpu af spenningi.

Tékklistinn:
Myndavél - checked
Hleðslutæki og minniskort - checked
Sandalar - checked
Rakvél - checked
Tannbursti - checked
Tannkrem og þannig drasl - checked
Vellyktandi - checked
20 næríur - checked
Sundskýla - checked
Allir bolirnir - checked
Abs - checked
Kúka fyrir flug - fyrramálið klukkan hálf sex
Vegabréf - checked
Greiðslunóta fyrir hótelið - checked
Útprentun af e-miðanum - checked
Bók fyrir flugið - checked
Góða skapið - checked - checked - checked

Ég á ekki von á því að ég nenni að leita uppi netkaffi, svo .. ég kem bara á klakann 14. febrúar.

...
- grettir :: Brazilia baby !!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 25. janúar 2005 ( Lilja ) [H]
Góða ferð! :o)


 25. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
góða ferð gæskur... passaðu þig bara á brasilísku stelpunum/strákunum... og mundu eftir óförum rauða dýrsins!


 25. janúar 2005 ( Ingvar J. ) [H]
Spurning hvort Rauður ætti ekki að gefa út ferðabók sem héti: "Það sem maður lendir ekki í"


 25. janúar 2005 ( majae ) [H]
öss. ég sé um nágrannann. ágætt að þú farir, ætla að ganga fram af honum nkomandi fös.kvöld. verður ekki vitni að því :D


 25. janúar 2005 ( gisill ) [H]
Thad verdur nú ekki ónýtt ad dansa salsa fram undir morgun og liggja á Copa Cabana á daginn med thetta líka fína útsýni allt í kring, ha! Fann annars thennan link med ferdasøgu og myndum frá Brasilíu:
http://www.mikeinbrazil.com/main.htm?id=drotis
Góda ferd...


 25. janúar 2005 ( ægir ) [H]
damn you dude.
Hafðu annars kick ass time
og maður heimtar myndakveld í feb að sýna allar fínu myndirnar
Eg geri ráð fyrir að myndatakan verði svipuð og á spáni


 26. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Takk fyrir það krakkar mínir :-)
majae, haltu nú myndarlegt partý, hehe.. fylgist kannski með íbúðinni minni á meðan ég er úti. Maður vill nú ekki láta ræna fermingargræjunum.


 26. janúar 2005 ( Dagný Ásta ) [H]
Góða ferð & Góða skemmtun!!!!


 26. janúar 2005 ( Una ) [H]
Bon voyage!


 26. janúar 2005 ( Ramage ) [H]
Grettir ég bið þig, passaðu þig á honum Mike.
Þetta er forljótur gæi, ég held þú getur gert betur!
Bahahahaa


 26. janúar 2005 ( Halla ) [H]
ég mæti á myndakvöldið en nennni ekki að skoða myndirnar ef þær verða eins og frá spáni :p
Gott djamm


 26. janúar 2005 ( sandra björk ) [H]
Góða ferð ;)


Bjór og krabbamein

Ritað þann:    21. janúar 2005
Efnisflokkar:  bjór  fréttir  fyndið  

Þennan link sá ég á b2.is

Bjór virðist geta komið í veg fyrir krabbamein. Sjálfsfróun kemur víst í veg fyrir blöðruhálskrabba, svo er verið að segja manni að maður eigi að hanga bara á barnum og rúnka sér?

...
- grettir :: ég er game!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

Rafmagnað vegabréf

Ritað þann:    19. janúar 2005
Efnisflokkar:  ferðalög  

Ég fór um daginn og endurnýjaði vegabréfið mitt, því það rennur út í maí. Sum lönd eru ferlega ströng á því að hleypa manni inn ef vegabréfið er alveg að renna út, enda gætu þau setið uppi með mann.
Allavega, ég var orðinn frekar seinn og þetta tekur 10 daga, svo ég ætlaði bara að sækja um það, en eiga það gamla ef hitt væri nú ekki komið þegar ég fer í næstu viku.
Sú rússneska hjá Útlendingastofu var nú ekkert að tvínóna við hlutina.

Ég: Verður það ekki pottþétt komið þann 25. jan?

Hún: Jú! og setti það beint í gatarann.

Ég er í djúpum ef það kemur ekki á föstudaginn, því þá verð ég kyrrsettur í London þann 27. Ég hugsa nú að Frakkarnir hleypi mér nú til Nice þann 25. enda alltaf með rauðvín í blóðinu og nokkuð Bonsjour. Öðru máli gegnir um Breta sem gera fátt annað en að taka fólk í sparigatið.

...
- grettir :: vegabréf smegabréf

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 19. janúar 2005 ( gellinhell ) [H]
get huggað þig, hef mikla reynslu af vegabréfaútgáfunni og tímasetninginn hefur aldrei klikkað hjá þeim


 19. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Þá tek ég gleði mína á ný :-)


 20. janúar 2005 ( Brynja ) [H]
Hvaða lúkk ertu kominn með á síðuna strákur? Þetta er eins og tíminn var í gamla daga, Tíminn meina ég...


 20. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, hvaða hvaða. Þú getur valið hérna http://www.grettir.net/?what=templates
Líf og fjör.


 20. janúar 2005 ( Ramage ) [H]
Verð að viðurkenna að það fór líka í taugarnar á mér.
Nú er þetta miklu betra.
P.S. Hvað með einn joke?


 20. janúar 2005 ( Óli Fly ) [H]
brrrraaaaannnndddaaa aarrraaaaa!!!!!!!


 20. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Einu sinni voru tvær appelsínur að labba meðfram á, þegar önnur þeirra rúllar út í ánna.
Þá kallar hin á eftir henni: "Fljót, fljót, skerðu þig í báta!"


 21. janúar 2005 ( Ramage ) [H]
Ahh.. bjargaðir deginum.


Öndun

Ritað þann:    15. janúar 2005
Efnisflokkar:  bjór  íbúðamál  klám  nöldur  vinnan  

Var að skila stóru verkefni af mér í vinnunni í gær og get nú andað, loksins. Búinn að mæta hálf átta alla vikuna til að klára prófanir og laga bögga og hef verið að vinna langt frameftir.
Það var því mjööög góður bjórinn sem ég fékk mér í gær - mig er einnig búið að hlakka til alla vikuna að fá loksins að sofa hressilega út. Hvað gerir granninn þá þegar hann kemur heim? Byrjar að spila á gítar klukkan fjögur í nótt.

For crying out loud, ef þú ferð á djammið og kemur einn heim, þá ferðu að rúnka þér. Ekki spila á gítar. Hefði ég átt buffhamar, þá hefði ég farið upp og buffað hann.

...
- grettir :: 12 dagar í Ríó. Ég ætla að skilja gítarsóló eftir á repeat á meðan ég er úti.

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 15. janúar 2005 ( majae ) [H]
úff, fegin að ég var ekki heima, hefði örugglega rætt við hann aftur !!!

annars skal ég lána þér buff-hamar í svona klemmum.


 16. janúar 2005 ( Birna ) [H]
Pfffft I say


 16. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, kannski best ég sendi þig bara í buff leiðangur. Held að hann sé skíthræddur við þig Majae.


 16. janúar 2005 ( Lilja ) [H]
Hahahahahhahahahahaha!!


Andlát

Ritað þann:    12. janúar 2005
Efnisflokkar:  ég  fyndið  kjánalegt  

Rafmagnstannburstinn minn er látinn. Því hef ég neyðst til að taka upp gamaldagsaðferðir við tannhirðu og hreyfa gamaldags tannbursta fram og tilbaka með handafli.
Byrjaði ekki vel, því svo mikill var hamagangurinn við fyrstu burstun að ég dró kvikindið of langt út úr mér og rak hann síðan af alefli í góminn.
Prísa mig sælan að hafa ekki brotið framtönn eins og forðum daga þegar ég hljóp á badmintonstöng.

...
- grettir :: falskar?

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 13. janúar 2005 ( TannÖnd ) [H]
Bara að fá þér nýjann áður en þú hreinsar út alllt stellið


 13. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Ég held það. Rafmagn er málið!


 13. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
stórfiskaleikur með tannbursta gæti verið skemmtileg íþróttagrein... alveg eins og sunddartið sem við fundum upp hér um árið!


 13. janúar 2005 ( Rugli ) [H]
Ha, hvurnig er það með þig einhleypann manninn á Framnesveginum, ertu ekki vanur þessum taktföstu hreyfingum sem hin gamaldags handburstun er?


 13. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Aha, þar kemur kannski skýringin af hverju ég dró tannburstann alla leiðina út úr kjammanum. Upphandleggurinn er ekki vanur svona stuttum hreyfingum!


 16. janúar 2005 ( Lilja ) [H]
Hljópstu á badmintonstöng?

Stórfiskaleikur með tannursta og sunddart hljómar skemmtilega :Þ


Ég býð mig fram

Ritað þann:    12. janúar 2005
Efnisflokkar:  fréttir  klám  

Titanic gaurinn ekki að standa sig í stykkinu.
Ég er að spá í að bjóða mig fram.. ætli það endi ekki á að maður fari til Brazilíu og losi smá barnaefni handa aumingja Gisele. Eftir 15 daga kannski?

...
- grettir :: það væri nú margt leiðinlegra

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 16. janúar 2005 ( Lilja ) [H]
Þetta er góð setning: "Sagðist hann halda að samband þeirra væri svo gott af því að þau væru mjög góðir vinir."


 16. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Immitt, veit greinilega ekki mikið í sinn haus.


Er að skríða saman

Ritað þann:    11. janúar 2005
Efnisflokkar:  djamm  ferðalög  skandall  

Helgin var með eindæmum skemmtileg. Halla vinkona bauð í afmæli á lau. þar sem ég hitti fólk sem ég hef ekki séð lengi og líka splunkunýtt fólk. Sem er alltaf gaman.
Þurfti að fara frekar snemma þar sem búið var að plana hitting hjá okkur Ríó förunum sama kvöld. Ákveðið var að hita allhressilega upp með drykkjuleikjum. Eftir það man ég eitthvað lítið. Man að ég var inni á Celtic Cross, rámar í að hafa dansað þar, gott ef ég var ekki að reyna við einhverja kvensu þar líka - vaknaði svo bara heima hjá mér, óháttaður - einn. Nóta í veskinu segir að ég hafi komið við á Hlölla, en samt var ég að deyja úr hungri.

En ég er nú eitthvað að braggast, sér í lagi þegar ég fékk þær fréttir að ég yrði líklega sendur til Nice (Nís) í Frakklandi á næstu dögum. Það verður auðvitað afbragð, enda Nice sérlega nice.

...
- grettir :: vodkaskot, no more

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 11. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
nice er sérlega áhugaverður staður... sólbaðaði mig þar í sumar og svo var túrað þar í "brýrnar brenndar" túrnum okkar rauða... get bent þér á eðalgóðan ölstað og fleira gotterí...


 12. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Er eitthvað úber heitt þarna núna? Það er reyndar allt skárra en þessi norðan blástur sem hrjáir okkur á skerinu þessa dagana.


 13. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
nei ekkert úber heitt... en samt þannig að þú getur skilið skíðahúfuna eftir heima :)


600 kall forgörðum

Ritað þann:    06. janúar 2005
Efnisflokkar:  líðandi stund  peningar  

Hefði betur sleppt þessum víkingalottó miða í gær. Einhver prump Dani sem hirti allan pottinn. Það mætti segja mér að hann væri ligeglad í dag, enda getur hann keypt sér tæplega 900 þúsund bjóra á íslensku verðlagi fyrir vinninginn.

...
- grettir :: 420 mills! Hefði maður verið til í það?!

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 06. janúar 2005 ( LottóÖnd ) [H]
Þarf ekki bara að fórna eins og einum dana á altari lottósins ?



 06. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Maður hefði betur gert það :-)


 06. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
djöh... þetta er nú rúmlega fyrir Ríóferðinni!


 07. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Ég hefði boðið þér hr ölves, engin spurning.


 10. janúar 2005 ( Heiðrún Sig. ) [H]
Vildi bara segja takk fyrir síðast! :-) Þetta var skemmtilegt kvöld og fékk mann til að hlakka mikið til Rio.


 10. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Þetta var svaka stuð og ég botna ekkert í því hvernig ég komst heim! Drykkjuleikirnir hans Finns eru alveg að virka.


Nú verður tekið á því

Ritað þann:    03. janúar 2005
Efnisflokkar:  bmw-inn  djamm  ferðalög  íþróttir  

Munaði engu að ég og systa yrðum veðurteppt fyrir austan á gamlárskvöld, þar sem við snæddum dýrindis steik hjá foreldrunum. Textavarpið sagði "Ófært" en við túlkuðum það sem svo að það væri ófært að hanga fyrir austan þetta kvöldið og böðluðumst yfir fjallið í gegnum blindbyl, snjó og hávaðarok. Hver þarf jeppa þegar BMW-inn fer allt?

Skaupið var snilld! Fyndnustu atriðin voru án efa Orkuveitu grínin ( peningakast siðblindra stóð uppúr ) og skotin á Kristján Jóhannsson. Ég emjaði úr hlátri.

Búinn að vera extra duglegur í ræktinni þetta haustið vegna komandi Ríó ferðar (25 dagar í gleðina!). Vantar samt herslumuninn upp á að vera æði svo ég pantaði mér einkaþjálfun í janúar og byrja í dag. Verð því líklega með harðsperrur á háalvarlegu stigi á morgunn.
Í febrúar verður svo lagst í óhollustu fram á vor. Get líklega ekki látið skyr inn fyrir mínar varir fyrr en þá.

...
- grettir :: koma svo þarna fjandans six-pack, I know you're in there.. somewhere

Athugasemdir ekki leyfðar lengur á þessa færslu vegna elli..

 03. janúar 2005 ( Ramage ) [H]
Færð six-pack í Ríkinu fyrir minni pening en í Gymminu.


 03. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Hehe, rétt!


 05. janúar 2005 ( albin ) [H]
Tek undir það, peningakastið var magnað.
Annars er ég svo mikil smásál, að mér fannst nú innlit útlit grínið nokkuð gott, sérstaklega "Ég keypti íbúðina óséða"


 05. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Hahah, já. Snilldin við þetta skaup einmitt var að fá bara alvöru fólkið til að gera smá grín.
Björgvin Halldórs var nokkuð góður: "Hundrað kall! Veistu hver ég var?"


 05. janúar 2005 ( gisill ) [H]
Hvad segirdu er six-packid eitthvad ad láta bída eftir sér:) Mitt er vandlega falid á bakvid 10 daga ofáti á øllu thví sem ekki fæst í danmørku, eda svona fimm auka kíló af allskyns gódgæti og svo ødrum óthverra. Helvíti ad láta thig ekki rótbursta mig í tíu kílómetra hlaupi. Hefdi væntanlega thurft ad stoppa og æla, thví ég var alltaf med belginn fullan:)


 05. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Já við beiluðum á því, alltof mikið að gera í vinnunni núna, er að reyna að vinna af mér hálfan mánuð í febrúar sjáðu.


 06. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
iss þið þorðuð þessu bara ekki... og ég sem var tilbúinn með einameðtómatsinnepog steiktumsinnepundiro gofan og kaldan öl...


 06. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
damn, ég hefði alveg viljað eina pullu!


 06. janúar 2005 ( gisill ) [H]
Já djøfull ad missa af pullunni og bjór. Vid hlaupum bara næst thegar ég kem og vonandi endurnýjar hr. Ølves gulrótina. Annars hafdi ég gaman ad hitta brædur thína, Óttar og Hjalta í koníaksstofunni hjá Júlíusi um áramótin. Hann líkist thér ansi mikid sá yngsti, allavega sømu taktarnir:)


 06. janúar 2005 ( - grettir ) [H]
Já, hann er líkur mér kallinn. Enda hress :-)


 06. janúar 2005 ( Hjalti ) [H]
hehe, Alltaf hressir við bræður.. Vantaði bara tvö stykki og þá hefði orðið partyveislufjör!


 06. janúar 2005 ( hr ölves ) [H]
já ég sá að þú sendir staðgengil í koníaksstofuna hjá Júlíusi... þetta var svona yngra módel af gretti sem þarna mætti...